Vísir - 20.11.1952, Blaðsíða 1

Vísir - 20.11.1952, Blaðsíða 1
I£. árg. Fhnmtadaginn 20. nóvember 1052. 267. tbl. Viðræður vinnuveitenda og Alþýðusambandsins hefjast á morgun. Umræður Vinnuveitendasam bands íslands og Alþýðusam- bands Islands vegna uppsagna verklýðsfélaganna hefjast á morgun. Hefir framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins, Björgvin Sigurðsson héraðs- dómslögmaður, sent stjórn ASÍ bréf, þar sem samninga- menn þess eru beðnir að koma til fundar við fulltrúa vinnu- veitenda kl. 4.30 síðdegis á morgun, og verður sá fui.dur haldinn í Tjarnareafé uppi. Af hálfu Vinnuveitendasam- bandsins fer framkvæmda- nefnd þess, fimm menn, auk fjögurra varamanna, með samningsumboð. í framkv,- nefndinni eru þessir meiin: Kjartan Thors, framkv.stjóri, form., Helgi Bergs framkv.stj., Guðmundur Vilhjálmsson fram- kv.stj., Ingólfur Flygenring framkv.stj. og Benedikt Þ. Guðjón efstur í meistaraflokki. Tner uwnterðir ettir. Níunda umferð í meistara- flokks keppninni í skák á Haustmóti Taflfélagsins var tefld í gær og er Guðjón M. Sigurðsson enn efstur eftir hana með 7 vinninga og biðskák. Úrslit urðu þessi í umferð- inni í gær: Þórður vann Jón Einarsson, Þórir Ólafsson vann Kára Sólmundarson, Sveinn Kristinsson og Jón Pálss. gerðu jafntefli, Arinbjörn og Lárus Johnsen jafntefli. Biðskákir urðu hjá Steingrími og Guðjóni M., Birgi Sigurðssyni og Hauk Sveinssyni. I fyrsta flokki er keppni lok- ið og varð Ingi R. Jóhannsson efstur með 8 vinn. af 9 mögu- legum. 2. Ingimundur Guð- mundsson með 7% v. og 3. Dón- ald Ásmundsson með 7 v. Þeir Ingi R. og Ingimundur flytjast upp í meistaraflokk. í meistaraflokki eru eftir tvær umf. og verður keppn- inni væntanl. lokið n. k. föstu- dag. Snjóar við Mið- jarðarhaf. London (AP). — Kuldabylgja er nú í Frakklandi og fannkoma jafnvel í suðurhluta landsins. í Suður-Englandi snjóaði í nótt, en óvíða festi snjó að nokkru ráði. í Svíþjóð og Nor- egi hafa^verið allmiklar fann- komur, en í Noregi vestanverð- um hefur. verið milt veður. Gröndal verkfr., en ault þeirra eru þessir varamenn, sem einn- ig mæta á viðræðufundinum: Sveinn Guðmundsson framkv,- stjóri, Ingvar Vilhjálmsson út- gerðarm., Eyjólfur Jóhannsson framkv.stj. og Halldór Kr. Þor steinsson útg.m. Auk þessara manna, sem hér hafa verið taldir, má gera ráð fyrir að fundinn sitji fulltrúar Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna, Mjólkursam- sölunnar, Félags ísl. iðnrek- enda, L.Í.Ú og Reykjavíkur- bæjar, og að sjálfsögðu Björg- vin Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambands ins. Framkvæmdanefnd Vinnu- veitendasambandsins hefur að sjálfsögðu haft samráð við hin- ar ýmsu deildir þess hér í bæ og úti á landi með hliðsjón af væntanlegum samningaumleit- unum. Dregið w hraðfrystingu grænmetis. Nokkuð hefur verið gert að því hér — þó eigi mikið sein- ustu 3 árin — að hraðfrysta grænmeti, með góðum árangri. Verður vafalaust talsvert gert að hraðfrystingu á þeim tegundum, ^em bezt eru til þess fallnar, þegar nægar birgðir eru fyrir hendi. Orsök þess, að ekki var hrað- fryst nema lítið eitt í haust, voru þær, að uppskera varð með minna móti vegna kuld- anna og þurrkanna í sumar, og nokkurra frosta snemma í haust þótt tíðin hafi verið góð nú að undanförnu. Einnig hefur verið mikil og vaxandi eftirspurn eft- ir káltegundum. Þær tegundir, sem bezt eru fallnar til hraðfrystingar, eru hvítkál, blómkál og gúrkur, og má gera ráð fyrir, að mikið verði gert að því í framtíðinni, að hraðfrysta þessar tegundir. krónum stolið í nótt. Brezki nýlendumálaráðherrann Sir Oliver Lyttleton kom ný- lega til Kenya í Afríku. Sést hann á þessari mynd með Njiri, höfðingja af Kikuyu þjóðflokki. Los Angeles—Kaupmanna- höfn um norðurskautslönd. Einn íslendingur með í reynslu- flugi SAS. Flugvél frá skandinaviska flugfélaginu — SAS — er nú á leið frá Thurle á Grænlandi til Khafnar. Er flugvélin í nokkurskonar reynsluflugi, því að fyrirhugað er áætlunarflug milli Los Angeles' og Kaupmannahafnar um Edmonton í Kanada og Thule, og er flugvélin á þeirri leið. Vélin kom til Thule kl. 7,32 ísl. tími í morgun og var ófarin þaðan kl. 10, er Vísir frétti síð- ast. í för þessari er einn íslend- ingur, sem flaug í boði SAS yfir Norðurpólslönd í nótt. Þessi íslendur er Agnar Kofoed Hansen flugvallastjóri ríkisins, en hann fór vestur um haf fyrir nokkuru á fund Al- þjóðaflugmálastofnunarinnar sem haldinn var í Montreal. Flugvélin er væntanleg til Khafnar um sexleytið í kvöld. Talið er að SAS efni til far- þegaflugs einu sinni í viku eft- irleiðis yfir Norðurpólslöndin. Ekki er talið að þessar ferðir hafi nein áhrif á komu erlendra flugvéla hérlendis a. m. k. ekki fvrst um sinn. Löndun lokið úr Jóni forseta; andvirðið varð alls 11.360 stpd. Löndunin á því, sem eftir var af afla b.v. Jóns forseta, gekk ágætlega, að því er Ólafur Jónsson forstj. Alliance, sagði blaðinu í morgun. Aflinn nam samtals 4084 kittum og seldist fyrir 11.360 stpd. i Brezkir togaraeigendur boð- uðu í gær gagnráðstaf anir vegna löndunarinnar úr Jóni forseta og komu þær ekki með öllu ó- vænt. Boðuðu togaraeigendur til fundar og tilkynntu að hón- um ióknum, að togararnir yrðu ekki sendir á veiðar, þar sem landað hefði verið úr hinum ís- lenzka togara. Togaramir munu hætta veiðum jafnóðum og þeir koma inn, ef ekkert gerist, sem leiðir til að togara- eígendur breyti .afstöðu ‘sinni. Um horfurnar nú verður að svo stöddu ekkert sagt. — Þess má geta, að milli íslands og Bretlands er í gildi samningui um landanir á ísfiski í Bret- landi. Löndunarsamningur þessi mun hafa verið fram- lengdur 1950 óákveðinn tíma og er enn i gildi. Harðbakur selur ísfiskafla í Þýzkalandi á laugardag eins og ákveðið hafði verið. Ingóífur Arnarson leggur af stað héðan 'í dag með ísfiskafla. Brotizt inn í Síld & Fisk. Féð var geyiiít s eBdtraustuim skáp. I nótt tókst innbrotsþjóf hér í bænum að brjóta upp pen- ingaskáp í verzlunarhúsi einu og hafa á brott með sér sem næst 50 þúsund krónum í pen^- ingum. Laust eftir klukkan 2 í nótt tilkynnti Þorvaldur Guðmunds- son forstjóri lögregluvarðstof- unni að innbrot hefði verið framið í verzlunarhúsnæði fyr- irtækisins „Síld og fiskur“ í Bergstaðastræti 37 hér í bæn- um. Hafði innbrotsþjófurinn farið inn um glugga á bakhlið húss- ins. Síðan réðst hann á hurð- ina inn á skrifstofuna og braut hana upp. Inni á skrifstofunni var stór, eldtraustur peningaskápur og í honum geymd mikil verðmæti, þar á meðal um 50 þúsund kr. í peningum. Á þennan skáp réðst þjófurinn og tókst að brjóta hann upp og síðan að hafa á brott með sér þá pen- inga, sem í skápnum voru. — Rannsóknarlögreglan var þeg- ar kvödd á staðinn og er málið nú í rannsókn. Myrti konuna með sprengju, og stórslasaðíst sjálfur. Osló (AP). — Norskur mað- ur, var ekki sem ánægðastur með húsfreyju sína, og þar. eð hann var sérfræðingur í sprengingum ákvað hann að sprengja hana í loft upp. Hann setti sprengiefni undir rúmið hennar og þegar spreng- ingin reið af tættist konan ger- samlega sundur. Manninum hafði láðst að forða sér í tæka tíð og særðist hann til ólífs m. a. rifnaði af honum annar hand- legguririn. Enn rætt um Súdan. Kairo (AP). —- Súdanmálin verða enn rædd i Kario í dag. Þeir Sir Ralph Stevenson sendiherra Breta og Naguib munu nú um þau fjalla, en í gær ræddi fulltrúi Súdanstjórn- ar við Naguib,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.