Vísir - 22.06.1945, Side 6
6
yisiR
Föstudaginn 22, júpí 1945-
Sumarfagnaður
SUÐURNESJAMANNA
verður haldinn Jónsmessudag, sunnudaginn 24. júní á
flötunum sunnan við Voga, og hefst kl. 2 e. h.
Ræður flytja: Þingmaður Gullbringu- og Kjósarsýslu,
Ólafur Thors, forsætisráðh., síra Jón Thorarensen o. fl.
Flutt frumort kvæði í tilefni dagsins. Lúðrasveit
Reykjavíkur (20 menn) spila. Kórsöngur og önnur
skemmtiatriði. Dans á palli til kl. 12 á miðnætti.
Veitingar á staðnum.
Fólk tryggi sér bílfar suður hið fýrsta. — Bílferðir frá
Steindóri. — Auk þess verður bílferð frá b.s. Heklu kl.
10,30 f. h. — Þess er vænst, að félagsmenn og Suður-
nesjabúar fjölmenni.
Skemmtinefnd Fél. Suðurnesjamanna í Reykjavík.
Sportfatnaður
fyrir dömur.
Ferðajakkar
í ýmsum litum.
Stuttbuxur (shorts).
Kvenblússur,
hvítar og mislitar.
Hosur í miklu úrvali.
Hlý undirföt.
Níels Karlsson & Co.
Laugaveg 39. Sími 2946.
Gardínustangir.
Patent-gardínustangir með rúllum
einfaldar og tvöfaldar.
Ludvig Stor'r.
TILKYNNING
um iðnpróf fyrir matsveina og veitingaþjóna.
Þeir matsveinar og veitingaþjónar, sem ekki hafa
fengið iðnréttindi, en óska að ganga undir próf í við-
komandi íðngreinum, geri svo vel að vitja bréfs um
það efni til Böðvars Steinþórssonar matsveins, Hótel
Borg, eða heima á Ásvallagötu 2, fyrir 10. júlí næstk.
Stjórn Matsveina- og veitingaþjónafélags íslands.
Auglýsingar
n
sem birtast eiga í blaðmu á laugardög-
um í sumar, þurfa að vera komnar til
skrifstofunnar
eigi síðar en kl. 7
á föstudagskvöld, vegna þess að vinna
í prentsmiðjunum hættir kl. 12 á há-
degi á laugardögum á sumrin.
Breytingar á bæjar-
fógetagarðinum.
f vor hefir Bæjarfójjeta-
garðinum hér í Miðbænum
verið gerbreytt frá því sem
áður var, og hefir Landssím-
inn staðið fyrir þessum breyt-
ingum.
Girðingin sem áður huldi
þennan garð fyrir augum
bæjarbúa hefir nú verið rif-
in en ráðgert mun vera að
setja lága rimlagirðingu i
staðinn og mun garðurinn
eftirleiðis verða bæjarbúum
til augnayndis og slcemmtun-
ar.
Þorkell Árnason garð-
yrkjumaður, sem yfirumsjón
hafði með öllu þvi, er að
garðyrkju laut, hefir skýrt
Vísi í liöfuðdráttum frá
framkvæmdum þeim, sem
unnar liafa verið við garðinn
í vor.
Byrjað var ,á garðinum
snemma í maímánuði og
unnið að houum til síðustu
mánaðamóta. Þá var hætt við
garðinn, enda þótt ýmislegt
væri enn ógert, sem betur
hefði mátt fara. Ástæðan
mun hafa verið ósamkomu-
lag milli Landssímans og
Reykjavíkurbæjar, um rekst-
ur garðsins, en þeir aðilar
hafa umráð yfir honum.
Var garðurinn skipulagður
að nýju og honum gjörbreytt.
Sett voru í hann ný blómabeð
og fenginn í hann f jöldi sum-
arbjömá. Gróðursettar voru
ennfremur allmargar trjá-
plöntur, bæði birki og reyni-
viður og komið fyrir stórri
grasflöt í miðjum garðinum.
Ekið var mörgum tugum
bílhl.assa af gróðurmold í
garðinn og grasþökur keypt-
ar. Unnu 14 manns í einu að
garðinum þegar mest var
unnið, en alls mun um 100
dagsverk hafa verið unnin
þar i vor.
Svo sem að framan greinii-,
hefir verið ráðgert að girða
garðinn með lágri rimlagirð-
ingu, bæði til að verja bann
fyrir allskonar bréfarusli sein
fýkur eftir götunum og svo
líka vegna þess að umgengni
garðgesta hefir verið miður
en skyldi það sem af er vor-
inu.
Nýir kaupendur
fá blaðið ókeypis til mánaða-
móta. Gerist áskrifendur strax,
hringið í síma 1660 og pantið
b'aðið.
Okinawa.
Framh. af 1. síðu.
aðskilda herflokka, sem berj-
ist örvæntingarfullri baráttu,
og eigi einskis annars úrkost-
ar en að gef.ast upp eða falla.
Annað varnarsvæðið það
stærra er aðeins liðlega 1000
metrar á breidd.
Bandaríkjamenn eru liætt-
ir að nota stórskotaliðið i
bardögunum og sækir fót-
gönguliðið fram og leitast við
að uppræta herflokkana, sem
ennþá veita viðnám.
Frá Akureyri.
Kvenfélagið Framtíð
in efnir til Jóns-
messuhátíðar.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Kvenfélagið Framtíðin
efnir til fjölbreyttra Jóns-
messuhátíðahalda yfir helg-
ina.
Hátíðahöldin fara fram á
túninu fyrir sunnan sund-
laugina, og verður ýmislegt
til skemmtunar, svo sem
söngur, liljóðfærasláttur,
fimleikasýning og fleira. Há-
tiðin liefst síðdegis á morg-
un og mun standa fram eftir
aðfaranótt sunnudagsins o!*
allan sunnudaginn. Allur á-
góði af útiskemmtuninni
rennur til fyrirhugaðrar
sj ú krah úsbyggi ngar.
Ferðafélag Akurejnrar lief-
ir ákveðið að efna til ferðar
um Suðurland 30. júní n.k.
Ekið verður suðurKaldadal
og komið við að Geysi, Gull-
fossi, Hvítárvatni, Hveravöll-
um og gengið á Kerlingar-
fjöll. Á leiðinni til baka
verður komið við í Reykja-
vík.
'Fy rir skönmiu keppti
meistaraflokkur K. A. og
Þórs. Fóru léikar þannig að
K. A. vann með 2 mörkum
gegn 1. Vann félagið til eign-
ar svo kalláðan „Walash*4
bikar, sem Efnagerð Siglu-
fjarðar gaf ;á sínum tíma.
íþróttaflokkur frá Þór hefir
verið á ferðalagi um Aust-
urland undir stjórn Ingvars
Þorsteinssonár fimleika-
kennara.
JOB.
Söngför Breiðfirð-
ingakórsins.
Breiðfirðingakórinn efnir
þessa dagana til söngfarar til
Breiðafjarðar.
Syngur hann í dag í Búðar-
dal og að Kirkjuhóli i Saur-
bæ, á morgun í Berufirði, en
á sunnudaginn kemur i Flat-
ey og Stykkishólmi.
Ivórfélagar eru 34 talsins,
en söngstjóri er Gunnar Sig-
urgeirsson píanóleikari. Ein-
söngvarar eru þau frk. Krist-
in Einarsdóttir og Haraldur
Kristjánsson. Formaður kórs-
ins er Sigurður Guðnmnds-
son.
Á söngskránni eru 16 inn-
lend og erlgnd lög.
Gjöf tilvinnuheimilis
S.Í.B.S.
Jón Loftsson hefir gefið
Vinnulieimili S.f.B.S. timbur
fyrir 5000.00 krónur.
Sýslunefnd Suður-Múla-
sýslu hefir gefið 5000 kr. til
Vinuheimiíis S.f.B.S.
Stjórn Vinnuheimilisins
flytur Jóni Loftssyni sínar
beztu þakkir fyrir þessa
böfðinglegu gjöf.
Töskui — Veski
Samkvæmistöskui
nýkomið. Mikið og gott úrval.
Verzlun Ingibjargar Johnson.
BÆJARFBETTIR
□ Edda 59456247 — 1. atkv.
Listi i kaffistofu og hjá S. M.
til hádegis á morgun.
Næturlæknir
er í Læknavarðstofunni, shnii
5030.
Næturvörður
er i Laugavegs Apóteki.
Næturakstur
annast bst. Hreyfilt, simi 1633„
Skipafréttir.
Súðin og Selfoss fóru i strand-'
ferð í gærkveldi. Þá kom tank-
skip, sem á að lesta lýsi hér..
Skallagrimur kom af veiðum í
morgun.
íslenzk fréttakvikmynd.
Óskar Gíslason, ljósmyndari,
mun sýna fréttakvikmynd sina i
Gamla Bió í kvöld kl. 11,30. Sjá
auglýsingu i blaðinu.
Veðrið í dag.
Klukkan 9 í morgun var suð-
austan átt um allt land, allhvasst
i Vestmannaeyjum en viðast hvar
hægviðri. Þurrt veður norðvest-
anlands en litilsháttar rigning
sunnanlands og austan. Hiti er 9
—15 stig.
Veðurhorfur.
Suð-Vesturland: Minnkandi suð-
austan átt og dálítil rigning. Faxa-
flói: Suðaustan gola og smá-
skúrir. Breiðafjörður, Vestfirðir,
Norðurland: Hægviðri og viðast
léttskýjað. Norðausturland og
Austfirðir: Suðaustan gola og
léttir til. Suðausturland: Austan
kaldi og skúrir.
Mæ. Esja
var stödd, kl. 10 i morgun, 50
milur frá Bergen.
Útvarpið í kvöld.
19.25 Hljómplötur: Harmóníku-
lög. 20.25 útvarpssagan: „Herra-
garðssaga“ eftir Selmu Lagerlöf;
þýð. Björns Jónssonar (H. Hjv.).
21.00 Pianókvartett útvarpsins:
Píanókvartett í Es-dúr efir Moz-
art. 21.15 Erindi: A vegum gró-
andans (frú Astríður Eggersdótt-
ir). 21.40 Hljómplötur: Frægir
söngmenn. 22.00 Fréttir. 22.05
Symfóníutónleikar (plötur): a)
Pianó-konsert eftir Rachmanin—
off. b), Poéme d’extase eftir Scri—
abine. 23.00 Dagskrárlok.
KR0SSGATA nr. 76.
Skýringar:
Lárétt: 1 Þjóöhöföingi, 7
ættingi, 8 land, 9 ónefnduiy
10 liár, 11 kindina, 13 for-
nafn, 14 kvæði, 15 kona, 16
mann, 17 piltur.
Lóðrétt: 1 Uppgötvaði, 2
eldstæði, 3 guð, 4 annars, 5
fáls, 6 hreýfing, 10 þar til, 11
hæstir, 12 kvikar, 13 mat, 14
fæddu, 15 guð, 16 fór.
Ráðning á krossgátu nr. 7v?
Lárétt: 1 Smá, 3 S.O.S., 5
ká, 6 S.F., 7 sko, 8 ló, 10 ermi,
12 inn, 14 rak, 15 áir, 17 K.A.,.
18 aðlaði.
Lóðrétt: 1 Skóli, 2 má, 3
Storr, 4 strika, 6 ske, Ó ópáð,.
11 niaki, 13 Nil, 16 Ra.