Alþýðublaðið - 14.06.1957, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 14.06.1957, Blaðsíða 4
I íöstudagur 14. júní 1957. Alþýgub»a»lg EITT af síðustu málunum, sem alþingi afgreiddi, Var stjórnarfrumvarp um skemmtanaskatt ofl., þar sem meðal annars er gert ráð fyrir, að hagnaður af rekstri viðtækjaverzlunar ríkisins renni næstu 5 ár til að greiða byggingaskuldir þjóðleikhússins og halla sinfóníuhljóm- sveitarinnar. í umræðum um þetta mál flutti Benedikt Gröndal, formaður útvarpsráðs, athyglisverða ræðu, þar sem hann mótmælti þessu atriði og benti á, að mjög illa væri að útvarpinu búið, én fé tekið af hlustendum til að byggja yfir aðrar stofnanir. Þá gerði Benedikt fyrstu til- raun til að fá alþingi til að styðja undirbúning sjónvarps á Islandi með því að lögfesta, að ágóði af sölu sjónvarps- tækja skuli, þegar þar að kemur, renna til sjónvarpsins sjáifs. Þessi tillaga var kolfelld og kom þar fram furðu- legt skilningsleysi þingmanna ó merk^iegu framtíðaú-: máii. Minnir sinnuleysi þeirra á þá menn, sem einu sinni voru á móti síma. Alþýðublaðið birtir hérmeð ræðu Bene- dikts um þessi efni. flugvéladynur heyrist um land allt í útvarpinu, þegar flugvél flýgur yfir miðbæinn í Reykja- vík? Halda menn að það sé við- unandi útvarpshúsnæði, þar sem hamarshögg blandast fræði legum erindum og ýmiskonar venjulegur húshávaði heyrist í upplestri listaverka? Halda menn að það sé viðunandi hús- næði, þegar útvarpsþulirnir, sem tala til allrar þjóðarinnar á degi hverjum, hafa neyðzt til að kæra til borgarlæknis yfir því húsnæði, sem þeir verða að vinna í? Ég vona, að ekki þurfi frek- ari sannana en þessi fáu dæmi til að sýna mönnum fram á, að ríkisútvarpið þarf nauðsynlega á nýju og betra húsnæði að Benedikt Gröndal: Hvers á ríkisúivarpið að gjald ÉG ER í öllum höfuðatriðum sammála frumvarpi því um skemmtanaskatt og fleira, sem hér er til umræðu. Þó verð ég að undanskilja eitt atriði, bráða birgðaákvæðið um hagnað Við- tækjavrzlunar ríkisins, og vil ég leyfa mér að fara um það nokkrum orðum. Samkvæmt þessu ákvæði á hagnaðurinn af innflutningi og sölu útvarps- tækja næstu 5 ár, að renna að 3/5 hlutum til greiðslu á bygg- ingaskuldum Þjóðleikhússins en að 2/5 til reksturs sinfóníu- hljómsveitarinnar. Er þetta raunar ekki ný ráðstöfun, því tekjuafgangur Viðtækjaverzl- unarinnar hefur síðastliðin sex ár runnið til þess að greiða Þj óðleikhúsbygginguna. Þegar RíkisútvarpiS hóf starfsemi sína fyrir röskum aldarfjórðungi, voru því ætl- aðir tveir tekjustofnar til að standa undir rekstri og nauð- synlegri uppbyggingu stofn- unarinnar. Þetta voru afnota- gjöld hlustenda og hagnaður af innflutningi og sölu útvarps viðtækja. Þessir peningar voru og eru teknir beinlínis af út- varpshlustendum sjálfum, og er því ekki aðeins eðlilegt, að þeir renni beint til starfsemi útvarpsins, heldur óeðlilegt að taka þá til nokkurs annars. MILEJÓNIR TEKNAR AF HLUSTENDUM. Samt fór svo, að annar þess- ara tekjustofna var tekinn af Ríkisútvarpinu. Síðastliðin sex ár hefur hagnaðurinn af sölu útvarpstækja til landsmanna værið notaður til að greiða bygg ingaskuldir Þjóðleikhússins, og hafa á þann hátt verið greiddar 5.658.000 króna frá Viðtækja- verzluninni.Með öðrum orðum: 5,6 milljónir hafa verið teknar af útvarpshlustendum þessa lands til að greiða fyrir þjóð- leikliúsbyggingu. Ástæðan til þess, að horfið var inn á þessa óeðlilegu braut var sú, að rekstur útvarpsins gekk vel og það hefur verið hægt að reka það við þær að- stæður, sem því eru nú búnar, án þessa fjár. Hins vegar er sú aðbúð, sem útvarpsstarfsemin býr við, hörmulega- léleg og Jangt fyrir neðan það, sem sóma samlegt er af menningarþjóð að bjóða slíkri stofnun. Og á sama tírna, sem 5,6 milljónir af fé útvarpshlustenda hafa verið teknar til að byggja leikhús, hefur útvarpinu sjálfu ár eftir ár verið neitað um leyfi til að b.vggja yfir sjálft sig, þótt hús- næðisástand þess sé hörmulegt. Þannig hefur útvarpinu, sem flytur fréttir, fróðleik og Það býr við mjög léleg starfsskilyrði, en fé úfvarpshlustenda er tekið til að byggja yfir aðrar stofnanir! Benedikt Gröndal. skemmtan inn á hvert heimili í landinu, í strjálbýli jafnt sem þéttbýli, verið bannað að byggja yfir sjálft sig — síðan hafa pen ingar þess verið teknir af því til að byggja yfir aðra stofnun. Menn kunna að halda, að ég ýki húsnæðisvandræði útvarps ins, en svo er vissulega ekki. Halda háttvirtir alþingismenn, sem sjálfsagt eru flestir útvarps hlustendur, að það sé gott hús- næði fyrir útvarpsstöð, þar sem halda. Teikningar að framtíðar- byggingu hafa verið tilbúnar í tíu ár, umsóknir hafa verið send Ilar ár eftir ár, en alltaf neitað. Og svo eru peningar útvarps- j hlustenda, sem eiga að bæta úr j þessu ástandi, teknir og notað- ir til að greiða byggingaskuldir annara stofnana. HLUSTUNARSKILYÐI Á AUSTURLANDI. Ég hef hér nefnt fyrst og fremst húsnæðisvandræði út- varpsins í sambandi við þetta fé, en það eru fleiri verkefni, sem bíða úrlausnar hjá stofn- uninni. Eitt hinna alvarlegustu er sú staðreynd, að hlustendur í heilum landsfjórðung heyra mjög illa til útvarpsins, og er það í raun og veru gersamlega óviðunandi. Það hefur margt verið reynt til að bæta úr þessu með því fé, sem fyrir hendi hef- ur verið, en engan veginn tek- izt að leysa vandann. En mig grunar, að fyrir þá peninga, sem teknir hafa verið af við- tækjaverzluninni síðustu sex ár hefði mátt reisa eina mjög sterka útvarpsstöð tiL dæmis á Ilornafirði og ná þannig örugg- Iega inn í alla afkima Austfjarð anna. Frumvarp það, sem hér er til umræðu, er stjórnarfrumvarp, og geri ég mér ekki vonir um, að ákvæðum þess um ráðstöfun Framhald á 8. síðu. KVIKMYNDAFRETTIR SAMKVÆMT opinberri ikýrslu, er nýlega var birt í Ilollywood, fram'l iddu bandarísk kvikmyndafélög 296 kvikmyndir á árinu 1956. U þessara kvikmynda voru teknar erlendis. Árið 1955 i'oru framleiddar samtals 286 kvikmyndir í Bandaríkj- inurn. James Poe, sem ásamt seim S. J. Perelman og John Farrow samdi kvikmynda- handritið að myndinni „A- round the World in 80 Days“, ;em hlaut Oscarverðlaunin ;em „bezta mynd ársins L956“ mun semja kvikmynda handrit að myndinni „Cat On a Hot Tin Roof“, er bygg- ist á samnefndu leikriti eft- ir Tennessee Williams. Pan- dro S. Berman mun fram- leiða kvikmyndina fyrir Metro-Goldwyn-Mayer félag ið. —o— Rita Hayworth, sem verið hefur burtu frá Hollywood um nokkurra ára skeið mun nú Ieika í kvikmyndinni „Pal Joey“. Aðrir leikendur í myndinni verða Kim Novak og Frank Sinatra. George Sidney mun stjórna töku myndarinnar, sem tekin verð ur í litum. —o— Maurice Chevalier mun fara með hlutverk frændans íslenzk og erlend úrvalsl]éS ■■ ATLANTIS effir Síein Sfeinarr SVO siglum við áfram í auðn og nótt. Og þögn hins liðna læðist hljótt frá manni til manns, eins og saltstorkinn svipur hins sokkna lands í auðn og nótt. Svo rísa úr auðninni atvik gleymd: Einn lokkandi hlátur, eitt létt stigið spor. Var það hér, sem við mættumst í mjúku grasi einn morgun í vor? Og við horfðum í sortann óferskum augum eitt andartak hljótt. Svo siglum við fram hjá. Áfram, áfram í auðn og nótt. S s s s s s s s s s s s s s V s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s $ s s s s s s «■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ !■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ <■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■• ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■B ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■• ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•'’ ■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■ ....................... F Ö N D U R ....................... !■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■• ■ ^ ■ » !■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■( *■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■ ■ ■■■■>■■■■■:''■■■■■■■■■*■■■■■■■*■ •■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■) ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■• ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■t ÞEGAR nú öll vorverkin eru að hefjast, er eitt þeirra, er mest kallar oft að að mála húsið utan. Til þess þarf stiga og er hreint ekki óþekkt fyrir- brigði að menn vari sig ekki á, er þeir fara niður úr honum, að þeir séu komnir á neðstu tröppu, en þegar svo er hrökkva þeir stundum, við, er þeir stíga á jörðina, og hrasa. Mörgum kann að finnast þetta allundar leg' byrjun, en raunveruleikinn er, að fjöldi slysa hefur hlotizt einmitt af þessari óaðgæzlu við það að fara niður úr stiga. Til að koma í veg fyrir þetta er ágætt að skera af slöngu bút, sem er jafnlangur heðstu rim- inni og rista hann síðan að endi- löngu og láta hann utanum hana. Þegar stigið er í hana er það aðvörunarmerki um, að stiginn sé á enda. Þó að gaman sé að veggfóðra barnaherbergið með hverskonar stórrósóttu veggfóðri, þá er enn frumlegra að mála alls konar myndir á veggi þess með litum þeim, er afgangs verða, þegar það er málað. Þetta er gert á þann hátt, að þegar það er málað, verða oft- ast afgangs ýmsir litir, sem not aðir hafa verið á lista og hurðir, í söng- og gamanmyndinni „Gigi“, sem byggð er á skáld sögu eftir Colette. Hljómlist o texti eru eftir Alan Jay Lerner og Frederick Loewe. Framleiðandi myndarinnar, sem gerð verður á vegum Metro-Goldwyn-Maver fé- lagsins, er Arthur Freed. Kvíkmyndatakan fer að mestu fram í Frakklandi. en eru þá oft aðrir en vegglit- irnir. Með þeim eru barnalegar myndir málaðar á pappír, síðan klipptar út og festar á veggina með veggfóðurslími. Þannig er auðvelt að fjarlægja þær á ný næst þegar mála á herbergið, enda skemmtilegt að skipta þá um myndir. Þar sem við leyfum okkur að telja frímerkjasöfnun föndur (Hobby) er ekki úr vegi að minnast hér lítið eitt á það helzta, sem í vændum er á því sviði. Ballonflug stendur fyrir dyr- um á næsta flugdegi og má telja vafalaust, að rnarga fýsi að eignast loftbréf þau, er þá verða send upp með ballon þeim, er hingað kemur og fer upp í háloftin með 2000 bréf innanborðs. Það verður hollenzkt par, er fef upp með balloninum og munu þau vonandi lenda á þurru landi að flugi loknu, ann ars kunna bréfin að skemmast. Þarna er um að ræða umslög, sem kannski ekki vekja svo mik inn áhuga innlendra safnara, en því fleiri erlendir safnarar hafa áhuga fyrir að eignast þau og verða þessi 2000 áreiðanlega ekki til að fullnægja þeirri eft- irspurn, er mun myndast. Þetta var snjallt uppátæki hjá íslenzku póststjórninni og mun án vafa verða til þess að margir blessa hana fyrir vikið. Umslagasöfnun er lítt þekkt fyrirbæri hér á landi, en á áreiðanlega mikla framtíð fyrir sér. Það er því ekki úr vegi að hefja hana með því að kaupa hin nýju ballonumslög og reyna síðan að ná í ýms önnur ís- lenzk sérumslög, sem verða sennilega brátt torfengin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.