Vísir - 20.11.1951, Page 5
Þriðjudaginn 20. nóvembed 1951' V I S I R
í Maag:
fiðurkenningar
við N.-Noreg.
Telja deiluna ekki snería almenna
ákvörðun iandlielginnar skv. þjóð-
arrétti.
Norðmenn munu ekki vænta þess, að dómstóllinn í
Haag felli þann úrskurð, að sérhvert ríki geti með einhliða
í'ikvörðun fært vit landhelgi sína, eða bundið hana við fjór-
ar sjómilur, heldur byggja rétt sinn til norður-norskrar
Jandhelgi á hefð og fomum rétti.
JLandhelgisdeilan
Eáns og að líkum lætur
hafa norsk blöð látið sér tíð-
rætt urn deilu Norðmanna og
Breta um landlielgi Norður-
Noregs, sem lögð hefir verið
Syrir Haag-dömsLólinn, eins
)g kunnugt er.
Vísir hefir átt kost á að sjá
«krif nokkurra höfuðblaða
Noregs, svo sem Aftenposten
og Arbeiderbladet, og er þár
að finna mikinn fróðleik um
fcnál þetta, sem einnig hefir
mikla þýðingu fyrir okkur
Jslendinga.
Aðalmálflytjandi Breta
fyrir réttinum hefir verið sir
Erie Beckett, en af hálfu
Norðmanna hafa þeir einkum
verið Arntzen lögmaður og
frægur, belgískur þjóðréttar-
fræðingur, Maurice Bour-
quin að nafni.
Norsku blöðin skýra mjög
hlutláust frá gangi málanna
fyrir alþjóðadómstólnum og
tekja allítarlega ræður beggja
pðila.
Virðast Bretar einkum
byggja staðhæfingar sínar á
þri, að engin þjóð geti ein-
hliða ákveðið að vild land-
helgi sína, en með konungs-
úrskurði frá 1935 munu
Norðmenn hafa ákveðið hana
& sjómilur á hinu umdeilda
Bvæði við Norður-Noreg frá
ýztu annesjum.
Norðmenn halda þvi fram,
að frá ómunatíð hafi þessi
svæði verið talin athafna-
svæði norslcra fiskimanna,
og telja sig hafa sögulegan
rétt til þess að búa að þeim
einir, enda sé hér um líf eða
Sdauða að tefla fyrir þá, sem
atvinnu sína liafa af fiskveið-
lim þama, eða ibúa Norður-
Norégs á þessu svæði.
Benti próf. Bourquin m. a.
Ú það i einni ræðu sinni, að
brezkir fiskifræðingar, Mau-
rice og Douglas að nafni,
hefðu á sínum timá sent
Uppþ©t í
Teheran.
/ yær kom til átaka í Te-
herart, höfuðborg Persíu,
milli herliðs og háskóla-
stúdenta. Nokkrir menn
særðust. ...•■■**
Háskólanmn var lokað
fýrii; nokkru, vegna af-
ískipfa stúdenta af olíudeil-
tinni, eh vár hýbÚið að opúa
hann aftur.
stjórn sinni skýrslu um að-
stæður norskra fiskimanna á
þessum svæðum og sagt m. a.,
að fyrir þá væri spurningin
„to fish or to starve“, að
fiska eða svelta, ef þeir fengju
ekki að búa einir að miðun-
um þar, án ágengni erlendra
togara. Þetta hefði e. t. v.
ekki mikið lögfræðilegt gildi,
en mamiúðariegt gildi hefði
það að minnsta lcosti, og
lagaskilningur nútímans
mótaðist einmitt mjög af
þeim atriðum.
Samið um viðskipti vlB
Ueigverja.
Ilinn 15. þ. m. var undir-
ritað í Budapest samkomulag
um viðskipti milli íslands og
Ungverjalands.
Með samkomulagi þessu er
viðskiptasamningur sá, er
gerður var milli íslands og
Ungverjalands 30. maí 1950,
framlengdur til loka mai-
mánaðar 1952, með þeirri
breytingu, að elcki eru til-
teknar upjihæðir eða tiltekið
inagn fyrir einstakar vöin-
tegundir.
Greiðslur fara fram í
sterlingspundum á báða bóga.
Samningamenn af tslands
hálfu voru dr. Oddur Guð-
jónsson og dr. Magnús Z.
Sigurðsson. (Fréttatillc. frá
utanríkisráðuneytinu).
Gamlir bílar í
kappakstri.
134 „skrjóðar" aka frá
tondon til Brighton.
I fyrradag fór fram hinn
árlegi kappakstur í gömlum
bifreiðum frá Hyde Park í
London til Brighton á suður-
ströndinni.
Úrhellisrigning var og all-
hvasst, og voru sumir öku-
mennirnir í „olíugalla“ og
þótti skringileg sjón að sjá
bæði þá og bifreiðaniar.
Þær voru 134 talsins og
komust 118 leiðar sinnar, en
það var ekki vegna vélbilun-
ar, sem sumar þeirra stöðv-
uðust, lieldur vegna þess að
yfirbyggingin á sumum fór
öll úr. lagi í óveðrinu.
Ein þeii-ra, sém komst alla
leið til 'Brighton, Var frá
1896, og er á þremur hj ólum.
Óiinn aldrei
sterkari en nú.
Aðalfundur Málfundafé-
Iagsins Óðins var haldinn í
fyrradag í Sjálfstæðishúsinu.
Fundarstjóri var Axel Guð-
mundsson. Fundurinn var á-
gætlega sóttur. Formaður fé-
lagsins gaf skýrslu um starf-
ið á síðasta ári. Hagur félags-
ins er góður, félögum hefir
fjölgað verulega á árinu og
félagsgjöld aldrei innheimzt
eins vel. Starfsáhugi félags-
manna er mikill og Óðinn
aldrei sterkari en nú. Fund-
urinn vottaði þeim Gunnari
Thoroddsen borgarstjóra og
Jóhanni Hafstein bæjarfulltr.
þakldr sínar fyrir ágætt starf
í byggingamálum verka-
manna.
Sveinbj örn Hannesson var
endurkjörinn formaður. Aðr-
ír í stjórninni eru: Sveinn
Sveinsson, varaform., Frið-
leifur Friðriksson, ritari,
Stefán Gunnlaugsson, gjald-
keri, Angantýr Guðjónsson,
spj aldskrárritari, Hróbj artur
Lúthersson, vararitari, Valdi-
mar Ketilsson, varagjaldkeri.
Rsimenar virða
ekki mannréttmdi
Utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna hefir sent Trygve
Lie framkvæmdarstj. Sam-
einuðu þjóðanna ýms gögn,
sem sanna að Rúmenar
hafa brotið mannréttinda-
álwæði friðarsamninganna.
Gögn þessi sýna, að bæld
hefir verið niður öll frétta-
og upplýsingastarfsemi, —
nema sú, sem er kommúnist
um til framdráttar. — Skil-
ríki verða síðar lögð fram,
sem sanna trúarlegar of-
sóknir í þessum þremur nú-
Kirkjukvöld í
Hallgrímskirkju.
Ákveðið hefir verið að efna
til kirkjukvölds i Hallgríms-
kirkju í kvöld (þriðjudag)
kl. 8,30 fyrir forgöngu sira
Jakobs Jónssonar og nýtur
hann aðstoðar nokkurra stúd-
enta úr Bræðralagi, félagi
kristilegra stúdenta, auk
Hallgrímskórsins. Það er
ætlunin að hafa þessi kirkju-
kvöld annan hvern þriðjudag
á vetri lcomanda og verða
einnig leikmenn fengnir til
þess að tala. Dagskrárfyrir-
komulagið í kvöld verður
með þeim hætti að fyrst verð-
ur sunginn sálmur með al-
mennri þátttöku. Þvi næst
syngur Hallgrimskórinn. Þá
flytur Arni Þórðarson skóla-
stjóri ræðu, er nefnist „Við-
horf kennarans til kristin-
dómskennslu i skólum“.
Einnig flytur Bragi Friðriks-
son stud. tlieol. ræðu er
nefnist „Æskan og kristni-
lífið“. Þess á milli syngur
Hallgrímskórinn. Þessu næst
verður upplestur og les Sig-
urður Haukur Guðjónsson
stud. theol. frumsamið efni.
Þá vcrður og lesið ritningar-
orð og flutt bæn. Að lokum
verður svo sunginn sálmur.
Hér gefst ágætt tækifæri fyrir
þá er láta sig kristindóms-
málin einhverju varða að
koma og dvelja þessa kvöld-
stund í Hallgrímskirkju. Sér-
staklega vil eg hvetja æsku-
fóllc höfuðstaðarins til að
mæta. Að endingu vil eg
þakka síra Jakobi fyrir að
hafa hrundið þessu í fram-
kvæmd. S. L.
---—
Mmningarathöfn um
Elrik Einarsson.
Minningarathöfn fór fram
um Eirík Einarsson alþing-
ismann í Dömkirkjunni í
gær.
Síra Jón Thorarensen
flutti minningarræðu, en
meðal viðstaddra voru ráð-
herrar, þingmenn og marg-
ir ættingjar og vinir hins
látna. Athöfnin þótti mjög
B
EFjölsöttur Varð-
arfuudur.
Varðarfundur var hald-
inn í fyrradag, ágætlega
sóttur, en á honum fluttu
framsöguræður þeir Jóhann
Hafstein alþm. og Sigur-
björn Þorbjörnsson fulltrúi.
Jóhann Hafstein ræddi
um nýafstaðinn landsfund
Sjálfstæðisflokksins, þar
sem hann hvatti menn til
þess að skipa sér enn fast-
ara saman um ílokkinn og
baráttumál hans. Sigurbjörn
Þorbjörnsson flutti ítarlega
og greinargóða ræðu um
skattamál, og var góður
rómur gerður að máli
beggja ræðumannanna.
Eftir stutt hlé hófust al-
mennar umræður og tóku
þessir menn til máls: Gísli
Jónsson, Björn Björnsson,
Þorlákur Jónsson, Guð-
bjartur Ólafsson, Björn Ól-
afsson ráðherra, Sigurður
Kristjánsson og frú Soffía
Ólafsdóttir.
-. ♦------
Trieste á dag-
skrá á uý.
Rússneska ráðstjórnin hef-
ir sent Þríveldunum orð-
sendingu um Triestmálið og
krcfst þess, að Öryggisráð-
ið taki málið fyrir, og velji
landstjóra þar.
Rússar halda þvi fram, að
Vesturveldin ætli að skipta
Trieste-svæðinu milli Italiu
og Júgóslavíu, hafa þar her-
stöðvar áfram o. s. frv., og
með þessu rofið friðarsamn-
ingana við Ítalíu.
Ágæt uppskera á Spáni.
Madrid (UP). — Spánverj-
ar gera ráð fyrir ágætri upp-
skeru í ár.
Er ekki ósennilegt, að hún
verði á sumurn sviðum meiri
en nokkru sinni. Hveitiupp-
skeran er t. d. áætluð um 9
milljónir lesta.
Jarðarför Eiríks Einars-
sonar fer fram að Stóra-
verandi leppríkjum Rússa. virðuleg
Núpi á morgun.
B R l N|T R Y G G I N G
Undirrituð fyrirtæki vilja með auglýsingu þessari tilkynna viðskiptavinum sínum^ að
frá deginum í dag að telja, verða allir bílar, sem teknir eru til viðgerðar í verkstæði vor,
brunatryggðir.
Ef til bruna kemur, verða bílar þeir, sem brynnu að öllu eða einhverju leyti, bættir
samkvæmt mati framkvæmdu af fulltrúum tilnefndum af oss og fulltrúum tilnefndum af
vátryggingarfélögum þeim, sem brunatryggt er hjá.
Fyrir greinda brunatryggingu munum vér innheimta hjá viðskiptavinum vorum 2ja
krónu gjald fyrir sólarhring hvern eða hluta úr sólarhring, sem bíll er til viðgerðar hjá oss.
Reykjavík, 20. nóvember 1951.
Bifreiðaverkstæði S.I.S.
Bílasmiðjan h.f.
Bí laverkstæði llafnarfjarðar
Bgill Vilhjálmsson h.f.'
Garðar Gíslason h.f. :
Helgi Lárusson
,Hrafn Jónsson,.bílavefksfceði
Jón Löftsson h.f.
Jóhann Ólafsson & Co.
Kristinn Jónsson vagnasmiðnr
Kr. Kristjánsson h.f.
P. Stefánsson h.f.
Ræsir h.f.
Sveinn Egilssonh.f.:
Þróttur h.f. ■' :■ .■ ...
öxull h.f. KÍ' ■.'•'• ■
K;u iri’ Ö ' rsi. túd