Alþýðublaðið - 19.07.1957, Blaðsíða 8
A 3 þ ýgubíaSlð
Föstudagur 19. júlí 1??57
ATHUGASEMD FRÁ STJÓRN ÍÞRÓTTA-
VALLANNA í REYKJAVÍK.
í TILEFNI fréttar frá mennta
málaráSuneytinu, er lesin var
í útvarpinu föstud. 12. iúlí, þar
sem segir m.a. „ríkissjóour inn-
heimtir engin gjöld af íþrótta-
kappleikjum. Eru þeir t.d. al-
gjöriega undanþegnir skemmt-
anaskatti. Samkv. reglugerð,
sem bœjarstjórn Reykjavíkur
hefur sett, innheimtir stjórn í-
þróttavallanna í Reykjavík hins
vegar 20% gjald af aðgöngu-
miðum allra íþróttakappleikja“,
vill stjórn íþróttavallanna í
Reykjavík taka eftirfarandi
fram:
1. I upphafi var íþróttavöll-
urinn í Reykjavík, er tekinn
var í notkun árið 1911, í eigu
8 íþróttafélaga og innheimtu
þau í vallarleigu 20% af að-
gangseyri.
2. Eftir að íþróttavöllurinn á
Melunuai varð eign Reykjavík-
urbæjar hefur hann jafnan ver-
Ið rekinn sem sjálfstæð stofn-
un, undir sérstjórn, sem að
meirihluta hefur verið skipuð
fulltrúum, tilnefndum af íþrótta
hreyfingunni í bænum, enda
segir svo í fyrstu grein reglu-
gerðar fyrir íþróttasvæðin í
Reykjavík dags. 16. maí 1946:
„íþróttavöllurinn á Melunum
og önnur íþróttasvæði, sem
þessi reglugerð nær til, eru eign
Reykjavíkurbæjar. En bæjar-
stjórn Reykjavíkur hefur feng-
ið íþróttabandalagi Revkjavík-
ur yfirráð yfir þeim. — íþrótta-
svæðunum stjórnar nefnd 5
manna. Kýs íþróttabandalag
Reykjavíkur 3 þeirra, en bæj-
arstjórn 2“.
í þriðju grein sömu reglu-
gerðar er svo tekið fram, að vall
arstjórn ein ákveði um gjald
fyrir notkun vallarins,
Bæjarstjórn hefur því ekki
gefið nein fyrirmæli eða sett
reglugerðarákvæði um að inn-
heimta skuli 20% vallarleigu,
heldur er það vallarstjórn kosin
að meirihluta af heildarsam-
tökum íþróttamanna í Reykja-
vík, sem ákvörðunina hefur
tekið, enda er leigan í samræmi
við fvrri venju, þegar íþrótta-
félögin sjálf áttu völlinn og sáu
algjörlega um rekstur hans og
eru tekjurnar einvörðungu not
aðar í þágu íþróttahreyfingar-
innar.
3. Til þess að fyllstu ná-
kvæmni sé gætt, er rétt að geta
þess, að vallarstjórn innheimt-
ir ekki 20%; af aðgangseyri, held
ur 26%. Þár af rennur 2% í
sérstakan ,y.„ framkvæmdasjóð
Í.B.R.. 4% í síysasjóð íþrótta-
manna og 20% teljast vallax'-
leiga. Vallai’leigunni er varið í
tvennum tilgangi, í beina styrki
til byggingar félagsheimila cg
leikvanga fyrir fyrir íþrótt.afé-
lögin í bænurn og hefur vallar-
stjórn á árunum 1947—1956
veitt eítirtalda styrki í þeim
tilgangi:
Fram ......... kr.
Valur . . .
K.R. ...
Ármann .
U.M.F.R.
Víkingur
Samtals kr
44.000.00
88.800.00
143.200.00
63.500.00
37.500.00
28.000.00
405.000.00, og að
öðrum þætti til reksturs og við-
halds íþróttasvæðanna. Til
þessa hafa tekjur af vallarleigu
þó hvergi nærri hrokkið svo að
undanförnu hefur Reykjavík-
urbær orðið að styrkja rekstur
íþróttasvæðanna með 3.400.000.
00 kr. árlega.
4. Til samanburðar má og
geta þess, að í Noregi mun leiga
af Bislet-vellinum í Osló t.d.
nema allt að 25% af aðgangs-
eyri og í Kaupmannahöfn mun
hún stundum vera hærri.
5. Ekki mun það heldur vera
[ rétt hermt, að íþróttakappleikir
séu hér algjörlega undanþegn-
ir skemmtanaskatti, því að
skemmtanaskattur er hér inn-
heimtur af öllum leikjum, sem
atvinnulið taka þátt í og hefur
þetta ákvæði einmitt orðið til
þess að torvelda heimsóknir
góðra erlendra atvinnuliða til
landsins.'
6. Af framansögðu má það
vera ljóst að leiga af íþrótta-
vellinum í Reykjavík er bæjar-
stjórn og bæjarsjóði með öllu
óháð, heldur er hún gjald, sem
ákvarðast af fulltrúum. íþrótta-
hreyfingarinnar, og tekjustofn,
sem rennur beint til íbrótta-
anna og starfsreksturs íþrótta-
mannvirkja í bænum.
Með þökk fyrir birtinguna.
Stjórn íþróttavallanna í Rvík:
Birgir Kjaran,
Bragi Kristjánsson,
Haraldur Guðmundsson,
Jón Þórðarson,
Ragnar Lárusson.
Yfiriýsing írá Yitinuveifesidðsantbandi
w
1
M A TI N N
íminn er
Nýtt lambakjöt
Bjúgu
Kjötfars
Fiskfars
KaupféEag
Kópavogs
Álfhólsvegi 32
Sími 1-96-45
Trippakjöt,
reykt — saltað og nýtt.
Svið — Bjúgu.
Létt saltað kjöt.
VERZLUNIN
Hamraborg,
Hafnarfirði.
Sími 5-07-10
Hangikjöt, svið, svínakótelettur, svínasteikur, ali-
kálfakjöt í buff og gullaeh, folaldakjöt, saltað,
reykt og í gullach. — Sendum heim.
Kjötbúð Austurbæjar.
Réttarholtsvegi. — Sími 3 - 36 - 82.
Hú&mæður!
Lystaukandi, holl og
fjörefnarík fæða er
Harðfiskur,
borðaður með góðu
smjöri.
Harðfiskur fæst í öllum
matvörubúðum.
Harðfisksalan s.f.
Kjötfars
Vínarpylsur
Bjúgu
Kjötverzl. Búrfeii,
Lindargötu.
Sími 1 - 97 - 50.
óbarínn
VESTFIRZKUR
HARÐFISKUR.
Hilmarsbúö
Njálsgötu 26.
Þórsgötu 15.
Sími 1 - 72 - 67
Folaldakjöt
nýtt, saltað reykt
Reykhúsið
Grettisgötu 50B
Sími 1 - 44 - 67
ími 1 -76-75
SENDUM HEIM.
ALLAR MATVÖRUR.
Reynisbúö
Bræðraborgarstíg 43.
er símanúmer okk-
ar.
Verð, vörur, þjónusta
hvern dag við sérhvers
hæfi.
Búðargerði 10.
Sími 3 - 49 - 99.
SKIPSTJÓRAR kaupskipa-
flotans eiga 1 kjaradeilu og hafa
krafizt hækkunar launa sinna.
Þeir hafa nú greitt atkvæði
uíxj tillögu sáttanefndarinnar og
fellt hana. Einxx skipstjóri
greiddi henni atkvæði, en 18
vdru á móti.
Vélstjórar standa í verkfalli,
og af 99, sem greiddu atkvæði
um tillögu sáttanefndar, greiddi
hver einasti atkvæði gegn
henni.
Af 67 stýrimönnum, sem einn
ig eiga í verkfalli, sögðu 65 nei,
einn já og einn atkvæðaseðill
var auður.
Það er ekkert launungamál,
að útgerðarfélögin greiddu at-
kvæði gegn tillögunni, meðal
annars vegna þess, að.þær fólu
í sér kjarabætur og launahækk-
anir til allra yfirmanna skip-
anna, einnig þeirra, sem í hæstu
launaflokkum eru, — og heild-
arútgjöld, sem af tillögunum
hefði leitt, gætu útgerðirnar
ekki tekið á sig. Hinsvegar hafa
útgerðarfélögin boðið, fljótlega
eftir að viðræður hófust, ein-
hverjar grunnkaupsbækkanir
til þeirra lægst launuðu, en
ekkert til þeirra, sem bezt kjör-
in hafa.
Skipaútgerðirnar hafa verið
spurðar um, hver laun þessara
stétta séu. Almenningi til upp-
lýsingar er rétt að greina frá
eftirfarandi:
Á skipum Eimskipafélags ís-
lands og Sambands íslenzkra
samvinnufélaga er kaup skip-
stjóra, útborgað í peningum
með núverandi vísitölu:
kr. 10.008.90.
Þar við bætist risna og land-
göngufé. Hlunnirjdi, scm sam-
fara eru gjajdeyrisréttindum,
svo og' ýmis önnur atriði, sem
til kaups má meta, cru þá ekld
meðtalin.
Laun á ,,Esju“ og „Heklu“
eru 10% hærri í strandsigling-
um en ofanritað, en annars
gilda sérreglur um hin minni
jskip Skipaútgerð ríkisins.
Á sama hátt eru útborguð
mánaðarlaun fyrsta vélstjóra:
kr. 7.753.20
og fyrsta stýrimanns:
kr. 6.006.00.
Til viöbótar þessu koma síð-
an samsk konar hlunnindi og
skipstjórar njóta, að undan-
teknu landgöngufé. Stýrimenn
fá greidda eftirvinnu og til-
skilda frídaga, sem ekki kann
að reynast unnt að veita þeim,
en 1. vélstjórar hafa ekki vakt-
skyldu og ekki yfirvinnuþókn-
un, en fasta þóknun, kr. 200.00
á mánuði, vegna þess.
Skiptar skoðanir eru um það,
hvers virði þau hlunnindi eru,
sem ofanritaðar stéttir hafa, en
þessar tölur eru hins vegar stað
r.eyndir, sem ekki þarf um að
deila.
S’íðar mun birt nánara yfirlit
um kjör verkfallsmanna og skip
stjóra.
Reykjavík, 17. júlí 1957.
5MÆLKI UTAN UR HEIMI
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
V
s
s
s
s
s
V
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
i
V
{
s
s
s
s
s
s
s
$
s
s
s
s
s
s
V
s
)■
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Sýning á málverkum, vatns-
litamyndum og teikningum eft-
ir Hans Hofman, sem hefur haft
mikil áhrif á bandaríska mál-
aralist, var nýlega opnuð í
Whitneylistasafninu í New
Yorkborg. Sýning'in verður
seinna haldin víða í Bandaríkj-
unum. Þau áhrif, sem Hofman
héfur haft á bandairísica mál-
aralist hefur hann haft aðallega
sem kennari og forvígismaður
abstraktstefnunnar. Mörg þús-
und stúdentar hafa sótt skóla
hans í New Yorkborg og Po-
vincetown í Massachusetts. Hof
man stundaði nám í Múnchen
í Þýzkalandi, en var síðan 10
ár í París, þaðan fór hann aft-
ur til Miinchen og stai’frækti
þá skóla þar. Hann fluttist til
Bandaríkjanna árið 1.932 þá 52.
ára að aldri.
Raymond Gniewek, 26 ára
gamall fiðluleikari, fæddur og
! uppalinn í Bandaríkjunum, hef-
I ur verið ráðinn hljómsveitar-
stjóri við Metropolitanóperun;
í New York næsta vetur. Á unt
anförnum árum hefur ham
leikið með filharmóníuhljóm
sveitinni í Rochester.
Zimbler strengjahljómsveitin
mun fara í hljómleikaför um
Mið- og Suður-Ameríku 19. ág-
úst n.k. og stendur förin til 29.
september. í þessari hljómsveit
eru 22 menn, sem flestir eru
meðlimir Boston sinfóníuhijóm
sveitarinnar. Zimbler strengja-
hljómsveitin var stofnuð fyrir
11 árum af Jasef Zimbler celló
leikara, og er hún talin með
þeim beztu sinnar tegundar í
Bandaríkjunum. Hún leikur
venjulega án hljómsveitar-
stjóra. í þessari hljómleikaför
mun hljómsveitin m.a. leika lög
eftir kunn bandarísk tónskáld.
svo sem Aaron Copland, Arthur
Bei’ger, Irving Fine, Lukas
Foss, Allan Hovhaness, Hubert