Vísir - 03.05.1939, Síða 4

Vísir - 03.05.1939, Síða 4
4 V I S I B Miðvikudaginn 3. maí 1939. Pál Sigurðsson og Páskaræðu hans. Pdll Steingrhnsson: síra Snæbjörn Jónsson er ekki mikilvirkur um bóka-útgáfu, en gójivirkur er hann — snertir naumast á öðru en úrvalsritum. Fyrn- skömmu er útkomin á kostnað hans hin fræga og fagra Páskaræða síra Páls Sigurðs- sonar í Gaulverjabæ. Og viðtök- urnar, sem ]>essi gamla ræða hlaut, urðu þær, að upplagið seldist á svipstundu. Var hún þá prentuð enn af nýju (3. útg.) og hefir upplagið væntanlega verið haft svo ríflegt, að ekki þrjóti i bráð, þó að sala verði enn mikil. — Páskaræða síra Páls er vafalaust frægasta stól- ræða, sem flutt hefir verið hér á landi síðan á dögum Jóns bisk- ups Vídalíns. Þar með er vitan- lega ekki sagt, að hún sé besta ræðan, og virðist þó ekki fjarri lagi að ætla, að svo muni vera. Síra Páll Sigurðsson er einn þeirra ágætu sona þessa lands, sem þjóðin má ekki gleyma. Hann var frábær maður um flesta hluti, lærður vel og manna vitrastur, mikill að mannkostum, einarður, lirein- skilinn og siðavandur, stórhuga fyrir hönd lands og þjóðar. Ein- lægur trúmaður og þvílíkur ræðusnillingur í predikunarstól, að fáa inun hafa átt sína líka hér á landi, fyrr og síðar. Sagði mér svo gamalt fermingarbarn sira Páls, úr Árnessýslu ofan- verðri, að sá hefði verið al- mannadómur i Miðdalskalli, að því líkur höfuðskörungur i klerkastétt hefði ekki þar setið í manna minnum. Trú lians var engin uppgerð og ræðurnar ekkert svefnrofa-lijal eða vana- buldur. Hann var „brennandi i andanum". Laut í auðmýkt gæskuríkum guði — treysti föðurkærleika hans og réttlæti, en hafnaði afdráttarlaust hinni hryllilegu kenning kirkjunnar um eilífan eldogævarandaþján- ing. — Hann gat með engu móti sætt sig við þá hugsun eða samþýtt trúarvitund sinni, að algóður og almáttugur skap- ari himins og jarðar, faðir allra manna, léti það við gangast, að sum barna hans lenti i eilifri útskúfun og fordæmingu. — Hitt var honum ljóst, að leiðin heim til föðurhúsanna gæti reynst nokkuð seinfarin. Mundi alt vella á því, hvei-su til væri stofnað i ]>essu lífi af einum og sérhverjum. Hver og einn mundi njóta sin eða gjaída í nýrri tilvcru. Þar mundi engum hepnástj að skjala sig áfram með undanbrögðum eða fagur- gala. Og eigi heldur með hroka eða mikillæti, skinhelgi, lygi, sviksemi eða öðrum þeim ó- dygðum, sem oft og einatt reynast hið besta hér í heimi og lyfta mönnum hátt um sinn. E>ar mundi og alt opinberað, það er hér hefði lekist yfir að breiða eða hylja myrkri. Fyrir augliti hins eilífa réttlætis geti ekkert dulist og þar standi allir jafnt að vigi. Þar verði allir „jafnir fyrir lögunum“. Allir verði að standa reikningsskap ráðsmensku sinnar hér í heimi — allir að öðlast þegnrétt í ljóssins ríki, áður en heimar dýrðarinnar ljúkast upp fyrir þeim. Siunir eigi vafalaust örð- uga leið fyrir höndum, en allir komist heim um síðir. Enginn sé svo illur eða forhertur, að hönd hins eilífa kærleika nái ekki til hans og leiði hann að lokum heim til föðurhúsanna. Þannig mun hann hafa á mál- in litið eða mjög á þessa leið, hinn mikli kennimannaskör- ungur. — En kirkjustjórnin lét sér fátt um finnast, settist upp og ók sér. Undarlegt að vera með svona heilabrot! Það gæti beinlínis orðið til þess, að fólk- ið ruglaðist í rétttrúnaðinum. Og livar stæðum við þá! Hún hafði ekki vanist svona „út- brotum“, hin virðulega kirkju- stjórn, kunni best við blessað lognið og vonaði, að það héldist sem lengst. Og prestarnir voru sama sinnis, flestir að minsta kosti. Þeir voru kyrðarinnar, værðarinnar og lognsins menn, og þótti alt í stakasta lagi — . . sumir létu reiða sumir lágu stjórafastir með flæktan vað. Eg veit ekki hverjar viðtökur Páskaræða síra Piáls liefir hlot- ið, er hún kom á prent hið fyrsta sinn (1888), en hitt man eg, að þegar Húslestrabók hans var gefin út (1894) ruku upp einhverjir „guðfróðir“ menn og létu á sér skilja, að síra Páll mundi liafa verið argur villu- trúarmaður! Þeim fanst víst kristni og kirkju þessa lands meira en nóg boðið, er farið væri að afneita sjálfum Kölska, öðrum eins höfðingja, og halda því að mönnum í fullri alvöru, að engin sála mundi fara til helvítis! En höfundur predik- anasafnsins var þá látinn fyrir mörgum árum og því óhægt um refsi-aðgerðir gegn honum. Sigurður bóksali Kristjánsson kostaði útgáfu predikananna (Húslestrabókarinnar) og er mælt, að hann hafi þá eða um þessar mundir ort hringhendu þá um valdamissi Kölska, er síðar varð landfleyg og þótli afburða-vel kveðin: Djöfla óðum fækkar fans fyrir góðum penna, uns á hlóðum andskotans engar glóðir brenna. Páskaræða síra Páls Sigurðs- sonar er ofar mínu lofi. Eg mun því ekki gera hana að frekara umtalsefni en orðið er. Fer og best á því, að liver og einn lesi hana í kyrð og næði Qg íhugi boðskap þann, er hún flytur. — Á hitt vil eg að eins bendáj áð síra Páll var langt á undan samtíð sinni um skilning á kjörum manna í annari til- veru, og virðast skoðanir hans í því efni mjög í samræmi við kenningar þeirra manna iá vor- um dögum, er telja sig hafa fengið allmikla vitneskju um það, hvað við muni taka handan við gröf og líkamsdauða. Páska- ræðan fræga og aðrar predik- anir sira Páls bera því örugt vitni, að hann hefir verið ó- venjulega mælskur kennimað- ur og Ijós í hugsun, spakur að viti og ágætur rithöfundur, hverjum manni djarfari. Er sem heyri eg óma róm orðtak seinni tíða: Betur kunni ei kristindóm klerkur fyr að þýða. Síra Páll vígðist að Miðdal í Árnesþingi 1866, fékk Hjalta- balcka í Húnavatnssýslu 1870 og Gaulverjabæ 1880. Veit eg með vissu og eftir bestu heim- ildum, að honum muni ekki liafa verið allskostar Ijúft, að flytjast úr átthögunum nyrðra. Og suður þar í Flóanum mun hann æ liafa þráð hið „hag- sæla, vorglaða Húnavatnsþing,“ og þá ekki síst Vatnsdalinn, því að þar var hann borinn og barnfæddur. Hann fótbrotnaði heima hjá sér í Gaulverjabæ, fékk ófullkomna læknishjálp og andaðist eftir langa legu og óumræðilegar þjáningar 23. júlí 1887, viku betur en 48 ára. Þrautir sínar hafði hann borið með óbilandi hugarró og karl- mensku. Svo hnigu fyr, svo liníga enn, sem stráin vorir miklu menn. —O-“ Síra Páll þótti einn hinn besti kennari, en kallaður var liann nokkuð strangur. Mun liann hafa kent all-mörgum piltum undir skóla, ekki síst meðan hann var á Hjaltabakka. Meðal þeirra var Guðmundur heitinn Magnússon, prófessor Hann var fermingarbarn sira Páls og ólst upp í Holti, næsta bæ við Hjaltabakka. Heyrði eg frá því sagt í æsku, að prestur hafi liaft niiklar mætur á sveinin- um, talið hann gáfaðastan þeírra unglinga allra, er hann hefði kvnst, og krafist þess, að hann yrði til menta settur. En þar hafði verið þungt fyrir og mörg ljón á vegi. Klerkur þæfði ekki málið, heldur tók til sinna ráða, beitti noklcuru ofríki, að því er mælt var, tók piltinn heim til sín og bjó hann undir skóla. Iíafði þá og brátt allri mótspyrnu verið lokið. En með þessari íhlutan og skörungsskap varð síra Páll þjóð sinni og ætt- jörð að ómetanlegu gagni. Síra Eggert Ó. Briem, bróðir sira Valdimars, varð prestur að Höskuldsstöðum í það mund, er síra Páll fluttist að Hjalta- bakka.Voru þeir bekkjarbræður og kærir vinir. Síra Eggert var lærður maður og vitur, en lítt til prestskapar fallinn. Hugur- inn allur í fornum fræðum ís- lenskum, sögurannsólcnum og ættvísi. Áf „Bréfum“ síra Matf- híasar skálds verður ráðið, að síra Eggert hafi oft verið þung- ur í skapi og lítt elskur að líf- inu Og gnn eru mér í minni orð þessa vitra manns, er hann kotn til okkar og skýrði móður miniií frá því, að sira Páll væri dáinn. Hún vissi, að hann hafði fót- brotnað um vorið og legið rúm- fastur af þeim sökum, en naum- ast hefir hana grunað, að þenna veg mundi lúkast. Hefir sira Eggert vafalaust fundið eða séð, að henni þætti tíðindin mikil og hörmuleg. Hann var ekki marg- orður að jafnaði, blessaður karlinn, og nú þagði hann um hríð. Svo leit hann á hana og mælti seinlega: — Mér þótti líka vænt um síra Pál. En eg held, að það hafi verið gott, að hann fékk að deyja. Hann hefði áreiðanlega orðið fyrir einhverj- um hrakningum af hálfukirkju- stjórnarinnar. Enginn svaraði og svo var ekki meira um mál- ið talað. — Eg hlustaði á orð prestsins, drengur á níunda ári, og eg held að mér sé óhætt að fullyrða, að eg hafi þau rétt eftir, þó að langt sé um liðið. Mér skildist einhvern veginn, að einhverjir mundu hafa haft hug á því, að gera sira Páli eitt- hvað ilt. Og það þólti mér meira en lítið furðulegt, því að satt að segja hugði eg ó þeim árum, að hann væri mesti og hesti maður í heimi! — Eg kom að Ási i Vatnsdal í júlímánuði 1926 og gisli þar hjá þeim ágætu hjónum, Guðin. lieitnum Ölafssyni alþm. og konu hans, Sigurlaugu Jónas- dóttur. Eg ætlaði suður Gríms- tunguheiði að morgni, en Guð- mundur heitinn bjóst í káup- staðarferð. — Sendi ullarvagn sinn á undan sér, liafði Jarp (fallegasta gæðinginn, sem eg sá í því ferðalagi) heima við eða inni um nóttina og ætlaði af stað fyrir fótaferðartíma. Hafði eg orð á því, að mér þætti hann árrisull, en hann svaraði svo, að heim mundi hann riða að kveldi, og veitti því ekki af tímanum. Og farinn var hann að morgni, er við komumst á kreik, ferðalangarnir. Sigurlaug í Ási er góð kona og merk, gáfuð, bókelsk og fróð um marga hluti, en ákaflega hæg og prúð og yfirlætislaus. — Við félagarnir ætluðum tíman- lega af stað. Og er við vorum ferðbúnir, spurði Sigurlaug mig af hljóði, hvað eg vissi um Húslestrabók síra Páls í Gaul- vei'jabæ —• hvort önnur útgáfa mundi væntanleg innan skamms. Hún hefði eitthvað um það heyrt, að ný prentun væi’i í undirbúningi. Eg varð þvi miður við það að kannast, að eg vissi ekkert um málið. Kvaðst hún þá vona, að bókin kærrii áður langt um liði, og lét í Ijós nokkura undrun yfir því, að ekki skyldi fyrir því séð, að þjóðin ætti jafnan kost slíkrar guðsorðabókar. Svo bætti hún við með einstakri hægð: Eg held að ræður sira Páls þyki golt og fagurt guðsorð hér um slóðir. —o—- Útgefandi Páskaræðunnar, Sn. J., fylgir henni úr lvlaði með skörulegum formálsoi’ðum. Er þar margvíslegur fróðleikur um síra Pál og einkum við það stuðst, sem þeir hafa um hann í-itað: Þórhallur biskup, síra Matthías og síra Valdimar Briem. Þeir síra Páll og síra M. J. voru skólabræður og alúðar- vinir, skrifuðust á að staðaldri og ræddu liugðarmál sín. Er það mikið mein, að þau bréf þessai-a frægu og fi’ábæru manna skuli nú að öllum líkind- um glötuð. Má ætla, að margt hafi borið á góma og merkilegt, er slíkir menn í’æddust við. — Hefir síra Mattlrias lýst síra ,PáIi að nókkuru í Nýju kirkju- blaði (1915) og segir þar m. a.: — „Áðal-einkunnir síra Páls voru þeir kostir, sem öllurn fara best, en þó fi’amar öllum öðrum klerkum og kennimönn- um, en þeir kostir eru sann- leiksást, hreinskilni og einurð“. — Og enn fremur: „Hann var fríður sýnum og vel á sig kom- inn, hvatlegur, snotur og kurt- eis, þótt hann í sumu minti á norðlenskt sveitalif, t. a. m. þeg- ar glaðværð var á ferðum og hann hló, eða tók á fyixdni sinni, því að fyndnari mann hefi eg' ekki þekt .... Það er satt, að hann var örgeðja og ýmist kát- ur eða hugsandi og eins og þunglyndur . .. . “ — Þá segir hann frá því, að þeir síra Páll hafi þegar lineigst hvor að öði’- um, er þeir kyntust í skóla, og oi’ðið trygðavinir. Ifafi síra Páll verið mjög fyrir öðrum skóla- sveinum um háttprýði alla og reglusemi — „Iatínumaður með afbrigðum, svo að eg hygg að enginn íslendingur lxafi síðan orðið hans maki .... Töldu flestir, sem kunnu að ineta Pál, Verðlaunasamkepni Sjómannadagsins. Sjómannadagsnefndin boðaði nýlega til kepni um ljóð, sem hentugt væri til söngs í tilefni dagsins, og var verðlaunum heitið og dómnefnd skipuð, en í henni sátu þeir: Dr. Guðmundur Finnbogason, Sigurður prófessor Nordal og Geir skjpstjóri Sig- urðsson. 1. verðlaun, kr. 150.00, hlaut Magnús Stefánsson í Hafnarfirði (Örn Arnarson) en önnur verðlaun, kr. 50.00, Jón skáld Magn- ússon. Fara kvæði þeirra hér á eftir: 1. verðlaun. JLjóð Magnúsar Stefánssonar. íslands Hrafnistumenn lifðu tímamót tvenn, þó að töf yrði á framsóknarleið eftir súðbyrðings för konx hinn seglprúði knör, eftir seglskipið vélknúin skeið. En þótt tækjurn sé breytt, þá er eðlið samt eitt, eins og ætlunarverkið, er sjómannsins beið. Hvort seixi fleytan er smá eða seglprúð að sjá og hvort súðin er tré eða stál, livort sem knýr liana ár eða reiði og riár eða rammaukin vél yfir ál, — hvert eitt fljótandi skip ber þó fai’mannsins svip, hann er ferjunnar andi og hafskipsins sál. Hvort sem heinxalands strönd eða langt út í lönd á hann leið yfir ólgandi flóð, gegn um vöku og drauni fléttar trygðin þann taum, seixx liann tengir við land sitt og þjóð. Þegar hætt reynist för, þegar kröpp reynast kjör, verpur karlmenskan íslenska bjarma á lians slóð. íslands Hi-afnistumenn eru hafsæknir enn, ganga liiklaust á oi’ustuvöll út í slormviðrin liöst, nxóti straumþungri röst, yfii’ stórsjó og holskefluföll, flytja þjóðinni auð sækja barninu brauð, færa björgin í grunn undir framtíðarhöll. Magnús Stefánsson (Örn Arnai’son). Hafnarfii’ði. mikinn skaða, að vanefni lians nxeinuðu honuxxi að sækja há- skólann“ .... Og margt fleira lofsamlegt segir síra Mattliías um þennan ógleynxanlega vin sinn og frábæra atgervisxxxann. Sn. J. birtir og nokkura kafla úr bréfunx fná síra Páli til Þor- steins læknis Jónssonar í Vest- mannaeyjum. Eru þeir ritaðir af miklum áhuga, nxiklu hisp- ursleysi, mikilli vandlætingu ( og nxiklum unxbótalxug. — ' „Eg brenn af áhuga fyrir við- reisn lands og þjóðar“ segir hann á einunx stað. Hann vill menta þjóðina og manna, auka frelsi hennar, andlegt og ver- aldlegt. — Fáfróð þjóð og fávís j sækir ekki á brattann og ófrjáls 1 lýður verður aldrei að manni. . En það finst á, að lionum þyki forustan heldur slæleg, er Jóns Sigurðssonar nýtur eigi lengur. — „Við eigunx senx stendur engan skörung, enga frelsis- hetju“, segir hann þrem árum eftir fráfall hins mikla forseta. Sjóvátryggingarfélagið hefir gefið rafniagnsklukku, senx á að festa upp á Iþróttavellinum. Umger'Ö klukkunnar og skífan verÖa smíðuð hér, en Raftækjaeinkasal- an ætlar að útvega verkið. 2. verðlaun. Ljóð Jóns Magnússonar. Sjómenn íslands, hetjur hafsins lialda vörð um land og þjóð. Djörfum sonunx fjalls ogfjai’ðar flytur Ægir töfraljóð. Gnýr og hljómar hafsins átt. Hugi unga aldan þunga dregur út á djúpið blátt. Glampar sjór í sólareldi. Siglir knörr á ystu nxið. Daga, nætur stolt að starfi stendur valið kappalið. Streymir þrek í þreytta hönd. Ljómar háa, hvíta bláa íslaixds kæra stormaströnd. Heirn að landi hugur flýgur, heinx í kæra vina sveit. Göfugt starf uixx arð og yndi i öllunx gefur fyrirlieit. Stendur vörð liin vaska drótt. Ruggar alda kjölnunx kalda. Dregur mökk úr djúpi skjótt. Brýtur sjó á breiðunx lierðuni- Beitir knörrinn undir strönd. Himinglæfur háar rísa. Hvar er Islands móðurhönd? Rýkur gráu drifi Dröfn. Gnoð úr voða bi-ims og boða fylgdu, Drottinn, heim í liöín. Jón Magnússon.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.