Vísir


Vísir - 16.09.1938, Qupperneq 5

Vísir - 16.09.1938, Qupperneq 5
Föstudaginn 16. sept. 1938. VlSIR Ninon . IHanskar, slæður, kjólablóm, | margar gsrðir og litir. ^ ---Bankostrœti ITískudömurnar I versla aðeins við I HATTASTOFU INGU ÁSGEIRS | Klapparstíg. — Sími: 5135. _| Dömur. Hárgreiðslu- stofan i Hafnarstræti 11 Sími 5194. býður að eins 1. flokks vélar og vinnu. Kristín Inglmundardóttir Jeg har elsket dig saa længe jeg kan mindes (úr kvikmyndinni Mille, Marie og mig), sungið af Hallbjörgu Bjarnadóttur.- ELSA SIGFÚSS: En Aften i Budapest, Paa en Bænk. Har du glemt, Ivan du glemme dine Kys. Sov min Unge (Neger- wiegerlied), Spil en Harmonika- tango, Tag en lille Rejse, Den gamle Sang om enhver. Farvel og paa Gensyn, Vi er Venner, En Gang, Bí bí og blaka, Rósin, Vetur, Sestu hérna lijá mér, Fjólan. MARÍA MARKAN: Den farende Svend, En Dröm, Tonarne, Maria Wiegienlied (Reger), Heimir, Augun bláu, Nur der Schönheit (Bæn Toscas), Eines Tages sehen wir (Madame Butterfly). Hljoðfærahúsið HÚSRÁÐ OG HEILLARÁÐ .... Ef menn vilja varast í- kveikju, 'ætlu þeir að gæta þess, að kveikja aldrei upp í ofni með því að hella í liann olíu eða öðrum eldfimum vökvum, ganga ekki með Iogandi Ijós í kjöllurum, göngum eða háa- loftum, hella aldrei olíu á log- andi lampa eða suðutæki og gæta þess, að slíkir lampar eða læki standi elcki það nálægt eld- fimum hlutum, t. d. glugga- tjöklum, að dragsúgur geti or- sakað íkveikju. Látið bensín ekki standa þar sem sólin skín á og bræðið aldrei „bón“ yfir eldi, Iieldur hitið það í vatni. Ef i kviknar, á að slökkva eldinn með því að kasta á hann blaut- um teppum eða öðru slíku. .... Eiturlyf á að geyma á sérstökum stað og helst í læst- um hirslum. Miðarnir eíga að merkjast greinilega, þannig að ekki sé hætta á að menn taki slík glös í misgripum, en best er að vefja sandpappir utan um glösin, til þess að aðgreina þau þannig, að enginn geti tekið þau í misgrípum, — jafnvel í myrlöri. Til minnis við slátrið, niður- snðuna og sultnna Rúgmjöl, Salt, Leskjað Kalk, Saltpétur, Sláturgarn, Rúllu- pylsugarn, Blóðmörsnálar. Rúllupylsunálar, Gulrófur, Niðursuðuglös, Sultuglös, mjög ódýr. Geleglös. Niður- suðudósir, margar stærðir. Gúmmíhringir. Spennur. Ed- ik. Ediksýra. Strausykur. Toppasykur. Kandíssykur. Púðursykur. ATAMON tryggir örugga geymslu á allskonar matvælum. Heilt Engifer. Heill og st. Pipar, hvítur og svartur. Sinnepskorn. Spánskur Pip- ar (belgir). Heill og steyttur Negull. Vanillestengur. Á- vaxtalitur. Allrahanda. KORKTAPPAR i mjólkurflöskur, 3/4 Itr. flöskur, 3/8 ltr. flöskur. — Pergamentpappír. Sellophan- pappír. Flöskulakk. lUUsMidi Flóra. Blómin piýða heimilið. FLÓ R A Austurstræti 7. — Sími 2039. £ Hálsbindi ■ ■ eða ■ s 1 a u f a er ávalt 5 kærkomin gjöf. J Fæst í öllum lielstu versl- B unum bæjarins. Hálsbindagerðln JACO 5 ílBlllllIll.il.ll..- Leiðinlegar málvillur, sem nauð- syn ber til að utrymt verði. „Verkefni fyrir málfræðinga“ er fyrirsögn á grein í Vísi 6. þ. m. (eftr Lj.), og eru þar gerð j að umtalsefni orðskripi nokkur og mállýti (erlendar „slettur"), bæði frá fyrri og siðari tímum. Það er hverju orði sannara, sem greinarliöfundur segir um þetta efni, og með öllu óverjandi, að láta við svo húið sitja eða að þola alla þá lönguvitleysu af málspillingu, sem nú veltur yfir landið. En þar verður auðvitað við raman reipa að draga, þvi að sumt af þessu „góðgæti“ er nú orðið svo munntamt, jafn- vel hinum vandfýsnustu mönn- um, að ósjálfrátt og á móti betri vitund vill það hrjóta manni af vörum. Greinarhöf. segir t. d. sjálfur: „(enn) þann dag i dag“; ætti að vera: enn í dag. Ekki kannast eg heldur við tals- háttinn, að eitthvað farist vel eða illa úr hendi. Mun rétt að segja: honum ferst þetta vel eða illa; eða (með orðinu hendi): honum fer þetta vel (illa) úr hendi. Náttúrlega er hér um smámuni að ræða og reyndar svo liárfínan greinarmun, að varla er almenningi ætlanda, að kunna þar full skil á. En fyrir mitt leyti kann eg höf. bestu þökk fyrir hugvekju hans, því að hún var góð og inaldeg á- drepa. Það væri æskilegt, að ís- lenskufræðingar vorir, kennarar og aðrir, vildu öðru hvoru gefa dagblöðunum sýnishorn af við- sjálum og algengum málvillmn eða málleysum, og benda um leið á, hvernig þar mætti betur fara. Á meðan þeir góðu menn eru að liugsa sig um, tel eg hér nokkur vafasöm atriði á strjál- íngi. Orðski’ípi geta bæði verið lilægileg og hættuleg. Þau geta i fljótu bragði verið brosleg og virst harla meinlítil, en áður en varir eru þau á hvers manns vörum, og jafnvel í alröngum samböndum, og eru þá orðin stórháskaleg. Það getur verið vorkunnarmál, þótt menn „sletti“, sem kallað er. óvönduð- um eða erlendum ojrðum, svona í daglegu tali og ef mikið þyk- ir við liggja, t. d. að segja um einhvern mann,' að hann sé „idiót“ (heimskingi); en ef sómamaðurinn er í alvöru kall- aður hreinasti „idíótmaður“, þá er skörin áreiðanlega farin að færast upp i bekkinn og mis- beiting orðanna í algleymingi.1) Algengustu orðskrípi nútím- ans í tungu vorri eru orðmyndir þær, sem enda á -ó, og aldrei öðruvísi, enda ekki gott að koma við beygingu á þeim — og reyndar varla miklu til þess kostandi. Beygingardæmið ætti þá líklega helst að vera orðið ódó (jþ. e. ótó — ótæti), og er það að vísu eklci félegt orð, en ekki heldur alls ómaklegt. Eg nefni hér af liandahófi og í stafrófsröð nokkurar slíkar orð- myndir: Barnó, Gagnó, Gúttó, Iðnó, Kvenno (Kvinnó), Mentó, Oddó, púkó, Safnó, Slátró, Sprúttó, strætó, tíkó, Yersló o. s. frv. Fest eru orð þessi (og önnur þeim lík) svo sem 10—- 15 ára gömu orðin — ja, í mál- inu vil eg ekki segja, þvi auð- vitað tel eg þau þar ekki né heldur geta þau átt þar lieima. 1) Þessum skrípildum má náttúrlega ekki rugla saman við þann urmul erlendra órða, sem frá öndverðu liafa samþýðst tungunni og öðlast þar þegn- rétt: form, póstur, sónn, stóll, kyrkja, engill, spégill, o. fl. o. fl. En til eru þau, þótt ekki séu annað en örgustu götuslettur, (apaskapur úr ítölsku), sem liver sæmilegur maður ætti að blygðast sín fyrir og gjalda all- an varhuga við. Eitt þessara orða hefir þó nokkura „helgi“ á sér, þó að ekki sé fyrir annað en aldurinn, því að nú mun það fullra 40 ára i munni Reykvik- inga, og meira að segja á prenti. En ljót er lestin, sem það hefir nú í eflirdragi, og að vísu ekki séð fyrir endann á henni. Eg býst við, að inargan muni nú fýsa, að sjá framan í „móður- skipið“ sjálft, en það lieitir Iðnó, og skal nú stuttlega rakin saga þess. Það er þá upphaf þessa máls, að laust fyrir síðustu aldamót (1896—1900) kom þetta orð upp í Latínuskólanum. EJinn af skólapiltunum kom fyrir sig þessari orðmynd í gamni (og ef til vill eftir öðrum) á skóla- fundi, en auðvitað gerði hann það eins og kunnáttumaður, sagði t. d. að gaman yrði að vera i Iðnó í kvöld; en honum hefði aldrei komið til hugar að segja, að gaman væri að fara niður i Iðnó, enda átti hann þá vís hróp og háðsyrði fundar- manna (félaga sinna) fyrir meðferðina eða beyginguna. Hann notaði sein sé orðmynd- ina eingöngu, er um „þágufall“ eða „staðarfall“ var að ræða, en alls ekki um önnur föll (t. d. „þolfall“: fara niður í Iðnó(!)). Gerði hann þetta eftir latneskri fyrirmynd (sbr. „und- ir Pontío Pílató“), en þá hefði hin föllin orðið: Iðnum (nefnif. og þolf.), Iðni (eignarf.), svo að beinast hefði þá legið við að segja: að fara niðiír í Iðnum. En nú tókst svo illa til, sem raun er á orðin, að gamanið hefir gránað meira en til var stofnað, því að fólkið hefir tekið orðmyndina að sér, fóstrað hana og látið dátt á alla vegu, ahð upp fjölda afkvæma hennar i sama gervi, og ekki látið sér nægja að liafa orðmyndir þess- ar óbeygjanlegar í eintölu (svo sem í ítölsku), heldur og án fleirtölumyndar, en þar hefði t. d. púkó átt að verða púkí: liann er púkó — þeir eru púkí(!). | Jæja, eg hefi oft síðan liugs- að til þessa vinar míns úr Lat- ínuskólanum, sem í mín eyru varð fyrstur til þess að taka sér þessa „ítölsku“ í munn, en verð- ur nú daglega að sjá og heyra afleiðingarnar, og eru honum það að vísu liarla ómakleg málagjöld, því að allra þeirra, sem nú eru uppi, veit eg hann slyngastan islenskumann i ræðu og riti. Þó að nú orðskrípi þau, sem nefnd liafa verið, séu bæði lierfi- leg og liáskaleg tungu vorri, þá eru þó önnur mállýti enn við- sjárverðari, ekki síst vegna þess, hversu litið kann að fara fyrir lýtunum, og svo af því, að orðin sjálf mega einatt heita íslensk, en eru þó notuð þannig, að óboðlegt er tungunni. En svo lengi liafa þau nú læðst um í „sakleysi“ sínu, að erfitt mun að losna við þau, enda er það ekki alþýða manna ein, sem heldur þeim á lofti, þvi að svo má lieita, að ritliöfundar og blaðamenn hafi tekið þau upp á sína arma og hampi þeim ó- spart. „Vísir“ hefir þar þó nokk- ura sérstöðu, því að allra blaða mest hefir hann reynt að vanda málfar sitt og flestar aðalgrein- ar hans liafa löngum verið í hinum prýðilegasta búningi. Náttúrlega hafa þó öðru livoru skroppið þar inn skriffinnar, sem ekki vega orð sín á neina gullvog, hvorki að efni né formi — og brennur slíkt viðar við. Set eg hér nú örfá dæmi þess- ara mállýta eða rangmæla: „Fyrir löngu síðan“, „fyrir mörgum árum síðan“ o. s. frv. Þar á orðið síðan að falla niður, og er þá réttmæli: fyrir löngu (mörgum árum). „Eftir að hafa h.eyrt þetta“ er álappaleg setn- ing. Þar mætti segja: Er (þá er, þegar) eg liefi (hafði) lieyrt þetta o. s. frv. „Hann ætlar að flytja livað?) um mánaðamót- in“. Þar ætti að segja: hann ætl- ar að flytja sig eða flytjast o. s. frv. „Menn eru beðnir að mæta (liverju?) stundvíslega“. Þar mætti eftir atvikum standa: Menn komi, séu (skulu) komn- ir, séu (við)staddir, til taks o. s. frv. „Þar voru mættir einir 3 menn.“ „Mættir“ er þar argasta málleysa, í stað: komnir eða (við)staddir. „Knattspymufé- lögin æfa (hvern skrattann?) i kvöld.“ Þar mætti vera: æfa sig eða hafa æfingu, en ekki „æfa“. „Verslunin opnar kl. 8.“ Þar skal segja: búðin (verslunin) er (verður) opnuð kl. 8. Alt em þetta dönskuslettur (eða úr öðr- um málum), alls óþarfar og lítt sæmandi, enda þótt finna megi dæmi þess, að lengi hafi ýms sagnorð verið noluð bæði sem áhrifssagnir og áhrifslausar, svo sem að dvelja, sem að réttu þýðir að tefja einhvern. (Hvað dvelur Orminn langa?), en hef- ir jafnframt verið látið tákna sama sem dveljast (lialda kyrru fyrir). Eg bæti hér við, út götu- máli barnanna: „Þú ert náður.“ ÍSlikt orðskrípi liefi eg aldrei lieyrt til sveita, hvorki fyrr né síðar. Þar er sagt: Það er búið að ná þér (þér hefir verið náð o. s. frv.). Ef sagnorð stjórn- ar þágufalli, eins og t. d. að ná (einliverju) verður í þolmynd- inni einnig að koma þágufall (en ekki nefnifall). Fyrir þvi er sagt: hestinum er hleypt (á sprett), en skyrið er hleypt (með því að þar stjórnar sögn- in þolfalli). „Hesturinn er (hef- ir verið) sóttur“ má telja gott og gilt mál; en ef hann svo verður líka „eftirsóttur, þá eru málavextir aðrir, þvi að menn segja: að sækjast eftir einhverju (þáguf.), en ekki eitthvað (þol- fall), og því er „eftirsóttur“ i rangnefni. Að vísu má þó sjá i (og lieyra) slíkar orðmyndir sem þessar í sérstökum sam- böndum: hryssan er köstuð = hefir fætt folald; nokkuð áþekt þessu er og: kýrin er borin = hefir borið (alið) kálf o. s. frv. „Borin(n)“ er hér notað líkt og „drukkinn“ um þann, sem drukldð hefir (of mikið vin), „etinn“ (sem hefir etið, eða er saddur), sbr. „vakinn og sof- inn“ og margt fleira þessu líkt. Nú má ætla, að mönnum sé nokkur forvitni á því orði, sem nota mætti í stað „eftirsóttur“, sem amast var við. I stað þess mætti oft segja: eftirsóknar- verður, mikils metinn, í háveg- um hafður, ágætur, frábær o. fl. Þó játa eg fúslega, að ekkert þessara orða táknar til fulln- ustu það, sem ætlast er til. En menn verða líka einatt að sætta sig við það, að þýða einstök orð með heilum setningum, og mætti þá hér segja: sem sótst er eftir, sem (mjög) er leitað handtekiN af tekkum. Unity Freemán-Mitford, 23já ára gömul bresk aðalsmær, hefir af ýmsum nerið talin leynilegur erindre'ki bresku stjórnarinnar i Þýskalandi, —• enda nýtur hún þar mikiltar virðingar og persónulegrar vináttu Hitlers. — / óeirðun- um i Tékkóslóvakiu 21. mai, var hún á bílferðalagi um landshluta, sem bannað er að ferðast um vegna víggirðinga- Var hún handtekin, en siðar látin laus. 1 fórum hennar fundust /4 filmur og vasabók, sem hún hafði skrifað í ýmsar athuganir. — 1 London varð aðalsmær þessi eitt sinn fyrir hnjaski og hrópyrðum af þvi að hún bar hakakrossmerkL Lögreglan á að rétta bæjaiv búum hjálparhönl Maður nokkur skrifar blað- inu á þessa leið: „Þeir, sem að jafnaði koma í Sundhöllina að morgni dags, hafa veitt þvi athyglí, að þar er nokkuð af fólki, sem er meira eða minna máttfarið, og að það nýtur þess með ánægju að skvampa í lauginni eftir getu, auk þess, sem það mun hafa bætandi áhrif og auka lílcams- krafta þess. Meðal þessa fólks eru tveir sjúldingar Landspít- alans, Skúli og Rafn. Hefir S. B. skrifað um þá hugðnæma grein í Morgunblaðið og þá velvild, sem starfsfólk Sundhallarinnar sýnir þeim. En það vill til að livorugur kemur eða að eins annar þeirra og er það vegna þess, að enginn er til að aka þeim á milli. Það er ávalt undir hælinn lag|t livort þeir komast, eða ekki. Síðan stingur bréfrftari upp á því, að lögreglan taki það að sér að skjóta þessum tveim mönn- um reglulega niilli Sundhallar- innar og spítalans. Hér í bænum munu vera kriiigum 60 lögregluþjónar. Þegar alt er rólegt verður ekki séð, að allan þennan fjölda þurfi til þess að halda Iöggæsl- unni uppi. Að minsta kostí er það víst, að smágreiða gætu lögregluþjónarnir gert almenn- ingi, þegar líkt stendur á eins og með þessa tvo sjúklinga. Bréfritarinn bendir á það, að slík greiðasemi lögreglunnar yki vafalaust vinsældir Iiennar Iiér í bænum, eða að þær myndu ekki minka, þótt lögreglan rétti slíka hjálparhönd, þeim sem þess þarfnast, þegar ekki er annað sérstakt verkefni fyrir höndum. til — eða eitthvað á þessa Ieið, Að svo mæltu bið eg islensku- fræðingana velvirðingar, þvi að á þeirra sviði er eg ekki annaS en viðvaningur og Leikmaður.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.