Vísir - 05.12.1951, Blaðsíða 4

Vísir - 05.12.1951, Blaðsíða 4
V I S I R Miðvikudaginn 5. desember 1951 D A G B L A Ð Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofur Ingólfsstræti 3. THtgefandi: BLAÐACTGÁFAN VlSIR H.F. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Simar 1660 (fimm línur). Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. ályklamr söksðnikandslnsn ^ðalfundur Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda, sem haldinn var hér í bænum um mánaðamótin, samþykkti nokkrar ályktanir, sem athygli munu vekja viða um land og þá ekki sízt meðal útvegsmanna. Má þess fyrst geta, að fundurinn taldi mjög skorta á að fiskimat værí fullnægj- andi, þannig, að framleiðendur gætu treyst því, en til úrbóta 'vildi fundurinn að umsjón með matinu yrði falin Fisldfélagi Islands, en með þeim hætti mætti í senn bæta fiskimatið og auka þvi traust, auk þess sem það myndi hafa i för með sér allmikinn sparnað fyrir ríkissjóðinn. Fundurinn sam- þykkti ennfremur ályktun þess efnis, að nauðsyn bæri til að út yrðu gefnar leiðbeiningar til framleiðenda um með- l'erð fisksins, sem látnar yrði útvegsmönnum í té endur- gjaldslaust, og slíkum lciðbeiningarspjöldum komið fyrir um borð í skipum og á vinnustöðum. Eru þetta athygli- verðar ályktanir, sem benda eindregið til að framleiðslan hafi ekki reynzt jafn vel og skyldi, en fyrir styrjöldina hafði íslenzkur saltfiskur unnið mikinn og tryggan markað og ;var talin gæðavara, sem bar af framleiðslu keppinautanna. ; Á styrjaldarárunum lagðist saltfiskframleiðslan niður 'að mestu eða öllu og hófst ekki aftur fyrir alvöru fyrr en þremur árum eftir styi’jaldarlok. Á þessum árum ólst upp ný kynslóð á fiskiílotanum, sem ekki vandist aðgerð á fiski, iniðað við saltfiskverkun og er því lítt kunnandi i þeim efnum. Gamlir og reyndir togarasjómenn heltust smám saman úr lestinni, þannig að algjör undantekning má heita, ef gamalreyndar skipshafnir eru á togurunum, en þetta eitt og út af fyrir sig getur haft mikil áhrif á vörugæðin, bæði því er flatningu, söltun, mnstöflun og aðra meðferð fisk,sins varðar. Sjómannanámskeið þau, sem haldin hafa verið á vegum Fiskifélagsins og bæjar- stjórnar, leitast við að bæta úr öllu slíku kunnáttuleysi sjó- mannaefna, en tíma og æfingu þarf til, ef vel á að reynast. Islenzkir fiskframleiðendur hafa orðið fyrir óhöppum í saltkaupum, sem leitt hafa til skemmda á fiskinum og spillt hafa vafalaust áliti hans meðal erlendra neytenda. Fyrir því sama urðu rauriar fleii’i fiskfi’amleiðsluþjóðir. Er þetta gamalkunnugt fyrii’bi’igði, sem tókst að varast að mestu á árunum fyrir styi’jöldina síðari, einkum með varúð í saltkaupum og vandaðri hirðingu á salthúsum eða fisk- yerkunarhúsum, sem oftast gegndu báðurn þessum hlutvei’k- nm. Rauðinn svokallaði er engin nýjung í augum þeirra, sem við fiskvei’kun hafa fengizt, og full tök ættu að vera á því að varast haim, með nákvæmri hii’ðingu vörunnar og sti’angai’a eftii’liti og fiskmati. Margir útflytjendur fiisks? 'gölusamband íslenzkra fiskframleiðenda var stofnað í því augnamiði fyrst og fremst að koma í veg fyrir óeðli- lega samkeppni og óheilbi’igðar sölur íslenzkra fiskfram- leiðcnda á ei’lendum markaði. Þess höfðu gei’zt ýms dærni, að framleiðendur eða fisksalar höfðu imdii’boðið hver fyr- ir öðrum og spillt þannig verðlagi á vörunni, sem af sér leiddi tilfinnanlegt tjón fyrir öðrurn og spillt þannig verð- lagi á vöi’unni, sem af sér leiddi tilfinnanlegt tjón fyi’ir framleiðendur og raunar þjóðina alla. Áttu bankastofn- anir landsins ríkan þátt í, að samtök þessi vom mynduð og skipulögð á þann hátt, sem nú tíðkast. Nú hefir það gerzt, að fram hefir verið borið frumvarp til laga, senx miðar að því, að S.I.S. verði löggilt sem salt- íisk útflytjandi. Telja ýmsir horfur á, að fi’umvarpið kunni að verða samþykkt, en Sölusambandið leggur fyrir sitt leyti ríka áhei’zlu á, að S.I.S. stai-fi áfram innan þeirra sapxtaka. Sýnist liggja í augiun uppi, að ýmsir aðilar ættu l'rekar að fá löggildingu, sem fiskútflytjendui’, en S.I.S., og þá_ cinkum þeir, sem áður höfðu fisksöluna með höndum og liöfðu fómað henni miklu fjái’magni og tíma eða jafnvel gerzt brauti’yðjendur, þar sem þess þiri’fti mel Vei-ði for- dæmið skapað og nýir útflytjendur löggiltii’, leiðir af því að áhrif Sölusarribandsins vei'ða að engri gei’ð og slúipað verður sama óheillaástandið og ríkjandi var, er fisksal- arnir kepptust við undii’boð á erlendum mai’kaði, þjóðinni ,til stórtjóns og óhagi’æðis. Amerískir jazzistar leika hér. Á morgun eru væntanlegir hingað tveir slyngir, banda- rískir jazzzleikarar, og munu þeir leika hér á hljómleikum með hinum færustu íslenzku jazzleikurum. Menn þessir koma hingað á vegum Jazzklúbbs Islands og heita Lee Konetz og Tyree Glenn. Sá fyrrnefndi leikur á altó-saxáfón, en félagi hans á trómbón og vibrafón. Glenn hefir m.a. undanfarið leikið með hljómsveit Duke Elling- tons, sem margir kannast við af plötum og úr útvarpinu. Ákveðið hefir verið, að Bandaríkjamennirnir komi frain á hljómleikum i Aust- urbæjarbíói kl. 11.15 í kveld, en auk þeirra leikur þar ís- lenzk jazzliljómsyeit, sem þessir menn eru i: Árni Elf- ar (píanó), Jón Sigurðsson (bassi), Guðm. R. Einarsson (trommur), Gunnar Orms- lev (tenor-saxofónn), Bjarni R. Einarsson (trombon) og Jón Sigurðsson (trompet). Afbragðsmynd i Gamla bié. Það er afbragðs mynd, sem Gamla Bíó sýnir þessa dag- ana, en hér heitir hún „Beizk uppskera“. Mynd þessi er hvor ttveggja efnismikil og stórvel leikin. Hún staðfestir þann grrin, sem áður var á, að ítalir eru lireinustu snillingar í kvik- myndagerð, manngerðirnar sannar og eðlilegar og leilc- urinn þess vegna „sterkur“. Silvana Mangano, sem þarna leikur eitt aðalhlut- verkið, er kvenleg og ástríðu- full, eins og vera ber um þess konar mynd, sem engin léttmetisbragur er á, en aðrir leikendur eru liver öðrum betri. Þetta er vafalaust með beztu myndum, sem hér liafa sézt um nokkurt skeið. BJgÍfgSÍBBffti™ pÍ&ÍME* * sem vinnur 6 tíma á dag óskar eftir einhverskönar aukavinnu. Tilboð sendist blaðinu merkt: „Lagtækur — 284“ fyrir mánudag. Staia vfð matvæfaeftirift á vegum heilbrigðisnefndar Reykjavíkur er laus til um- sóknar. Æskilegt er að umsækjandi hafi sérmenntun á sviði heilbrigðiseftirlits eða talsverða þekkingu á til- búningi og meðferð matvæla. / Laun skv. IX. fl. launasamþykktar Reykjavikur- bæjar. Umsóknir sendist midirrituðum fyrir 16. þ.m.. Reykjavílv, 4. des. 1951. Borgarlæknir. Aðalfundur Söguféðags verður haldinn í Iiáskólanum (1. kennslustofu) fimmtudaginn 6. desember 1951 kl. 6 siðdegis. Venjuleg aðalfundaretörf. STJÓRNIN. Nokkrar fallegar jóSagjaiir þar á meðal þrjú skrautleg armbönd og málverk fyrir hálfvirði fást í Bílabúðinni Snorrabraut 22. Karíniatma- bomsur og skóhlífar verða teknar upp í dag. GEYSIR H.F. Fatadeildin. Nylonsokkar mjög sterkir. Verð kr. 33,50. GSasgowiiúðln Freyjugötu 26. RIKISINS Mjl HerðnbreiS vestur til fsafjarðar hinn 10. þ.m. Tekið á móti ílutningi til áætl- unarhafna á morgun og föstu- dag. Farseðlar seldir árdegis á laugardag. M.$. Skjaldbreið til Húnaflóa-, Skagafjarðar- og Eyjafjarðahafna hinn 11. þ.m. Tekið á móti flutningi til hafna milli Ingólfsfjarðar og Haga- nessvíkur, svo og til Ólafsfjarð- ar og Dalvíkur, á morgun og föstudag. Farseðlar seldir á mánudag. Þetta er síðasta ferð fyrir hátíðar til Húnaflóa- og, Skagaf j arðarhafna. Ls. Armann Tekið á móti flutningi til Vest- mannaeyja daglega. ♦ BERGMAL ♦ Hér á dögunum var all- mjög rætt manna á meðal í bænum um sjúkrasamlagið og deilu þess við lyfsala bæj- arins. Síðan varð hljótt um þetta, en geymt virðist ekki gleymt, því að mér hefir bor- izt eftirfárandi bréf frá „Borgara" og skylt efni: „Alþýðublaðið í s. 1. viku birti fréttír áf Tryg'gingarstofn- un ríkisins, og það gefur mér tilefni til eftirfarandi hugleið- in'ga. Nú í haugt hafa öðru hvoru birst auglýsingar í útvarpinu um vangoldin sjúkrásamlags- gjöld, og fólki hótað aðförum að lögum, séu gjöldin ekki greidd. Ársgjald fyrir hvern einstakling er kr. 262.00 fyrir 4rið 1951, en áður voru gjöld- in kr. 192.00 á ári, hafa þaú því hækkað um kr. 70.00 á ári. Eftir aö þessi hækkun átti sér stað lækkar sjúkrasamlagið framlag sitt til meðlima sinna þannig að nú er greitt veru’ega minna fyrir lyfjakostnað s.t. i- lagsmanna. Nemur þessi lækk- un, að því er kunnugir segja um Yz til hlutum af þeirri upp- hæð er sjúkrasamlagið greiddi áður fyrir lyf, eða 60—70%. Er hér þvi um verulega skerðingu að ræða á þeirri hjálp sem sam- lagsmeðlimir fá frá sjúkrasam- laginu. * Það kemur manni ein- kennilega fyrir sjónir, að nauðsynlegt hafi verið að gera svona róttækar skerð- ingar á aðstoð til lyf jakaupa, á sama tíma, sem Alþýðu- blaðið þ. 29. 11. birtir frétt- ir frá Alþingi með fyrir- sögninni: „að rekstur Tryggingarstofnunar ríkis- ins sé til fyrirmyndar", velt- an sé 145 milljónir, og rekstr- arkostnaður 2.6, eða aðeins 1.8%. * Samkvæmt lögum um al- mannatryggingar, sjá ÍMáhu- dagsblaðið 19.11,, er sjúkrasám- lagið tilheyrandi þessu trygg- ingarbákni. Menn eru látnir greiða bæði til Tryggiugar- stofnunarinnar og til sjukra- samlagsins, það er safiirð i sjóði er nema milljónum, en að- stoð til lyfjakaupa sjúklinga er skorin niður um allt að 60- - 70°/o frá því sem áður var. Idvar endar þetta? Og er það ekki nokkuð hatramlegt áð skerða svo mikið aðstoð til sjúklinga eins og hér hefir ver- ið gert, á sama tíma sem Trygg- ingarstofnunin safnar tugi milljóna í sjóði. * Til hvers á að nota þessa peninga, ef ekki handa sjúk- um og bágstöddum? Vitað er að miklar upphæðir hafa ver- ið látnir í síldarverksmiðjur, og þó það sé sjálfsagt gott að styðja atvinnuvegi lands- manna, — þá hefur tilgangur sjúkrasamlaganna og trygg- inganna verið annar. Borgari".

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.