Alþýðublaðið - 19.07.1957, Blaðsíða 4
Alþýgublagjg
Fösíudagur 19. júlí 1957
Hver er maðurinn?
Á SÍÐASTA alþingi var sam-
þykktur allmikill lagabálkur
um heilsuvernd í skólum. Lög
þessi voru að mestu undirbúin
og samin af skólayfirlækni, en
embætti hans er nýtt á landi
hér. Var Benedikt Tómasson
skipaður í starfið frá 1. sept. í
fyrra.
I lögunum um heilsuvernd í
skólum segir svo um embætti
skólayfirlæknis: „Sérfróður
læknir, skólayfirlæknir lands-
ins, skipaður af heilbrigðismála
ráðherra hefur umsjón með
heilsuvernd í skólum landsins
og stjórnar starfi heilbrigðis-
starfsliðs þess, sem annast hana.
Enn fremur hefur hann eftirlit
með íþróttastarfsemi í landinu
og heilsufari íþróttamanna.11
Þótt hér sé um nýtt embætti að
ræða, eru þó liðin tíu ár síðan
samþykkt var á alþingi að ráða
sérstakan skólayfirlækni. í
fræðslulögunum frá 1946 segir
svo um beilbrigðiseftirlit í skól-
um: „Lækniseftirlit með heil-
brigði skólabarna og kennara
og hollustuháttum skólanna
skal haga eftir reglum, er heil-
brigðismálastjórn setur í sam-
ráði við fræðslumálastjórn.
Skal ráðinn sérfróður læknir,
skólayfirlæknir landsins, er
skipuleggur og hefur yfirum-
sjón ffieð heilbrigðiseftirliti svo
og íþróttastarfsemi." Með stofn
un skólayfirlæknisembættisins
er því í rauninni verið að fram-
kvæma tíu ára gamla samþykkt
algingis. i
Skólayfirlæknirinn nýi,
Benedikt Tómasson, er Eyfirð-
ingur að ætt. Hann er fæddur
6. desember 1909 að Hólum í
Saurbæjarhreppi í Eyjafirði,
sonur hjónanna Tómasar Bene-
diktssonar, bónda og oddvita
þar og síðar á Öldu, og konu
hans, Sigurlínu Einarsdóttur
ijósmóður. Voru þau hjón bæði
Eyfiroingar að ætt. Benedikt
settist í 3. bekk Menntaskólans
á Akureyri tæplega 20 ára gam
all haustið 1929. Hann las 5. og
6. békk á einum vetri og lauk
stúdentsprófi árið 1932. Lækna-
námi lauk hann árið 1938, vann
kandidatsár sitt á Landspítal-
anum, var staðgengill ýmissa
lækna víðs vegar um landið á
næstu misserum og fékk lækn-
ingaleyfi árið 1939. Síðan var
hann við framhaldsnám í tauga-
og geðsjúkdómum á Kleppi í
tæp tvö ár. En þá venti hann
sínu kvæði í kross og gerðist
skólastjóri Flensborgarskólans
í Hafnarfirði haustið 1941.
Benedikt Tómasson fékk ung
ur ábuga á kennslu og skóla-
málum, kenndi töluvert þegar
á menntaskólaárum sínum, og
á há.skólaárunum var hann
stundakennari við Menntaskóla
Akureyrar og Samvinnuskól-
ann. Hann var því síður en svo
óvanur kennslu, þegar hann
varð skólastjóri Flensborgar-
skólans að loknu læknisnámi,
tæpra 32 ára að aldri.
Benedikt Tómasson,
skólayfirlæknir.
Benedikt Tómasson var skóla
stjóri Flensborgarskóla í 14 ár,
eða til ársins 1955, er hann fór
utan til að kynna sér heilsu-
gæzlu í skólum. Skólastjórnin
fór honum prýðilega úr hendi,
hann var ágætur kennari og
kunni góð skil á vandamálum í
kennslu og skólahaldi. Aðal-
kennslugreinar hans voru stærð
fræði og heilsufræði, og hefur
hann samið kennslubækur í báð
um þessum greinum. Kennslu-
bækur hans í heilsufræði eru
þrjár, bæði handa unglingaskól
um og gagnfræðaskólum. Tvær
reikningsbækur handa fram-
haldsskólum samdi hann í sam-
vinnu við aðra. Einnig hefur
hann fengizt töluvert meira við
ritstörf og m.a. þýtt Bernsku-
brek og æskuþrek Churchills
á íslenzku. Er Benedikt ágæta
vel ritfær og mikill smekkmað-
ur á mál og stíl. Hann er Ijóð-
elskur og mikill unnandi góðr-
ar tónlistar. Leikur hann á pí-
anó í frístundum sínum. Hann
' var formaður Tónlistarfélags-
ýns, meðan hann var í Hafnar-
'firði.
Haustið 1955 fór Benedikt
utan sem styrkþegi Alþjóðaheil
brigðismálastofnunarinnar með
meðmælum íslenzku heilbrigð-
isstjórnarinnar, til náms í skóla
heilsufræði og íþróttafræði.
Dvaldist hann um eins árs skeið
í fjórum löndum, þrjá mánuði
í hverju þriggja Norðurland-
anna, Noregi, Danmörku og
Svíþjóð, og fjóra mánuði í Bret
landi. Náminu var yfirleitt hag-
að svo, að Benedikt var á veg-
um skólayfirlæknanna í þess-
um löndum. Hann heimsótti
fjölda skóla og skyldar stofn-
anir og fylgdist með starfi skóla
lækna og skólahjúkrunar-
kvenna. Hann gerði sér far um
að kynnast meðferð nemenda,
sem eitthvað var að, t.d. þeirra,
er sáu og heyrðu illa, eða höfðu
aðra líkamlega ágalla og sjúk-
dóma. Þá kynnti hann sér ekki
síður meðferð andlegra veilla
barna, enda er geðvernd í skól-
um ytra miklu lengra komin en
hér á landi. Þá ræddi hann við
íþróttalækna og kom í íþrótta-
háskóla á Norðurlöndum. Naut
hann hvarvetna í námsför sinni
frábærrar fyrirgreiðslu og skiln
ings heilbrigðis- og skólayfir-
valda.
Benedikt kom heim úr náms-
för sinni í október í fyrra og
byrjaði þá þegar að undirbúa
reglur um heilsuverndarstörf í
skólum. Eins og áður er á
minnzt samdi hann, ásamt land
lækni, frumvarp það um þessi
mál, er samþykkt var á þinginu
í vetur. Síðan hefur hann unn-
ið að því að semja reglugerð
um heilsuverndarstarfið í skól-
um, útbúa skýrslueyðublöð
handa læknum, foreldrum og
kennurum. Má gera ráð fyrir,
að heilsugæzlustarfið í skólum,
samkvæmt hinu nýja kerfi, hefj
ist á næsta skólaári. Mun skóla-
yfirlæknir þá ferðast um til að
skipuleggja starfið og leiðbeina.
Tvennt er það, sem skólayfir-
læknir telur ríka ástæðu til að
auka í íslenzkum skólum. Ann-
að er það, að komið sé á í skól-
unum geðvernd og vandlegri at-
hugun á andlegum veilum nem-
enda, og hitt er, að kennararnir
sjálfir verði miklu virkari þátt-
takendur í heilsugæzlustarfinu
en verið hefur. Hefur hann mik
inn áhuga á að vinna að báðum
þessum þáttum í hinu nýja
starfi sínu.
í vor sat Benedikt þing Al-
þj óðaheilbrigðismálastof nunar
innar um geðvernd í Noregi
og á eftir fór hann til Finnlands
og kynnti sér þar heilsugæzlu
í skólum. Er hann fyrir nokkru
kominn úr þessari för.
Enginn vafi er á því, að það
er mjög mikilsvert, að fyrsti
skólayfirlæknir landsins skuli
sameina það tvennt að vera
prýðilega vel menntaður læknir
og reyndur skólamaður. Bene-
Framhald á 11. síðu.
KVIKMYNDAFRETTIR
FBED MATTER, sá, er
ítjórnaði leiðangrinum, sem
fann upptök Amazónárinnar,
og einn mesti f jallgöngugarp
ur veraldar, mun fara með
hlutverk þýzks Iiðsforingja í
kvikmyndinni „Bitter Victo-
ry“, sem gerð verður á veg-
tim Columbia Pictures. Mynd
in er byggð á skáldsögu eft-
Ir Rene Hardy og segir frá
eyðimerkurhernaði í Afríku
{ síðustu heimsstyrjöld. Aðr-
ír leikarar í myndinni verða
þeir Richard Burton, ástr-
&Iski leikarinn Kurd Jurg-
ens og franski leikarinn Ray-
mond Pellegrin. Stjórnandi
verður Nicholas Ray.
Kvikmyndafélagið Metro-
3oldwyn-Mayer hyggst auka
cvikmyndaframleiðslu sína
im hér um bil 25% á fjár-
aagsárinu 1957—58. Ein af
beim kvikmyndum, sem fé-
iagið sendir frá sér á næst-
unni, heitir „Scapegoat", og
er hún byggð á síðustu skáld
•ögu Daphne Du Maurier.
Verður hún framleidd hjá
Ealing Studio brezku, félagi.
Michael Todd, framleið-
mdi Óskarsverðlaunamynd-
arinnar frá 1956, „Around
Ihe World in 80 Days“, hef-
w tilkynnt, að næsta mynd
kans verði byggð á skáldsögu
Hervantes, „Don Quixote“.
Verður hún kvikmynduð á
Spáni. Kvikmyndahandritið
skrifaði S. J. Perelman, einn
if sviðstjórunum í myndinni
;,Around the World in 80
í)ays“. Cantinflas, hinn frægi
inexikanski gamanleikari,
mun fara með hlutverk San-
co Panza í „Don Quixote“.
Ekki hefur enn verið ákveð-
ið, hver með aðalhlutverkið.
S
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
N
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
V
íslenzk og erlend úrvalsljóg —
eftir Matthías Jochumsson,
Faðir andanna,
frelsi landanna,
Ijós í lýðanna stríði,
sendu oss frelsi,
sundur slít helsi,
líkna stríðandi lýði.
Lýstu heimana,
lífga geimana,
þerrðu trgenda tárin.
Leys oss frá illu,
leið oss úr villu,
lækna lifenda sárin.
Sæ'lu njótandi,
sverðin brjótandi,
faðmist fjarlægir lýðir.
Guðsríki drottni,
dauðans vald þrotni,
komi kærleikans tíðir.
Faðir Ijósanna,
lífsins rósanna,
lýstu landdinu kalda,
vertu oss fáum,
fátækum, smáum,
líkn í lífstríði alda.
S
S
S
s
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
r s
s
s
s
V
s
V
"I
s;
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
BREFAKA5SINN
Stéiar upp i borð
„Herra ritstjóri.
Ég get nú bara ekki orða
bundizt mér ofhasar svo ókurt-
eisi þjónanna á veitingahúsun-
um hér í bænum. Það er alltaf
verið að kvarta undan gisti-
húsaskortinum og ekki að á-
stæðulausu. En hvernig væri að
reyna að reka þessi fáu gisti-
og veitingahús, sem tekizt hef-
ur þó að hrófla upp, svo að
skammlaust sé. Nýlega voru
staddir hér tveir erlendir kunn
ingjar mínir og mér varð það á
að fara með þá á eitt veitinga-
húsið hér í bænum, en það hefði
ég ekki átt að gera, því að gisti-
húsa-„menning“ okkar er sann-
arlega nokkuð, sem er eins gott
að við kynnum ekki útlending-
um. Látum nú vera, að fátt er
til annað en fábreyttustu
,sjússa“-drykkir, og gott má
þykja ef til er ein tegund af
hvítvíni (og þá náttúrlega ekki
nema í heilflöskum), en frum-
skilyrði þess, að gestum líði
sæmilega, er þó að þeim sé
sýnd nokkur tillitssemi og ekki
ókurteisi. Þetta kvöl'd, þegar
greiða átti fyrir veitingar þær,
er við höfðum fengið, hafði ég
ekki smærri pening en fimm
hundruð krónur, en félagar
mínir höfðu ekki íslenzka mynt.
Þjónninn leit á okkur ólundar-
lega og sagðist ekki geta skipt.
Ég sagðist því miður ekki háfa
smærra, og sagði að mér væri
því ómögulegt að greiða með
öðru en þessum seðli. Þjónninn
leit nú enn óvingjarnlegar til
okkar og sagði, að það væri víst
eins gott að gefa gestum veit-
ingarnar eins og að standa í
þrasi við þá! Endirinn varð sá,
að kunningi minn við næsta
borð leysti okkur út. Mér er
sagt að þetta sé ekki einsdæmi,
ég megi þykjast sleppa vel og
þakka það þessum útlending-
um, sem með mér voru, en það
sé helzt að þjónarnir sýni út-
lendingum lipurmennsku og
láti þá til dæmis ganga fyrir
um borð. (Ég gleymdi að geta
þess að þjónninn kunni ekki að
þéra.) Skömmu síðar hætti
dansinn og gestir fóru að tínast
út. Ekki voru þeir fyrr staðnir
upp en til ruku þjónar og
þeyttu stólunum upp á borð.
Þarna sat enn helmingur gesta
og var engu l’íkara en svo lægi
á að ræsta í salnum, að engu
skipti þjónana hvort nokkur
gestur var ennþá í salnum,
fyrst ekki var lengur hægt að
selja þeim brennivin. Ég þarf
náttúrlega ekki að taka það
fram, að kunningjar mínir ráku
upp stór augu yfir aðförum
þessum og hafa þó víða farið
og margt séð á ýmsum stöðum,
sem þykjast ekki vera eins fínn
og þessi á að heita né heldur
eins dýrir.
Jón Jónsson.“