Vísir - 24.03.1947, Blaðsíða 3
Mánudaginn 24. marz 1947
V 1 S I R
3
Félag járniðnað-
arnema í Reykja-
vík 20 ára.
Félag járniðnaðarnema í
Reykjavík mun verða elzta
iðnnemafélag sem starfandf
er á íslandi. Félagið er stofn-
að 20. marz 1927, að stofnun
félagsins stóðu nokkrir járn-
iðnaðarnema, nú mun vera
í félaginu um 140 neniendur,
Fyrsti formaður félagsins
var Guðjón Friðbjörnsson,
núverandi formaður er Jón
Einarsson.
Tilgangur félagsins hefir
frá uppliafi verið að vinna að
hættum kjörum járniðnaðar-
nema, og hefir það á þessum
20 ára starfsferli unnið að
margskonar " hagsimmámál-
um járniðnaðarnema, m. a.
oftar en einu sinni fengið
lcaup nema liækkað, slaðið á
verði um að samningar nema
væru haldnir o. s. frv.
Félagið var aðili að stofn-
un Iðnnemasambands íslands
árið 1944, og er það stærsta
sambandsfélagið.
Næsta tölublað „Iðnnem-
ans“, sem er málgagn I. N.
S. I. mun verða helgað -félagi
járniðnaðarnema á þessum
merku timamótum i sögu
þess.
ísöghoðn f#•
frídayur.
Hermann Guðmundsson
flytur í neðri deild frv. um
þjóðliátiðardag Islendinga
17. júni og almennan fridag
1. maí og er hún svofelld:
„17. júní er þjóðhátiðar-
dagui' Islendinga. Er ijæjar-
og sveitarstjórnum um land
allt skylt að sjá um, að stof-n-
að verði til liátíðalialda þann
dag'. Öll vinna er bönnuð 17.
júní nema óhjákVæmiIeg
störf. Ráðherra getur með
‘reglugerð sett nánari fyrir-
mæli um ákvæði greinar
þessarar.
1. mai er almennur frídag.'
ur um land allt, og er öll
vinna þá óheimil nema óhjá-
kvæmileg störf.
Lög þessi öðlast þegar
gildi.“
I greinargerð segir:
---1. maí hefir verið
hátíðlegur haldinn af verka-
lýðnum viðs vegar í heimin-
um í langan tíma. Hér á landi
hefir dagsins verið minnzt
síðan 1923, og er nú svo
komið, að í samningum allra.
stéltarfélaga og vinnuveit-
onda er gert ráð fyrir fridegi
þennan dag, svo að segja má,
að dagurinn sé nú þegar al~
niennur fridagur og þvi eðli.
legt og i samræmi við óskir
vinnandi fóllcs víðs vegar á
tandinu, að 1. maí sé lögboð-
ínn sem almennur fridagur.
Með frumvarpi þessu, ef
samþykkt verður, er ávkörð-
un fólksins sjálfs staðfest
með, légum."
~ VÍÐSJÁ ~
LITLIR BÍLAR LEYFÐIR
Á BERMUDAEYJUM.
Fyrir styrjöldina voru
engir bílar til á Bermuda-
eyjum. Einu farartækin voru
— auk reiðhjóla — sleðar,
já, þótt ótrúlegt sé, þá er
það satt, að sleðar voru að-
aifarartæki eyjaskeggja og
ferðamannanna sem komu
til eyjamta, þar sem aldrei
snjóar. Sleðárnir voru með
trémeiðum og þeir voru
dregnir eftir jörðinni af ux-
um. Þetta voru ekki, hrað-
fara farartæki, en þau einu
sem leyfð voru.
Þegar fíaiularíkin fengu
leyfi fíreta til að koma sér
upp bækistöð á eyjunum,
fengu þeir því framgengt að
þeir mættu nota bíla, ella
hefðu bækisiöðvarnar aldrei
orðið lil í tæka tíð. En þegar
þeir fóru þaðan aftur, urðu
þeir að gera svo vel að taka
bílana með sér — Bermuda
langaði ekkert í setuliðsbíla.
Nú ætlar sljórn eyjanna að
slakg dcdítið til á þessu. Iiún
er búin að leyfa bílainn-
flutning til eyjnna, en þó
með einu skilyrði — það má
aðeins fíytja smábíla þang-
afrog ekki lil skemmri dval-
ar en sex máriáða. Það má
nefnilega alls ekki sldlja
bíla eftir á gölunum þar,
menn verða að gera svo vel
að aka þeim inn í húsagarð-
inn hjá sér.
Yfirleitt eru reglurnar um
þetta svo strangar, að ein-
ungis er liægl að flytja tli
eyjanna eina tegund amer-
iskra bíla, Crosley. Brezkir
framleiðendur hafa því ein-
okun á bílasölu til eyjanna
sem stendur.
En þar með er ekki allt
upptalið, því að það er ekki
'auðhlaupið að því að fá
leyfi til að aka bíl á eyjun-
um. Það þýðir ekkert fyrir
þá, sem aðeins koma i
skyndiheimsókn að sækja
um ökuleyfi. Þeir fá það
ekki. Og hámark hraða eru
30 km. ■
I sambandi við það, er þing
eyjanna samþykkti loks
léyfi til að flytja inn bíla,
skeði broslegt atvik, ef kalla
má því nafni. Umboðsmenn
brezku verksmiðjannar eru
allir þingmenn, sem sam-
þykktu frumvarpið.
Siðameistari
Mussofinis
drukknar.
Maðurinn, sem kenndi
Mussolini heldri manna siði,
drukknaði nýlega skammt
frá Róm.
Maður þessi hét' Mario
Pansa og var sonur ítalsks
stjórnmálamanns, sem var
á sínum tíma sendiherra í
London. Bauð Mario Musso-
lini þjónustu sína eftir göng-
una til Rómaborgar og
lcenndu honum mannasiði. —
Tólc hann aldrei nein laun
fyrir, kvaðst aðeins hafa
viljað lcoma í veg fvrir, að
mcnn héldii, að stjórnandi
ítájíu væri ómenntaður götu-
sali. — (U.P.)
Systur verla
bræður.
Tvær systur í Höfðaborg
eru nú orðnar bræður eítir
margar flóknar læknisað-
gerðir.
Nú heitir önnur „systirin“
Daníef og ætlar hún í her-
inn, en hin ,,systirin“ heitir
Davíð. Hún eða hann vinnur
í verksmiðju. Ekkján móðir
þeirra átti sex dætur og enga
sonu — og því fór sem fór.
(D. M-ail).
Sundhöllin
verSur . lokuð í dag kl. 6,30. Aðgöngu-
miðasala hættir kl. 3,43.
I fyrramálið ekki opnað fyrr en kl. 10.
Glæsileg Buick-bifreið, módel 1942, Standard
16, keyrð 3000 mílur. Chevrolet, módel 1942,
keyrð 25000 mílur. — Einnig ýmsar fleiri bif-
reiðir. — Nánan upplýsingar kl. 4—7 (ekki í
síma). — .
jSSiiíMBSBÍöSeiseÍM
Bankastræti 7.
Beiðnir um möt á múrvinnu slculu vera skriflegar
og sendast til Sveinasamhands livggingarmajjml',
Kirkjúhvoli. — Sé skrifstofan lolcuð, má leggja þær
í hréfakassann við dyr slcrifstofunnar.
N e f n d i n.
LÁRUS G. LIJSIVÍGSSON
SKDVERZLUN
Sœfwtftéttir
83. dagur ársins.
Næturvörður
er i Laugavegs Apóteki, sími
1018.
Næturakstur
annast Hreyfill, sími 6633.
Veðurspá
fyrir Reykjavík og nágrenni:
Söfnin í dag.
Landsbókasafnið er opið kl.
10—12 órd., 1—7 og 8—10 síðd.
Þjóðskjalasafnið er opið kl.
2—7 síðd.
Allhvass NA fram eftir deginum.
Snjókoma með köflum.
Útvarpið í kvöld.
Ivt. 20.25 Lestur fornrita. 20.55
Tónleikar. 21.00 Um daginn og
veginn (Jón Helgason blaðamað-
ur). 21.20 Útvarpshljómsveitin:
Þýjjc alþýðuíög. — Einsöngur
(Hermann Guðmundsson). 21.50
Lög leikin á celló (plötpr).
I.eiðrétting.
Sú meinlega prentvilla var í
blaðinu á laugardaginn, að sagt
var að b.v. „Drertgey“ hefðj verið
seld til Færeyja, en átti a"S vera
b.v. „Vörður" frá Patreksfirði.
Eru hlutaðeigendur vinsamleg-
ast beðnir velvirðingar á þcssu
mishermi.
Höfnin.
Lambert Cadwalader, ameriskt
skip í fyrradag, með bíla og ann-
an varning ti! flug’vallarins. —
Nolckrir færeyskir kútterar komu
inn um helgina, sökum veðurs og
til beitukaupa. — Viðey fór á
veiðar. — Tvö kolaskip komu frá
Ameríku. — Þórólfur fór á veið-
ar í gær. — Frcyja kom af veið-
um i gær.
Strandferðir.
Esja er i Reykjavík. — Súðin
var á Slcagaströnd í laugardag.
katffrelsi sam-
virsmsféiaga,,
Jónas Jónsson flvtur í
Sameinuðu þingi þingsálykt-
unartillö'gu um skattgreiðslu
samvinnufélaga og Eim-
skipafélag íslands, og er hún
svofelld:
„Alþingi álylctar ao skora
á ríkisstjórnina að undirbúa
og leggja fyrir næsta Aíþingi
frv. til laga, þar sem selt
verði glögg ákvæði um það,
að lögslcráð samvinnufélög
og Eimslcipafélag Islands
verði undanþegin úlsvars-
greiðslu og tekjuskatti. Báð-
ir aðilar slculu þó greiða
lága, lögákveðna þólcnun til
sveitarfélaga, þar. sem jiessi
fyrirtæki eiga heimilisfang,
hliðstætt því, sem nú á sér
stað um Eimskipafélag ís-
lands. Ennfremur skulu sam-
vinnufélög greiða alla skatta
eins og kairpmenn af tekjum,
sem leiðir af skiptum við
utanfélagsménn.“
Löng greinargerð fylgir til-
lögunni, og eru þar ralctar
ástæður fyrir flutningi henn-
ar.
6 manna, nýkomin.
Verzlunin INGÖLFUR
Hringbraut 38
Sími 3247.