Vísir - 26.02.1947, Side 2
2
V I S I R
Miðvikudaginn 26. febrúrtr 1947
* uppreistardagurinn
I
Grein sú, sem hér fer á
eftir, er skrifuð af ungum
Télcka, sem hér dvelst um
þessar mundir. — Vlastis-
lás Jírí Schnither.
I marzmánuði 1945 var
öllum Ijóst, að Þjóðverjar
höfðu tapað stríðinu og fólk
bjóst við stríðslokum þá og
þegar.
í Prág liöfðu Þjóðverjar
uiídirbúið eyðileggingu ým-
issa frægra bygginga einkum
x lijarta borgarinnar.
Andstaða Tékka gegn Þjóð-
verjum var öðruvísi en t. d.
Norðmanna og Dana. Tékkar
höfðu ekki skipulagðan
Ieýniher, en margir áttu vopn
geymd og voru reiðubúnir að
grípa til þeirra, er á þyrfti
að lialda.
Margir ungir Tékkar
reyndu að komast úr landi
og ganga í lieri bandamanna
og (jll liernámsárin störfuðu
sarntök Tékkó-slóvakíu, sem
greiddu fyrir þeim, er höfðu
slíkt í hyggju.
A árunurn 1940—’41 kom-
ust margir um Júgóslavíu,
þar á meðal 5—600 flug-
menn. Er Þjóðverjaar höfðu
hernumið það land lokaðist
þessi leið, en þá reyndu
Tékkar að komast til Sviss.
Leiðin til Sviss liggur, sem
kunnugt er, um Þýzkaland og
urðu því þeir, sem liæltu sér
Iiana að ráða sig í þjónustu
Þjóðverja; síðan hurfu þeir á
einhverri járnbrautarstöð-
inni í nánd við landamæri
Sviss.
Unnið fyrir
Þjóðverja.
Tékkar urðu að vinna fyr-
ir Þjóðverja, en við réyndum
að leysa verkin eins illa af
hendi og við gátum. í stríðs-
lokin vann eg á verkstæði,
sem gerði við bíla og setti
viðarkolavélar í þá. Yið unn-
um eins slælega og nokkur
kostur var á, því að við viss-
um, að Þjóðverjar notuðu
þessa bíla til þess að ftytja
verðmæti ur landi og fórum
okkur þvi að engu óðslega.
Það var ekki auðvell fyrir
okkur að svíkjast um, því að
Gestapó átti vagnana og
Gestapó-foringjai' konxu á
hverjum degi til að líta eftir
verkinu. Þeir sögðu okkur
skýrt og skorinort, að ef við
reyiidum að tefja vinnuna á
einn eða annan hátt yrðum
við umsvifalaust kærðir fyr-
ir spellvirki. Til allrar liam-
ingju fyrir oklcur var efnið
lélegt og því erfitt að fylgjast
með því, sem við gerðum.
Ilinn 4. maí fékk eg til-
kynningu um, að tíminn
væri kominn og ætti eg að
vera tilbúinn. Eg fór eftir
skammbyssunni minni, sem
var falin á skrifstofu, sem eg
yann í á dögum hins ill-
ræmda Heydrich. Prá skrif-
stofunni átti eg að fara heim
til min og standa á verði þar.
Byrjað að
berjasL
Þegar eg kom út úr skrif-
stofunni sá eg marga lier-
menn reiðubúna til að hefja
skolhríð. Fólk safnaðist sam-
an í hópa og ræddi alvarleg
málefni. Eg ætlaði að fara
að spenna bóginn á skamm-
byssunni minni, þegar stór-
vaxinn þýzkur hermaður,
vopnaður riffli, kom beint í
flasið á mér.
„Upp með hendurnar“,
skipaði hann og siðan ýtli
hann mér með byssuhlaupinu
að horni hússins. Þar skipaði
hann mér að ganga beint af
augum og snúa ekki við. Til
allrar hamingju Iiafði hann
ekki komið auga skammbyss-
una.
Talsverð skothrið var i
götunni, sem eg fór yfir, svo
eg flýtti mér eins og eg gat
að komast inn i húsasund.
Ráðrizt á
skriðdreka.
Mér var nú ljóst, að upp-
reistin var hafin. Brynvarinn
þýzkur bíll með hermönnum
og opinn hermanjiábíll komu
akandi eftir götunni. Tékki
þaut út úr næsta húsi með
byssu í hendinni og skaut
bílstjóra opna bílsins. Þetía
gerðist á horni dPanska ullee
nad Prikopy. Út úr húsinu á
móli kom annar maður
hlaupandi og áður en Þjóð-
verjar fengu ráðrúm til að
hlaða fallbyssuna, sem þeir
liöfðu i bryndrekanum, var
ráðizt á þá og bárdaginn
hófsí.
Nokkurir Þjóðverjar komu
úr næstu götir félögum sín-
um til hjálpar og ef þeir
hefðu köinizt alla Jeið hefði
verið liti um Tékkana. Nú
skarst eg í leikinn. Það sem
eg gerði var mjög einfalt en
bar eigi að síður góðan ár-
angur. Eg tók skammbyss-
una upp úr vasanum og kall-
aði á enzku: „Upp með hend-
urnar“. Þegar Þjóðverjar
heyrðu enskuna urðu þeir
dauðskelkaðir og gáfust upp.
Fleiri Tékkai' komu út úr
nærliggjandi húsum og tóku
Þjóðverjana til fanga. Yopn
þeirra komu okkar mönnum
í góðar þarfir.
Náð í
vopnabirgðír.
Eg . komst heim til mín í
skjóli bílsins, sem við náðum
af Þjóðverjum, og var fyrsti
Tékkinn, sem var vopna'ður
i því húsi. Tékkneska leyni-
útvarpið í Þrag bað fölk um
aðstoð til að verja útvarps-
stöðina og. ganga jafnframl
milli bols og höfuðs á Þjóð-
verjum.
Fjöldi Þjóðverja var'i hús-
inu, sem eg bjó í og þar eð
yfirmetm þeirra höfðu gert
þeim aðvart, voru þeir með
alvæpni. Við vissum að riffla-
birgðir voru til i húsinu. Til
allrar hamingju fundum við
þá fljótlega og lögðum þegar
til atlögu.
Allt gekk vel og áætlun,
sem við liöfðum gert fáum
dögum áður, virtist ætla að
heppnast. Kvenfólkið hitaðí
kaffi lianda okkur og á með-
an fundum við matvæli, sem
Þjóðverjar áttu. Sannaði sá
fundur, að Þjóðverjar höfðu
ællað að verjast til þrautar i
húsinu.
í fyrstu höfðu þeir alla
neðstu hæðina á valdi sínu
en bráðlega var þeim þrengt
saman í nokkur herbergi. Er
þeir undirbjuggu vörnina,
liöfðu þeir ekki veitt þvi eftii’-
tekt, að tveir stigar lágu inn
í þessi herbergi, en við kom-
umst að þeim eftir stigunum
og tókum flesta þeirra lil
fanga með áhlaupi. Nokkrir
féllu af okkar mönnum, en
mun fæi’i’i en við hefði mátt
búast. Áhlaupið Iiafði komið
Þjóðverjum að óvörum.
Bryndreki á
leiðinni.
Næsta nótt var ægileg. Yið
urðum að liafa gát á Þjóð-
verjum sem enn léku lausum
hala og halda vörð á þaki
hússins, því að það var sam-
byggt næstu húsum. Yið og
við urðum við að senda að-
albækistöðvunum boð um
hvernig gekk. Allt í einu
fengum við boð um að stór
bryndreki með fallbyssu
væri á leiðinni til okkar.
Nokkrir urðu þegar að byrja
að gera grafir fvrir skrið-
drekavarnabyssur, sem við
höfðúm.
Þá var hringt frá ppisthús-
inu, en þeir sem vörðii þá
mikilvægu byggingú höfðu
verið matarlausir allan dag-
inn. Nokkrum af okkar
mönnum var skipað að fara
með mat handa þeim, en
Þjóðverjar höfðu húsin
kringúm pósthúsið á valdi
sínu.
Mér var falið að stjórna
liópnum, sem átti að ráðast
í þetta ævintýralega fei'ðalag.
Okkur tókst að komast ýfir
Venceslastorg heilu og
höldnu og alla leið að póst-
húsinu. Þegar dyr póstliúss-
ins opnuðust, féll ljósgeisli
út og' undir eins hófst skot-
hríðin. Yið köstuðum okkur
flötum til jarðar, reyndum
að mjaka okkur áfram og
ýta ílátunum með heita matn-
um á undan okkur.
Bak við
öskutunnur.
Þegar eg var i þann veginn
að mjaka mér inn var ljósið
inni slökkt, en mér til mik-
illar skelfingar féll sterkur
ljósbjarmi frá einii af hús-
unum. sem Þióðveriar höfðu
á valdi sinu, Keint á blettinn,
þár sem eg lá. Eg þorði
jhvorki að hræfa legg né lið.
ÍAllt í einu kom eg auga a
nokkrar öskutunnur rétt við
dyrnar’ Það var aðeins selc-
úndu verk að skjótast bak við
þær. Eg komst bak við tunn-
urnar áður en vélbyssa fór
að gelta. Kúlurnar þutu yfir
liöfði mér góða stund. Svo
varð allt kyrrt, og eg komst
inn.
Það tók okkur klukku-
stund að komast heim frá
þessum óttalega stað, en er
þangað kom vorum við ná-
fölir af taugaæsingi. Við
"i •' • ■ ' \ ' ’ i ?? - ji i; s>ló H i I' - ‘
kveiktum okkur í sigarettum
ög fórum að skellililæja. Þeir
sem ekki höfðu verið með
héldu, áð við værum orðnir
vitlausif, Svo nærri höfðu
kúlurnar farið höfðinu á
mér, að það var gat á lijálm-
inum minum.
Enginn timi var til að-
sofa. Við sátum með rifflana
á hnjánum og hlustuðum á
útvarpið. Þulurinn bað Ame-
ríkana lijálpar en árangurs-
laust — við urðum sjálfir að
bjarga okkur úr þessu hel-
víti á jörðu.
Þannig endaði fyrsti upp-
reistardagurinn.
Gott steinhiís
í Skerjafirði til sölu. Stór eignarlóð. öll þægindi.
1 kjallara: 3 herbergi og eldhús. Á 1. hæð: 3
herbergi og eldhús. í risi: 3 herbergi og eldhús.
Allt laust til íbúðaf nema 2ja herbergja íbúð í
kjallara.
Málflutningsskrifstofa Kristjáns Guðlaugssonar hrl.
og Jóns N. Sigurðssonar hdl.,
Austurstræti 1. Sími 3400.
Rafmagnshandsagir
Höfum fengið nokkur stykki af hmum viður-
kenndu SKILSAW-sögum.
r *
VerzEunin iVSALIVIEY
Garðastræti 2. Laugavegi 47.
Niðui'soðið blómkál.
Klapparstíg 30.
Sími 1884.
Rafmagns-
lÍBtpottar
nýkomnir. —-
Málning & Járnvörur,
Laugaveg 25.
Stúlka óskast
til að sauma karlmanns-
bijxur heima. Upplýsjngar
í síma 5561.
Árpiðanleg og lipur
Stúíha
óskast í vefnaðarvöru-
verzlun í miðbænum um
mánaðamótin. Umsóknir,
ásamt' upplýsingum um
fyrri atvinnu og meðmæl-
um, ef til eru, sendist af-
greiðslu Vísis, merkt:
„1000“.
PELSáH
stór og lítil númer.
Saumastofan Uppsölum,
Sími 2744.
Skáphöldur,
Skúffutappar,
Skáplokur.
nýkomið.
Málning & Járnvörur,
Laugaveg 25.