Vísir - 05.12.1951, Blaðsíða 5

Vísir - 05.12.1951, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 5. desember 1951 V 1 S I R 5 ÆwhmÍMff S&iÉmwmiiummmt* er vmöffMÍefg m me&sím úri. Hi©lalwerffl eg &iáskélaiiv©rfi§ sitfl ffyrir, en sífen komi Hliðamar ©g önniðr Iwevfi. mS fflöiðm* hverfi fúi r«éi meú &or- wsmwwm* Á bæjairáðsfundi 20. þ.m. var lögð fram skýrsla Hita- veitustjóra, hr. Helga Sigurðssonar, um stækkunarmögu- leika hitaveitunnar. Hefir liann góðfúslega leyft Yísi að glugga í afrit af skýrslunni, sem er löng og ítarleg, og geta hennar, að fengu leyfi borgarstjóra. Þess er því miður enginn kostur að birta skýrsluna i heild hér i blaðinu, heídur verður rúmleysis vegna að stikla á stóru, en niðurstaða birt orðrétt. Aukið vatn fékkst með Reykjahlíðarveitunni. 1 upphafi er þess getið, að með byggingu Reykjahlíðar- veitunnar, hafi Hitaveita Reykjavikur fengið aukið heitt vatn til umráða. Um sama leyti hækkaði erlent eldsneyti í verði og þvi eigi nema eðlilegt, að óskir kæmu frá ýmsum, sem ekki hafa heita vatnsins not, að fá það leitt í hverfi sín. Hafa skrif- legar umsóknir borist frá ibúum Hagamels,' Verka- mannabústaða i Rauðarár- holti, Miklubraut, Melhaga, Nesvegi, Hlíðahverfi, Há- skólahverfi með prófessora- bústöðum, Mjölnisholti og nágrenni, Höfðahverfi, Rú- staðahverfi, Laugarness- liverfi o. fl. Fyrirspurnir og óskir hafa einmig borist frá einstaklingum, munnlega eða símleiðis og má heita, að ekkert hinna þéttbýlli hverfa utan hitaveitusvæðis hafi látið hjá líða að spyrjast fyr- ir um þetta. Sum hverfi hafa óskað eftir heitu vatni hluta úr árinu, ef ekki væri nægt vatn að vetrinum, og íbúar Hlíðahverfis hafa stungið upp á, að byggð verði ein allsherjar hitamiðstöð fyrir hverfið, sem lcynda mætti, þegar ekki væri nóg vatn fyrir hendi. Þá er tekið fram, að eftirspurnin eftir heitu vatni sé meiri en svo, að henni verði fullnægt með þvi vatni, sem fyrir hendi er, og því verði ekki hjá því komizt að velja úr þau hverfi, sem fyrst koma til greina, en „að sjálfsögðu mun Hitaveit- an stefna að því að veita sem flestum bæjarbúum afnot af þægindum Hitaveitunnar, eftir þvi sem efni og aðstæð- ur leyfa. I sambandi við val þetta verður fyi’st og fremst að gera sér grein fýrir livé mikið vatn er til um- ráða, hve mikið vatn hin ein- stöku nýju hverfi þurfa, hve mikið kosti að leggja hitaveitu í þau, og hve mildar tekjur þau gefi, auk tæknilegra atr- iða ,sem taka verður til greina. Yatnsmagnið. Næsti kafli, sem er langur og ítarlegur, f jallar um vatns- magnið, og segir þar m. a., að „þótt vatnsaukningin með Reykjalilíðarveitunni sé all- veruleg, er þó ekld hægt að nota hana alla i ný hverfi, því nokkru af vatni er þegar ráðstafað“. Áður en viðbótin kom úr Bfosfelisdalnum var búið að stöðva tengingar nýrra húsa vegna ónógs vatns að vetrinum og vegna stöð- ugra ásókna var raunar bú- ið að tengja fleiri hús en góðu hófi gegndi. Þegar fjárfest- ingarleýfi fékkst fyrir bygg- ingu Reykjahlíðarveitunnar var aftur farið að tengja í von um, að viðbótarvatnið yrði komið í tæka tíð. Synjún á innflutnings- og gjaldeyris- leyfi fýrir pípum i Reykja- hlíðaryeituna tafði þó verkið í eitt ár, en þegar synjunin kom var búið að tengja all- mörg liús vegna væntanlegr- ar aukningar, og eins hefir mörgum húsum verið bætt við eftir að aukningin kom, þvi að töluvert hefir verið byggt af húsum á hitaveítu- svæðiriu, og eins hafa gömul hús verið stækkuð og mið- stöðvar settar í gömul hús, en miðstöðvar stækkaðar í öðrum. Meðal nýrra liúsa, sem fengið liafa liitaveitu eru Þjóðminjasafnið og fisk- verlcunárstöð Bæjarútgerð- arinnar. Tvö hverfi, sem höfðu lieilt vatn hluta úr ár- inu, hafa nú fengið það að fullu. SÖmuleiðis hefir Hita- veitan nú yfirtekið allt hverf- ið, sem Laugaveitan liitaði áður milli Barónsstígs og Snorrabrautar, Laugavegs og Bergþórugötu, svo og Sund- höll og Austurbæjarskóla, en í þess stað liafa ný hús i Teigahverfi fengið vatn úr Þvottalaugunum. Fullnægja verður öllu hitaveitusvæðinu í 8 st. frosti. „Til þess að fullnægja öllum þessum viðbótum þarf töluvert vatn og auk þess þarf að vera hægt að fullnægja öllu hitaveitu- svæðinu í meiri kuldum en áður eða allt að 8 st. frosti, því að annað er lítt viðunandi til langframa.“ Af yfirliti, sem þar næst er birt kemur í ljós, að „útilok- að er, með núverandi vatns- magni, að auka við Hitaveit- una svo nokkru nemi, miðað við það að hin nýju hverfi hafi hitann allt árið. Þó ætti að mega bæta við einstökum húsum, sem hyggjast á liita- veitusvæðinu likt og gert hef- ir verið til þessa. Eini möguleikinn til veru- legra aukninga cr sá, að hin nýju hverfi fái vatnið þann hluta ársins, sem nóg vatn er fyrir hendi, enda yrðxi allar æðar hafðar það víðar, að þær gætu einnig verið fullnægj- andi að vetrinum, ef nægj- anlegt vatn fengist síðar.“ greina (kostnaðanáætlanir o. fl.), reksturskostnað o. s. frv. Niðurstaða. „Þessar athuganir hafa leitt í ljós, að vatnsmagnið leyfir ekki að neinu verulegu verði bætt við Hitaveituna i vetur. Með ófranihaldandi borun- um má þó gera ráð fyrir auknu vatnsmagni og eins ef úrkoma færist aftur í eðlilegt hoi-f. Þá verður einnig lxægt að liafa not af varastöðinni við Elliðaárnar þegar Sogs- virkjunirini er lokið, til að- stoðar Iiitaveitunni, þegar lcaldast er, og eykur það möguleikana til stæklamar. Á sumrin er nægilegt vattt afgangs til þess að hita hei). bæjai-kerfi i 5—6 mánuði, en af tæknilegum ástæðum yrðu þessi livei’fi að fá einnig lieitt kranavatn að vetrinum. Með: núverandi vei’ðlagi geta slík- ar veitur borið sig fjái’hags- lega þar sem nægilega vel hagar til. Allmikið fjármagn þarf til sliki’a fi-amkvæmda, svo að ef ekki opnast sérstakar leiðir til lánsútvegunar, verða slikar framkvæmdir ekki gerðar fyrir tekjuafgang; Hitaveitunnar nema á löng um tíina. Erfiðleikar á efnisútvegun geta einnig tafið fyrir verk- inu. Þau hverfi, sem helzt koma til greina, þegar ástæður leyfa, eru: 1. Melahverfið, sem skilar- ágætum hagnaði, hvort sem um sumar- eða vetrar-hitun er að ræða, en sem ekki verð- ur bætt á Hx’ingbrautai’-æð- ina, nema ákveðið verði að Camp Knox svæðið fái ekki liitaveitu. 2. Háskólahverfið, sem að- vaxandi byggð skilar góðum ai’ði. 3. Hlíðahverfið, sunnan miklubrautar, svarar kostn- aði, þótt það fái ekki hita nema 5—6 mánuði ársins, en heitt ki’anavatxi allt árið. 4. Mjölnisholt og Rauðar- árstígur kemur aðeins til greina xneð sumarhitun, og svarar þá tæplega kostnaði, en gæti engu að síður verið æskilegt vegna örvggis Rauð- arárveituttnar. Önnur hverfi koma ekki Næstu kaflar skýrslunnar'j eins getUr borið sig með nú- fjalla lun sumarvatnið, ný'verandi byggð, ef það fær hverfi, sem helzt koma til vatnið allt árið, en sem með Jón Thoi’oddsen. MERK ÍSLEIMDINGAR Ot er komið fimmta og siðasta bindið af Mérkum Islend- ingum. 1 þessu bindi eru tíu ævisögur og efnisyfirlit yfir öll fýrri bindin. Á meðal þeh’ra ævisagna, sem birtast í fimmta bindinu eru sjólfsævisaga Jóns Esphóhn, gevisaga Bjama Pálssonai' landlæknis eftir Svein Pálssoix, saga Odds lögmanns Sigm’ðssonar eftir Jón Grunnvíking og af nýrri sögiun, ævimmningar Jóns Thoroddsen eftir Jón Sigurðsson og saga Bjai’na frá Vogi eftir Benedikt Sveinsson auk fleiri merkra ævisagna. I ritinu MERKIR ISLENDINGAR hafa nú bii'zt um 80 ævi- sögur og er hvert bindi ritsins sjálfstæð bók, sem menn hafa ánægju af, þótt þeir eigi ekki hin bindin. Merkir Islendingar er öndvegig rit, sem á erindi inn á hvert íslenzkt heimiH. r a BOKFELLStJT GAFAN

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.