Vísir - 13.05.1953, Blaðsíða 5
®Ií<H'ikuöíiginn 13,, inai 1933
Ofíuverzhin íslands 25 ára nýiega:
rmem
Éahn impi’ 50 þús. testir.
Sjö þelrra taka hver helmíngi meira en
allir geymarnir á Klöpp samanlagt
Xii korna hingað öfall sfærri «»iín-
vkip. en |iað frrxla. srm kom lii
félagsins.
í tilefni aldarfjórðungs af-
smælis Olíuverzlunar íslands h.f.
íyrir nokkru bauð stjórn fé-
lagsins blaðamönnum s. 1.
manudag að' skoða olíustöðina
í Laugarnesi, sem er hið mesta
mannvirki.
Árið 1939 fór þáverandi for-
stjóri félagsins, Héðinn Valdi-
marsson, að svipast um eftir
hentugum stað í nágrenni bæj-
arins fyrir olíustöð með öllum
nútíma útbunaði og geýmum
fyrir 40—50 þúsund smálestir,
þar sem losa mætti 10—20 þús.
smáiesta ,skip. Var þá augljóst
orðið, að olíustöð félagsins á
Klöpp, sem verið hafði nokkurn
veginn nægjanleg, frá því er
hún tók til starfa í júnílok
1928, mundi ekki nægja til
frambúðar. Laugarnes þótti
hentugasti staðurinn og var
Finnbogi R. Þorvaldsson verk-
fræðingur fenginn til þess að
gera mælingar, teikningar og
nauðsynlegar áætlanir. í maí(
1941 voru fest kaup á rúmlega^
fjögurra hektara landi á Laug- (
arnesi, og að styrjöldinni lok-.
ið hafizt handa um fram-
kvæmdir. Þrátt fyrir mikla'
erfiðleika tókst að gera stöð- ^
ina hæfa til birgðageymslu ár- j
ið 1950, en til fullrar notkunar
var hún tekin 1. marz s. 1.
Salan hefir
margfaldazt.
Geymar eru 10, og taka sjö
þéir stærstu helmingi meira
magn hver, en allir geymarnir á
Klöpp til samans, en skipin,
sem flytja olíur og benzín til
Laugarness nú, taka tífalt
meiia en skipið, sem fvrst kom
með olíufarm til verzlunarinn-
ar fyrir 25 árum. Má og' geta \
þess, að benzínsala félagsins
hefur fimmfaldast seinustu 15
árin og hráolíusalan rúmlega
sexfaldast, allt miðað við mag'n,
en brennsluolíusalan tvöfald-
ast á undangengnum 2 árum
og fer ört vaxandi.
í Laugarnesi er rúrn fýrir 49 (
þús. ten.m. (yatnstonn) af
olíu og benzíni. Þegar olíuskip-
in koma, leggjast þau úti fyrir.
stöðinni, en olíunni er dælt í
geymana eftir neðansjávar-
leiðslu og eru þær 4 eða ein
fyrir hverja oliutegund.
Brennsluolíuleiðslan er 8 þml.
að þvermáli og' magnið senr
dælt er gegnum hana 350 smál.
á klst. Hinar eru 6 þml. leiðslur
og' er um 250 smálestum dælt
í gegnum þær á klst. Frá Laug-
arnesi að Klöþp er 4 þml.
leiðsla um 3.6 km. að lengd,
og eftir henni er olíunni dælt
milli stöðvanna, 37 lestum af
sólarolíu eða 23 lestum af
brennsluolíu á k-lst. Fr-4 Klöpp
að Ingólfsgarði og Faxagarði er
þreföld leiðsla (2X6” ogl)<3”)
og er olían afgreidd gegnum
hana í skip og báta. Til að dæla
brennsluolíunni (fuel oil) þarf
að hita hana upp í 100—130 gr.
F. og er það gert með gufu í
Laugarnesi, en á Klöpp er olí-
unni haldið heitri með heitu
vatni frá hitaveitunni.
Fyrsti tank-
farmurinn
sem .verzlunin fékk 'frá út-
löndum nam 1600 smálestum
(júní ’28) og var dælt í geym-
ana á Klöpp, Þeir rúmuðu
ekki nema 2.500 smálestir, en
árlegur innflutningur næstu
árin á undan nam tvöföldu því
magni, en stöðin var byggð á
hentugum stað til afgreiðslu
og auðvelt að leggja leiðslur úr
geymunum til hafnarinnar og
alls eru þrjár slíkar leiðslur.
Innflutningur olíuafurða er
svo nátengdur þeina stórkost-
legu framförum, sem orðið
hafa hér á flestum sviðum, að
hann er í rauninni ein öflugasta
stoð nútíma menningarlífs í
landinu. Fyrir fáum áratugum
var svo að segja eingöngu flutt
inn Ijósaolía á tunnum, og
muna vafalaust eldri Reykvík-
ingar, er olíutunnunum var ek-
ið á hestvögnum um bæinn. Nú
streymir olían úr nútímastöð
um nærri 4 kílómetra langa
leiðslu til bæjarins, og vekur
ekki meiri athygli nútíma-
mannsins en tunnustaflarnir á
hestvögnunum í gamla daga.
Aðdragandinn að stofnun
olíuverzlunarinnar.
Danskt félag — D. D. P. A.
•— mátti heita eini olíuinnflytj-
andinn til 1914, en varð þá að
hætta vegna breyttrar löggjaf-
ar, og reis þá upp Iiið íslenzka
steinolíufélag, sem starfaði við
sömu aðstöðu, þar til Lands-
vei’zlUnin fékk éinkasölu á olíu
frá ársbyrjun 1923, og hélt
hénni til áisloka 1927, er hún
var lögð niður. Allan þenna
tíma var eingöngu um innflutn-
ing á tunnum að ræða.
Héðinn Valdimarsson, sem
verið hafði forstjóri Landsverzl
unar, hófst þá handa ásamt þá-
verandi fjármálaráðherra
Magnúsi Kristjánssyni, um
stofnun oliufélags, sem hlaut
nafnið Olíuverzlun íslands h.f.
Tók það til starfa 2. jan. 1928.
Straumhvörf.
Þá verða straumhvörf í
olíusölunni, því að tvö ný fé-
lög taka hana í sínar hendur
með stofnun olíugeyma og hag-
kværa olíustöðva, auk þess
sem H.I.S. hélt áfram að starfa.
— Olíuverzlun íslands h.f. var
stofnuð 3. okt. 1927 og var það
alíslenzkt félag með einvörð-
ungu íslenzku hlutafé. Stofn-
endur voru — auk H. V. og M.
Kr. — Hjalti Jónsson frltvst.,
Aðalsteinn Kristinsson frkvstj.,
Rík.harður Torfason bankabók-
' ari, Guðm. Kr. Guðmundsson
bókhaldari og Sigurður Jónas-
son lögfr., en fyrstu stjórn
skipuðu þeir H. V., M. Kr., A.
Kr„ Hj. J. og G. Kr. G. Héðinn
Valdimarsson var kjörinn
stjórnarformaður og fram-
kvæmdarstjóri og gegndi þeim
störfum, þar til hann féll frá
12. sept. 1948. Jón Ólafsson,
frkvstj. Alliance, var kjörinn í
stjórn eftir andlát Magnúsar
Kristjánssonar 1928. Sátu
þeir Aðalsteinn Kristinsson,
Jón Ólafsson og Hjalti Jónsson
allir í stjórn, meðan þeim entist
aldur.
Núverandi stjórn skipa:
Óláfur H. Jónsson frkvstj.
Alliance, sem er stjórnarfor-
maður, en meðstjórnendur eru
frú Guðrún Pálsdóttir, Ingvar
Vilhjálmsson útgm., Gunnar
Guðjónsson skipamiðlari og
Kristján Kristjánsson frkvstj,
Akureyri. — Framkvæmda-
stjóri félagsins er Hreinn Páls-
s'on, er tók við því starfi eftir
fráfall Héðins Valdimarssonar.
IVýhomiö
’ « rufht-rfi
fléstra teg. amerískra bíla:
Viftureimar
K veik j uhamr ar
Kveikjulok
Kveikjuplatínur
Mótstöður fyrix Ford-
háspennukefii.
Kveikjuþéttar í fl. teg.
bíla.
Dynamóþéttar í flestar
tegundir bíla.
Truflanadeyfar á kerún.
Öryggi, ýfnsar stærðir.
Bílaleiðslur, plast.ic.
Geymasambönd, ma- gac
gerðir,
Reimskífur á fi. teg
Dynamóa o. m. n.
Góðar vörur og ódýrar.
Bílaraftækjaverzlun
Halldórs Ólafssonar
Rauðarárstíg 20. sími 4775
Islands
SameiginlegUr fUndur fé-
lagsins ög kvennadeildarinn-
ar verður haldinn í SjáM-
stæðishúsinu á fimmtudag
(uppstigningardag) kl. 8,30
e.h.
Fundarefni:
Ávarp: Frú Soffía Haralds-
dóttir.
Forseti félagsins flytur er-
indi (framhald erindisius
um hinar merkilegu rann-
sóknir enska prestsins Dr.
Westwood).
Einsöngur.
Sýnd kvikmynd frá Finn-
landi.
Félagsmenn, sem þess óska,
geta fengið kaffi eftir fund.
Stjórnirnar.
BEZT AÐ AUGLYSAI VISl
„Intemational" kæliskáparnir
Eru komnir — Tvær stærðir.
Stærð 8,2 kúbikfet á ltr. 7184.00
Stærð 10,3 kúbikfet á kr. 8134.00
Berið saman útlit, verð og stærð „International“ kæli-
skápanna við aðra kæliskápa, sem á boðstólum eru.
„International“ kæliskáparnir rjúfa strauminn sjálf-
krafa ef spennufall verður. -— 5 ára ábyrgð er tekin á
kælikerfinu.
Kæliskáparnir íást einnig á afborgunarskiímálum.
1“ ©s
BANKASTRÆTI 10.
SIMI 2852.
Á þossari mynd niá gréihilcga sjá jyfir IiíS uýja laridsvæði Olíufélagsins. Ifar ciju aJJsi.lO geymar, sejr
' ' ■ lestir af olium og eldsneyti.
rúma um þaé bil 50’ þus.'
Pappirspokagerðin h.f.
Vitastlg 3. 'Allsk. pœppírspokar'.
I