Vísir - 04.02.1953, Page 8
LÆKN&B OG LYFJABCÐIR
6
Vsnti yður lækni kL 18—8, þá hringið í
Læknavarðstofuna, simi 5030.
VörSur er í Lyfjabúðinni Iðunn, sími 7911.
___
■ R
■*
Miðvikudaginn 4. febrúar 1953
LJÓSATlMI
bifreiða er frá 16,25 til 8,55.
Flóð er næst í Reykjavík kl. 20,40.
Gunnar Ormslev kjörinn
„bezti jazzleikari 1952“.
Fljót ferð til
Akureyrar.
Myndarlegir hljómieikar Jazzklúbbs
ístands s Austurbæjarbíó í gærkveldi.
Jazzvinir f jölmenntu á mynd-
arlega hljómleika, sem Jazz-
Idúbbur íslands gekkst fyrir í
Austurbæjarbíó í gærkveldi.
Mun það hafa valdið nokkru
um aðsóknina, að greiða átti
atkvæði um bezta jazzleikara,
islenzkan, 1952. Þátttaka í at-
kvæðagreiðslunni var geysimik
il, eða um 90% af viðstöddum.
Xauk henni svo, að Gunnar
Ormslev, sem leikur á tenór-
saxófón, sigraði, fékk 185 atkv.
Annar varð Björn R. Einarsson,
110 atkv., en þriðji Árni Elfar,
35 atkv. Geta má þess, að at-
kvæði féllu á alls 29 menn aðra.
Jón Múli kynnti jazzfólkið,
og tókst vel upp. Björn R. Ein-
arsson og hljómsveit hans, 13
manns, riðu á vaðið, og var
þeim vel fagnað. Þá lék Dixie-
'landhljómsveit Þórarins Óskars
sonar, og þótti þar margt vel
gert. Kristján Kristjánsson og
hljómsveit eiga einnig marga
aðdáendur, að maður tali ekki
-um kvartett Gunnars Ormslevs.
Söngur Hauks Morthens, sem
■auglýstur hafði verið, féll niður,
en Björn R. Einarsson söng þrjú
lög, og gerði það laglega. Þá
Þrír atvinnulausir
í Hafnarfirði.
Atvinnuleysisskráning fói
íram í Hafnarfirði 2. og 3. þ. m.
Aðeins þrír menn létu skrá
sig. Einn þeirra er 77 ára, ann-
ar 68, sá þriðji 30 ára.
20 bátar og 7 togarar leggja
upp afla sinn þar á vertíðinni.
heyrðist ekki til hljómsveitar
Eyþórs Þorlákssonar, eins og
tilkynnt hafði verið, en að lok-
um lék hljómsveit Björns R.
18 inflúenzu-
tilfelli.
Borgarlæknir hafði árdegis í
fengið tilkynningar frá lækn-
um um 18 inflúenzutilfelli og
hefur þeim því fjölgað um að-
eins 3 frá í gær.
Veikin breiðist því mjög hægt
út og er mjög væg. — Borgar-
læknir hefur gert ráðstafanir
til þess, að fá frá læknum til-
kynningar jafnharðan um öii
ný inflúenzutilfelli, og má full-
yrða að jafnan verði fyrir hendi
fullar upplýsingar um út-
breiðslu veikinnar. Tilefni er
ekki talið til víðtækari varúð-
arráðstafana eins og sakir
standa.
Vilja breyta kosninga-
lögum Breta.
Nefnd manna úr Frjálslynda
ílokknum gekk í gær á fund
Churchills forsætisráðherra.
Nefndin óskaði breytinga á
kosningalögunum. Leggja frjáls
lyndir til, að hlutfallskosninga-
fyrirkomulagið verði tekið upp.
Churchill kvað ekki unnt að
taka málið fyxir á þessu þing-
tímabili.
ÍMar&t er skritio,
Hafin útgáfa timarits á
latínu í Rómaborg.
„Lingua latina non lingua mortua est."
Menn halda kannske, að ekk-
ert rit komi út á latínu framar
í heiminum — nema ef vera
.skyldu kennslubækur.
En þetta er misskilningur,
því að í Róm er hafin útgáfa
ársfjórðungstímarits, sem
prentað er að öllu leyti á latínu,
og tilgangurinn er að gera
mönnum Ijóst, að „lingua latina
non lingua mortua est“ — það
er að latína sé ekki dauð tunga.
Tímarit þetta heitir Latini-
tas, og er prentað í prentsmiðju
Vatikansins, en ritstjóri er
Bacci kardínáli, einhver fróð-
asti latínumaður á vorum dög-
um. Er hér aðeins um átta
síðna rit að ræða, en í ávarps-
orðum sínum — „De Horum
■Commentariis Ratipne et
Propösitio“, í lauslegri þýðingu
„tilgangur tímarits þessa“
harmar ritstjórinn, hve fáir
þeir sé nú orðið, er kunni að
skrifa á latínu, svo og þeir, sem
geti lesið þá tungu sér að
gagni.
Ritstjórinn segir og, að
tímaritið eigi. að vera vett-
vangur til þess að sanna, að
latína sé fögur tunga og rök-
föst, lifandi og virðuleg, en
eklci sálarlaus, blóðlaus og
dauð. Hún geti fært þjóðirnar
nær hver annari, og það sé
kirkjunni að þakka, að latínan
sé lifandi.
Grein er í ritinu, þar sem
bent er á, hvernig láta megi í
Ijós nútíma hugtök á hinni
fornu tungu, og eru gefin dæmi.
Til dæmis heitir verkalýðs-
hreyfing „operariis consoci-
andis ratio“. Rugbyleikur
nefnist' „oblongi follisIubus“.
Tveir áætlunarbílar Norður-
leiða h.f. fóru héðah í gærmorg-
un áleiðis til Akureyrar og voru
komnir þangað kl. 10 í gær-
lcveldi.
Má segja að það sé óvenju
skjót ferð að vetrarlagi, því það
er aðeins 2 klst. lengur en bíl-
arnir eru milli Rvíkur og Ak-
ureyrar á sumrin.
Seinfarnast var á leiðinni frá
Reykjavík og upp að Forna-
hvammi, en úr því mátti heita
„skotfæri“ alla leið, ekki síður
en á sumardegi. Og sem dæmi
um færðina má geta þess að bíl-
arnir voru aðeins 2 klst. frá
Varmahlíð til Akureyrar, en
það hefur löngum verið ei’fiðasti
og torfærasti kafli allrar leið-
arinnar, enda er þar yfir hina
illræmdu Öxnadalsheiði að
fara. En á sumrin eru bílar ekki
fljótari þessa leið heldur en
þeir voru í gær.
Áætlunarferðum verður hald
ið uppi tvisvar í viku fyrst um
sinn, á þriðjudögum og 'föstu-
dögum héðan.
í gær fór póstbáturinn
Drangur frá Akureyri til Sauð-
árkróks fyrstu ferð sína eftir
verkfallið. Heldur hann uppi
ferðum til Siglufjárðar og Ól-
afsfjarðar, en þeir staðír hafa
að undanförnu verið mjög af-
skekktir öllum samgöngum,
vegna verkfallsins.
Heiðavegir
opnaðir.
Hellisheiði opnaðist til um-
ferðar í fyrradag á hádegi.
Holtavörðuheiði var ófær
bifreiðum um helgina og voru
farþegar að norðan fluttir yfir
heiðina í snjóbíl í fyrradag
Hellisheiði lokaðist að kvöldi
þess 27. f. m. Þegar brá til úr-
komunnar sjatnaði snjór mjög,
svo að greiðlega gekk að opna
hana aftur. Hvalfjarðarleiðin,
sem var orðin erfið á köflum,
er nú sæmileg yfirfei'ðar.
Snjóbíllinn, sém notaður var
á Holtavörðuheiði í fyrradag,
er eldri snjóbíll Guðm. Jónas-
sonar, er seldi hann Páli í
Fornahvammi.
Bernbard seiýr heí'sii.
Bernhard prins, eiginmaður
Júlíönu Hollandsdrottningar,
kom heim í gær.
Hann var í Bandaríkjunum,
en kom heim vegna hinna vá-
veiflegu atburða, sem gerst
hafa. Júlíana drottning: hefur
flogið yfir flóðasvæðið.
Rauði króssinn í 11 löridum
hafa boðið Bretum fjárhagsao-
stoð sem nemur 90 þúsundum
stpd.
Aþena (AP. — í aukakosn-
ingum í Saloniki, sem ram
fóru nýlega, var kona í rsta
sinni í kjöri og sigraði. nan
heitir Helene Skouras ,og ' 'aut
hún 47,232 atkyæ'ði af 3 496
Enginn landsleikur hér
heima í sumar.
Heynt aö fá úítíiisksaisii-
spfjjrnuflokka. í staöinwi.
Fullvíst er nú, að norska
landsliðið kemur eltki hingað í
sumar til landskeppni í knatt-
spyrnu.
Er vafasamt, að nokkurt er-
lent landslið komi hingað í sum
ar, að því er Sigurjón Jónsson,
formaður Knattspyrnusam-
bands íslands, hefur tjáð Vísi.
Eins og menn rekur minni til,
var frá því greint fyrir .jólin,
að íslendingar myndi þreyta
landskeppni í knattspyrnu í
sumar við Dani og Norðiiienn í
Höfn og Osló, en auk þess mætti
búast við keppni við Norðmenn
hér heima. Nú hafa Norðmenn
nýlega svarað heimboði okkar,
en gátu því miður ekki tekið
því, þar eð þeirra keppnidög-
um næsta sumar hefur þegar
verið ráðstafað. Leikirnir er-
lendis fara hins vega rfram
eins og ráðgert hafði verið.
Þegar sýnt þótti, að ekki yrði
af þessari keppni, tók Knatt-
Kjartan Konráðs-
son látinn
/ spyrnusambandið það ráð að
senda skeyti til knattspyrnu-
í nótt lézt í Landakotsspítala
Kjartan Konráðsson, símamað-
ur, liðlega 65 ára að aldri.
Kjartan var kunnur Reyk-
víkingur, enda alið allan aldur
sinn hér í bænum. Hann var
fæddur 16. sept. 1887, og varð
því liðlega 65 ára, er hann lézt.
Kjartan var starfsmaður við
Landssímann um fjölda ára
skeið. Hann var góðkunningi
allra eldri Reykvíkinga, vinsæll
maður og vel látinn, og tryggur
sj álf stæðismaður.
Mayer fer til
London.
París (AP). — René Mayer,
forsætisráðherra Frakklands, er
væntanlegur til London í næstu
viku, í boði brezku stjórnarinn-
ar.
Ráðherrar í stjórn hans, sem
fara með utanríkis- og fjárhags
mál munu fara þangað með
honum, svo og sérfræðingar í
þeim málum.
sambanda Frakklands, Þýzka-
lands, Belgíu, Hollands og Aust
urríkis með fyrirspurnum um,
hvort þau gætu keppt við okk-
ur hér heima. Svör hafa nú bor-
izt fyrir hálfum mánuði eða svo
frá Hollandi, Belgíu og Frakk-
landi .og urðu þau neikvæð,
Tími til stefnu er of naumur.
Þykir Knattspyrnusamband-
inu þetta miður, eins og von-
legt er, en ekki er við neinn að
sakast úr því, sem komið er.
Drög að slíkum landsleikjum
verður að leggja a. m. k. ári
fyrir keppnina, ef af á að verða.
Nú mun K.S.Í. helzt ætla að
grípa til þess ráðs að fá hingað
úrvalsknattspyrnuflokka frá
einhverjum nágrannalöndum til
kappleikja hér, og yrðu þeir þá
ekki beinlínis landsleikir, held-
ur keppni milli úrvalsliða, og
getur slíkt haft mikla þýðingu.
Vonandi tekst K.S.Í. að finna
viðunandi lausn á þessum mál-
um, því að fyrsta flokks leiki
verðum við að sjá hér heima,
bæði vegna knattspyrnumann-
anna sjálfra, en ekki sízt vegna
unnenda þessarar íþróttagrein-
ar.
Bretar ræða Kínamál á morgun.
TeSJa liorSair iiggvænlegar vegna
ákvörðtamar USA.
Einkaskeyti frá AP.
London, í morgun.
Umræða fer fram í neðri mál-
stofu þingsins á morgun um
breytt viðhorf í Kínamálunum,
vegna ákvörðunar Bandaríkja-
stjórnar um að lcalla 7. Banda-
ríkjaflotann frá Formósu.
Stjórnin féllst á umræðu um
þessi mál, þar sem Eden átti ó-
hægt um vik að svara ýmsum
fyrirspurnum er viðræður
stóðu fyrir dyrum í gær við
Dulles og Stassen. Bað Eden
þingm. að bíða átekta, unz við-
ræðurnar væru um garð gengn-
ar. Við umræðurnar í gær kom
fram mikill uggur þingmanna
út af horfunum. Eden sagði, að
stjórnin hefði varað Bandaríkja
stjórn við að taka þetta skref,
því að það gæti haft óheppileg-
ar afleiðingar, og hernaðarleg-
ur ávinningur ekki .vega þar
upp á móti. Skoðun ‘stjórnar-
innar um þetta væri óbreytt.
Eins og kunnugt er hefur
brezka ríkisstjórnin viðurkennt
Pekingstjórnina, en það hetur
Bandaríkjastjórn ekki gert. ■—-
Þrátt fyrir viðurkenninguna
hafa kínverskir kommúnistar
gert Bretum eins erfitt fyrir við
skiptalega og þeir hafa getað,
og brezkir menn þar verið of-
sóttir.
Formósumenn
ánægðir.
Af hálfu Þjóðernissinnastjórn
arinnar á Formosu hefur verið
lýst ánægju með ákvörðun
Bandaríkjastjórnar, en ekki
munu Þjóðernissinnar hyggja
til innrásar á meginlandið um
sinn. Segjast þeir ekki æskja
aðstoðar landherja annarra
þjóða við framhald slíkra á-
forma. . ■- V.