Alþýðublaðið - 12.06.1957, Blaðsíða 11
MiÖvikudagur 12. júní 1957
11
AlfrýgubfaSife
M'AF'WAS Ff.R.'B't
y r
3. VIKA.
Uppreisn konunnar
Frönsk ítölsk stónnynd,
3 heim.sfrsegir leiksijórar:
Pagíiero.
Delánney — og
Gliristia'i-Jaque.
ðiðálhiutverk:
'í stórar stjörnur:
Eleonora Rossi - Diágo
Claudette Coiberl
Maríine Carol
Micheie Margan
Sýnd klukkan 9.
Myndin hefur ekki verið sýnd áður hér á landi.
Danskur texti. •— Bönnuð börnum.
Lady Godiva
Spennandi amerísk mvnd. — Sýnd kl. 7.
Fra’.xihakl af 6. síSu.
Ég þakka öllum, og fleirum
en nefndír hafá verið, gott sam-
starf við mig og sín á milli, því
hér hafa margir borið saman
ráð sín, og þó náðst heildarblær
í samræmi við það sem fyrir
var, og á var að byggja.
Altarið stendur nú frjálst frá
.vegg og fyllir vel út í hið mikla
kórrúm. Altaristaflan og hinn
ungi, hvíti Kristur, sem lækn-
a-r og opnar augu mannanna, er
nútímaverk og þó með kirkju-
legum erfðablæ. Mér hefur fáll-
I-g hún því betur, þessi tafía,
sem ég hef séð hana oftar, og
vona, að svo verði fleirum. Hér
nýtur hún sín fyrst til fulls.
Milli spala í grátunum er fanga
mark Jesú Krists í umgerð sól-
arinnar og tólf geislar postul-
anna út í frá. Til beggja handa
eru hin fjögur sögulegu tákn
guðspjallamannanna, engillinn,
Ijónið, nautið og örninn, sem
í flestu svaira til vorra eigin
lanclvætta. Á altarisklæði er
. Kriststáknið, endurtekið, og á
Wiðarskápnum tákn kvöldmál-
• tíSarinnar annarsvegar og hins-
. vegar tákn ríkis, máttar og dýrð
,ar.
Af hinum átta steindu rúðum,
þá ei'ú .tvær í kór úr guðspjalla-
sögunni, María Guðsmóðir og
Fjallræðan. En efni hinna sex
er úr Ilristnisögu vors eigin
lands, þr jár úr kíitþólskurn sið
landsýn hinna írsku munka,
papanna, Þorgeir Ljósvetninga-
goði við Kristnitökuna,, og Jón
lArason, píslarvottur þjóðar
og trúar. Úr- Lútherskum sið
Guðbrandur Hólabiskup, hinn
mikli atorku og siðabötamaður,
með biblíu sína, síra Hallgrím-
ur, eitt mesta sálmaskáld kristn
innar, þótt fáir viti né skilji,
sem ekki kunna íslenzku, og
meistari Jón með postillu sína,
sem lesin var á flestum heimil-
um í tvær aldir, en nú er niður
lögð vegna stóryrða, sem ekki
viðgangast lengur í trúarefnum,
þó nothæf þyki á sumum öðr-
um sviðum.
Það var af ráðið að ein per-
scna skyldi vera höfuðatriði
hvers glugga, og láta mikil-
menni íslandssögu ganga fyrir
G-amla testamentinu. Táknmál
myndanna er ekki til tími að
rekja, en andlit eru mjög vel
gerð, bæði þau sem byggð eru
á söguheimild, og hin sem getið
er til um. Litir eru Sterkir og
lýsandi, og fer vel í djúpum
gluggakistum, svo mér finnst
þegar, að þessir gluggar hljóti
alltaf að hafa verið í kirkjunni.
En svo er og um altaristöfluna,
að það er líkt og örlög, að eiga
völ á mynd, þar sem öll hlut-
föll falla svo vel við stóran og
eríiðan bakgrunn.
Ég tetla mér ekki að kveða
neina allsherjardóma, en vil að-
eins láta í ljósi þakklæti yfir
því, að framkvæmd er öll eins
cg vonir stóðu bezt til. Breyt-
ing á altari fylgir það. að hið
ágæta krossmark og Kristslík-
an Ríharðar Jónssonar hefur
verið ílutt á miðian langvegg
kirkjunnar, og á, eins. og áðui",
ríkan þátt í að setja svip á
þetta guðshós. O.g það cr ckki
óheppileg röð, að byrja á suð-
urvegg, þar som h.in unga móðir
María hampar barni sínu, og
lá-ta sjónina svífa til altarisins,
þar sem Kristur læknar, — og
hin illu öfl, til beggja handa,
eru nánast á leið út úr ramm-
anum, þar næst til Fjallræðunn
ar, og síðast til Krossins á Gol-
gata. Síra Ilallgrímur sómir sér
þar vel milli krossins og kenn-
ingarinnar.
Og að lokum nokkur orð. —
Kirkjur virðast hafa verið vel
búnar og skre.yttar hér á landi
fram á 16. öld, enda vegnaði
þjóðinni þá betur. Góðir gripir
entust illa í raka og kulda, og
kirkjur voru rúnar, sumpart
undir því yfirskini að skurð-
goðádýrkun bæri að forðast.
Margt góðra gripa mun hafa
verið reitt hingað til Bessastaða,
sem var kóngsgarður, frá
klaustrum og víðar að, en nú
sér þess engan stað. Og skurð-
goðahætta starfar jafnvel síður
frá góðum listaverkum en
skrælnuðum kennisetningum,
sem ekki ná lengur til þess, sem
þær áttu að tjá. Það er margt
í trúarefnum sem betur næst
til í Ijóði, litum og helgum tákn
um. Vér höfum verið orðsins
menn, íslendingar, og heima-
fenginn fjöðurstafur og kálf-
skinn beint gáfum og hæfileik-
um í eina átt. Kjörviður var hér
fágætur, steinn ýmist of gljúp-
ur eða harður, og litir fágætir
nema í landslagi. En nú eru
nýir tímar mikilla möguleika.
og varanlegt byggingarefni
leyfir góða geymd. Minnumst
þess, að kristnin hefur verið
þess umkomin á undanförnum
öldum, að skapa göfuga list í
litum, tónum og föstu efni. Vér
erum arfsmáir í þessu tilliti, en
nú er komið að oss, og efna-
menn og ,,hið opinbera“, sem
kallað er, á að sjá fyrir stórum
viðfangsefnum í húsasmíð, högg
myndum, litmyndum og hvers
konar menning, sem hæfileikar
eru til að skapa.
Mér þykir vænt um að við
getum nú opnað kirkjuna aftur
á sumarhátíð kristninnar, og
hún mun standa öllum opin,
sem hingað leggja leið sína —
ekki sízt á messutíma. Við höf-
um náð áfanga, sem við gleðj-
vimst yfir — en verkinu mun
haldið áfram, — þó minnugir
þess sem Salomon sagði við
musterisvígsluna: „Sjá himinn
og himnanna himnar taka þig
ekki, hve miklu síður þá þetta
hús.“
Að svo mæltu býð ég yður —
og öllum landslýð, gleðilega
hátíð!
5KIPAUTGCRB RIKiSiNS
Tekið á móti flutningi til
Hvammsfjarðar- og Gils-
fjarðai'hafna árdegis á
morgun.
í flestura stórborgum við helztu gatnamót og á
fjölförnum strætum fylgist SÓLARI-klukkan
með tímanum og birtir vegfarendum vikudag,
klukkustund og mínútur.
Klukkan sýnir á ljósan hátt hvað tímanum líður
og birtir auk þess auglýsingar frá ýmsum fyrir-
tækjum. Hver auglýsing birtist 20 sinnum á
klukkustund.
í Reykjavík er SOLARI-klukkan á
Söluturninum við Arnarhól.
Þ»eir sem ©Iga leið um Hverfis-
götu vita hvaö tfuiaiium ii§ur.
Tiiboð
óskast í 35 bragga (efnisgeymslur Hitaveitu) í
Öskjuhlíð til niðurrifs og brottflutnings nú þeg-
ar. Verkstjóri í efnisgeymslu Hitaveitunnar, Sæ-
mundur Biarnason, sýnir braggana á staðnum.
Tilboð í einstaka bragga eða alla 1 heild óskast
send skrifstofunni fvrir kl. 16 föstudaginn 14. júní
næstk. og verða þau þá opnuð að viðstöddum
bjóð’endum.
Skiifstofa bæjarvei’kfræðings.
1/. júní
útvegum stærri og' smærri hljómsveitir til að leika
17. júní. — Aðilar utan Reykjavíkur hafi sam-
band við' okkur hið fyrsta. — Sími 7885.
Fé!cj«' ísL
rá húsnæðismála-
Húsnæðismálastjórn vill héi’ með alvarlega vara við aug-
lýsingum og áróðri fyrir óreyndum byggingarháttum,
nema jafnframt fylgi viðurkenning byggingaryfirvalda
um, að hús,-. sem-þannig eru smíðuð, uppfylli fyllstu
kröfur byggingarsamþykkta og íslenzkra staðhátta.
Aðvörun þessi er auglýst í tilefni af því, að nokkur
hús hafa ekki reynst veðhæf fyrir lánum frá húsnæðis-
málastjórn, vegna ófullnægjandi byggingarlags og frá-
gangs.
Reykjavík, 5. júní 1957,
Húsnæðisinálastjórn.
Dóxnari: Þorláltur Þóröarson. L-muverðir: Sveinn Helgason og Grétar Noröfjörð.
Mótanefíidin.