Vísir - 08.12.1948, Blaðsíða 6
VlSIR
Sö
Miðyjkudagurinn 8. desember 1948
Tólf fornleifaþættir
Bók Kristjáns Eldjárns
þjóðminjasafnsvarðar.
Kristján Eldjárn Þjóð-
jninjavörur hefir skrifað bók
er hann nel'nir „Gengið á
xeka“, en Bókaúlgáfan
jNorðri gaf út.
Þetta eru lólf fornleifa-
Jxettir, þættir úr íslenzkri
sögu, þar sem fornminjar eru
settar í samband við söguleg-
ar persónur og atburði.
Þættirnir heita: Rómverjar
'á íslándi, Vopngöfgir Gríms-
nesinga, Sílastaðabændur
hinir fornu, Vopn Bárðar
Ilallasonar, Grásíðumaður,
jBardagi við Rangá, Silfur-
sjóður frá Gaulverjabæ,
Kistur Aðalsleins konungs,
Eyðibýli á Hrunamanna.
afrétti. Austmannadætur —
Grænlcnzk miðaldabyggð,
Snældusnúðar Þóru i Hruna,
Ufsakrossinn og fleiri is-
lenzkir róðukrossar.
Sjálfur segir höfundurinn
að greinar þcssar séu ekki
visindalegar, og ckki samdar
fyrir fræðimenn öðrum
fremur, þvi hér sé sleppt öll-
um nákvæmum smásmugu-
lýsingum muna og minja.
Segist Eldjárn hafa viljað
gera tilraun til að skrifa svo
um islenzk fornfræðileg efni,
að læsilegt væri hverjum ís-
lendingi, sem áhuga hefði
fyrir íslenzkum fræðum, án
þess að of])jaka lionum með
löngum og þurrum útlistun-
lim.
Fullyrða má að Kritsján
Eldjárn liafi náð lilgangi sin.
um með bókinni, er hún og
skrifuð á skemmtilegu máli
og höfundurinn djarfur og
skarpur í atliugunum og á-
lyktunum.
Norðri hefir vandað mjög
til útgáfunnar, prentað bók-
ina á góðan pappír og prýtt
hana mörgum myndum.
r r
A sætrjáEn.
f „Sjómannaútgáfan“ sendir
þrjár bækur á markaðinn um
þessar mundir,
„Margt skeður á sæ,“ eftir
Claes Krantz er sjöunda bók-
in, sem kemur út á vegum út-
gáfunnar. Hún segir frá
ýrnsuin sönnum og furðuleg-
um atvikum, 'seni geizt liafa
á'sjó á ýmsum tímuin, hiu é»_
trúlegustu 'æviniýri, ,sem áílir
munu hafa gaíuan af að lesa.
Jlefir bók þessi komíð út á
ýmsuin tungumálum og not-
ið vinsælda.
Átlunda bókin er Smar-
agðurinn eftir sænskan
mann, Josef Kjellgren. Hann
er tillölulega ungur maður,
en hefir flakkað víða, verið
meðal annars kyndari á
sænskum skipum. Vcit hann
þvi góð deili á þvi, sem hann
skrifar urn og honum er líka
lagið að segja skemmtilega
frá. Þegar þetla tvennt fer
saman gela lesendurnir átt
það víst, að þeim berist í
hendurnar góð bók, þegar
þeir eignast Smaragðinn.
Loks er „Hornblower I: t
vesturvegi“, en það er skáld-
saga frá Napoleonstínuunun.
Iiöfundurinn er C. S. Forest-
er, sem er vinsælasli sjóferða-
söguliöfundur, sem Bretar
eiga nú. Hefir hann verið
kallaður Marrvat vorra daga
og ber það nafn réllilega.
Það gela menn sannfærzt um
við lestur Hornlilowersagn-
anna, því að þar rekur liver
atburðurinn annan.
Sjómannaútgáfan hefir
margt skemmtilegra bóka í
uhdirbúningi, svo að hún
ínun enn á næstunni auka
vinsældir sínar, scm þó eru
drjúgar fyrir.
Hestar í Græn-
landsleiðangri.
Farmannaútgáfan hefir
gefið út ferðasögu J. P.
Koch’s höfuðsmanns yfir há-
jökul Grænlands árið 1912.
í þessari för voru 4 þátt-
lakendur og var einn þeirra
islenzkur. Höfðu þeir með
sér 1() íslenzka liesta, sem
nota átti til þess að drága
farangurinn yfir jökulinn.
Settu þeir mjög traust sitt á
lieslana, en þeir fórust allir.
Leiðangursfarar björguðust
hinsvegar á siðustu stundu.
Ferðasagán er viðburða-
rík, erida fengu þátttakend-
urnir oft liin verslu veður.
Ferðin sjálf vakli athygli
víðsvegar út um lieim og þótti
þrekvirki liið mesta. Tií ís-
lendinga á þessi bók alveg
sérstakt ei’indi vegna þess
skerfs sem lagður var til far-
arinnar af íslánds hálfu.
Bólvin Úgitir „Með islenzka
hésta yfir liájökul Græn-
alnds“, hún er gefin út á
mjög. góðan pappír, prýdd
myndum og er í stóru broti.
Jón Eyþórsson veðurfræð-
ingur liefir íslenzkað liana.
Þetta er tilvalin bók fyrir
aila þá sem gaman liafa af;
fei-ðasögum og hetjudáðum
jökulfara.
Tvær barna-
bækur.
Bókaútgáfan Hlaðbúð hefir
sent frá sér tvær barnabækur,
Álfagull og Kóngsdótturina
fögru, báðar eftir Bjarna M.
Jónsson.
Bækur þessar voru fvrst
gefnar út fyrir nærfellt 11 ár-
um og eru nú báðar uppseld-
ar. Bóldn Kóngsdóttirin
fagra er 122 blaðsíður að
stærð og prýdd nokkrum
myndum, en Alfagull 77 síð-
ar og er einnig myndskreytt.
IMýir góð-
hestar.
Annað bindi er komið út af
, Horfnum góðhestum“ eftir
Ásgeir Jónsson frá Gottorp.
Þelta er mikil bók, röslt-
lega hálft fjórða hundrað
bls. Prentuð á göðan pappír
og prýdd fjölmörgum niynd.
uin af norðlenzkum góð-
liestum og hestamönnum.
Norðri gaf bókina út.
Um bók þessa þarf ekki að
fjölyrða. Hún mælir með sér
sjálf, en þó má minna á það,
að þegar fvrra binclíð kom
út fyrir tveinmr áruni varð
það metsölubók þess árs og
naut hvarvetna óskiptra vin-
sælda.
I þessu bindi Ilorfinna góð-
Ihesta segir frá eyfirzkum og
þingcyskum gæðingum og
styðst höfunduriim þar við
heimildir og frásagnir ým-
issa góðra og merkra manna
úr þessum sýslmn. Auk þess
ferðaðist liöfundurinn sjálfur
um sýslurnar í fyrrasumar
lil að afla sér nánari upplýs-
inga og safna efniviði í bók-
ina.
Kynnir starf-
semi SÞ hér.
Hér dvelur nm þessar
mundir deildarstjóri upplýs-
ingaskrifstofu Sameimiðu
þjóðanna fyrir Norðurlönd.
U ppiýsingaskrifstof a þéssi
hefir aðsetur í Kaupmanna-
höfn og nær verksvið henn-
ar til Danmerkur, Islands,
Noregs og Svíþjóðar.
Blaðamenn áttu nýl. stutt
viðtal við Viggo Christensen,
en svo lieitir deildarstjóri
upplýsingaskrifstofu þessar-
ar. Christensen hafði verið
blaðamaður við Politiken í
13 ár áður en hann réðist í
þjónustu Sameinuðu þjóð-
anna fyrir 2 árum.
Christensen skýrði svo frá,
að hann væri hingað kom-
inn til þess að kynna almenn
ingi hér starfsemi upplýs-
ingadeildar SÞ. og er þetta
í fju’sta skipti er hann heim-
sækir ísland. Hann sagði, að
SÞ. væri fátæk stofnun og
væri t. d. árlegt framlag SÞ.
aðeins 34 milljónir dollarar
og væri bað ekki meira fé
en sem hefði numið liálfrar
annarar stundar styrjaldar-
kostnaði í síðustu styrjöld.
Christensen sagðist liafa
ferðast víða um lönd í
fræðsluskyni og orðið þess
var, að íslendingar liefðu
vakið á sér mikla aðdáun
fyrir framlag sitt til barna-
lijalpar SÞ.
Markmið upplýsingadeild-
arinnar er að kynna almenn-
ingi sem bezt alla starfsemi
Sameinuðu þjóðanna ogmeð
al annars að vinna að þvi
að kennsla verði tekin upp
í öllum skólum um starfsemi
þeirra. í ýmsum löndum
hafa þegar verið gefnar út
kennslubækur um starfsemi
SÞ.
Ársþing L.B.K.
Landssamband blandaðra
kóra (L.B.K.) hélt ársþing í
Reykjavík dagana 20. til 22.
sept. síðastliðinn.
Þingið sátu 10 fulltrúar frá j
6 sambandsfélgum — af 8 —
3 formenn félaga, 3 sam-
bandsstjómarmenn og 2
söngstjórar. —
í sambandið gekli 1 félag:
.Samkór Tónlistarfélagsins“
og sat formaður hans: Ólafur
Þorgrímsson, lirlm., einn
fund þingsins.
Samkvæmt skýrslu stjórn-
arinnar hafði L.B.K. aðallega
unnið að þvi á siðastliðnu ári
að útvega sambandskórunum
söngkennslu, og störfuðu að
henni þessir söngvarar: Pét-
ur Jónsson, óperusöngvari,
Kristján Kristjánsson, sem
kenndi i Vestmannaeyjum,
Guðrún Þorsteinsdóttir, söng-
kona, er kenndi Kantötukór
Akufeyrar og Jólianna Jolin.
Scn, songkona, er kenndi
Sunnukórnum.
Til söngkennslunnar hefii’
L.B.K. varið kr. 9762,50 og
kórarnii' sjálfir lagt fram kr.
3250.00, það er alls rúml.
13000 kr.
í samvinnu við söngmála-
ráð var unnið að undirbún-
ingi á litgáfu 4. heftis af
Söngv’asafni L.B.K., sem gert
er ráð fyrir að verði nokkru
stærra en hin hafa verið, eða
alls um 100 blaðsíður.
I stjórn L.B.K. voru kosn-
ir: Formaður Jón Alexand-
ersson, forstj., endurkosinn,
ritari Steindór Bjömsson,
efnisvörður, og gjaldkeri
Bent Bjarnason, bókari.
(Fyrrverandi ritari og gjald_
keri skoruðust báðir undan
endurkosningu),
IMýjar kosningar
i 8.-Afríku.
Stjórnarkreppa er um
þessar mundir i Suður-Af-
ríku og hefir stjórnin ekki
meirihluta þingfylgis.
Álitið er að dr. Malan eigi
ekki annars úrkostar en að
rjúfa þing og láta nýjar kosn
ingar fara fram til þess að
sjá hvort hann getur fengið
meirihluta þings með sér.
Afrik an afI okk uri nn nei t ar
nú að slyðja hann, en hann
Iiefir ráð á 9 þingmönnum.
KfcAAyáta w.664
Lárétt: 1 Nokkur, 6 fæddi,
7 slá, 8 stakan, 10 vegna, 11
hljóð, 12 setstokk, 14 tónn,
15 gröf, 17 tengja.
Lóðrétt: 1 Úrskurð, 2 fisk,
3 Bretlandseyjabúi, 4 líkams-
hlutann, 5 fiskurimi, 8 studdi,
9 fjánnuni, 10 tveir eins, 12
fljót, 13 meðal, 16 fanga-
mark.
Lausn á krossgátu nr. 663:
Lárétt: 1 Húskofa, 6 ár, 7
at, 8 skúld, 10 La, 11 ræl,
12 logn, 14 ká, 15 nár, 17
kaðal.
Lóðrétt: 1 Hás, 2 úr, 3
Kak, 4 otur, 5 andlát, 8
sagan, 9 læk, 10 Lo, 12 lá,
13 náð, 10 Ra.
bækur ale&ja góða vini
Glæsilegast úrval hjá B,
raaa
J3nýnjólpó
óóijnt