Vísir - 10.05.1952, Blaðsíða 8
LÆKNAB O G LYFJABÚÐIR
Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í
Læknavarðstofuna, simi 5030.
Vörður er í Laugavegsapóteki, sími 1618.
LJÓSATÍMI
bifreiða og annarra ökutækja er kl. 22.35—
4.05. Næst verður flóð í Reykjavík kl. 18.55.
Laugardaginn 10. maí 1952
Unglfngasundmét Norðurlanda
eftir 3
ar.
Ágæt frammistaða Péturs
Kristjánssonar á mótinu í Oslo.
Pétur Kristjánsson sund-
garpur úr Ármanni fór 15. f. m.
til Osló til keppni í unglinga-
sundmóti Norðurlanda, sem þar
var háð 26. og 27. apríl s. I.
í för með honum var þjálfari
hans Þorsteinn Hjálmarsson og
héfir hann skýrt Vísi í stuttu
máli frá för þeirra, en þeir
komu hingað til lands með Gull-
fossi árdegis í gær.
Viku áður en sundmótið
hófst tók Pétur þátt í úrtöku-
móti Norðmanna, þar sem
norsku unglingarnir voru valdir
í Norðurlandamótið. Auk ung-
linganna kepptu einnig full-
orðnir og var þar saman komið
úrval norskra sundmanna og
kvenna, eldri sem yngri.
Pétur synti þarna 100 metra
skriðsund og varð fyrstur í
mark. Synti hann á 1:00.'3 mín,
sem er 3/10 sek. undir norska
metinu og er auk þess bezti
tími sem íslendingur hefir náð
erlendis á þessari vegalengd.
Vakti frammistaða Péturs i
mótinu mikla og almenna at-
hygli og þótti sundstíll hans
mjög sérkennilegur.
Þann 27. apríl synti Pétur
þessa sömu vegarlengd í Norð-
urlandasundmótinu, en var þá
ekki eins vel fyrirkallaður og
hið fyrra skiptið, enda þótt
hann næði þar einnig ágætum
árangri.
Varð Pétur 3. í röðinni éftir
mjög harða og tvísýna keppni
og synti hann á 1:01.9 mín.,
éða sama tíma og þessi vegar-
lengd var unnin á næst áður er
unglingasundmót Norðurlanda
var háð, en þá varð Pétur 2.
í röðinni. Sigurvegarinn að
tessu sinni var Svíi og synti
hann vegarlengdina á 1:00.3
mín., sem er nýtt unglingamet
og sami tími og Pétur synti á
viku áður.
Þorsteinn Hjálmarsson sat í
þessari för Sundþing Norður-
landa, sem háð var í Osló í s. 1.
mánuði. Bar þar margt á góma,
m. a. var ákveðið að unglinga-
sundmót Norðurlanda yrði háð
í Reykjavílt 1955 ef íslendingar
sæu sér fært að standa fyrir
því.
Þá var ennfremur rætt um
að aðskilja bringusund og flug-
sund í tvæi’ keppnisgreinar og
hafði áður verið samþykkt af
öllum Norðurlöndunum að fara
þar eftir tillögum Erlings Páls-
sonar, en þær lágu til grund-
vallar þessari samþykkt. En nú
á þessu þingi skeði það óvænts
að sænski fulltrúinn kvaðst,
ekki mundi greiða máli þessu
atkvæði og að Svíar myndu fara
sínar eigin leiðir.
Samþykkt var að halda
Sundþing Norðurlanda í
Reykjavík árið 1954, en á því
sama ári verður að nýju efnt til
samnorrænnar sundkeppni með
áþekku sniði og háð var s. 1.
sumar. Vakti frammistaða ís-
lendinga á Samnorrænu sund-
keppninni i fyrrasumar furðu
og aðdáun þingfulltrúanna.
Þorsteinn kvað að lokum
móttökur allar hafa verið hinar
ágætustu og ákjósanlegustu í
hvívetna og förin öll hin bezta.
bað hann Vísi fyrir þakkir til
Sundssambands íslands fyrir
góða fyrirgreiðslu við föri.ia.
Vígbúnaður ibú-
granna Júgóslava.
Tító marskálkur sagði viS
fréttamenn nýl., að Komm-
informríkin, næst Júgóslav-
íu, hefðu eina milljón manna
undir vopnuia.
Héldu Rússar stöðugt
'áfram act birgja heri þeirra
að hergögnum.
Tító kvað Júgóslava skorta
þurig hergögn, einkum fall-
byssur og skriðdreka.
Spánverjar grýta pílagríma.
Uöfðu tekið myndir af spænskum börnum.
Einkaskeyti frá A.P.
Madríd, í morgun.
I»að leiðinlega atvik hafði
komið fyrir í Guadalajara-
fjöllum, að mörgum ítölskum
pílagrímum var misþyrmt af
sestum múg.
Um 40 ítalir, sem eru á ferð
til ýmissa helgra staða á Spáni,
• námu staðar í langferðabíl sín-
um í smábæ einum í Guadalaj-
ara-fjöllum til að hvílast og lit-
asl um. Eins og gengur dreif
• barnahóp að bílnum og báðu
þau ferðamennina um peninga
og góðgæti, og fengu hvert
tveggja, en síðan tóku ýmsir
ferðamannanna myndir af
bormraum. Þetta olli einhverj-
um misskilningi, því að upp-
hlaup varð af þessu, og áður
en varði hafði trylltur múgur
ráðizt á ferðamennina með
grjótkasti, og urðu nokkrir
þeirra fyrir meiðslum.
Lögreglan skarst í leikihn,
og varð all-hörð viðureign
ffiilli hennar og árásarmann •
anna, áður en hún gat stillt tíl
friðar, og voru nokkrir .rnetin
handteknir, meðal annars
nokkrir ítalanna, vegna rann-
sóknar málsins. Hinir pílagrím-
arnir héldu áfram för sinni og
fóru rakleiðis til Madrid, þar
sem þeir báru fram kvartanir
við sendiherra sinn. en hann
hefir aftur á móti borið frani
mótmæli við stjórnina.
Ríargret Truman er orðin sjónvarpsstjarna vestan hafs. Á
myndinni sést hún ásamt skopleikurunum Jimmy Durante (t.
v.) og Eddie Jackson í sjónvarpsþætti með þeim.
Minkum virðist fækka við
Sog og Þingvallavatn.
CKrúgœs í EsaóeikiBÍiistlá í InríiBESitesi. —
MiialiiBr b Sváiaiaglal soiíi sér livai-
spik iiiii snjógöng.
Undangengna viku hefir Carl
Carlsen minkabani átt mjög í
önnum við að sinna beiðnum
manna um aðstoð við útrým-
ingu minka.
Hefir hann meðal annars far
ið víða um Suðurlandsundir-
lendið, og orðið nokkuð ágengt,
en þó munu menn telja það
merkilegra, að Carlsen telur
sig hafa órækar sannanir fyrir
því, að mink sé mjög að fækka
við Þingvallavatn og meðfram
Soginu.
Sagðist honum svo frá í gær,
er Vísir átti tal við hann, að nú
verði varla vart við mink á
þéim svæðum, sem hann hefir
talið beztu veiðisvæðin til
skamms tíma. í Vatnaviki við
Þingvallavatn urðu hundar
Carlsens t. d. alls ekki varir við
minkaslóðir, og sama var að
segja hjá Kaldárhöfða, þar. sem
hann fékk einu sinni fimm
minka samtímis í átta boga á
„g'óðu árunum“. Bóndinn á
Skálabrekku skýrði Carlsen
einnig' svo frá í þessari ferð, að
hann hefði aðeins tvisvar í vet-
ur oi'ðið var við minkaslóðir í
grennd við sig, og nú væru gæs
ir og endur farnar að verpa í
hólma skammt frá landi í fyrsta
skipti á 9 árum.
Með grágæs
í bæli sínu.
Um miðja vikuna var Carlsen
austur í Grímsnesi, og vann þá
meðal annars stóran karl, sem
var að gæða sér á grágæs í bæli
sínu undir moldarbakka. Var
minkurinn búinn að eta brjóst
gæsarinnar og átti lítið annað
en lærin eftir. Hafði hann byrj-
að á því að bíta höfuðið af gæs-
inni.
Þá fór Carlsen einnig austur
í Fljótshlíð, um Rangárvelli og
Vestur-Landeyjar. Vann hann
þar nokkra minka á ýmsum
stöðum, m. a. læðu með 6 fóstr-
um, er hafði gert sér bæli rétt
við kirkjuna á Keldum.
Minkurinn gerði
sér snjógöng.
Fyrsta sumardag var Carlsen
í Svínadal, því að bændur þar
vildu láta hreinsa til í dalnum
fyrir sauðburð. Skýrði bóndinn
á Eyri honum þá frá því, að á
túninu hefði í vetur staðið tunna
með súru hvalspiki. Þegar snjóa
leysti kom í ljós, að minkur
hafði gert sér snjógöng frá
hlöðunni að tunnunni, 150 m.
löng og dregið sér björg úr
henni. Fundust spikbitar, vafa-
laust jafnþungir minknum, í
göngunum og jafnvel inni i
hlöðunni. Carlsen vann mink-
inn og var hann vel féitur.
Hollenzkur skák-
meistari teflir hér
einvígi og f jöl-
skákir.
Prinz, hollenzki skákmeistar-
inn heimskunni, er kominn
hingað til bæjafins, á vegum
Skáksambands íslands, til þess
að tefla einvígi og fjöiskákir.
Hann hefir að undanförnu
ferðast um Bandaríkin, teflt þar
og flutt fyrirlestra um skák, og
þótti sjálfsagt að nota tækifær-
ið, fá hann hingað í heimleið,
til þess að tefla hér. Hann hefir
þegar teflt á Akureyri og tveim
ui: stöðum öðrum.
Prinz ræddi við blaðamenn í
gær og lét í ljós ánægju sína
yfir komunni hingað. Hann fór
mjög lofsamlegum orðum um
leikni og áhuga skákmanna á
Akureyri, og kvað Akureyri
eiga að minnsta kosti 3 mjög
sterka skákmenn.
í gærkvöldi átti Prinz að
tefla 10 skákir við meistara-
flokksmenn, á sunnudag teflir
hann fjölskákir í Mjólkurstöð-
inni, eftir helgina fyrra einvígi
af tveimur við Baldur Möller,
og mun hann ef til vill keppa
við fleiri beztu skákmenn okk-
ar.
Rúm leyfir eigi að geta af-
reka þessa skákmeistara, sem
að vísm eru vel kunn. Hann
byrjaði að tefla á fjórða ári og
hefir farið víða um lönd og teflt
við marga skákkappa og unnið
glæsilega sigra. Hann gerðist
blaðamaður og skrifar enn í
blöð um skák og tónlist, sem
hann hefir mikinn áhuga fyrir.
Samið um varnir
V.-Evrópu.
/
Einkaskeyti frá AP.
París í gær.
Frum-undirritun samnings
milli þeirra þjóða, sem standa
að Vestur-Evrópu varnarsam-
tökunum, fór fram hér í dag.
Gert er ráð fyrir, að þau séu
tengd varnarsamtökum NA-
ríkjanna, og stofnun Evrópu-
hers. Þess er vænzt, að aðal
undirritun geti farið fram áður
langt líði. Samningurinn tekur
ekki gildi fyrr en þjóðþing
hvers ríkis um sig hefir stað-
fest hann.
Löndin, sem hér um ræðir,
eru: Frakkland, Ítalía, Vestur-
Þýzkaland og Beneluxlöndin.
Ðodd verður náð méð
valdi, ef með þarf.
Van Fleet sagði í dag, að beitt
yrði valdi, ef þörf krefði, fil
þess að ná Dodd hershöfðingja
úr höndum stríðsfanganna, sem
hafa haft hann í haldi síðan á
miðvikudag.
Van Fleet sagði, að ekki
kæmi til mála, að ræða við
stríðsfangana kröfur þeirra um
sérstök hlunnindi, er þeir hafa
fariðfrám á, fyrr'en þeir slépp.\
hersliöfðingjanum úr haldi,