Vísir - 25.07.1952, Side 2
y l s i b
Föstudaginn 25. júlí 1952
íHitt og þetta
Smælki. ................
Hér er saga um hinn þekkta
tblaðamann Arthur Kober hjá
: „The New Yorker“. Hann hafði
kennt lasleika, og læknirinn
spurði hann hvort væri mikið
úti við. Já, svaraði Kober. Eg
.sæki alltaf „New York Times“
hérna út á hornið á hverjum
morgni.
•
Skömmu eftir að dóttirin
Jhafði gifst, kom móðir hennar
til máls við hana og sagði, að
hún hefði gleymt að segja lienni
frá einum hlut áður en hún
gekk að eiga manninn. „Þú
veizt það, elskan mín,“ sagði
móðirin, „að eiginkonan á allt-
af að uppfylla óskir eigin-
mannsins.“ „Já,“ svaraði dóttir-
: in, „það geri eg líka alltaf.“
„Ó, Guði sé lof,“ sagði móðirin,
„og hvað er það, sem hann fer
fram á?“ „Jú, hann segir alltaf
. að það sé æðsta ósk hans að
; gera mig hamingjusama, og
það er svo auðvelt.“
•
Eitt sinn var Eisenhower á
fundi með samstarfsmönnum
. sínum í París, og var að brýna
fyrir þeim að gera skyldu sína.
Þá tók hann krítarmola og
sagðist ætla að skrifa fyrir þá
: formúlu. Hann skrifaði:
V -j- H -)- Þ = Á og sagði:
„Ef þið farið eftir þessari
formúlu, þá hafið þið ekkert að
• úttast.
Menn tóku að spyrja hann
um merkingu formúlunnar og
þá sagði hann: „Þetta þýðir:
Vinna + heppni þögn —
.árangur.“
•
Bandarískur hermaður, sem
aú er í Kóreu, var staddur þar
fyrir nokkrum árum, og mætti
þá vel efnuðum bónda, sem
reið asna, en konan gekk á eft-
3r með þunga byrði.
Hann kvartaði undan því við
Kóreumanninn að þetta væri
■ ekki vel við eigandi, en fékk
háðulegt svar. í stríðinu mætti
: sami hermaður sama bónda, og
þá bar svo við, að lconan gekk
ú undan.
Hermaðurinn spurði bóndann
livernig á þessu stæði.
„Allur er varinn góður.“
.svaraði bóndinn. „Það úir og
; grúir hér allt þessum helv..
. jarðsprengjum.“
BÆJAR
^éttir
Cíhu aíhhí Var..:
Mikinn ósigur
beið úrvalsliðið fyrir Skot-
um í úrslitakappleiknum í
gærkvöldi, er Skotar skoruðu 6
mörk, en hinir ekkert. Áhorf-
■ endur voru með flesta móti og
væntu sér mikils ^f úrvalslið-
inu, en því tókst sýnilega ver
■ en hinum, sem kepptu á laug-
ardagskvöldið.
: jSkozku knattspyrnumennirnir
fara héðan í kvöld á Gull-
fossi eftir 10 daga dvöl. Þeir
hafa fengið ágætis veður og
móttökunefndin gert sitt til
þess að gera þeim dvölina sem
skemmtilegasta. Láta þeir og
hið bezta yfir viðtökunum. —
Þó að ósigrar íþróttamanna hér
hafi orðið miklir, þá er ekki
: nokkur vafi á því, að þeir hafa
haft stórmikið gagn af komu
Jcnattspyrnumanna.
Föstudagurinn
25. júlí. 207. dagur ársins.
Læknablaðið,
10. tbl. þessa árgangs hefur
borizt blaðinu. Birt er erindi,
flutt af Pétri Jakobssyni um
Trilene-svæfingar í fæðingar-
hjálp. Þá er annað erindi flutt
af Friðriki Einarssyni, um
Trichobezoar. Getið er um em-
bættispróf í læknisfræði í maí
þessa árs. Að lokum er birt
efnisskrá 36. árgangs.
Aukarafmagnsskömmtun
vegna eftirlits verður sem hér
segir á morgun, laugardag. Frá
kl. 9—11 verður rofinn í 4.
hluta. Frá kl. 10,45—12,15 í
5. og 1. hluta. Straumur verður
ekki rofinn eftir hádegi.
íslenzkur
iðnaður sparar dýrmætan er-
lendan gjaldeyri, og eykur
verðmæti útflutningsins.
Sogsvirkjunin
óskar eftir tilboðum í rafsuðu
á túrbínuhólkum í aflstöðina
að írafossi. Útboðslýsing og
uppdrættir afhendast í teikni-
stofu Rafmagnsveitunnar gegn
500 kr. skilatryggingu. Verk-
efnið er til sýnis að írafossi
þann 25. júlí, eða í dag kl. 14—
16.
Óháði Fríkirkjusöfnuðurinn
fer hina árlegu skemmtiferð
sína n.k. sunnudag. Að þessu
sinni verður farið að Saurbæ
á Hvalf jarðarströnd og í Vatna-
skóg. Fararstjóri verður Stefán
Árnason. Safnaðarfólk, sem
ætlar að taka þátt í ferðalaginu,
þarf að skrifa sig á lista sem
liggja frammi í verzl. Andrés-
ar Andréssonar klæðskera.
Vegna samninga um bifreiðir
verða menn að hafa skrifað sig
títcMcfáta Ht. 16 74
Lárétt: 1 Óræktarskikar, 5
tólf, 7 ending, 8 ósamstæðir, 9
fangamark, 11 illgresi, 13 farg
á vef, 15 útsæði, 16 fleinar, 18
ósamstæðir, 19 þar sigraði
Karl 12. Pétur mikla.
Lóðrétt: 1 Illmennskan, 2
vopn Skarphéðins, 3 gapa, 4
tveir eins, 6 troða, 8 stundum
við mat, 10 gælunafn, 12 skátar,
14 málmur, 17 skammstöfun
höfuðstaðar.
Lausn á krossgátu nr. 1673.
Lárétt: 1 Rimma, 5 Job, 7 al,
8 KR, 9 mý, 11 inna, 13 als, 15
lás, 16 gjár, 18 Ra, 19 narra.
Lóðrétt: 1 Rafmagn, 2 mjá, 3
moli, 4 AB, 6 brasar, 8 knár,
10 ylja, 12 nl, 14 sár, 17 RR.
á listann í síðasta lagi á hádegi
á laugardag.
Blaðinu hefur borizt
blað Sambands smásöluverzl-
ana, Verzlunartiðindi. Á forsíðu
er grein er nefnist „Nokkur
orð um vöruþekkingu af-
greiðslufólks. Þá er birt reglu-
gerð um torgsölur. Sagt er frá
söluskatti í Svisslandi. L skrif-
ar um pöntunarfélag starfs-
hópa. M.Þ. gerir frjálsa verzl-
un að umræðuefni. Ýmislegt
fleira er í blaðinu.
íþróttablað drengja,
2.—3. tbl. 4. árg. er nýkomið út.
Af efni má nefna Bandalags-
póstinn, Dómald Ásmundsson
ritar um skák. Sagt er frá
Meistaramóti í fjölíþróttum, og
birt er yfirlit yfir úrslit móta.
Fréttir eru þar frá nokkrum
íþróttafélögum. Þá er birt af-
rekaskrá félaganna. Grein er
um félagsheimili íþróttabanda-
lagsins, og loks er „úr ýmsum
áttum.“ Blaðið er fjölritað.
Ferðafélag íslands
ráðgerir tvær skemmtiferðir
um þessa helgi. Er sú fyrri til
Þórsmerkur og verður lagt af
stað kl. 2 á morgun frá Austur-
velli, og gist í tjöldum á Mörk-
inni, en haldið heim á sunnu-
dag.
Hin ferðin er hringferð um
Krýsuvík, Selvog, Stranda-
kirkju og Þingvöll. Skoðuð
verður borholan í Krýsuvík,
og ekið Grafningsveg til Þing-
valla.
Þá ráðgerir Ferðafélagið 8—9
daga skemmtiferð um Vest-
firði, og hefst hún 31. júlí.
Einnig verður Breiðafjörður,
eyjarnar og firðirnir inn af
honum skoðaðir. M.a. verður
Dynjandi skoðaður. Nánari
upplýsingar er að fá í skrif-
stofu Kr. Ó. Skagfjörð Tún-
götu 5, og liggja þar frammi
áskriftalistar. Minnt skal á að
farmiðar verða að sækjast í
síðasta lagi á þriðjudag.
Útvarpið í kvöld
20,30 Útvarpssagan: „Gras-
grónar götur“, frásögukaflar
eftir Knut Hamsun; VI. (Helgi
Hjörvar). 21,00 Tónleikar
(plötur). 21,25 Frá útlöndum
(Benedikt Gröndal ritstjóri).
21,40 Tónleikar (plötur) 22,00
Fréttir og veðurfregnir. 22,10
Dans- og dægurlög.
Skipaútgerð ríkisins
Hekla fer frá Reykjavík á
morgun kl. 20 til Glasgow. Esja
er á Austfjörðum á suðurleið.
Herðubreið er á Vestfjörðum á
suðurleið. -Skjaldbreið verður
væntanlega á Skagaströnd í
dag. Þyrill var á Raufarhöfn í
gær. Skaftfellingur á að fara
frá Reykjavík í dag til Vest-
mannaeyja.
Skip S.Í.S.
Hvassafell kom til Stettin í
gær. Arnarfell fór áleiðis til
Álaborgar 22. þ.m. Jökulfell
átti að fara frá New York í
fyrradag áleiðis til Reykjavík-
gær til Reykjavíkur. Dettifoss
er á leið til Reykjavíkur. Goða -
foss er á leið til Leith og
Reykjavíkur. Gullfoss er í
Kaupmannahöfn. Lagarfoss er
á leið til Dublin, Cork, Rotter-
dam, Antwerpen, Hull og Ham-
borgar. Reykjafoss er í Reykja-
vík. Selfoss er væntanlegur til
Reykjavíkur í kvöld. Tröllafoss
kom til Reykjavíkur í gær-
kvöldi.
Veðrið.
Skammt norður af Vestfjörð-
um er grunn og nærri kyrrstæð
lægð. Háþrýstisvæði yfir haf-
inu fyrir sunnan ísland. —
Veðurhorfur fyrir Suðvestur-
land til Vestfjarða: Suðvestan
gola eða' kaldi, skúrir. Norður-
mið: Suðvestan gola, skúrh’
vestan til. Norðausturmið. Suð-
vestan gola, bjartviðri. — Veðr-
ið á einstökum stöðum kl. 9 í
morgun: Reykjavík SV 4, úði,
10 stiga hiti. Sandur VSV 3,
alsk., 9. Stykkishólmur SSV 2,
10. Hvallátur SV 2, dálítill sjór.
Bolungarvík, logn, alsk., 9.
Hornbjargsviti SV 1, þoka,
mikill sjór, 10. Kjörvogur V 1,
ládautt, 10. Blönduós S 3, alsk.,
10. Hraun á Skaga SV 3, skúrir,
10. Siglunes VSV 2, skúr, 12.
Akureyri SA 3, 12. Grímsey SV
1, rigning, 9. Raufarhöfn SV 1,
alsk., 13. Skoruvík S 1, 13.
Fagridalur, logn, 14. Dalatangi
SV 1, léttskýjað, 12. Vest-
mannaeyjar V 4, skúr, 9. Þing-
vellir S 2, úrkoma í grennd, 9.
Reykjanesviti VSV 4, 10. Kefla-
víkurflugvöllur VSV 3, 10.
Iðnsýningunni
seinkar.
Á þriðja hundruð iðnfyrir-
tækjum hefur verið úthlutað
sýningarsvæðum á iðnsýning-
unni, en undanfarnar vikur
hefur verið unnið við undirbún-
ing hennar, og hefur nú verið
ráðstafað ölíu nýju rúmi Iðn-
skólabyggingarinnar.
Alls hefur sýningin til um-
ráða 5600 fermetra gólfs á 5
hæðum, og er þar komið fyrir
veitingasvæðum auk sýningar-
svæða. Sem stendur er unnið
að undirbúningi sýningarinnar
af hálfu fyrirtækjanna, en þar
sem líða tekur að því, að sýn-
ingin verði opnuð, og enn er
mikið verk óunnið við sjálfa
bygginguna, hafa margir sýn-
endur kvartað yfir því að tími
til undirbúnings sé of stuttur.
Mun eftir að ljúka málningu,
ganga frá hreinlætistækjum og
stigum, og ekki hafa raflagnir
enn verið lagðar um allt húsið.
Með tilliti til þess, sem að
ofan hefur verið greint hefur
opnunardagur sýningarinnar
verið ákveðinn 6. september,
og er það 2Vz viku seinna, en
gert var ráð fyrir í upphafi.
Um frekari frestun sýningar-
innar mun ekki verða ræða.
KAUPHOLLIN
er mlðstöS verðbréíaviðskipt-
anna. — Simi 1710.
ur.
Eimskip
Brúarfoss fór frá Dublin í
Domprófasturiiiii í Reykjavík
boðar til safnaðarfunda í hinum nýju prestaköllum í
Reykjavíkur-prófastsdæmi sem hér segir:
1. í Langholtsprestakalli, mánudaginn 28. þ.m. kl. 8,30
síðdegis í íþróttahúsinu við Hálogaland. — Langholts-
prestakall nær yfir svæ.ðið frá mörkum Laugarnessókn-
ar, línu, sem dregin væri frá Miklubraut, vestan Háa-
leitisvegar, Múlavegar, Kambsvegar í sjó vestan Vatna-
garða, og eftir Miklubraut að Elliðaám.
2. í Háteigsprestakalli, þriðjudaginn 29. þ.m. kl. 8,30 síð-
degis í Sjómannaskólanum. — Háteigsprestakall nær
yfir svæðið frá mörkum Hallgrímssóknar, eftir línu,
sem dregin væri frá sjó í Rauðarárvík um Skúlatorg,
austan Rauðarárstígs að Miklubraut austan Engihlíðar,
milli húsanna nr. 12 og 14 við Eskihlíð um heitavatns-
geymana á Öskjuhlíð og að línu, sem dregin væri frá
Rauðarárstíg, sunnan Laugavegar að Kringlumýrar-
vegi um Öskjuhlíð í heitavatnsgeymanna.
3. í Bústaðaprestakalli.
í Bústaðasókn, miðvikudaginn 30. þ.m. kl. 8,30 síðdegis,
í Fossvogskirkju. Bústaðasókn nær frá mörkum Kópa-
vogshrepps að sunnan, að línu, sem dregin væri frá
heitavatnsgeymunum á Öskjuhlíð í Nauthólsvík, að
vestan og mörkum Háteigssóknar (sem áður segir) að
Miklubraut og Elliðaám.
4. í Kópavogssókn, fimmtudaginn 31. þ.m. kl. 8,30 síðdegis
í barnaskóla Kópavogs. — Kópavogssókn nær yfir
Kópavogshrepp.
Allir, sem heima eiga á áðurnefndum svæðum og eru 21.
árs og eldri og eru í Þjóðkirkjunni, eiga rétt á að sækja
fundina, hver á sínu svæði.
Á öllum fundunum verða kosnar safnaðarnefndir (sókn-
arnefndir) fyrir hinar nýju sóknir, en með bréfi dags. 17.
júlí hefir kirkjumálaráðuneytið gefið út auglýsingu um
skiptingu Reykjavíkur-prófastdæmis í sóknir og prestaköil.
Reykjavík, 22. júlí 1952.
í umboði formanns safnaðarráðs Reykjavíkur,
dómprófastsins í Reykjavík.
Óskar J. Þorláksson,
dómkirkjuprestur.