Vísir - 08.11.1952, Page 8
LffiKNAR OG LYFJABÚÐIR
Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í
LæknavarSstofuna, sími 5030.
Vörður er í Lyfjabúðinni Iðunn, sími 7911.
Laugardaginn 8. nóvember 1952.
LJÓSAIÍMI
bifreiða er frá kl. 16,20—8,05.
Næst verður flóð í Reykjavík kl. 22,00.
Tilraun fiS fisklöndunar I
Bretbndi gerð bráBlega.
Fieiri togarósr veifka í ssit hér við Band.
Arabaríkin reið Þjéðverjym vegna
samninga við ísrael.
Ilugieiða aS sláta sambandi við V.“S*ýzkaland.
Kairo (AP). — Naguib for-
sætisráðh. Egyptalands skýrði
frá því í gær, að Arababanda-
lagið hefði til íhugunar að slíta
tengslin við V.-Þýzkaland,
vegna samkomulags Bonn-
stjórnarinnar við Israel.
Naguib íét þess ekki getið,
hvort hér væri urn að ræða, að
bandalagsríkin sliti stjórnmála-
sambandi við V.-Þýzkaland,
viðskiptasamböndum eða hvort
tveggja. Skömmu síðar ræddi
Naguib við sendiherra Bonn-
stjórnarinnar. — Naguib hefur
verið í forsæti á fundum Araba
bandalagsins um þetta mál.
Arabaríkin, sem enn eru form-
lega í styrjöld við ísrael, þótt
ekki sé barist lengur, telja að
af skaðabótasamkomulaginu
leiði, að fsrael muni efnast það
mikið, að það verði hernaðar-
lega sterkara eftir, og auk þess
eru bandalagsríkin gröm yfir
hverjar undirtektir nefnd þeirra
fékk, sem fór til þess að ræða
við Bonnstjórnina. — Egypsk
blöð hafa að undanförnu rætt
mikið afstöðu Bonnstjórnarinn-
Enn vafi um
fáein sæti.
Einkaskeyti frá AP. —
Washington í morgun.
Fullnaðarúsiit í kosningunum
til fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings eru enn ekki kunn.
Repuþlikanar hafa nú fengið
225 sæti, demokratar 205, ó-
háðir 1, vafi um 3, og auka-
kosning — vegna andláts — fer
fram um eitt sæti.
Seinustu tölur um kjósenda-
atkvæði forsetaefnanna eru:
Eisenhower 31.691.000 og
Stevenson 25.501.000.
ar í þessum málum og gagnrýnt
gerðir hennar allhvasslega. —
Segja þau m. a. að ísrael hafi
engan rétt til að koma fram
fyrir hönd Gyðinga yfirleitt.
varnaráðherra, þar til menn úr
Vestur-Þýzkaland hefur á und-
angengnum tíma stöðugt auk-
ið viðskipti sín í Arabalöndun-
um og mundi það Vestur-
Þýzkalandi hinn mesti hnekkur,
ef arabisku þjóðirnar hættu
viðskiptum við það.
Dvaiarheimili sjó-
manna berst
góð gjöf.
Skipshöfnin á b.v. Hvalfelli,
Reykjavík, hefur afhent 3850.00
króna gjöf til Dvalarheimilis
aldraðra sjómanna.
Togarinn var á leiðinni til
landsins frá útlöndum, er skip-
verjar heyrðu það í útvarpinu
að byrjað væri að grafa fyrir
grunni Dvalarheimilis aldraðra
sjómanna og skutu þá saman
þessari upphæð.
Fulltrúaráð Sjómannadagsins
og byggingarnefnd Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna
þakkar skipsverjum á b.v.
Hvalfelli þessa myndarlega gjöf
og vænta, að skipverjar á fleiri
skipum taki sér þá til fyrir-
myndar og hjálpi til með að
auka byggingar s j óðinn, því
ekki mun nú af veita.
....—♦ i
Nokkrir menn úr Kikyu-
þjóðflokknum í Kenya hafa
verið dæmdir til hýðingar og
fangelsisvistar fyrir þátttöku í
hryðjuverkum.
íslenzk gæruskinn
sútuð með nýrri aðferð.
Þola þá að blotna og þurrkast við talsverðan
hita án þess að skemmast.
Togurum, sem stunda veiðar
í salt hér við land, fer nú fjölg-
andi.
Hefur verið dágóður afli af
þorski og upsa á Halanum að
undanförnu, þegar gefið hefur,
en gæftir tregar. Meðal togar.a,
sem nýlega eru farnir á þessar
veiðar, eru Helgafell, Pétur
Halldórsson og Skúli Magnús-
son.
Nokkrir togarar eru enn við
Grænland, m. a. Bæjarútgerð-
artogarar. Þar heíur verið
tregur afli að undanförnu.
Ekki hefur enn frétzt, að fyr-
ir dyrum stæði nein löndun i
Bretlandi, en þar sem stofnaö
hefur verið löndunarfélag í
Grimsby, rekur sjálfsagt að því
að tilraun verði gerð í þá átt.
Blaðið Grimsby Evening
Telegraph birtir fregn um það
30. október undir heilsíðufyrir-
sögn, að Anthony Eden utan-
ríkisráðherra muni hafa lagt til
í viðræðu við íslenzka sendi-
herrann í London, Agnar Kl.
Jónsson, að deilan verði falin
meðferð sérfræðinganefndar til
einhvers konar málamiðlunar.
Fregnin er frá stjórnmála-
fréttaritara blaðsins.
Fregnin ber með sér, að þeir
Eden og sendiherrann hafi
ræðst við 29. október, og að
sendiherrann hafi tekið að sór
að gera stjórn sinni grein fyrir
skoðunum brezku stjórnarinn-
ar, og megi vænta svars ís-
lenzku stjórnarinnar að athug-
Fyrir nolckru var holskurður
gcrður á danskri telpu vegna
gallsteina, og voru alls teknir
úr henni 46 steinar.
Frá þessu var skýrt ekki alls
fyrir löngu í tímaritinu „Nor-
disk Medicin“, og þess getið
jafnframt, að það hefði ekki
komið fyrir áratugum saman
á Norðurlöndum, að barn hefði
haft gallsteina. Telpan var að-
eins tíu ára Og voru steinarnir
allir á stærð við rúsínusteina
og eplakjarna, eða þar á milli,
í Danmörku vita menn að-
eins um eitt tilfelli af gall-
steinum í barni, en barnið var
aðeins ársgamalt, þegar hol-
skurður var gerður á því. Á
Norðurlöndum yfirleitt er að-
eins vitað um fjögur tilfelli
samtals.
Telpan, sem sagt er frá hér
að ofan, þjáðist af meltingar-
örðugleikum, þegar hún var
enn yngri, og átta ára gömul
yar hún lögð í sjúkrahús og
uðu máli. Viðræðurnar voru
vinsamlegar og deilan hefur
ekki spillt hinni vinsamlegu
sambúð milli landanna. Sendi-
herra íslands kvað ríkisstjórn
íslands hafa gert grein fyrir
afstöðu ríkisstjórnar sinnar,
sem skildi ekki hvers vegna
brezka stjórnin væri mótfallin
stækkun landhelginnar, sem
bitnaði á íslenzkum fiskimönn-
um alveg eins og fiskimönnum
annarra þjóða. Uppástunga
Edens, segir í fregninni, breyt-
ir engu um þá afstöðu brezku
stjórnarinnar, að gerðir íslend-
inga í þessu máli séu ekki í
samræmi við alþjóðalög.
■■■■■» .
Varð bráðkv’ödd
á götu.
Síðdegis í gær fékk kona
hjartaslag á götu hér í bænum
og var örend skömmu síðar.
Kona þessi, Guðrún Guð-
mundsdóttir, átti heima á
Hverfisgötu 32 B í Hafnarfirði,
en var á ferð hér í bænum í gær
ásamt fósturdóttur sinni. Um
hálf áttaleytið í gærkveldi voru
þær á gangi eftir Fjölnisvegin-
um er Guðrún hneig allt í einu
niður, og var þá meðvitundar-
laus. Var hún þá borin inn í
næsta hús þama á götunni, en
síðan símað eftir sjúkrabifreið
er kom þegar, í stað, en er komið
var með konuna á Landspítal-
ann var konan látin.
tekinn úr henni botnlanginn.
Hafði hún þá haft verki í kvið-
arholi, svo að þessi aðgerð þótti
nauðsynleg. Læknunum kom
ekki til hugar, að hún þjáðist
af gallsteinum, svo að hún var
látinn fara heim, er skurðurinn
var í lagi. Mánuði síðar var hún
aftur lögð í sjúkráhús, en út-
skrifuð á ný-. Aftur leið mán-
uður, og þá bar barnið lagt í
sjúkrahús í þriðja sinn. Rönt-
genmyndir af gallgöngunum
sýndu ekkert óvenjulegt, en við
nákvæmari rannsókn á gall-
blöðrunni sáust skuggar, sem
þóttu grunsamlegir. Læknar
stungu upp á því við foreldr-
ana, að skurður væri gerður,
því að þar væri ef til vill um
steina að ræða. Og það stóð
heima — því að þeir reyndust
alls 46. Var gallblaðran tekin
úr stúlkunni, og hefur hún ekki
kennt sér meins síðan — eða í
háift þriðja ár.
Árni Pálssonl
prófess&r. I
Árni Pálsson prcfessor lézt
að heimili sínu hér í bæ í gær,
74 ára að aldri.
Með Árna Pálssyni er hnig-
inn merkur maður, orðsnilling-
ur og vitmaður. — Hann var
fæddur að Hjaltabakka hinn
13. sepember árið 1878, sonur
síra Páls Sigurðssonar, prests
þar og síðar í Gaulverjabæ, og
konu hans, Margrétar Þórðar-
dóttur sýslumanns.
Próf. Árni Pálsson las sögu
við Hafnarháskóla, var síða'a
um árabil kennari við Mennta-
skólann í Reykjavík, en skipað-
ur var hann prófessor við Há-
skólann árið 1931. Þá var hann
og bóltavörður á Landsbóka-
safninu um langt skeið. Hann
var löngu þjóðkunnur maður
fyrir ritstörf.
Hin síðari ár átti hann við
vanheilsu að stríða, en margir
munu staldra við, er þeim berst
fregnin um lát hans, og minn-.
ast þessa mikilhæfa gáfumanns.
Landssmiðjan hefur
smíði á islenzkrí
uppgötvun.
Landsmiðjan er í þann veg-
inn að hefja smíði á landbúnað-
arvél, sem fundin hefur verið
upp af íslenzkum manni.
Er þetta áburðardreifari, sem
Guðmundur Jóhannesson, ráðs-
maður á Hvanneyri, hefur
fundið upp og er sérstaklega
ætlaður fyrir húsdýraáburð.
Er þegar fengin reynzla fyr-
ir honum á Hvanneyri og hefur
komið í ljós að hann er í senn
stórvirkur og hentar betur ís-
lenzkum aðstæðum en erlend-
ir áburðardreifarar.
Hleður hann sig sjálfur á 3
mínútum, en tæmir á 2 mínút-
um, er þar um að ræða 1 tonns
hlass. Lætur nærri að dreifar-
inn afkasti að bera á ársmykju
undan 5 kúm á einum degi.
Á síðastliðnu ári sótti Guð-
mundur um einkaleyfi á upp-
götvun sinni og hafa nú tekizt
samningar á milli hans og
Landssmiðjunnar í Reykjavík
um það, að Landssmiðjan skuli
framleiða þessa dreifara og
selja þá til bænda.
Verð þeirra vagna, sem af-
greiddir verða næsta vor, er á-
kveðið 11.900.00, með felgum
og hjólbörðum. Gert er ráð
fyrir, að nokkrir vagnar geti
orðið til sölu í apríl/maí í vor,
og hafa þegar fáeinar pantamr
verið lagðar inn.
Að sjálfsögðu verða vagnarri-
ir afgreiddir í þeirri röð, sem
pantanir berast.
Björling fer fii ttaiíu.
Operusöngvaranum Jussi
Björling barst skeyti í gær frá
La Scala óperunni í Milano og
var honum boðið að koma
þangað og halda hljómleika á
tímabilinu 15. des. til 15. jan-
úar. Björling svaraði um hæl
jog tók á móti tilboðixm.
Vinnufatagerð íslands hefur
nýlega tekið að sér rekstur Sút-
unarverksmiðjunnar og hafið
sútun skinna með nýrri aðferð,
sem gerir þau að mun ending-
arbetri, en þau hafa verið fram
til þessa.
Hefur um skeið starfað hjá
verksmiðjunni ungverskur
maður, Zabu að nafni, sem allt
sitt líf hefur starfað við sútun.
Verður þessi nýja aðferð kennd
við hann og aðferðin kölluð
„Zabusútun“. Mismunurinn
felst í því að með nýju aðferð-
inni þola skinnin að blotna og
þorna við talsverðan hita án
þess að þau skemmist.
Einsog kunnugt er hefur VÍR
um 5 ára bil framleitt lands-
frægar kuldaúlpur og verða nú
öll skinn, sem úlpur þessar eru
fóðraðar með sútuð með hinni
nýju aðferð. Sveinn Valfells,
er í gær lýsti hinni nýju sút-
unaráðferð fyrir blaðamönnum
og bauð þeim að skoða sútun-
arverksmiðjuna, skýrði þeim
frá því að Vinnufatagerðin
hefði aldrei verið fullkomlega
ánægð með sútun skinna, en nú
væri langþráðu marki náð.
í rauninni boðar þessi nýja
sútunaraðferð byltingu í sútun
skinna, en með henni eykst
notagildi skinnanna til mik-
illa muna. Fyrst í stað verður
aðferðinni einungis beitt við
sútun skinna í hinar vðkunnu
loðúlpur VÍR, en markmiðið
með tilraununúm var að full-
komna þá vöru. Greinilega er
þó að þessa aðferð ætti að nota
við sútun allra gæra, sem til-
falla hér á landi.
Endaþótt þessi nýja aðferð
taki meiri tíma og sé dýrari
mun verð á úlpum haldast ó-
breytt frá því er hefur verið.
er sktitiðf
46 gallsteinar teknir úr
10 ára gamalli telpu.
Þeir voru á stærö við rúsínusteina og eplakjarna.