Alþýðublaðið - 14.06.1957, Side 6

Alþýðublaðið - 14.06.1957, Side 6
Föstudagur 14. júní 1957. . Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Eitstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastj óri: Emilía Samúelsdóttir. Éitstjórnarsímar: 4901 og 4902. Auglýsingasími 4906. Afgreiðslusími:- 4900. Frentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgðtu »—10. Morgunhlaðið hrœtt ÝMSUM þótti kveða nokk uð við annan tón um kaup- gjaldsmál í Morgunblaðinu í fyrradag en menn hafa átt að venjast undanfarnar vik- ur. Er það nú komið á dag- inn, sem oft hefur verið á minnzt hér í blaðinu, að þær Morgunblaðshetjurnar muni fyrr en síðar hræðast sín eig- in glópskuverk í sambandi við verkf allsæsingar og kaup streitur. Nú þykjast þeir heið ursmenn hvergi nærri hafa komið, þeir séu algerlega sak lausir af því að hafa æst til verkfalla og kjaradeilna. Þeir hafi einmitt alltaf vilj- að tryggja kaupmátt laun- anna. Ekki er svo sem að spyrja að blessuðu sakleys- inu! Rétt er að gefa lesendum blaðsins kost á að kynnast þessum nýkenningum Morg- unblaðsins, svo þeir geti sjálf ir borið þær saman við stað- reyndir. Upphaf forustu- greinarinnar í fyrradag er svona: „Stefna Sjálfstæðisflokks- ins í kaupgj aldsmálum hef- ur jafnan verið sú, að laun- þegar ættu að hafa eins hátt kaup og framleiðsla þjóðar- innar og atvinnutæki gætu borið, miðað við heilbrigðan rekstrargrundvöil, stöðuga atvinnu og atvinnuöryggi. — Jafnhliða hefur flokkurinn varað við kauphækku n um, sem ekki væru innan þess- ara takmarka. Hann hefur ekki hikað við að benda þjóð inni á, að kauphækkanir, sem ekki samrýmdust raun- verulegri greiðslugetu at- vinnuveganna og útflutn- ingsframleiðslunnar væru launþegum ekki til gagns. I þeim fælist ekki kjarabót heldur gæti þvert á móti fal- izt í þeim geigvænleg kjara- skerðing.“ Svo mörg voru þau orð. Sjálfsagt hefur verkalýður landsins ýmislegt um þessa stefnuyfirlýsingu Sjálfstæð- isflokksins að segja, ef hann léti sig hana einhverju skipta. En hann tekur stefnu yfirlýsingar Sjálfstæðis- flokksins um kaupgjaldsmál ekki hátíðlega, það hefur reynslan kennt honum. Sannleikurinn er líka sá, að ef þetta hefði verið stefna Sjálfstæðisflokksins og stuðningsmanna hans undanfarna áratugi, hefði aldrei komið til verkfalla né kjaradeilna. Kjaradeilur eru um skiptingu þjóðar- tekna. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur aldrei viljað Ijá máls á réttlátri skiptingu þess fjár, sem aflað er í þjóðarbúið, heldur hefur hann jafnan haldið fram réttri fárra útvaldra, en bor ið rétt fjöldans fyrir borð. Því hefur verkalýður lands ins löngum oi-ðið að standa í kaupdeilum og verkföll- um við Sjálfstæðisflokkinn og fylgismenn hans. Þessar staoðreyndir eru öllum þorra manna ljósar. Það er og staðreynd að Morg uriblaðið tók á þessu ári að æsa til verkfalla og kaup- deilna, vegna þess að það var í andstöðu við ríkisstjórnina. Það er staðreynd, að þannig hóf blaðið og ráðamenn þess skipulagða skemmdarstarf- semi gegn atvinnuvegum landsins. Það er staðreynd, að hér var ekki um baráttu fyrir hag verkalýðsins að ræða. Og það er staðreynd, að Morgunblaðið hefur fall- ið á sjálfs sín bragði. Nú er Morgunblaðið hrætt. Það hræðist sína eigin fylg- ismenn, sem margir hverjir fyrirlíta sjúklega þáttinn í aölmóði þess gegn ríkisstjórn inni. Tilvitnunin, sem birt er hér að framan, vitnar ljós- lega um þessa hræðslu skrif- finna blaðsins. En menn skyldu gjalda varhug við svona skrifum. Um raunveru lega hugarfarsbreytingu er áreiðanlega ekki að ræða. Útsvörin í Reykjavík í MORGURBLAÐINU í gær er örlítið minnzt á út- svarsbyrðarnar í Reykja- vík. Ekki er mælt á móti því, að útsvörin hér séu óeðlilega há, en skýring er fundin á þessu, og er skýringin í fyllsta máta athyglisverð. Blaðið heldur því ákveð- ið fram, að hin háu útsvör í höfuðborginni séu ein- göngu stjórnarvöldum landsins að kenna, bæjar- stjórnin eigi þar enga sök á. Auðvitað þarf ekki að taka það fram, að náttúr- lega er hér fyrst og fremst vegið að stjórnarstefnu Ol- afs Thors. Það er stjórnar- stefnan undanfarið, sem mestu ræður um útsvars- þungann í Reykjavík að dómi Morgunblaðsins. Skyldi formanni Sjálf- stæðisflokksins ekki finnast bað fremur kaldar kveðjur, að honum skuli kennt um öll vandræðin, þegar hans eigið blað er að reyna að bera blak jf bæjarstjórninni? EINN AF foringjum Eista í frelsisuppreisninni gegn rúss- neska zarveldinu 1905, núver- andi forsætisráðherra í eist- nesku útlagastjórninni og hand- hafi íorsetavalds, August Rei, var staddur hér á landi um hvítasunnuna, en hann sr nú 71 árs að aldri. Blaðamönnum var boðið að tala við hann að Hótel Borg. Sagt er að þeir eld- ist seinna, sem lifa tilbreytinga- ríku lífi, og það virðist sannast á Rei. Hann hefur verið bylt- ingaforingi, setið í rússneskum fangelsum, skipulagt eistnesk- ar frelsishersveitir, verið for- seti fyrsta stjórnlagaþings þjóð- ar sinnar, ráðherra og þjóðþings fulltrúi árum saman, sendi- herra í Moskvu, og nú forsæt- isráðherra eistnesku útlaga- stjórnarinnar og handhafi for- setavalds með aðsetri í Stokk- hóími, — og maður gæti ímynd- að sér að hann væri um sextugt, og þó unglegur. Hingað kom dr. Rei frá Kanada og Bandaríkjunum, ásamt ritara sínum, dr. Horm. Hann kvaðst hafa farið þangað í tvenns konar xilgangi. Til þess að tala máli þjóðar sinnar við bandaríska áhrifamenn og áhrifamenn ýmissa þjóða við stofnanir Sameinuðu þjóðanna, minna almenning í Bandaríkj- unum og Kanada á það, að enn væri eistneska heimaþjóðin í rússneskri ánauð og í því skyni efndi hann til fjölda blaða- mannafunda í helztu borgum þar vestra og talaði margsinnis í sjónvarp, — en um leið var ferðin farin til þess að hafa samband við hina mörgu eist- nesku útlaga, sem dveljast víðs vegar um Norður-Ameríku. ÚTLAGASTJÓRN EISTA. Dr. Rei kvað útlagastjórnina ekki starfa á stjórnmálalegum og þ j óðr éttarlegum aðildar- grundvelli sem Eistlendingar þjóðinni og skipulögðum sam- tökum eistneskra útlaga í öll- um löndum. „Baráttunni er sleitulaust haldið áfram, og þegar henni lýkur með sigri, getur lögleg ríkisstjórn tekið aftur völd í Eistlandi. BÁGBORINN EFNAHAGUR. Fyrir atbeina upplýsinga- þjónustunnar kvað dr. Rei vit- að með vissu, hvernig ástatt þúsundir hafa komizt úr landi þegar meginflóttinn átti sér stað, j— urn 23 þúsundir hefðu i sezt að í Svíþjóð, en 8 þúsund | flutzt vestur um haf, flestir til Kanada. Það væri Eistlending- um stolt, að fólk þetta gæti sér hinn bezta orðstír; Svíar teldu Eistlendinga iðna og dugmikla, og hefðu þeir oröið sænsku at- vinnulífi hinn mesti og bezti fengur, og sama væri sagt í ,Braggahverfin“ í höfuðborg Eistlands undir stjórn kommún- ista. Myndinni smyglað úr landi. væri heima fyrir. Efnahagur þjóðarinnar væri bágborinn, lífskjör borgarfólks með öllu óviðunandi og jaðraði við neyð í sveitum. Áherandi væri nið- urníðsla á öllum sviðum; göml- um og fögrum stórbyggingum væri ekki haldið við, bygging- ar, sem hrófað hefði verið upp á síðari árum væru látnar grotna niður áður en þeirn væri að fullu lokið. Öryggi fólks hefði þó heldur aukizt frá því er var á Stalíntímabilinu, — yfirleitt væri þaö ekki numið á brott að heiman um nætur „Truflunarstöð" í Eistlandi, :— slíkum stöð’vum sem borizt heima og heiman gætu byggt á kröfur sínar um endurheimt frelsis og sjálfstæðis, og um leið væru fyrir hendi löglegur um- boðsaðili þjóðarinnar sam- kvæmt stjórnarskrá landsins, sem aldrei hefði afsalað nein- um réttindum hennar. Hins veg ar starfræktu eistnesk iitlaga- samtök upplýsingaþjónustu, sem bæði ynnu að fréttaöflun að heiman og að framgangi sjálf stæðiskrafna frjálsra Eistlena- inga í útlegð til handa heima- ein af þeim fáu myndum af hafa vestur fyrir iárntjald. og hevrðist svo aldrei neitt meira af því, heldur handtekið á daginn og stefnt fyrir rétt til málamynda; endalokin yrðu að vísu söm og áður, en fólk lcynni þó betur við þessa tilhögun. Frelsis- og sjálfstæðisþrá yngri Eistlendinga heima mundi hins vegar aldrei hafa verið jafn sterk og nú. FLESTIR í SVÍÞJÓÐ. Hvað Eistlendinga í útlegð snerti. kvað dr. Rei yfir þrjátíu Kanada. Útlagarnir hefðu og ■ sýnt og sannað umheiminum l lífsþrótt og frjómagn eistneskr- j ar menningar, þar sem hún ætti j við frelsi að búa, meðal þeirra | hefðu komið fram frábærir rit- ; hofundar og listamenn og eist- j neskir fræði- og vísindamenn unnið ágæt afrek við háskóla í Bandaríkjunum, Kanada og víðar. Og starf margra þeirra mun síðar koma frjálsum Eist- lendingum í frjáísu Eistlandi að notum, — til dæmis vinnur oistneskur prófessor við bandar ískan háskóla nú að hið mesta fræðiafrek, sem enn hefur ver- ið unníð á sviði eistneskra mál- vísinda og þannig mætti lengi telja. MYNDIR AÐ HEI.MAN. Dr. Rei sýnir að lokum nokkr ar myndir að heiman, meðal annars frá höfuðborg Eistlands. Hér sátu nokkrir félagar mín- ir í fangelsi 'eftir byltingartil- raunina 1905“, segir hann og bendir á mynd af gömlu, rúss- nesku virkisfangelsi, „sjálfur var ég settur í varðhald, sem bótti víst enn öruggara“, —■ og bað kennir stolts og uppreisn- '’yhita í rödd hins sjötuga garps. .í þéssari'byggingu, forsctabú- staðnum, tók ég á móti konungi Svía. er hann heimsótti Eist- land“. En einkum er það þó þinghúsið og háskólinn, sem virðást vekia stolt og gleði minninganna með dr. Rei, og hvað eftir annað kallar hann höfuðborgina „háskólaborg vora“. „Ógnar- og einræðis- stjórn zarins féll, því að hún bar í sér sitt eigið banamein, rússneska kommúnistaeinræð- ið ber líka í sér sitt eigið bana- mein, — frelsiskúgunina—, sem fyrr eða síðar ríður öllu ein- ræði að fullu“, segir dr. Rei. Hann hefur barizt gegn rúss- neska einræðinu í báðum þess- um myndum. _ _ Ðr. A. Rei, fersætisráSherra í útlagastlörn Eistaí

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.