Vísir - 06.12.1936, Page 5
VlSIR SUNNUDAGSBLAÐ
5
\Mxittj(Vvoebi
jpjóbjúL.
Þjóðabandalagið hefir safn-
að skýrslum um mataræði
þjóða og skygnst þannig inn í
matbúrin og grenslast eftir
matvælasmekk manna. Safn-
að hefir verið skýrslum frá 20
þjóðum, og hefir „Alþjóða-
stofnun um jarðrækt“, sem
starfar í Rómaborg, tekið þær
saman, en sérstölc nefnd inn-
an Þjóðabandalagsins, sem
fjallar um næringarefni og
fæði manna, hefir felt þær inn
í skýrslur sínar.
Kjöt.
Skýrslurnar sýna, að mest
kjöt er á borðum hjá sumum
ríkjum innan Bretaveldis, og
eru þar langfremst i flokki
Nýja Sjáland og Eyjaálfan.
Þar næst er Kanada, þá Bret-
land. Bandaríkin koma því
næst, en Ítalía er lægst. Á Nýja
Sjálandi eru etin 236 pd. af
kjöti á mann á ári, en í Ítalíu
að eins 35 pd. á mann.
með 106, Eyjaálfan með 104,
Bretland með 86, en Bulgaría
lægst með 21 pd.
Bretar nota mest af sítrón-
um og banönum, og fer notk-
un banana liraðvaxandi víðast
hvar. Bretar eru næstfremstir
í sykuráti, en þar er Danmörk
talin efst á blaði. Eyjaálfan er
þriðja, Bandaríkin fjórða.
Búlgaria er lægst með 10 pd.
á íbúa.
Brauð.
í Frakklandi er mest notað
af brauði allskonar, og einkum
hveitibrauði. Þar næst eru:
Búlgaría, Ítalía, Nýja Sjáland,
Belgíg, Eyjaálfan, Bretland,
Svissland, Bandarikin. Finn-
land notar minst hveiti þeirra
rikja, sem nefnd eru.
Rannsóknarnefnd Þjóða-
bandalagsins hefir komist
að einkennilegri niðurstöðu.
Og hún er sú, að fólk hafi haft
betri fæðu á kreppuárunum en
nokkuru sipni fyr.
Á síðustu 10 árum hefir orð-
ið aukning á mjólkurfram-
leiðslu hér um hil alstaðar.
Framleiðsla lcjöts hefir og auk-
ist, sérstaklega á svínakjöti.
Eggja og smjörframleiðsla
jókst og um thna, en hefir
heldur minkað síðastliðin tvö
ár. Framleiðsla ávaxta og
grænmetis hefir aukist í því
nær öllum löndum.
„Tarna var næmt, litli piltur“.
Sira Sæmundur Hólm, prest-
ur að Helgafelli, var mkill hæfi-
leikamaður, sem kunnugt er,
en ærið einkennilegur að sumu
leyti. Hann var og skáldmælt-
ur nokkuð, en ekki mun hann
hafa farið allskostar vel með
þá gáfu sína.
Einliverju sinni í tíð sira Sæ-
mundar á Helgafelli fórust sjö
menn á báti fram undan Grund-
arfirði. Hét formaðurinn Jón.
Hann liafði átt hefrna í búð
þeirri, er Lukka var kölluð, og
var upj) frá því kallaður Lukku-
Jón. Nú bar svo til, að Jón þessi
ætlaði að flvtja kaupamenn
til Stykkishólms og þaðan inn
í Dali, en svo er að sjá, sem
verið hafi 11 manns á bátnum
alls. —
Jón sofnaði undir stjóm i
góðu veðri, en skipið rakst á
boða þann, er Bolli heitir, og
livolfdi þegar. — Yaknaði Jón
þá við vondan draum, en komst
á lcjöl og varð bjargað, ásamt
tveim hásetum og stúlku einni.
— Þá er sira Sæmundur frétti
um slysið, mælti liann sPf munni
fram:
Lukku-Jón, því sár var sjón,
sjö frá önnum lmekti,
bölvað flón með böl og tjón
á Bolla mönnum drekti.
„Tarna var næmt, litli piltur“,
mælti klerkur, er hann hafði
kveðið stökuna.
í sjöunda himni!
— Þú trúir þvi nú kannske
ekki, en satt er það samt, að
þegar eg bað hénnar Möngu,
þá varð henni þannig við, að
henni fanst hún vera komin
alla leiðina upp í sjöunda
himin!
— Já, kemur heim. Hún hef-
ir nefnilega verið trúlofuð sex
sinnum áðnr.
Egg og mjólkurafurðir.
Kanadabúar eru elskir að
eggjaréttum. Þar eru etin til
jafnaðar 284 egg á mann ár-
lega. Belgía er næst Kanada
um notkun eggja, þá Banda-
ríkin, en Bretland fjórða í röð-
inni. Finnland notar minst af
eggjum aðeins 41 á mann, eða
minna en eitt á viku.
Mest er drukkið af mjólk i
Svissnesku Alpahéruðunum og
þar er líka mest etið af osti.
Bandaríkin eru næst um
mjólkurnotkun, en þar næst er
Danmörk. í Ítalíu er mjólkur-
notkun minst.
Af smjöri er langmest notað
á Nýja Englandi. Þar er hverj-
um manni ætluð 38 pd., en 31
pd. í Kanada, 29 pd. í Austur-
ríki, á Bretlandi 22, en aðeins
2 pd. á ftaliu.
Á Niðurlöndum þykir mönn-
um ostur góður, og eru Niður-
landabúar næstir Svisslending-
um i ostáti. Minst er notað af
þeirri vöru í Bandarikjunum,
Kanada og Eyjaálfu.
Ávextir.
Ávaxtanotkun er mest i
Bandaríkjunum, enda hefir þar
verið barist fyrir því, að borð-
að væri mikið af ávöxtum.
Bandarikjamenn nota 172 pd.
á mann árlega. Sviss er næst
með 142 pd. Czechoslovakia
750 ÁRA GÖMUL KIRKJÁ.
Fyrir nokkuru varð kirkjan i Taarnby, Danmörku. 750 ára, og fóru fram hátíðahöld af því
tilefni. Voru konungshjónin viðstödd, fulltrúar erlendra ríkja o. s. frv. T. li. sést, er sóknar-
presturinn, sira Strunge, býður konungshjónin vehcomin. Neðst og í miSju konur á Amag-
er í viðhafnar-þjóðbúningi sínum.