Vísir - 11.06.1952, Qupperneq 1
42. árg.
Miðvikudaginn 11. júní 1952
129. tbl.
m s
Myndin er af prins Bertil í Svíhjóð, en hann tekur við stjórnar-
taumunum í fjarveru konungs. Mynd bessi var tekin er hann
ræddi við Erlander forsætisráðherra meðan kóngur og droítn-
ing voru í Englandi.
Truman vill 'faka stái-
iðjuveriu eignarnámi.
Fer fram á nauðsynlega lagasetn-
ingu til þess.
Einkaskeyti frá AP. — Washington í morgun.
Truman forseti fór fram á það í gær, að sameinað þjóðþíng
samþykkti nauðsynlega lagasetningu, til þess að hann gæti
fyrirskipað að stjórn Bandaríkjanna tæki rekstur stáliðjuver-
anna í sínar hendur um stundar sakir.
því að "ðngar kaup- og kjara-
Truman rökstuddi þessa
beiðni með því, að stálfram-
leiðslan væri svo mikils virði,
að friður eða styrjöld gæti olt-
ið á henni.'
Öldungadeildin samþykkti,
að því er fregnir í morgun
herma, að fara fram á við Tru-
man, að hann beiti Taft-Hart-
ley lögunum og leiti réttarúr-
skurðar um að verkamenn
skuli hefja 80 daga starfrækslu,
og gefa þar með tækifæri til
rólegrar athugunar á ágrein-
ingsatriðunum, eins og lögin
gera ráð fyrir.
Truman hafði áður lýst yfir
þeirri skoðun sinni, a'ð með því
að beita Taft-Hartley lögunum
væru stálfélögin studd í bar-
áttunni gegn verkamönnunum,
bætur væru heimilaðar sam-
kvæmt þeim.
Með ofangreindri tillögu í
öldungadeildinni greiddu 49
þingmenn atkvæði, en 30 á
móti.
r
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
EinræðisbröJLt Syngmans Rhee
forseta Suður-Kreu bar á góma
í neðri málstofunni í gær.
Svaraði Churchill fyrirspurn
um það, hvort Alexander land-
varnaráðherra, sem kominn er
til Tokyo, mýndi ræða við
Syngman Rhee í fyrirhugaðri
Kóreuferð sinni, og gera honum
Ijósa afstöðu Breta. Churchill
kvað settan sendiherra Breta í
Suður-Kóreu þegar hafa gert
þetta. Arthur Henderson, jafn-
aðarmaður, sþurði þá hvort
Rhee hefði verið gert Ijóst, að
hersveitir SÞ. væru í Kóreu til
varnar gegn ofbeldi, en ekki til
hljfðar þeim, sem koma vildu á
eim-æði. Churchi-11 kvað ekki
mundu hafa verið gengið fram
hjá þessum atriðum.
m r
Japan fer fram
úr Bretlandi.
Karachi (AP). — Japan hefir
farið fram úr Bretlandi í útfluín
ingi til Pakistans.
Verða Bretar að láta sér
nægja annað sæti í innflutn-
ingi þangað, en eru hins vegar
efstir í kaupum þaðan. Þeir
keyptu hráefni í Pakistan fyrir
30,05 millj. punda á s.l. ári.
fangará
Koje fluttír tíl.
Einkaskeyti frá AP.
Tokyo í morgun.
I morgun var haldið áfram
að skipta fangabúðahverfunum
stóru á Koje-ey í minni hverfi
og færa til fanga.
Vopnað lið fór inn í fanga-
búðahverfi nr. 77, en þar voru
fyrir 6.000 fangar. Var þeim
skipað í raðir til brottflutnings
og hlýddu þeir umyrðalaust.
Alls er nú búið að flytja til
19.000 fanga, og mun skiptingu
stóru hverfanna senn verða lok-
ið. — Á eynni eru um 80.000
fangar.
Fyrstí breuitisteinsfarmurinn
sendur otan að norðan.
firennisteinninn hreinsaöur nyröra framvegis.
Fyrir um það bil árs var stofn
að félag hér á landi ti! brenni-
steinsvinnslu. íslenzka brenni-
steinsvinnslan h.f.
Hóf félagið vinnslu í brenni-
steinsnámunum við Reykjahlíð
í Mývatnssveit í fyrrasumar.
Fyrir tæpum mánuði fór héðan
fyrsti brennisteinsfarmurinn
þaðan.
Magnið var um 220 lestir og
var þetta óhreinsaður, enTval-
inn brennisteinn, og var hann
keyptur til Svisslands.
Brennisteinsvinnslunni þar
nyrðra verður haldið áfram í
stærri stíl en áður, og er nú í
ráði að fullhreinsa brennistein-
inn í námunum. Er veriö að
vinna að teiknigum af vélum,
sem notaðar verða við hreinsun-
ina, og er ráðgert að srníða vél-
arnar hér að öllu leyti.
Líklegt er talið, þegar vél-
hreinsunin er komin í gang að
fullhreinsa megi 15—20 lestir á
dag. Óhreinsaði brennisteinn-
inn, sem fluttur var út í fyrra
mánuði, var ekki í umbuðum,
en sennilega verður hinn hreins
aði brennisteinn mótaður, líkt
og vikursteinn, og fluttur út
þannig.
Brennisteinn er eftirsóttur
mjög sem kunnugt er og vænt-
anlega á • brennisteinsvinnsla
hér framtíð fyrir sér.
Eldur í skúrby§glngu.
í gær kviknaði eldur út frá
olíukyndingu á Fálkagötu 24.
Olíukyndingin var þó ekki í
sjálfu íbúðarhúsinu, heldur í
skúrbyggingu, sem er áföst við
húsið og þar kom eldurinn upp.
Náði eldurinn að komast þaðan
í aðra skúrbyggingu við hlið-
ina á hinni, en olli þó furðu
litlum skemmdum.
Slökkviliðinu tókst fljótt að
kæfa eldinn.
Akurnesingar
unnu Val 1:0.
í gær fór fram á íþróttavell-
inum briðji kappleikur íslands-
mótsins og kepptu Akurnesing-
ar og Vahir.
Lauk leiknum með sigri Ak-
urnesinga 1 mark gegn engu.
Ekkert mark var sett í fyrri
hálfleik. Akurnesingar, sem
unnu fslandsmótið í fyrra, hafa
nú mikla möguleika til að halda
titlinum.
Einkaskeyti frá AP. —
Mexico City í gær.
Fjölmennum sveitum úr
mexikanska hernum liafa verið
gefin fyrirmæli um að leita
vopnabirgða í San Luis Potosi-
fylki hér í landi.
Hefir stjórnin fengið sannann
fyrir því, að samsæri hefir ver-
ið gert um að steypa henni
af stóli, og hefir einn foringi
samsærismanna verið handtek-
inn. Hann er Mateo Netro,
ofursti, fylkisstjóri í San Luis
Potosi. Voru tveir menn aðrir
handteknir um leið og hann,
en handtaka hans var fyrir-
skipuð eftir að miklar vopna-
birgðir fundust í liellisskúta
skammt frá heimili hans.
Stjórnina grunar, að enn muni
ýmsir samsærismenn leika
lausum hala, og að vopn kunni
að vera fólgin víðar. Því hefir
herinn fengið fyi’irskipanir
þær, sem getið er hér að frarn-
an, en auk þess hefir fjöldi
leynilögreglumanna verið send-
ur til fylkisins og þeirra, sem
næst því eru, til þess að rann-
saka hversu víðtækt samsærið
er.
Netro fylkisstjóri var einn
helzti maður uppreistarinnar,.
sem gerð var árið 1938 gegn.
Cardenas forseta, en var náð-
aður á eftir. Hann er í hópi
andstæðinga núverandi stjórn-
ar, en mönnum kom það mjög
á óvart, að hann skyldi ganga
'svo langt í andstöðu sinni, því
að kyrrt hefir verið í landinu
undanfarin ár.
Stjórnin gengur nú ríkt eftir
því, að allir, sem hafa ekki leyfi
til að eiga skotvopn, afhendi
þau yíirvöldunum.
iön laldvins-
son á heimleið
Bæjarútgerðartogarnn Jón
Baldvinsson, sem fór fyrst-
ur af stað héðan þeirra tog-
ara, sem leituðu á Bjarnar-
eyjar- og Hvítahafsmið, er
nú á heimleið.
Er hann væntanlegur nu
í vikunni með fullfernii, 300
lestir af saltfiski og 30—40
lestir af mjöli.
Lögreglan handtekur brl-
þjéf eftlr ehingarleik.
Þjófurínn var drukkinn, próflaus og hafði lent í
3 árekstrum í hinni stoinu hifreiö.
Laust fyrir miðnætíi í nóttfaratæik þoldi. Á þessum ferð--
handtók lögreglan bílþjóf eftir
að hafa elt hann nokkra stund
um bæinn.
Þjófurinn var drukkinn og
próflaus og hafði lent í þremur
árekstrum áður en lögreglan
handtók hann.
Piltur þessi sem er 16 ára
gamall kvaðst hafa byrjað að
drekka um fimmleytið í gær,
en ekki var honum ljóst á hvaða
tíma hann hafði stolið bílnum,
sem var fólksbifreið. Bar hún
einkennisstafina R 5427 og stóð
fyrir utan Hringbraut 101, er
henni var stolið.
Hinsvegai- var ’piltinum ljóst
að hann hafi ekið bifreiðinni
víðsvegar um bæinn og kvaðst
stundum hafa ekið eins hratt og
Pinay lækkar kolaverð.
Paris (AP). — Sem lið í bar-
áttu stjórnar Pinays gegn dýr-
tíðinni í landinu, hefir hún gef -
ið út fyrirmæli um það, að verð
á kolum skuli lækka um 4 af
hundraði. Mun áhrifanna gæta
á flestum sviðum athafnalífs-
ins.
um sínum lenti hann í þremur
árekstrum, þeim fyrsta á mót
um Tjarnargötu og Vonarstræt
is. Þeim næsta í Vonarstræti
strax á eftir, en þeim þriðja á
Flókagötu, en þá var lögreglan
kominn á hæla honum og var
að elta hann. í þeim árekstr'*
var hann handtekinn.
Pilturinn heitir Magni Ing—
ólfsson og er til heimilis aö
Langholtsvegi 89.
Kjamorkufall-
byssur í smíðum.
Einkaskeyti frá AP. —■-
Washington í gær.
Ameríska herstjórnin hefir
að sögn pantað 28 kjarnorku-
fallbyssur hjá verksmiðju einni.
Var vitað áður, að tilraunir'
höfðu verið gerðar með smíði
slíkra vopna, en mjög mikil
leynd hefir hvílt yfir fram-
leiðslu þeirra. Óvíst er, hve-
nær fallbyssurnar eiga að vera
fullgerðar.