Tíminn - 31.03.1965, Qupperneq 2
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 31. marz 19C5
Þriðjudagur, 30. marz.
NTB — Kaupmannahöfn. —
Danska þjóðþingið samþykkti
í dag fjárlög fyrír árið 1965—
‘66. 150 þingmenn af 179
greiddu atkvæði með fjárlög
unum, enginn greiddi atkvæði
á móti, en Sosíalistisk Folke-
partl og Óháðir greiddu ekki
atkvæði. Fjárlögin eru fyrir
fjárhagsárið, sem byrjar 1.
apríl í ár.
NTB-Karlsruhe. — Frú Hildi
gard Helbig vltnaði í dag gegn
manni sínum, Erich Helbig sem
er ákærður fyrir njósnir, en
þau eru nú skilin að borði og
sæng. Helbig, sem var skrif
stofustjóri í vestur-þýzka for-
sætisráðuneytinu í tíð Aden-
auers, er ákærður fyrir að
hafa njósnað í þágu ónafn-
greinds ríkis í Austur-Evrópu
um árabil. Kona hans sagði í
réttinum í dag að hann hefði
oft fengið send peningabréf
en hún vissi ekki frá hverjum
þau voru, og hún sagði einnig
frá ýmsu öðru grunsamlegu í
fari hans. Helbig, sem er 53
ára, grét í réttinum, þegar
kona hans vitnaði gegn honum.
I Hann telur að hér sé um að
ræða eins konar hefndarráð.
stöfun af hendi konunnar, sem
sagði, að hann hefðl rætt um
að flytja til Austur-Þýzkalands.
NTB-Stokkhólmi. — Lögreglan
í Gautaborg hefur komizt yfir
mesta magn af marijuana, sem
nokkru sinni hefur fundizt í
Svíþjóð, eða alls þrjú kíló. Fjór
ir menn hafa verið handteknir
fyrir að hafa smyglað eitur-
lyfjum þessum frá Marokkó,
þrjá stúdenta og einn rithöfund
Þeir greiddu um 66 þúsund ísl.
krónur fyrir þessi þrjú kg. í
Marokkó, en hefðu getað selt
eiturlyfin fyrir tugi þúsunda í
Svíþjóð. Um leið handtók lög
reglan ungan mann með 7000
narkotikatöflur, sem hann
reyndi að selja á götu í Gauta
borg. Hann keypti þær á Spáni
fyrir lítið verð, en hefði getað
selt þær fyrir um 100 þúsund
krónur ísl. í Svíþjóð. Virðist
Svíþjóð vera orðin eins konar
miðstöð fyrir eiturlyfjasmygl,
og hefur lögreglan beðið ríkis
stjórnina um leyfi til þess að
láta fara fram allsherjar rann
sókn á smygli, sölu og neyzlu
eiturlyfja í Svíþjóð.
NTB-Saigon. — 12 manns létu
lífið, þegar sprengja sprakk fyr
ir utan sendiráð Bandaríkjanna
í Saigon í dag. 10 hinna látnu
voru Suðurvíetnemar en tveir
BatwJaríkjamenn, þar af ein
kona. 150 særðust, þar á mfeð
al aðstoðarsendiherrann, Alex-
is Johnson. Er talið, að styrk-
leiki sprengjunnar hafi verið
90—113 kg. TNT. Hervörður
hefur mjög verið styrktur við
öll bandarísk mannvirki og
herbækistöðvar í Suður-Víet-
nam og bandarískir leiðtogar
þar hafa fengið lífverði. Talið
er í Saigon, að Bandaríkjamenn
muni hefna þessa atburðar með
víðtækum loftárásum á Norður
Víetnam.
Sökuð um
48 lögbrot
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
f morgun hófst í sakadómi
Reykjavíkur málflutningur í máli
ákæruvaldsins gegn nokkrum
forsvarsmönnum Eimskipaféiags
Reykjavíkur, en rannsókn í mál
inu hófst 16. marz 1961, og var
þá gerð húsrannsúkn á skrifstof
um fyrirtækisins, og einum aðal-
forsvarsmanni þess. Reis mál
þetta vegna gruns gjaldeyriseftir
litsins um að ekki væri allt
með felldu hvað varðaði gjald-
eyrisskýrslur fyrirtækisins, og
einnig skrifaði einn af fyrrverandi
starfsmönnum þess til dómsmáia
AB-bók um Kína
Reykjavík, þriðjudag.
Eilefta bókin í bókaflokknum
Lönd og þjóðir, sem Almenna
bókafélagið gefur út, barst blað
inu. í dag og er um Kína. Þýðing
una gerði Sigurður A. Magnússon.
Höfundurinn er Loren Fessler.
Kína-bókin fjallar að upphafi
um forna sögu og einstæðan menn
Framhald á 14. síðu
ráðuneytisins, og benti á misferli
í rekstri Eimskipafélagsins Reykja
víkur. Þegar farið var að rann
saka bókhald og rekstur fyrir-
tækisins kom í ljós að innheimt
höfðu verið of há fargjöld hjá
farmeigendum, vanrækt hafði ver
ið að standa skil á gjaldeyri vegna
afgreiðslu erlendra skipa hér við
land, gefnar höfðu verið rangar
gjaldeyrisskýrslur vegna bygginga
kostnaðar m. s. Öskju, og van-
rækt hafði verið að gefa gjaldeyr
iseftirlitinu réttar skýrslur um
margskonar flutninga til landsins.
Er mál þetta mjög umfangsmikið,
svo sem sjá má af því að mál-
flutningi var hvergi nærri lokið í
dag. Um er að ræða 48 brot, gjald
eyrisbrot og bókhaldsbrot.
Þórður Bjömsson yfirsakadóm
ari hefur haft rannsóknina með
höndum frá upphafi, og situr hann
í dómarasæti nú. Sækjandi af
hálfu ákæruvaldsins er Jónatan
Þórmundsson fulltrúi saksóknara
ríkisins, en verjendur eru hæsta-
réttarlögmennimir Guðmundur
Ásmundsson, Egill Sigurgeirsson
og Ragnar Jónsson.
Jón og ein mynda hans af hafinu.
Sýnir málverk
af sjó og landi
GB-Reykjavík, þriðjudagur.
Fyrir helgina opnaði Jón Gunn
arsson frá Hafnarfirði málverka
sýmingu í Bogasal Þjóðminjasafns
!ins, sýnir hann 20 olíumyndir af
Myndin er af Brian Holt fulltrúa í brezka sendiráðinu, Wallace Clark,
Anglíu og Má Elíassyni.
Þorsteini Hannessyni formanni
(Tfmamynd KJ..)
HELDUR FYRIRLESTUR HÉR
FB—Reykjavík, þriðjudag
Hér á landi er nú staddur írinn
Wallace Clark, sem árið 1963
stjórnaði siglingu 13 manna frá
r Derry í írlandi til Iona í Skot
| landi. Ferð þessi var.farin til
minningar um heilagan Colomba,
sem árið 563 fór þessa leið með
12 munkum sínum, og \ar ætlun
þeirra að boða trú í Skotlandi.
Ferðin sem Clark stjórnaði var
Umræðufundur um
stóriðju og er-
lent fiármagr
Stúdentafélag Reykjavíkur og
Stúdentaráð Háskóla íslands efna
til almenns umræðufundar um
stóriðju og erlent fjármagn ann
að kvöid, fimmtudagskvöld að
Hótel Borg. Hefst fundurinn kl.
8.15. Framsögumenn á fundin-
um verða ritstjórarnir Magnús
Kjartansson og Eyjólfur Konráð
Jónsson Fundarstjóri verður dr.
Gunnar G. Schram, ritstjóri. Á
eftir framsöguerindum verða
frjálsar umræður. Er líklegt, að
marga muni fýsa að hlýða á þess
ar umræður Stóriðjumálir hafa
verið ofarlega á baugi að undan
förnu og líklegt að akvarðanir
verði teknar í málinu áður en
langt um líður Öllum er heimill
aðgangur að fundi þessum.
hrein eftirlíking á ferð Heilags
Colomba, bátur var smíðaður sem
líkastur þeim báti, sem dýrðlingur
inn hafði notið, og mennirnir 13,
sem tóku þátt í þessari minningar
siglingu voru klæddir á sama
hátt og munkarnir voru endur
fyrir löngu-
Clark er einn af_ færustu sport
siglingamönnum í írlandi og varð
hann því fyrir valinu sem stjórn
| andi þessarar minningarsiglingar.
Nú er hann nýkominn frá Banda
ríkjunum og Kanada, þar sem
! hann hefur haldið sex fyrirlestra
i um siglingu þessa, og er ætlunin,
|að hann haldi fyrirlestur hér á
! morgun miðvikudag, klukkan hálf
I sex í fyrstu kennslustofu Háskól-
i ans, og sýnir einnig litskugga-
i myndir. Hér er Clark á vegum
i Anglíu. \
landi o*g sjó, og hafa hlnar síðar
nefndu þó vinninginn.
Það er engin tilviljun, að Jóni
sé hugleikið að mála úfið haf og
menn með sjóhatta og hendur
fram úr ermum á þilfari eða lút
andi út yfir borðstokk, því að
Jón var ekki kominn langt yfir
fermingu, þegar hann fór fyrst
til sjós og var síðan mörg ár á
togurum, líkt og sveitungi hans,
Sveinn Björnsson, en síðar létu
þeir loks undan þeirri köllun að
verja öllum tómstundum til að tjá
hug sinn með pentskúf á léreftið.
Þegar Jón afmunstraðist af tog-
aranum, gekk hann í Handíða- og
myndlistarskólann og var þar tvo
vetur við nám, Jón lagði árar í
bát hvað sjómennskuna snertir,
þótt hugurinn hvarfli löngum
þangað, en síðar tók hann að
læra prentmyndagerð, eins og ann
ar sveitungi hans og kollega í
myndlistinni, Eiríkur Smith, og
eru þeir raunar vinnufélagar í
sömu prentmyndagerðinni hér í
borg. Og þeir og fimm aðrir hafn
firzkir málarar héldu samsýningu
þar syðra í fyrra. Þar opnaði hann
og sína fyrstu sýnihgu fyrir fjór-
um árum, en hefur nokkrum sinn
um átt myndir á samsýningum hér
í borg.
Sýning Jóns í Bogasalnum verð
ur opin daglega kl. 2—10 síð-
degis til sunnudagskvölds 4. apríl.
Daginn, sem sýningin var opnuð,
seldist helmingur myndanna, og
eru nú tólf myndir seldar.
f
FRAMSÓKNARVIST í SÚLNASAL
Framsóknarvist verður í
Súlnasalnum í Hótel Sögu á
fimmtudaginn, 1. apríi. Þetta
er þriðja kvöldið i þriggja
kvölda keppninni, en auk verð
launa, sem veitt verða fyrir
hæsta samanlagðan slagafjölda
þessi þrjú kvöld, verða veitt
sjálfstæð verðlaun þeim sem
beztum árangri ná þetta eina
kvöld. Að framsóknarvistinni
lokinni flytur séra Sigurður
Haukur Guðjónsson ávarp. Þá
koma þær Áshildur Emilsdótt
ir og Björg Ingadóttir fram
með nýjan skemmtiþátt, undir
leikari er Jón Sig’urðsson. Að
lokúm verður stiginn dans-
Hljómsveit Svavars Gests leik-
ur undir, söngvarar Ellý Vil-
hjálms og Ragnar Bjarnason.
Stjórnandi Frams-vistarinnar
verður sem fyrr Markús Stef-
ánsson. Húsinu verður lo'kað
kí. 20-30. Áríðandi er að sækja
miðapantanir í dag þar sem
nær uppselt er á vistina.
Björg
Áshildur
J