Vísir - 08.11.1952, Blaðsíða 2

Vísir - 08.11.1952, Blaðsíða 2
VlSIR Laugacdaginn 8. nóvember 1952. Hitt og þetta Herbert Hoover er fluggáfaS- ur stjórnmálamaður, en hann er dálítið úrillur og þreytist aldrei á því að segja þjóð sinni hvað mikinn skaða Roosevelt 'hafi gért þjóð sinni með „new deal“ og Truman með fram- haldi af þeirri stefnu. Sem dæmi nefndi hann þetta: „Allar þess- ar aðfarir minna mig á telpuna litlu, sem sagði við mömmu sína: Mamma, manstu eftir postulínskönnunni, sem þú sagðir, að gengið hefði í arf frá kynslóð til kynslóðar, um hundruð ára?“ „Já, barnið gott, eg man vel eftir henni.“ „Mamma, þessi kynslóð er búin að brjóta hana!“ © Gamall karl frá Hálöndun- um kom inn í járnbrautarlest og fékk sér þar sæti andspænis kapteini úr Hjálpræðishernum. Itarlinn starði lengi á einkenn- isbúninginn og þekkti hann ekki. Hann gat því ekki á sér setið og sagði: „f hvaða her- deild eruð þér, maður sæll?“ H j álpræðisheirskapteinninn svaraði með miklum virðuleik: „Eg er í herdeild Drottins. Eg fer nú til Inverness til þess að herja á djöfulnn, þaðan fer eg til Aberdeen og þar ætla eg að berja á honum líka. Þar næst fer eg til Dundee, til Edinborg- ar og til Melrose.“ „Já, það var rétt,“ sagði karlinn og kinkaði kolli í ákafa. j,Rektu hann bara á undan þér Iengra og Iengra suður á bóginn alla leið til bannsettra Eng- Iendinganna“. • Á málverkasýningu var gestur einn að skoða mynd- irnar og sagði þá: „Þessi mynd er svo sem þokkaleg, en hún er alltof lítil.“ „Þykir yður ekki gaman að litlum myndum?“ „Nei, þær eru mesta rusl. Eg vil hafa almennilegar myndr, stórar myndir, sem hylja mikið af veggfletinum." „Þér metið þá listina eftir máli?“ „Nei, það vil eg ekki beint segja — en eg er glerskurðar- Tnaður-“ li'j BÆJAR Qm Mmi $ar.> Einu sinni var. ............... í fréttum í Vísi fyrir 30 ár- um var m. a. þessi frétt: Ofbeldisverk. Utlendur maður hefir kært júir því, að hann hafi verið barinn síðastliðið laugardags- kvöld á kolabryggjunni og síð- an hrundið í sjóinn. Tveir menn voru settir í gæzluvarðhald, grunaðir um þenna glæp. Mál- inu er þó ekki lokið enn. ísfisksala. Þessi skip hafa nýskeð selt afla sinn í Englandi: Kári fyrir 900 pund, Njörður tæp 1100, Otur fyrir 1100 pund. Listsýningin. Þar hefir selst ein mynd eftir Jón Stefánsson: „Skaftá við eldhraunið“, verð 500 krónur. Laugardagur, 88. nóvember, — 313 dagur ársins. Messur á morgun. Dómkirkjan: Messa kl. 11 f. h. Síra Jón Auðuns. Kl. 5 Stein- dór Gunnlaugsson lögfr. pré- dikar. Síra Óskar J. Þorláks- son fyrir altari. Nesprestakall: Messa í kap- ellu Háskólans kl. 2. Steindór Gunnlaugsson lögfr. prédikar. Síra Jón Thorarensen fyrir alt- ari. Barnaguðsþjónusta og sam- koma í Tjarnarbíó kl. 11. Síra Óskar J. Þorláksson. Fríkirkjan: Messað kl. 5. Síra Þorsteinn Björnsson. — Barnaguðsþjónusta kl. 2. Síra Þ. Bj. Laugarneskirkja: Messa kl. 2 e. h. Síra Garðar Svavarsson. Barnaguðsþjónusta kl. 10.15. Síra Garðar Svavarsson. Hafnarfjarðarkirkja: Messa kl. 2 e. h. Síra Garðar Þor- steinsson. Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h. Síra Garðar Þor- steinsson. Elliheimilið Grund: Messa kl. 10 árd. Síra Ragnar Benedikts- son. Hjónaband. í dag verða gefin saman í hjónaband ungfrú Katrín Guð- bjartsdóttir frá Bolungarvík og Sigurður Sveinsson frá Hvítsstöðum, garðyrkjuráðu- nautur Reykjavíkurbæjar. — Bróðir brúðgumans, síra Helgi Sveinsson, gefur brúðhjónin saman. Handíðaskólinn. Innan skamms hefst .í Hand- íðaskólanum námskeið í tré- skurði fyrir 12—13 ára drengi. Aðeins lagtækir, listfengir drengir koma til greina, og eiga umsækjendur að senda umsögn frá smíðakennara með umsókn- um sínum. tSrcMc/áta 1764 Lárétt: 1 Bær í N.-Þing., 5. drykkjustaður, 7 hávaði, 9 í lagi, 11 kallmerki, 13 í smiðju, 14 stúlka, 16 ólæti, 17 á rúm- um, 19 úr ull. Lóðrétt: 1 Hestar, 2 félag, 3 svölun, 4 gælunafni, 6 manna, 8 afkomanda, 10 óvissu, 12 á skó, 15 dráttur, 18 ósamstæðir. Lausn á krossgátu nr. 1763: Lárétt: 1 Kiljan, 5 sól, 7 æf, 9 lina, 11 kló, 13 nóg, 14 Jóni, 16 tá, 17 ósa, 19 Reginn. Lóðrétt: 1 krækjur, 2 LS, 3 jól, 4 alin, 6 hagar, 8 fló, 10 nót, 12 ónóg, 15 ÍSÍ, 18 an. Rafmagnsskömmtun verður á morgun, sunnudag- inn 9. nóv., á I. hluta. Hjúskapur. í dag, laugardag verða eftir- taldar persónur gefnar samah í hjónaband af síra Þorsteini Björnssyni: Guðrún Ásgerður Jakobsdóttir, Austurstræti 3, og Páll Ólafsson, Langholts- vegi 159. — Bjarnaheiður Alda Jónsdóttir, Herskólakamp 38 og Róbert Lárussson s. st. — Anna Óskarsdóttir, Ásvalla- götu 67 og Elís Kristjánsdóttir frá Arnarnúpi í Dýrafirði. Bazar heldur Kaupfélag Kópavogs- hrepps í skólanum kl. 2 á morg- un. Bazar Hringsins, sem haldinn er til ágöða fyrir barnaspítalasjóð félagsins, verður opnaður í salarkynnum Málarans á morgun. Þar verður á boðstólum ýmislegur varning- ur, smekklegur mjög, sem á- kjósanlegur er til jólagjafa, en jafnframt styrkja menn ágætt málefni. Vcðrið. All djúp lægð fyrir vestah land á hreyfingu norðaustur eftir. Veðurhorfur: SV-hvassviðri, skúrir. Veðrið kl. 9 í morgun: Reykjavík ANA 4, 6. Stykkis- hólmur SSV 8, 9. Kjörvogur, logn, 2. Sglunes logn, 1. Ákur- eyri SA 1, 1. Raufarhöfn SA 7, 2. Dalatangi SSA 6, 3, Djúpi- vogur SSV 1. Vestmannaeyjar A 8, 5. Þingvellir logn, 3. Reykjanesviti SSA 4, 7. Kefla- víkurvöllur SSA 6, 5. Útvarpið í kvöld. Kl. 20.25 Tónleikar (plötur). — 20.40 Leikrit: „Fundið fé“, gamanleikur eftir Rudolf Ber- lauer og' Rudolf Oesterreicher. Leikstjóri og þýðandi: Lárus Pálsson. — 22.QO Fréttir og' veðurfregnir. — 22.10 Danslög (plötur) til kl. 24.00 Slys. í gærkveldi kl. 20—30 varð það slys á móts við hús nr. 15 við Njálsgötu, að kona féll um steypujárn, sem lá þar á gang- stéttinni, og handleggsbrotnaði hún. Kvartað hefir verið um, að götulýsing þarna hafi verið slæm. Kona þessi, Margrét Bjanradóttir, Hrísateig 15, var flutt á sjúkrahús. Hvar eru skipin? Eimskip: Brúarfoss fór frá Rvk. 3. nóv. til Hull og Ham- borgar. Dettifoss er í Rvk. Goðafoss fór frá Rvk. 4. nóv. til New York. Gullfoss fór frá K.höfn á hádegi í dag til Leith og Rvk. Lagarfoss fór frá Vestm.eyjum í fyrrad. til Ge- dynia. Reykjafoss fór frá Seyð- isfirði í fyrrad. til Gautaborg- ar. Selfoss fór frá Álaborg í fyrrad. til Bergen. Tröllafoss fór frá New York í fyrrad. til Rvk. Ríkisskip: Esja fór frá Rvík í gærkvöld vestur um land í hringferð. Herðubreið er á Augtfjörðum á uorðurleiðt SkjaJdbreið fer í dag til Skaga- fjarðar- og Eýjafjarðarhafna. Þyrill verður væntanlega í Hvalfirði í dag. Skaftfellingur fór frá Reykjavík til Vest- mannaeyja í gærkvöld. Skip S.Í.S.: Hvassafell lestar timbur í Yypila. Arnarfell er í Patras. Jökulfell fór frá Rvk. 3. þ. m. áleiðis til New York. M.s. Katla er í Ibiza. Hvöt sjálfstæðiskvennafélagið held- ur fund, mánudaginn 10. þ. m., í Sjálfstæðishúsinu kl. 8.30 síð- degis. Fundarefni: Félagsmál, þingmál (frú Kristín Sigurðar- dóttir, alþm.), kvikmyndasýn- ing og loks kaffidrykkja. Allar sjálfstæðiskonur eru velkomn- ar á fund þenna. Vestmannaeyjatogararnir. Bjarnarey kom í morgun og fer á karfaveiðar. Elliðaey er einnig hér og fer sömuleiðis á karfaveiðar. Hafnarfjarðartogararnir. Júní, Júlí og Surprise eru á karfaveiðum. Júlí er í slipp, en fer út í kvöld. Karfaveiðarnar hafa gengið vel, nema að ógæft- ir hafa stundum hamlað. — Bjarni riddari, sem var við Grænland, er að fylla sig fyrir vestan land, og fer svo til Es- bjerg. Helgidagslæknir er á morgun Gunnar Benja- mínsson, Sigtúni 23, sími 1065. Blindrafélagið. Á morgun fer fram hin ár- lega merkjasala Blindrafélags- ins. Þegar merkjasölur fara fram, fer það mjög eftir veðri, hvort þær gefa góðan árangur. Það væri því óskandi að á sunnudaginn yrði bjart og fag- urt veður um allt land. Blindra- félagið á því láni að fagna að eiga samúð fólksins í landinu, þess vegna óska allir því gæfu og gengis og allir vilja kaupa merki þess. En við merkjasölu eru bless- uð börnin alltaf drýgst þegar allt kemur til alls. Foreldrar ættu því að hvetja börn sín til að selja merkin. Það gefur líka öllum, sem duglegir eru drjúga vasapeninga, því 50 aurar verða greiddir í sölulaun af hverju merki, sem selt verður. 80 ára er í dag frú Guðrún Benónýsdóttir nú til heimilis að Elliheimilinu Grund. Loftleiðir h.f. Hekla millilandaflugvél Loftleiða h.f. kemur í fyrra- málið, sunnudag, frá Kaup- mannahöfn og Stavanger og fer áfram til New York eftir stutta viðdvöl. Flugvélin er væntanleg það- an á þriðjudagsmorgun á leið til NOrðuríanda. LEREFT Tvíbreitt hörléreft á kr. 21.00 metrinn. Lakaléreft með vaðmáls- vend 1,70 br. 34,90 metrinn. Einbreitt léreft á kr. 8,10 metrinn. VERZL.^ Odyr híll til sölu. Til sýnis og upplýs- ingar á benzínstöðinni við Hlemmtorg. og aðrir óskasí (il að selja merki Blindrafélagsins á morgun. Ilá söiulaun. Merkin verða afgreidd á Grund- arstíg 11, Elliheimilinu Grund herbergi 41 og í Holts- apóteki Langholtsveg 84. frá klukkan 9 árdegis. Blindraféiagið. Jarðaríör MagnSfieSHar CilnllmBaEBslselntáeis’ fer fram liriðjitíIagÉmi 11. nóv. og liefsí meS húskveðju á heimifi hennar, IngóSfssíræti 8, kl. 1 e.h. Áðsfandéndiir. f iy\

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.