Vísir - 16.10.1947, Side 1
VI
37. ár.
Fiímntudaginn 16. október 1947
233. tbl.
Afiþingi
Áfengismálin ofarlega á
baugi meðal |>ingmanna.
Sex þingmenn úr öllum
flokkum hafa borið fram 3
tiIL til þál. um áfengismálin.
Flm. eru Skúli Guðmunds-
son, Pétur' Ottesen, Sigfús
Sigurlijartarson, Hannibal
Valdimarsson, Halldór Ás-
grímsson og Páll Þorsteins-
son.
Ein tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að skora
á ríkisstjórnina að afnema
þau réttindi, sem nokkurir
viðskiptamenn Áfengisverzl-
unar ríldsins njóta nú, að fá
þar keypt vínföng fyrir
Jægra verð en aðrir kaupend-
ur þurfa að borga fyrir þá
vöru.“
Önnur er á þessa leið:
„Alþingi ályktar, að áfeng-
ir drykkir skuli ekki veittir
á kostnað ríkisins eða ríkis-
stofnana."
Hin þriðja er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela
ríkisstjórninni að gera eftir-
laldar ráðstafanir:
a. Að láta lög nr. 26 frá
1943, um héraðabönn, koma
til framkvæmda eigi siðar en
1. jan. 1948. b. Að gefa út
reglugerð um skömmtun
áfengis, og verði þar meðal
annars ákveðið, - að áfengi
megi ekki selja, nema gegn
skömmtunarseðlum kaup-
anda, enda sýni hann per-
sónuskírteini sín.“
Löng greinargerð fylgir
þessari tillögu, svo að ekki
eru tök á að birta hana i
heild. Þó skal getið aðalatriða
hennar og þar segir m. a.:
„.. . . í maimánuði síðast-
liðið vor (þ.e. 1946) ritaði
Stórstúka íslands öllum
frambjóðendum við Alþing-
islcosningar þær, sem þá fóru
i hönd, og spurði þá þessara
tveggj a spurninga:
„1. Viljið þér beita áhrif-
Hjóiuðu 12.000
kílómetra.
Tveir bræður frá Suður-
Afríku hafa ferðazt frá
Höfðaborg til Lundúna á
reiðhjólum.
Lögðu þeir upp 1. rnarz
siðastl. og komu til Lundúna
í lok september. Höfðu þeir
þá hjóláð 12,000 kílómetra
á hálfum sjöunda mániiði,
en ferðin kostaði þá samtals
200 pund eða rúmlega 5000
krónur.
um yðar til þess, að lögin uni
héraðabönn geti komið til
framkvæmda sem allra
fyrst?
2. Viljið þér styðja márk-
vissa sókn að algeru áfengis-
banni?“
Um 50 frambjóðendur
svöruðu bréfinu, og allir hik-
laust játandi, að tveimur
undanteknum, sem þó létu
aðeins í ljós nokkura vantrú
á algeru aðflutningsbanni,
„nema það væri liður í al-
þjóðasamtökum til útrým-
ingar áfengi í heiminum“.
Annar þessara manna lók þó
beint fram, að hann værí
samþykkur því, að lögin um
hérðabönn kæmu til fram-
lcvæmda, þótt hann einnig á
Framh. á 3. síðu.
S þús. kr. söfimðusS
tll Blindrafélagsms.
S. 1. sunnudag fór fram hér
í Iteykjavík merkjasala til
styrktar Blindrafélaginu.
Þrátt fyrir óliagstætt veð-
ur og aðrar erfiðar ástæður
seldust merki fyrir 9 þús. kr.
og hefir enn sannast, áð
Reykvíkingar bregðast vel
við, er styrkja þarf nauðsyn-
leg og göfug málefni.
Blindrafélagið hefir í
hyggju að breyta nokkuð
liúsakynnum sínum við Ing-
ólfsstræti og er nú safnað fé
í því skyni.
a
SniÉði stra^á1-
ferðaskipa
tefsf0
Enn ætlar að dragast eitt-
hvað, að strandferðaskipið
Herðubreið komist heim og
byrji siglingar hér við land.
Það, sem stendur á, eru
ýmsar þilfarsvélar, aklceris-
vinda og - stýrisvél. Síðast
nefndu vélarnar munu verða
fullgerðar um miðjan þenna
mánuð, en hinar væntanlega
i byrjun næsta mánaðar.
Strandferðaskipið, sem er
i smíðum í Álaborg í Dan-
mörku, átti að vera fullgert í
ágúst síðastliðnum, en ýms-
ar lafir liafa komið þar til
greina. Þó er unnið við skip-
ið af kappi nú með alls um
200 mönnum. Það verður þó
varla til fyrr en með vorinu.
Eftirfarandi spurnihgar
hefir Jónas Jónsson borið
fram til ríkisstjórnárinnar
um réttindi til áfengis með
niðursettu verði.
Hvaða trúnaðarstöðum j
landinu fylgir réttur til að
fá frá ríkinu áfengi til kaups
með niðursettu verði?
Hvenær hafa trúnaðar-
menn þjóðfélagsins öðlazt
þessi réttindi, hvaða stjórn-
arvöld veittu réttindin, og
Iivaða gr fékk hver einstök
trúnaðarstaða sinn frum-
rétt?
Hvaða skilyrði eða tak-
markanir eru séttar hinum
einstöku notendum þessara
hluínninda?
Hvaða valdastöður, sem
ekki hafa þennan rétt, gætu,
ef beita skyldi fullri sann-
girni, komið til greina, ef
hlunnindi þessi ættu að ná
eftirleiðis til fleiri manna en
hingað til?“
Hið svonefnda „forseta
brennivín“ hefir verið rætt
talsvert í Tímanum, og þvi
inunu spurningar þessar
fram komnar.
fgöldi á ísiandi 132"
ársinh 194G.
Fækkaði i sveifom um nærrj
manns.
| árslok 1946 var mann-
íjöldi á öllu Islandi sam-
tals 132,750 að jbví er
segir í nýútkomnum Hag-
tíðindum. I árslok 1945
var mannfjöldinn samtals
130,356.
Við bæjarmanntölin í
Reykjavík voru alls skrásett-
irr 'iH.186 manns árið IÍI'ij
og 51.011 árið Í9'i6, en par
af voru taldir eiga löglieim-
ili annarsstaðar -608 árið
19'i5 og 2057 árið 19'i6. Heim-
ilisfastur mannfjöldi í
Reykjavík verður samkvæm t
því 1/6.578 árið 1945, en
48.954 árið 1946.
Þegar borin eru saman árs-
manntalin 1945 og 1946, sést
að fjölgun á öllu landinu ár-
ið 1946 liefir verið 23?i
manns eða 1.8%. Er þaö
minni fjölgun heldur en ái-
ið á undan, er hún var 2565
manns eða 2%. Árið 1941
HeeizÍBii skaniint-
99
99
Eigendur einkaflugvéla og
kennsluflugvéla verða að
sækja um sérstakt levfi, til
þess að mega kaupa benzín á
farartæki sín.
Svo sem menn vita, var a-
kveðin skömmturi á benzini
til allra vélknúinna farar-
tækja frá 1. okt. s. 1. Sú
skömmtun nær einnig til
einkaflugvéla og kennslu-
flugvéla, en hinsvegar ekki
lil þeirra véla, sem annast
saingönguflug. Þær fá ben-
zín áfram eftir þöríum.
Þessa dagana eru staddir
hér tveir Danir, er sendir eru
af hálfu dönsku stjórnarinn-
ar til þess að ræða við Trygg-
ingarstofnun ríkisins um
samræming gagnkvæmra
hlunninda í sambandi við
sjúkratryggingar Dana hér
og íslendinga í Danmörku.
Hinir döns.ku fulltrúar eru
Borberg forstjóri og Am-
mendrup, sem er ritari hans.
Til þessa hafa verið í gildi
gagnjkvæm^ir samningar ís-
lendinga og Dana um sjúkra-
tryggingar, þannig að Danir
hér nutu sömu hlunninda
um tryggingar þessar og fs-
lendingar í Danmörku.
Með almannatryggingar-
lögunum nýju, er ganga í
gildi um næstu áramót, verða
trvggingar hér allmiklu við-
tækari en í Danmörku og ber
því nauðsyn til að endur-
skoða liið fyrra fyrirkomu-
lag, og í tilefni af þvi eru hin-
ir dönsku fulltrúar liingað
koinnir.
Annars mun ætlunin vera
sú, að samræma sem mest
tryggingafyrirkomulag allra
Norðurlandanna senl mest,
þannig að borgurum allra
þjóðanna séu tryggð sömu
kjör á þessu sviði, í hvaða
landi sem þeir eru staddir.
Át 252. östrigr*
Ný-sjálenzk u r kn a! t spyrn u-
maður liefir nýlega sett
heimsmet og að líkinduni
'einstætt. Hann keppti við
nokkra fleiri menn í ostru-
áti og át 21 lylft — 252 ostr-
'ur — í mál.
11“ ®
1 rmite
brunnið.
Óheppnin gerði ekki
endasleppt við sænska
skipið Trinite, bví áð það
brann í morgun,
Samkv. upplýsingum
frá Slysavarnafélaginu var
það lagt af stað hingað,
eftir að stórvirkar dælur
höfðu verið settar um borð
í það. í morgun kviknaði
svo í bví, er það var und-
an Grindavík og urðu skip-
verjar að yfirgefa skipið,
því að ekki varð við eld-
inn ráðið, Iíomust þeir um
borð í Skaftfelling, sem
flytur þá til Reykjavíkur.
var hún hinsvegar ekki
nema 1,4%.
Fækkar enn
í sveitum.
Fólki i kaupstöðum hefir
fjölgað árið 1946 um 2759
manns eða 3.9%. En i sýsl-
um hefir fólkinu fækkað uni
365 manns eða um 0,6%. í'
Reykjavík liefir fólki fjölg-
að um 2376 manns eða 5,1%.
I sex af hinum kaupstöðun-
uin hefir fólki fjölgað nokk-
uð, en fækkað í 3, Vest-
mannaeyjum, Isafirði og
Seyðisfirði.
Mannfjöldi í einstökum
kaupstöðum árið 1946 var
sem hér segir: Reykjavik
48.954, Hafnarfjörður 4466,
Akranes 2321, Isafjörður
2870, Siglufj. 2969, Ölafs-
fjörður 915, Akureyri 6180,
Seyðisfjörður 811, Neskaup-
.gtaður 1243 og Vestmanna-
eyjar 3487. Samtals, bjuggu
því í kaupstöðum árið 1946
74.205 manns.
1 einstökum sýslum var
mannfjöldinn sem hér segir:
Gullbringu- og Kjósarsýslu
7052, Borgarfjarðarsýsla
1247, Mýrasýsla 1788, Snæ-
fellsnessýsla 3194, Dalasýsla
1293, Barðastrandarsýsla
2786, ísafjarðarsýsla 4204,
Strandasýsla 2089, Húna-
vatnssýsla 3422, Skagafjarð-
Framh. á 8. siðu.