Vísir - 31.10.1952, Page 8
LÆKNAK O G LYFJABÚÐIR
Vanti yður lækni kl. 13—8, þá hringið í
Læknavarðstofuna, sími 5030.
Vörður er í Laugavegs Apóteki, sími 1616.
LJÓSATÍMI
bifreiða er frá kl. 16,50—7,30.
Næst verður flóð í Reykjavík kl. 16,15.
Föstudaginn 31. október 1952
Sambandsrái Í.S.Í. samþykkir
refsivald sérsambandanna.
Samþykkfar breytingar á dóms- og
rðfsiákvæóysn 9.S.Í.
Dagana 23.—24. okt. var
haldinn 8. fundur sambands-
ráðs Í.S.Í. í félagsheimili Í.R. í
Reykjavík.
Fundinn setti Ben. G. Waage,
forseti Í.S.Í., og stjórnaði hon-
um. í upphafi minntist hanri
tveggja látinna forystumanna
íþróttahreyfingarinnar, þeirra
L. H. Muller kaupm. og Sigur-
jóns Péturssonar forstjóra. —
Forseti gaf síðan skýrslu um
störf framkvæmdastjórnar og
formenn sérsambanda skýrslur
um störf þeirra. Urðu miklar
umræður á fundinum.
Nefnd, sem skipuð var til að
endurskoða móta- og keppenda
Teglur, lagði fram frumvarp að
nýjum reglum, og vár frum-
varpið rætt og komu fram
margar breytingartillögur. En
síðan voru hinar nýju reglur
.samþykktar eftir allmiklar um
ræður.
■ Þá fór fram úthlutuu kennslu
styrkja, er íþróttanefnd hafði
úthlutað Í.S.Í. úr íþróttasjóði.
Varð skiptingin þessi: Í.S.Í.
kennslukostnaður 93.400.00 kr.,
úthlutað 35.300.00 kr., F. R. í.,
kennslukostnaður kr. 43.900.00,
úthlutað 16.600.00, K. S. í.,
kennslukostn. kr. 41.000.00 og
úthlutað 15.600.00 kr. S. K. í.
kennslukostnaður 19.000.00 og
úthlutað 7 þús. kr., S. S. 1,
kennslukostnáður kr. 21.200.00,
úthlutað 8 þús. kr., G. S. í..
kennslukostn. kr. 4.700.00, út-
hlutað kr. 1.700.00.
Þá voru samþykktar breyt-
ingar á dóms- og refsiákvæð-
um í. S. í., er ganga í þá átt að
gefa sérsamböndum og fram-
kvæmdastjórn í þeim greinum,
sem í. S. í. er sérsamband fyr-
ir, vald til óhlutgengs úrskurð-
ar yfir íþróttamönnum, sem
brotlegir eru, svo og að gefa
Sambandsráði í. S. í. rétt til
sakaruppgjafar.
Ennfremur samþykkti Sam-
bandsráðið að fela framkv,-
stjórn í. S. í. að kæra til refs-
ingar þá íþróttamenn, sem hún
telur að gerzt hafi brotlegir við
dóms- og refsiákvæði í. S. í. í
förinni til Ólympíuleikanna í
Helsinki.
Þetta er Jomo -Kenyatte, leið-
togi Mau-mau-manna í Kenya.
ifseðiliower á hlablnu
hjá Stevenson.
New York (AP). — Eisen-
hower hersliöfðingi flutti ræðu
í Madison Square Garden í gær
kvöldi og var það síðasta ræða
hans í austurfylkjunum.
í dag fer hann til Springfield,
Illinois, og flytur þar ræðu „á
hlaðinu" hjá Stevenson fylkis-
stjóra, frambjóðanda demo-
krata, en í Springfield er að-
setur fylkisstjórans og heimili.
Verður það lokaræða Eisen-
howers í kosningabaráttunni.
Útlendir englar í enskum
kirkjugörðum valda deilum.
Enska kirkjan er andvíg itölskum marmara.
Lyftusjóði berast
góðar gjafir.
Lyftusjóði vitsfólksins á
Elliheimilinu Grund barst í gær
tvær höfðinglegar' peningagjaf-
ir, samtals að upphæð kr.
3500.
Lyftusjóðurinn er stofnaður
af vistfólkinu sjálfu og hafði
gamla fólkið verið búið að safna
alls kr. 2276, er þessi rausnar-
lega viðbót barst. Var öhnur
gjöfin, að upphæð 500 kr. frá
N. N., en hinn gefandinn, sem
gaf 3000 kr. kallar sig. S. S.
Báðar eru því gjafirnar nafn-
lausar. Bað forstjórinn, Gísli
Sigurbjörnsson, blaðið fyrir
þakkir til gefanda.
Vegna þess að búast má við,
að fjölmargir óski að stýrkja
lyftusjóðinn með framlagi, mun
blaðið Vísir fúslega veita gjöf-
um móttöku.
Hriugskonur beita sér
ra
Dr. Geoffrey Fisher, erki-
biskup af Kantaraborg og æðsti
maður brezku kirkjunnar, hefir
orðið fyrir aðkasti úr tveim átt-
um upp á síðkastið, og stendur
deilan um engla — nánar til-
tekið engla úr ítölskum marm-»
ara.
Dr. Fisher fékk m. a. ádrepu
frá presti einum í Lincolnshire,
en hitt skeytið var frá Kass-
öndru, en það er dulnefni rabb-
dálkahöfundar í Daily Mirror.
Upphaf máls þessa er annars
það, að sóknarpresturinn í Hurst
Green í Sessex neitaði sorg-
bitnum föður um leyfi til þess
að láta setja engilmynd á leiði
nýlátinnar dóttur hans, sem
verið hafði níu ára. Faðirinn
áfrýjaði úrskurði prestsins, en
allt kom fyrir ekki, og erki-
biskupinn sjálfur tók sér penna
í hönd og skrifaði manninum:
„Þeirri skoðun vex fylgi, að
ítalskur marmari sé óhæfur
fyrir énska kirkjugarða. Þér
ættuð að gleðjast yfir að fá
tækifæri til þess að hjálpa við
verndun kirkjugarða okkar
fyrir útlendum marmara.
ítalskur marmari er óvelkom-
inn og ber að harma, að hann
skuli vera notaður.“
Blaðamaðurinn reiddist skrifi
biskups og komst svo að orði,
að hann kæmi ekki auga á það,
hvort biskup gæfi þetta ókeypis
heilræði af fagurfræðilegum
eða efnahagslegum ástæðum,
en hitt vissi hann, að þetta væri
ósvífin framkóma gagnvart
syrgjandi föður.
Biskup hafði einnig sagt í
bréfi sínu til föðursins, að blöð-
in hefðu rangfært staðreyndir
í málinu, til þess að bera æsi-
frétt á borð fyrir lesendur sína.
Þessu svaraði Lincolnshire-
presturitin á þá leið, að ef
kirkjan væri eins dugandi í
fréttaflutningi sínum ög blöð-
in, mundu ekki vera edns mörg
áuð sæti við guðsþjónustur og
raun bæri vitni.
Krupp að starSi
í Brasilíu.
Rio (AP). — Krupp-verk-
smiðjurnar hafa verið beðnár
að reisa eimreiðasmiðju í Brasi-
líu.
Hlutafé fyrirtækisins verður
alls 1,8 milljón punda, og verða
Kruppverksmiðjurnar eigendur
níunda hluta þess.
Annan sunnudag gefst Reyk
víkingum kostur á að hrinda
mikiu mannúðar- og þjóðþrifa-
máli áleiðis, barnaspítalamáli
Hringsins.
Þann dag beita hinar bráð-
duglegu Hringskonur sér fyrir
bazar, til ágóða fyrir væntan-
lega barnaspítala, en að því
máli hefur verið unnið af ósér-
plægni og alúð, eins og alkunna
er.
Fjáröflunarnefnd barnaspít-
alasjóðsnefndar hefur ekki set-
ið auðum höndum undanfarið,
heldur lagt á sig óhemju vinnu
til þess að gera bazarinn sem
bezt úr garði, sem opnaður
verður í salarkynnum Málara-
ans við Bankastræti sunnudag-
inn 9. nóvember.
Á bazar þessum verður að
sjá urmul af ails konar varn-
ingi, sem hentugur er til jóla-
gjafa, einkum leikföng barna-
fatnað og íjölmargt fleira, í
langtum meira úrvali en menn
eiga hér að venjast. Hafa kon-
urnar lagt á sig mikið erfiði til
að afla munanna eða prýða þá,
en íslenzkar konur erlendis
hafa einnig lagt hönd á plóg-
inn.
Geta má þess, að íslenzkar
konur í Grimsby hafa gefið
mikið af skemmtilegum
drengjaleikföngum, og hefur
frú Nanna Olgeirsson, kona
Þórarins útgerðarmanns þar,
safnað mununum og sent þá
hingað. Þá hafa íslenzkar kon-
ur í Washington, sem komið
hafa saman í saumaklúbb þar,
sent mikið og fallegt úrval af
smábarnafatnaði, og hefur frú
Ágústa Thors staðið fyrir þeirri
söfnun og komið varningnum á
leiðis hingað. Er þetta allt vel
unnið og girnilegt, eins og kon-
ur munu reyna, er á bazarinn
kemur.
Ohætt er að fullyrða, að
jafnvel frá karlmanns-sjónar-
miði og frá bæjardyrum van-
þekkingarinnar í þessum efn-
um, eru fjölmargir smekklegir
hlutir á boðstólum á þessurn
bazar Hringskvenna. Má sjálf-
sagt fá þarna eitthvað við
flestra smekk,
í fjáröílunarnefnd barnaspít-
alasjóðsins eru þessar konur:
Helga Björnsdóttir, formaður,
Dagmar Þorsteinsdóttir, Hólm-
fríður Andrésdóttir, Guðrún
Hvannberg, Sigrún Jónsdóttir,
Kristjana Einarsaóttir og Haíl-
döra Samúelsdóttir.
í barriaspítalasjóði eru nú
um 2,1 millj. króna, sem félags
fundur hefur samþykkt að
leggja til Landsspítalans, jafn-
ótt og samkomulag hefur orðið
um viðbyggingu við spítalann
með um 50—60 sjúkrarúmum
fyrir börn, en Hringurinn og
forráðamenn. Landsspítalans
hafa með höndum áform um
þetta, svo að mál þetta mun
ekki eiga langt í land.
í stjórn Hringsins eru þess-
ar konur: Form.: Frú Ingibjörg
Cl. Þorláksson, og auk henriar
þær Guðrún Geirsdóttir, Mar-
grét Ásgeirsdóttir, Jóhanna
Zoéga og Helga Björnsdóttir.
Að lokum er rétt að geta þess
að á morgun, laugardaginn 1.
nóvember, verða ýmis bazar-
munir Hringsins til sýriis í
gluggum Málarans, en sjálfur
bazarinn og happdrætti í sam-
bandi við hann, verður um aðra
helgi, éíns og fyrr segir.
Þing BSRB var sett í gær.
W'élag starfsfóiks i Sijjómair*-
ráðinu ffenfjur i santiökin-
í gær var 15. þing bandalags
starfsmanna ríkis og bæja sett
í samkomusal Útvegsbarika ís-
lands og sitja þingið að þessu
sinni Í03 fuíltiúar frá 26 sam-
bandsfélögum.
Formaður sambandsins, Ól-
afur Björnsson prófessör, setti
þingið með ræðu og bauð full-
trúana velkomna til þings. Þá
tók til máls Jón Sigurðsson
framkvæmdastjóri A. S. í. og
flutti hann kveðjur. frá Al-
þýðusambandinu og áraaði
þingfulltrúum heilla í starfi, og
óskaði þess að samvinna A. S.
í. og B. S. R. B. mætti halda
áfram að eflast.
Arngr. Kristjánssoh skóla-
stjóri hafði orð fyrir kjörbréía-
nefnd, en kjörbréf voru öll sam
þykkt og samþykkt inntaka
ny's félags: Félags starísfólks í
Stjórnarráðinu. Forseti var
kjörinn Helgi Hallgrímssori,
varaforsetar Björn L. Jónsson
og Maríus Ólafsson. Ritarar
voru kjömir Guðjón Gunnars-
son, Jónas Jósteinsson, Karl
Halldórsson og Ársæll Sigurðs-
son.
Síðan var flutt skýrsla stjóm
arinnar, og flutti Ólafur Bjöms
son hana. Ræddi hann þróun
kjarabaráttunnair og sýndi fram
é að kaupmáttur launanna
hefði ekki vaxið á liðrium ár-
um í hlutfalli við launahækk-
anirnar. Hélt hann því fram að
nauðsyn bæri til að endur-
skoða útreikning vísitölunnar
og koma þeim málum í betra
horf.
Hvað vakir fyrir
Tímanum ?
Tíminn kemst svo að orði í
morgun í frásögn af hinu
hörmulega slysi, sem varð á
Akranesi í fyrradag, er 8 ára
drengur lézt við sundnám í
sundlauginni, þar, að það sé
„missögn, sem birzt mun hafa
í einu dagblaði í gær, að sund-
kennarinn væri um að saka“.
Hér er átt við Vísi, þar sem
hann var eina blaðið, sem skýrði
frá þessum atburði í gær, en
í þeirri fregn var ekkert orð,
sem skilja mátti svo, að Vísir
bæri sakir á einn eða neinn í
þessu sambandi. Veit það hver
maður, sem las fregnina í Vísi.
Ritstjóri Vísis spurði Jón
ilelgason fréttastjóra Tímans
að því í morgun, hvað blað hans
ætlaðist fyrir með slíkri stað-
hæfingu, og varð Jónr svara-
fátt, en það fékkst þó upp úr
honum, að hann hafði ekki les-
ið það, sem stóð í Vísi um slys-
ið. Væntir Vísir þess, að Tím-
inn leiðrétti þessa missögn, sem
feíur í sér alvarlega aðdrottun,
s«"a ekki er fótur fyrir.