Alþýðublaðið - 12.06.1957, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 12.06.1957, Blaðsíða 9
Vliðvikudagur 12. júní 1957 -*~**mi*r- AlþýSublagjg .Iþrótyír) Cíþrottir ) Cíþróttír) Cíþróttxr) ( ÍÞRO TTIRv Knattspyrnan: TVEIR leikir hafa þegar far-! ið fram í 2. deild Knattspyrnu- móts íslands. En meginþátttaka' í deildinni er af Suðvesturlandi m.a. frá Vestmannaeyjum, Keflavík, Sandgerði, Kópavogs kaupstað og Reykjavík. En tvö Reykjavíkurfélaganna hafa fall íð niður í deildina svo sem kunn ugt er, Þróttur og Víkingur, og' hafa bæði sjálfsagt fullan hug á að komast úpp aftur. Af Vest- urlandi mun aðeins vera um ísfirðinga að ræða, en þeir kepptu til úrslita á s.l. ári svo sem muna má, við Hafnfirðinga, sem báru sigur úr bítum eftir fjörugan leik og fluttist upp í I. deild, þar sem þeir á þessu voru hafa komið skemmtilega á óvart með getu sinni. Hafa þeir gert jafntefli við Akureyr- inga og Akurnesingum tókst að- eins að sigra þá naumlega með 1 marki. , •—o— Fvrsti leikur 2. deildar fór fram s.l. mánudagskvöld milli Víkings og Keflvíkinga. Á s.l. ári gaf frammistaða Kefivík- inga ástæðu til að vona, að af þeirra hálfu mvndi sjást skemmtilegur leikur. En því miður brást sú von í þessum leik, því eftir honum að dæma hefur þeim farið aftur frá því í fyrra. Þá brá fyrir hjá þeim fjörlegum og oft allgóðum stutt um samleik og góðum skotum á mark, sem lítt sást af nú, en því meira af langspyrnum útí foláinn. sem oftast höfnuðu hjá mótherjum. Leikur Víkingsliðsins var með svipuðu .marki brenndur. Langsendingar, sem sendu knöttinn í ferð án fyrirheits, með þessari leikaðferð, ef að- ferð getur kallazt, eiga bæði þessi lið langt í land áður en þau ná höfn í I. deild. Leikar stóðu jafnir án marks, þar til tvær eða þrjár mínútur lifðu leiktímans, en þá tókst Keflvíkingum að skora þetta eina mark. sem pert var. en bað gerði v. úth. Áður höfðu Kefl- víkingar fengið vítaspvrnu en markvörður varði. Víkingar Séku 10 allan seinni háifleik- iinn. en ímuar bakvörður þeirra varð að víkja af yellinum vegna I meiðsla, sem beíur fór revnd- ust þó ekki alvarleg. Ólafs [markvarðar síns geta Víkingar ekki notið, vegna veikinda, er það liði Yíkings mikill hnekkir, þar sem Ólafur er, svo sem kunnugt er einn bezti mark- vörður okkar nú, enda marga hildi háð og jafnan vígreifur. Keflvíkingar mega þakka sig- ur sinn meira tilviljun en eig- in getu. Með fullri tölu Vík- ingsliðsins allan leikinn og Ól- af í markinu hefðu vissulega getað brugðið til beggja vona um úrslitin. Magnús Pétursson dæmdi leikinn vel, en vítaspyrnudóm- urinn var á mörkum hins rétta og ranga, enda fór um fram- kvæmd hans eftir því. —o— Annar leikurinn fór svo fram s.l. miðvikudagskvöld, aftur var Víkingur í eldinum og Þrótt ur, bæði Reykjavíkurfélögin, sem í deildinni eru. Þessi leikur var allur mun betur leikinn en sá fyrri, til- raunir til samleiks voru gerð- ar og tókst oft allvel um stutt- ar og ákveðnar sendingar milli samherja. Bæði liðin áttu tæki- færi á mark, hvað eftir annað, en brást herfilega upp við mark ið. Fyrri hálfleik lauk með sigri Víkings, er skoraði á síðustu mínútu, með allgóðu lágu skoti. Varnarleikmenn Þróttar byrgðu markverði sýn, og sá hann því ekki til knattarins fyrr en í óefni var komið. Það var h. inn- herji Víkings sem skoraði, en hann átti allgóðan leik og er lipur leikmaður. í seinni hálf- leiknum kvittuðu Þróttur á 30. mínútu, það var miðherjinn, sem gerði markið upp úr góðu áhlaupi. — Nokkru síðar skoraði svo Bill útvörður sigurmarkið með loftsendingu af alllöngu Særi. Víkingar urðu að skipta um markvörð seint í hálfleiknum, vegna meiðsla, þó ekki alvarlegra. Þó að leikur þessi hafi verið betri en sá fyrri, segir það í sjálfu sér ekki mik- ið, en víst er um það að bæði þessi lið geta gert betur, en þau gerðu að þessu sinni og því þá ekki að gera það? Helgi Helga- son dæmdi leikinn óaðfinnan- lega. E.B. Þróttur sigrar Breiðablik með 1:0. ÞÓ ekki færi mikið fyrir Scnattleikni Þróttar og U. M. F. Breiðablik frá Kópavogi, í II. deildar leik þeirra s.l, föstudags kvöid, þá bættu hin furðleg- ústu atvik og hendingar í leikn uim það upp að nokkru, til þess að gera áhorfendunum sannar- lega glatt í geði. Heppnin og til viljunin gekk svo eindreegið í lið með flokki yngsta kaupstað- ar landsins í keppninni, að við foorð lá að Þróttur, sem orðið á keppnisvönu liði á að skipa, gæfi upp alla von, um sigur yf- ír nýgræðingunum, og yrði að láta sér nægja jafntefli. En til þess kom. þó ekki, því á síð- ustu minútu leiksins tókst loks v. innherja Þróarr, Guðmundi Axelssyni, að skora þetta eina mark, sem gert var. Bæði áttu liðin fleira en eitt marktækifæri, svo að hefðu þau öll nýzt mætti ætla að Þróttur hefði sigrað með að minnsta kosti 6 mörkum gegn 2. En hvers virði eru „næstum mörk“ í kappleik? Geta Þróttar umfram Breiða blik í þessum leik var einkum fólginn í því að hann var keppn isvanari. Enda mun þetta vera í fyrsta sinni sem Kópavqgur sendir lið til keppni í knatt- spyrnumóti. Tveir leikmenn báru þar af, markvörðurinn sem varði oft af mikilli prýði og átti einkar örugg úthlaup og góðar staðar staðsetningar, svo að v. úth. sem sýndi ágætan leik og góða knattmeðferð. Lið Þróttar var skipað líkum hætti og undanfarið. Það náði ekki þeim tökum á leiknum, sem þó hefði mátt búast við í viðureign við ekki keppnisvan- ari menn en þarna voru 4 móti. Því tókst ekki að nýta þau tæki færi sem gáfust og að gagni kærni. Heppnin var hliðholl mót herjunum, eins og þegar fast markskot reið af frá einum Þróttarmanna, en annar hljóp fyrir knöttinn, sem stefndi í op ið markið, og bægði hættunni þar með frá. Öðru sinni skutu Þróttarmenn, sem oftar á mark ið, markvörður hljóp út en missti knöttinn, en bakverði, Ár manni Lárussyni, tókst að ná til hans á síðustu stundu og spyrnti hann fast og í aðra marksúluna og hrökk knöttur- inn frá. Yfirleitt mátti segja að hvernig sem Þróttarar skutu til marks, kom ætíð eitthvað fyrir á síðasta augnabliki, sem varð til þess að bægja hættunni frá. Hliðarnet markanna, eink- um þó í síðari hálfleiknum. urðu oft óþyrmilega fyrir hörð um þkotum Þróttara. Tví- eða þrívegis munaði mjóu að Breið blikungar ekki skoruðu, tvíveg is upp úr góðri sókn, á vinstri væng og ágætari sendingu fyr ir frá Árna Kristmundssyni v. úth, og eitt sinni eftir horn- spyrnu, en knötturinn kom svo óvænt í skotmál fyrir h. inn- herja að hann glataði tækifær- inu, upplögðu, fáa faðm^ frá opnu marki. Leik- og baráttugleði Kópa- vogsliðsins var' (\víræð ^llan tímann. Þeir mega líka vel við una úrslitin. Þeir áttu við keppnisvana menn að etja en létu hvergi hlut sinn börð- ust af dugnaði til leiksloka. Með bættri aðbúð og aðstöðu heima fyrir og auknum æfingum koma þeir vígreifari og sóknharðari til orustunnar síðar. Lið Breiðabliks var þannig skipað í þessum fyrsta leik þess í II. deild Knattspyrnumóts ís- lands: Gunnlaugur Sigurgeirsson, Ármann Lárusson, Ingi Guð- mundsson, Baldur Sigurgeirs- son, Hilmar Bjarnason, Þor- steinn Steingrímsson, Gretar Kristjánsson, Friðbjörn Guð- mundsson, Magnús Tryggvason, Sigmundur Eiríksson og Árni Kristmundsson. B e i r u t Framhald af 5. síðu. eigi að síður. Gull er hér ber- sýnilega talið öruggari spari- sjóður en bankainnistæður og hlutabréf — og gullinu liggur maður á sjálfur. Pólitískir jarð- skjálftar geta gert bæði banka- innistæður og hlutabréf verð- laus, en gullið blífur. En við slíkum jarðskjálftum er hætt í arabalöndunum. Willumsensafnið Framhald af 4. síðu. og þetta framhjá sér fara. Það er fljótfarið til Friðrikssunds og hefur miklu minni útgjöld í för með sér en kvöldlöng bjóx’- drykkja á Den röde Pimpemel, trúðaskemmtun í Tívoli eða munurínn á borðhaldi í Fras- cati og Kvindernes alkoholfrie restauranter. Eg skal sannar- lega ekki hneykslast á því, að aðkomufólk geri sér dagamun í kóngsins Kaupmannahöfn. En íslendingar eiga að gefa gaum að þeim fögru listum og þeirri menningu andans, sem Dan- mörk hefur upp á að bjóða. Willumsensafnið í Friðriks- NEMENDASAMBAND MENNTASKÓLANS í REYKJAVÍK. Hinn árlegi stúdentafagnaður nemendasambands- ins verður að tlótel Borg sunnudaginn 16. júní og hefst með borðhaldi kl. 6,30 síðdegis. Aðgöngumiðar seldir að Hótel Borg (suðurdyr) föstud. 14. júní kl. 5—7 og laugardaginn 15. júní kl. 2—4. Pantaðir aðgöngumiðar sækist á föstúdag. Auglýsing. Öll brunatryggingafélögin hér a landi hafa athugað tjónareynslu sína á innbúi í hinum ýmsu byggingaflokkum íbúðarhúsa, og þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til eldsvarna víðs vegar um landið. Með tilliti til þessara athugana hafa félögin ákveðið brunatryggingataxta fyrir INNBÚ í STEINHÚSUM frá 1%„ til 2.1 JL og í TIMBURHÚSUM frá 2.75þc tii 5.35%0. Á sama hátt hafa verið ákveðin iðgjöld fyrir heimil- istryggingar, en miðað við kr. 100.000.00 tryggingafjár- hæð eru iðgiöldin í STEINHÚSUM frá kr. 300.00 til kr. 325.00 og í TIMBURIiÚSUM frá kr. 475.00 til 635.00. Brunatryggingafélögin á íslandi. Auglýsing um lausar lögregluþjónsstöður í Kópavogi. Tvær lögregluþjónsstöður í Kópavogi eru lausar til umsóknar. Laun annars lögreglumannsins verða sanikvæmt launalögum, en hins í samræmi við launakjör bæjarlögreglumanna í Reykjavík. Aðrar upplýsingar um starfskjör eru veittar á skrifstofu minni og þar eru afhent umsóknareyðu- blöð. Umsóknarfrestur er til 15. júlí næstk. LÖGREGLUSTJÓRINN í KÓPAVOGI, 6. júní 1957. sundi er vissulega af því tæi. Munið það, góðir hálsar, og sjón verður sögu ríkari. Mér ferst ekki að ætla að gera mig digran, en að loknum heim sóknunum tveimur til Frið- rikssunds hef ég velþóknun á þeim mönnum, sem telja J. F. Willumsen . snjallasta málara Norðurlanda — eftir Edvard Munch. Kaupmannahöfn 29. maí 1957» Helgi Sæmundsson. tt'Cr’Ct-it'it'Cr'&'CrHt Cr Ct Ct 'Ci if ÚTBREIÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐÍÐÍ ****éé-£f-a:ii'!l***w*a

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.