Vísir - 01.09.1952, Qupperneq 1
42, árg.
Mánudaginn 1. september 1952
196. tbl.
Utanríkisráðherra Dana
og Norðmanna komnir.
Utanríkisráðherra Svía kemur annað kvöid
— fundir hefjast á miðvikudag.
Þegar Gullfaxi kom í gær frá
Danmörku, yoru utanríkisráð-
herrar Dana og Norðmanna —
Ole Björn Kraft og Halvard
Lange — meðal farþega ásamt
fylgdarliði sínu.
Utanríkisráðherra Svía, Öst-
en Undén, er hins vegar í Lon-
don um þessar mundir, og kem-
ur ekki fyrr en annað kvöld
með Gullfaxa. Fundur ráðherr-
anna hefst síðan á miðvikudag-
inn klukkan 10 árd. og stendur
þann dag, svo og fimmtudag-
inn. Fara fundirnir fram í húsa
kynnum háskólans.
Frá Danmörku: Ole Björn
Kraft, utanríkisráðherra, Nils
Svenningsen, forstjóri danska
utanríkisráðuneytisins, frú Bo-
dil Begtrup, sendiherra og Finn
F. B. Friis, skrifstofustjóri.
Frá íslandi: Bjarni Benedikts
son, utanrikisráðherra, Magnús
V. Magnúson, skrifstofustjóri,
Kristján Albertsson, sendiráðu-
nautur, Hans G. Andersen, deild
arstjóri og Sigurður Hafstað,
fulltrúi.
Frá Noregi: Halvard M.
Lange, utanríkisráðherra, Tor-
geir Anderssen-Rysst, sendi-
herra, Johan G. Ræder, skrif-
stofustjóri og Gyda Dahm, rit-
ari.
Frá Svíþjóð: Östen Undén, ut
anríkisráðherra, Sven Dahlman
utanríkisráð, Leif Öhrvall,
sendifulltrúi og Claes Carbon-
nier, skrifstofustjóri.
Dauðadómar fyrir
fjársvik.
Belgrad í morgun (AP). —
Komizt hefur upp um víðtækt
fjársvikamál hjá starfsmönn-
um koparnámufélags og hefur
þeim seku verið refsað.
Fjórir menn hlutu dauðadóm
en allmargir aðrir þunga fang-
elsisdóma. Segir í tilkynningu
júgóslavnesku stjórnarinnar, að
menn þessir hafi gerzt sekir um
víðtækari fjárdrátt en þekkst
Tiafi áður í opinberri þjónustu
þar í landi.
Ferd Uullfaxa
flýtt.
Athygli skal vakin á því, að
ferð Gullfaxa til London verð-
ur flýtt, þannig, að flugvélin
fer kl. 0.30 í nótt, en hún átti
annars að fara í fyrramálið.
Póststofan hefur beðið Vísi
að geta þess, að ábyrgðarpóst-
ur með vélinni verði að vera
kominn fyrir kl. 6 í dag, en
álmennur póstur fyrir kl.' 8 í
kvöld. • . u H--
F egurðardroííning.
Hæstf bátur fékk
100 tn. í gær.
Akranesbátar fengu sæmilegj-
an afla í gær, þeir hæstu allt af
100 tn.
Fjórtán Akranesbátar fengu
800—900 tunnur í gær, að því
er fréttaritari Vísis þar tjáði
blaðinu í morgun. Fjórir bátar,
Keilir, Sveinn Guðmundsson,
Sigrún og Bövar, fengu um 100
tunnur hver. Bátarnir létu reka
í miðjum Flóanum og út af
Garðskaga.
í gærkveldi var almennt róið
af Akranesi, en allir sneru bát-
arnir aftur til lands, er stormur
brast á. Vitað er um einn bát,
sem lét reka i nótt, Andvara frá
Vestmannaeyjum. í morgun
hafði báturinn ekki getað dreg-
ið net sín vegna veðurs, en þá
fór lygnandi.
Síldin, sem veiddist í gær,
var talin léleg til söltunar, og
mun láta nærri, að um helming-
ur hennar hafi farið í bræðslu.
Verða Skeggjastaðir í Mos-
fellssveit drykkjumannahæli
Bærinti á kost á þeim fyrir 2 miilj. króna.
Nýlega var ung íslenzk stúlka,
Hulda Jónsdóttir Quaglini að
nafni, kjörin fegurðardrottning
á hátíð, sem haldin var 14. ág-
úst síðastliðinn í Windsor Locks
í Bandaríkjunum.
Frú Hulda er 23 ára að aldri,
dóttir hjónanna Egilsínu Jóns-
dóttur og Jóns heitins Oddsson-
af vélstjóra. Snemma árs 1949
fór hún utan í boði kunningja-
fólks síns, og kynntist þar Mr.
Francis Quaglini, og eru þau
nú gift og búsett í Windsor
Locks í Cameciticut-fylki.
Blaðinu hefur borizt úrklippa
úr „The Hartford Times“, og
segir þar, að hin bjarthærða
fegurðardrottning hafi hlotið
einróma aðdáun dómnefndar-
innar á hátíðinni, og hafi feg-
urðardrottning síðasta árs krýnt
hana blómakórónu, er úrskurð-
ur dómnefndarinnar hafi verið
felldur.
IStormur um Eaná
allt í nott.
Eins og spáð var í gærkvöldi,
gerði storm um land allt í nótt
og fylgdi honum úrkoma norð-
anlands.
Er senriilegt, að snjóað ’nafi
í fjöll og allt niður í byggð, og
sjá mátti snjó í fjöllum hér
sunnanlands, þegar dró frá sjó.
Hiti var víðast lítill í nótt,
4—5 stig á Vestfjörðum og
Norðurlandi, en heldur meiri
við suðurströndina, en þar var
hitinn 6—10 stig. Útlit er fyrir
minnkandi norðanátt á Vestur-
landi er líður á nóttina.
Risaflugvirki gera enn
loftárás á Pyongyang.
Fusan í gær AP.
Risaflugvirki Sam. þjóðanna
gérðu geysiharða loftárás á
Pyongyang, höfuðborg Norður-
Kóreu, og varpað var niður
mörgum smálestum af sprengj-
um.
Engar orustuflugvélar komm
únista komu til varnar og varð
ekkert flugvirkjanna fyrir
skemmdum af loftvarnaskot-
hríð. Áður en árásin var gerð
voru íbúar borgarinnar aðvar-
aðir, því að varpað var niður
flugmiðum, þar sem tilkynnt
var um hana. Eftir loftárásina
heyrðist sem snöggvast til út-
varpsstöðvarinnar í Pyongyang,
en hún hafði þagað síðan árás
var gerð á föstudag. Var þá
skýrt frá því, að 200 menn hafi
látið lífið í föstudagsárásinni og
tjón á mannvirkjum orðið mik-
ið.
Nam II yfirforingi kommún-
istahersins lýsti yfir því í gær
í orðsendingu til herstjórnar
S. Þ., að sprengju hefði verið
varpað á fangabúðir um 20 míl-
ur frá Pyongyang og hefðu 6
bandarískir hermenn látið líf-
ið og allmargir særzt.
Vaxandi kolafram-
leiðsla í Bretlandi.
Kolaframleiðslan í Bret-
landi nam 4.1 miRj. lesta í vik-
unni sem leið og er það nokkru
meira en í vikunni á undan, og
í sömu viku í fyrra.
Vildu taka Surtlu lifandi, en
skotmennirnir urðu fyrri til.
Eftirieguhindin sisatin eitir lungun* eltingurleik.
Á laugardagskvöld var unnið
á Herdísarvíkur-Surtlu — einu
sauðkindinni, sem hefur verið
elt eins og óargadýr hér á landi.
Um hádegisbil á laugardag
lögðu fjórir menn af stað héð-
an úr bænum, og höfðu þeir i
byggju að elta kindina uppi og
taka lifandi, því að þeir höfðu
ekki skotvopn meðferðis. Voru
þeir komnir til Herdísarvíkur
um klukkn þrjú um daginn, og
hófu þegar leitina. Urðu þeir
kindarinnar varir eftir um það
bil hálfa klukkustund, en þegaf
hún sá til þeirra, tók hún þegar
á sprett og stefndi til fjalla.
Hófu þeir félagar þegar eftir-
förina og tókst um síðir að
komast fyrir Surtlu og reka
hana til baka, unz hún var kom
in í ógreiðfæra, snarbratta
klettabrekku fyrir ofan Herdís-
arvík.
Þegar þangað var komið,
urðu menn, sem voru á vegin-
um, varir við ferðir kindarinn-
ar og þeirra, sem eftir henni
sóttu. Munu menn þessir — þrír
saman — hafa leitað hennar um
daginn, en ekki orðið varir, en
nú bar vel í veiði, því að menn
þessir voru með skotvopn með-
ferðis, og hófu þeir þegar skot-
hríð á kindina, þar sem hún
var í klettunum, þreytt og þjök-
uð eftir 4—5 klukkustunda
hlaup, því að klukkan var rúm-
lega átta, er hér var komið.
Tókst einum manna þessara
— en þeir munu allir vera héð-
an úr Reykjavík — að bana
kindinni í þriðja skoti, og
var þá Herdísarvíkur-Surtla
öll.
Skotmennirnir þrír og eftir-
leitarmennirnir fjórir tóku tal
saman, þegar ,,björninn“ var
unninn, og vildu hinir síðar-
nefndu fá hluta af fé því, sem
lagt hafði verið til höfuðs
Surtlu af Sauðjárveikivörnun-
um, til þess að hafa eitthvað fyr
ir sín hlaup, en nú ef eftir að
vita, hverjar lyktir verða þess
máís.
Nefnd sú, er gera átti tillög-
ur um staðsetningu drykkju-
mannahælis og fleira, hefur
lagt til við bæjarráð, að fest
verði kaup á jörðinni Skcggja-
stöðum í Mosfellssveit í þessu
skyni.
Nefndarmennirnir, þeir dr.
Jón Sigurðsson borgarlæknir,
Alfreð Gíslason læknir og
Gústaf A. Jónasson skrifstofu-
stjóri, lögðu fram ítarlega
greinargerð um þessi mál á
bæjarráðsfundi s. 1. föstudag.
Á Skeggjastöðum eru húsa-
kynni hin ágætustu, stórmynd-
arleg og traustbyggð. Húsið er
um 300 fermetrar, hár kjallari,
hæð og tveggja metra ris. Þar
eru vönduð útihús, rafstöð, en
jörðin er alls um 600 hektarar.
Húsin eru að mestu reist á ár-
unum 1944—45, en eigandi
þeirra er Eiríkur Ormsson raf-
virkjameistari. Gert er ráð fyr-
ir, að þarna verði rúm fyrir um
20 vistmenn.
Mönnum hefur lengi verið
ljóst, að gera þyrfti róttækar
ráðstafanir, til þess að ráða bót
á vandamálum þeim, sem stafa
af ofnautn áfengis, og að útvega
bæri heppilegt húsnæði fyrir
áfengissjúkt fólk. Það þarf sér-
stakrar aðhlynningar við og
læknishjálpar, eins og alkunna
er, og tvímæalaust fer bezt á
því, að slíkt hæli sé í sveit. —•
Skeggjastaðir virðast fullnægja
flestum þeim kröfum, sem gera
Skeggjastaða mun vera um 2
millj. króna.
þarf til slíks hælis. Kaupverð
Á sama fundi var og fjallað
um undirbúning hjálparstöðvar
fyrir áfengissjúklinga, en því
máli er nú svo langt komið, að
stöðin tekur til starfa 1. okt.
n. k. Ekki getur Vísir þó upp-
lýst á þessu stigi málsins, hvar
stöðin verður. Þar verður lækn-
ingastofa, þar sem unnt verður
að koma við læknisaðgerðum,
en ekki gert ráð fyrir sjúkra-
rúmum, enda um hjálparstöð
að ræða.
Þá má geta þess, að bæjar-
ráð hefur samþykkt, að áfeng-
issjúklingum verði fyrst um
sinn ætluð 1—2 rúm, eftir þörf-
um, í Hvítabandssjúkrahúsinu.
(Mossadegh andvígur
tillögum Breta.
Teheran (AP). — Neðri deild
persnéska þingsins á að koma
saman til þingfunda 10. septem-
ber. Verða þá nýjustu tillögur
Breta teknar til athugunar, eri
Mossadegh hefur þegar lýst yf-
ir því að hann sé þeim ekki
samþykkur.