Vísir - 04.11.1946, Qupperneq 1
36. ár.
Mánudaftinn 4. nóveniher 1946
249. tbl*
riðersamiiingar við banda
enn pjoeverja
'in (LSháó
etjíHffœ
Hus ð á myndinni er Aíþingishús Færeyinga — Lögþing-
’núdð ' Þórshöfn. Á fcstudag fara fram kosningar í Fær-
eyjum og birtir Vísir í dag grein um bær á blaðsíðu 2.
Allsherfarhmdur Ólympíuneindar-
itmar haldinn i Sviss.
50 milf. deyja
Líknr eru iil [x’.ss, að um
50 milljónir Kínverja dciji
úr hungri í veiur.
I frétt frá Nanking til-
kynnist, að búasl megi við,
að 50 milljónir Kínverja
muni deyja úr hungri í ve'tur.
Ein ástæðan til hinnar
a-gilegu hungursneyðar, sem
vart verðui' umflúin er, að
vatnsflóð liafa eyðilagt
kringum 200.000 heklara ak- j
urlendijs. Þá iiafa engisprett-
ur gert mikiiin usla og loks
hefir vega- og járnhrauta-
kerfinu stórhrakað sökum
borgarastyrjaldarinnar.
sopnnar.
Fyrsta flugmannaverUfall
m annkgn ss ögunnar.
90 l'Lugferðir lokuðust i
Bandaríkjunum og 3000 far-
þegar „sírönduðu“.
Hinn 21. októher hófst
fyrsla flugmannaverkfall
mannkynssögunnar, er 1100
af 1400 flugmönnum Trans-
world Airlines lögðu niður
vinnu. Flugmennirnir kröíð-
ust kaupliækkunar, vildu
þeir fá mánaðarkaup sitt
liækkað úr 758 dollurum á
mánuði í 1200 dollara. Flug-
mennirnir liættu vinnu hver
af öðrum, er þeir höfðu lent
vélum sínum og stöðvaðist
þannig flug á 45.000 km.
flugleiðum.
Innbrot í Café
Central.
í nóft var brotist inp á mat-
og kaffistofuna Central en
engu stolið sem fémætt má
leljast.
Lögreglan liafði hendur á
mannjnum sem fraxndi inn-
hrotið og sagðist hann hafa
framið það, til þess að ná sér
í mat en ekki til að nálgast
aðra hluti. Þessu til sönnunar
var hann að snæða blóðmör
og kjöt, sem hann hafði
fundið inn á matstofunni, er
lögreglan fann hann. — Mað-
urinn var ölvaður.
Munið,
að vaxtabréf Stofnlánadeildar-
innar til 5 ára gefa ykknr 50%
Iiærri vexti en þið fáið af inn-
stæðufé i sparisjóði.
ir í Mývatnssveít
| Þess var getið í fréttum úí-
j varpsins á föstudag, að ösku-
j falls hefði orðið vart í Mý-
vatnssveit að undanförnu.
A laugardag átti hlaðið
símtal við sóknarprestinn að
Skúlustöðum og spurðist fyr-
ir um öskufallið og hvort
það myndi standa í sambandi
við eldgos. Taldi prestui'inn
að svo væri ekki. Sagði liann
að mikil sunnanhátt Iiefði
verið undanfarið og þurr-
viðri, og fyki þá aska og
sandur af hálendinu niður i
sveitir. Taldi hann að svo
mikil hrögð væru að þessu
Öskuroki, að það myndi vinna
graslendi tjón, ef ekki brygði
til votviðra innan skamms.
Oskurokið var svo dimmt, að
skyggni var sumstaðar ekki
meira en 1 km.
Leiguflugvél F. í.
á ieið að vestan.
Leiguflugvél F. I., sem
verið hefir vestan hafs, er nú
senn væntanleg hingað.
Flugvélin fór frá Nexv
York síðastliðinn laugardag
og kom til Gander-flugvall-
arins á Nýfundnalandi i gær-
morgun. Var búizt við því,
að hún mundi hafa þar
skamma viðdvöl og halda
siðan áfram hingað, en i
morgun skýrði F- L hlaðinu
frá þvi, að flugvélin væri
enn í Gander. Er andhyr alla
leiðina þaðan hingað, svo að
l'lugvélin biður hagstæðara
veðurs.
Flugvéjin fór vestur fyrir
rúmum mánuði og varð fvr-
ir ýmsum töfum þar.
í morgun fór önnur leigu-
vél héðan til Khafnar og
kemur húp aftur á morgun.
IVÍannerheim
veikur.
Mannerheim marskálkur,
sem fór til Stokkhólms fvrir
nokkrum vikum, veiktist ný-
lega og liggur nú á sjúkra-
liúsi i Stokkhólmi.
Fvrsti allsherjarfundur al-
þjóöa-Ólympíunefndarinnar
(C. I. O.) eftir stríðið var
haldinn í Lausanne í Sviss
dagana 2.—7. september.
Sátu hann 17 eldri meðlim-
ir ncfndarinnar og 9 meðlint-
ir, sem nýlega liafa verið
kjörnir, meðal þcirra Bene-
dikt G. Waage, sem kjörinn
hafði verið meðlimur fyrir
Islantl. En aðrir 4 meðlimir,
nýkjörnir, voru fjarverandi
söktim forfalla.
Sænski fulllrúinn, J. Sig-
fried Edström, var i einu
hljóði endurkjörinn forseti
nefndarinnftr og Ameríku-
maðurinn Aveiy Brundage
endurkjörinn varaforseli.
Fulltrúar Breta gáfu
skýrslu um, hvað gcrt liefði
verið til undirhúnings Ólym-
piuleikjunum í London 1948.
Verður þeim liagað mjpg
svipað og síðuslu 2 ölympíu-
Ieikjum. Vetrar-Olympíu-
leikiniir verða haldnir á veg-
um alþjóða-skíðasamhands-
ins i St. Moritz, í fehrúar
1948, og hefir alþjóða-skíða-
sambandið fallizt á það sjón-
armið Olymjiíunefndar, að
útiloka heri alla nema álmga-
menn frá keppni. Verður þvi
sleppt Itappgöngu herliðs-
flokka en aftur á móti keppt
i nýrri tegund af fimmlar-
kejipni vetraríþrótta.
Borizl Iiafa tilboð frá ýms-
um horgum um að lialda
Ólynipíuleiki 1952, meðal
þeirra Detroit, Minnesota, Los
Angeles, Aþenu, Helsingfors,
Stokkhólmi og Lausanne..
Frh. á 4. siðu.
Matteotti-mál-
id rannsakað
að iiýjii.
Matteotti-málið verður tek-
ið fgrir að mjju.
Hinu 11. desember næstk.
hefst ný ranusókn i hinu
alkunna Matleotli morðmáli.
Tíu nienn munu verða á-
kærðir, mcðal þeirra er
Francesko Giunda, fyrrver-
andi Iandstjóri í Dalmatíu
og frægur fyrir hryðjuverk.
Blaðafulltrúi Mussolini,
Cesare Rossi og Amerigo
Dumini, sem 1926 var fund-
inn sekur um níorð Matte-
otti, eru einnig ákærðir.
Amerigo Dumini var
dæmdur í væga og slutta
fangelsisvisl 1926. Badoglio-
stjórnin tók liann til fanga
1943. Þjóðverjar hjprguðu
honum úr fangelsinu og i júli
í fyrra var hann handlekinn
í þriðja skipti.
Ráðherrar fjór«
veldanna haldci
fund í Waldorf
Astoria.
tanríkisráðherrar fjór-
veldanna ■— Breta,
Bandaríkjanna, Rússa og
Frakka — munu kom .
saman á fund í dag.
A þeim fundi verður end-
anlega gengið frá friðar-
samningunum við bandt ■
Iagsríki Þjóðverja í stríðint .
Þau ríki er þar koma li'
greina eru: Búlgaría, Rúm-
cnia, Finnland, Ungverja-
land og ítalía.
Rætt um Þýzkaland.
Utanríkisráðherrarn i r
munu einnig taka til athug-
unar ýmis atriði varðandi.
Þýzkaland, en friðarsamn-
ingar við það verða tekni ■
ífarlega til meðferðar á
fundi ráðherranna 20. nóv.
Fundur utanríkisráðheri-
anna verður haldinn í Wal -
dorf Astoria gistihúsinu o ;
vei'ður sterkur lögrcgluvörð-
ur liafður í gistihúsinu með-
an á fundinum stendur.
Trieste.
I dag er Itilið að utanrikis-
ráðherrarnir muui aðeins
halda stuttan fund og ræðu
tilliögunina á umræðununi.
Á næsíu fundum utanríkis-
ráðherranna verður. væn taii-
lega tekið fyrir Triéste-
vandamálið og önnur mál.
sem ekki tókst að ná sain-
komulagi um á friðarfund-
i n um í Paris.
Júgóslavar.
Aðstoðarutanríkisráð-
lierra Júgóslava hefir óskað
, eftir því að fulltrúi þeirra
fái að vera viðstaddur er
friðarsamningarnir við ítal-
íu verða ræddir, en stjórn
Júgóslava hefir áður gefið í'
skyn, að hún muni ekki und-
irrita friðarsamningana við
Itali, ef viðunandi lausn fá-
ist ekki á Triestemálinu.
Örgggisráðið.
Öryggisráðið kemur einnig
Framh. á 3. síðu.