Vísir - 13.06.1953, Page 2
VÍSIR
Laugardaginn 13. júní 1953.
Minnisblað
almennings.
Laugardagur,
13. júní — 164. dagur ársins.
Flóð
verður næst í Reykjavik kl.
19.50. '
K. F. U. M.
Biblíulestur: Post. 8, 5—25.
'Verkinu haldið áfram.
Helgidagslæknir
að þessu sinni er Hulda Sveins-
:son, Nýlendugötu 22. Sími 5336.
Næturvörður
«ar í Reykjavíkur Apóteki þessa
•viku. Sími 1760.
Útvarpið í dag:
8.00—9.00 Morgunútvarp. —
12.10 Hádegisútvarp. 12.50—
13.35 Óskalög sjúklinga (Ingi-
ibjörg Þorbergs). 15.30 Mið-
degisútvarp. 19.30 Tónleikar
(plötur). 20.00 Fréttir. 20.30
’Tónleikar (plötur). 20.45 Leik-
3-it: „Örþrifaráð“ eftir Gabriel
‘Timmory. — Leikstjóri: Þor-
steinn Ö. Stephensen. — 21.20
Vónleikar (plötur). 21.45 Upp-
lestur: Grétar Fells rithöfnudur
les frumort Ijóð. 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. 22.10 Danslög
<plötur) til kl. 24.00.
Gengisskráning.
1 bandarískur dollar ..
1 kanadiskúr dollar ....
1 enskt pund...........
200 danskar kr.........
200 norskar kr.........
200 sænskar kr.........
200 finnsk mörk........
100 belg. frankar ....
1000 farnskir frankar ..
100 svissn. frankar ....
100 gyllini............
1000 lírur.............
Kr.
16.32
16.41
45.70
236.30
228.50
315.50
7.09
32.67
46.63
373.70
429.90
26.12
Söfnin:
Náttúrugripasafnið er opið
sunnudaga kl. 13.30—15.00 og
& þriðjudögum og fimmtudögum
Mö 11.00—15.00.
Landsbókasafnið er opið kl.
10—12, 13.00—19.00 og 20.00—
22.00 alla virka daga nema
ILaugardaga kl. 10—12 og 13.00
—18.00.
MnAAqáta m 1033
Lárétt: 1 búa við Eystrasalt,
S gröm, 7 orðfl., 8 fangamark, 9
átt, 11 kona, 13 lægð, 15 spíri,
16 orsökuðu, 18 á nótum, 19
svalla.
Lóðrétt: 1 sverð, 2 á túnum, 3
áiskur, 4 frumefni, 6 smábýlinu,
S heimili Hjálmars, 10 gælu-
aiafn, 12 lík, 14 þrír eíns, 17 ó-
samstæðir.
Lausn á krossgátu nr. 1932.
Lárétt: 1 Hryssa, 5 kór, 7 il,
S at, 9 tá, 11 illt, 13 urg, 15 Ali,
36 gaum, 18 sl, 19 armir.
j Lóðrétt: 1 Höstuga, ’2 yki,* 3
sóli, 4 SR, 6 Attila, 8 alls, 10
járar, 12 la, 14 gum, 17 mi.
Árshátíð
Nemendasambands Mennta-
skólans verður að Hótel Borg
n. k. þriðjudag, og hefst méð
borðhaldi kl. 18.30. Aðgöngu-
miðar verða seldir á sama stað
í dag kl. 14—17. Þess er óskað
að pantaðir miðar verði sóttir
sem fyrst. Menn úr „Jubil“-ár-
göngum verða að sjá um að
sækja miða sína sjálfir.
Kynnisferð
fer Heimdallur og S.U.S. í
Árnessýslu nú um helgina.
Verður farið um Þingvöll að
Soginu og virkjunin skoðuð og
þá verður setinn fundur í
Hveragerði. Lagt verður af stað
frá Sjálfstæðishúsinu kl. 1.30 á
morgun. Þátttakendur eru
beðnir að hafa samband við
skrifstofu flokksins.
Norræna laganemamótið
hefst í Reykjavík í dag og stend-
ur til 19. þ. m. Eru komnir
hingað til lands 43 þátttakend-
ur frá öllum Norðurlöndunum.
Fyrirlestrar lögfræðilegs efnis
verða fluttir í Háskólanum og
mörg önnur dagskráratriði fara
fram á þessu móti.
Messúr á morgun:
Háteigsprestakall: Messa í
Sjómannaskólanum kl. 2. Síra
Jón Þorvarðsson.
Laugarneskirkja: Messa kl.
11 f. h. Síra Garðar Svavarsson.
Nesprestakall: Messa í Mýr-
arhúsaskóla kl. 2.30. Síra Jón
Thorarensen.
Edwin C. Bolt
flytur erindi í Guðspekifélags-
húsinu við Ingólfsstræti annað
kvöld — sunnudag — kl. 8,30.
— Nefnir hann erindi þetta:
„Maðurinn endurskapar sjálfan
sig“. Menn geta haft full not
erindanna, enda þótt þeir
kunni ékki tungu flutnings-
manns, ensku, þar sem þau eru
þýdd jafnharðan.
Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins.
Dregið hefur verið í happ-
drætti Sjálfstæðisflokksins og
komu þeSsi númer upp: 59951
og 8659, far fyrir hjón til Kaup-
mannahafnar og til baka með
skipi frá E. í. 33798, far fyrir
hjón til New York á skipi frá
E. í. og til baka. 20790 — 33581
— 97112 — 27111 — 36964 og
95000, far fyrir einstakling til
Khafnar og til baka. 55690 —
53850, far fyrir hjón rneð flug-
vél til London eða Khafnar og
til baka aftur. 75137 — 1633 —
15721 — 16765 og 91299, far
fyrir einstaklinga með flugvél
til Khafnar og til baka. 31815,
far fyrir einstakling til Khafnar
eða London og til baka aftur.
18784, far fyrir hjón með Kötlu
til Miðjarðarhafsins og áftur til
balca. 18296 — 97022, far fyrir
einstaklinga með Vatnajökli til
New York eða Miðjarðarhafs-
landanna og' aftur til baka.
58066, sjálfvirk Bendiz unp-
þvottavél. 14602. Kelvinator
kæliskápur. 44198, sjálfvirk
James uppþvottavél. 53898,
Rafha eldavél. 58496 og 33285,
General Electric hrærivél.
32917, þvottavélin Mjöll. 80612
— 11809, Cheetro hrærivél.
87007 — 90428 og 1142, bónvél.
34789 — 88559 oe "732, Ryk-
suga. 23549 — 38653 — 91923
— 60889 — 1952 — 54384 —
.61937 —. 77694 r—,,710.67..og
94015, hraðsuðuketilí. 74339 —
8772 — 89774 — 13562 og 67247,
hraðsuðupottur. Vinniiiganna
má vitja í skrifstofu Sjálfstæð-
isflokksins.
Listmunauppboðið í dag.
í dag kl. 1,30 verður haldið
málverka- og listmunauppboð
í Listamannaskálanum. Er þar
margt kunnra málverka eftir
innlenda og erlenda málara,
bækur, silfurmunir, útskorinn
stóll og gamalt, mjög fagurt
saumaborð.
Hvar eru skipin?
Eimskip: Brúarfoss fór frá
Hull 11. þ. m. til Rotterdam.
Dettifoss fór frá Ólafsvík í gær-
kvöld til Reykjavíkur. Goða-
foss fer væntanlega frá Ham-
borg í dag til Hull og Rvíkur.
Gullfoss fer frá Kaupmanna-
höfn á hádegi í dag til Leith og
Reykjavíkur. Lagarfoss fór frá
Vestmannaeyj um í gærmorgun
til Akraness og Keflavíkur, fer
frá Reykjavík í kvöld til New
York. Reykjafoss fór frá Rvík
10. þ. m. vestur og norður um
land og til Finnlands. Selfoss
fór frá Halden 11. þ. m. til
Gautaborgar. Tröllafoss kom til
Reykjavíkur i gær. Straumey
er í Reykjavík.
Skip SÍS: Hvassafell fór frá
Kotka áleiðis til Reykjavíkur
í gær. Arnarfell er í Reykjavík.
Jökulfell væntanlegt til New
York 15. júní. Dísarfell fer frá
Hull í kvöld áleiðis til Þorláks-
hafnar.
H.f. Jöklar: Vatnajökull er
væntanlegur til Keflavíkur í
kvöld. Drangajökull var vænt-
anlegur til New York í gær frá
Reykjavík.
Annar vinnuskálinn af 4 í
undirbúningi ai Reykjahindi.
Þjóðverjar smíða afkastamikla
plasfvinnsluvél fvrir SÍBS.
Enn rísa miklar byggingar af
grunni að Reykjalundi, því að
nú er hafin bygging annars
vinnuskálans af fjórum, sem
SÍBS hefur fyrirhugað þar.
Vísir átti stutt tal við Þórð
Benediktsson hjá SÍBS, sem
skýrði blaðinu frá því, að fyrir
nokkru hefði fengizt leyfi til að
hefja smíði annars vinnuskál-
ans af fjórum, og er verkið þeg-
ar hafið. Er lokið við að grafa
grunninn, og aðrar framkvæmd
ir byrjaðar. Verður þetta mynd-
arleg bygging, 24x24 metrar að
flatarmáli, vönduð mjög, eins
og aðrar byggingar, sém SÍBS
hefur látið reisa.
Langt er komið smíði fyrsta
skálans, og verður henni vænt-
anlega lokið á þessu sumri. í
þeirri byggingu verður plast-
iðnaður Reykjalundar og tré-
smíði. Annars er plast-iðnaður
Reykjalundar ný iðngrein, sem
menn gera sér miklar vonir um.
Ekki verður unnið að leikfanga
gerð, heldur unnar ýmsar nytja
vörur, ekki sízt þær, er snerta
rafmagnsvinnu, svo sem „fitt-
ings“, einangrun og sitthvað
fleira, sem heppilegt þykir úr
plasti. Geta má þess, að verið
er að; smíða vandaða og afkasta-
mikla vél í Þýzkalandi fyrir
SÍBS, og verður síðan tekið til
ospilltra malanna við þessa nýju
atvinnugrein.
Margháttuð
framleiðsla.
Alkunna er, að Reykjalundur
er nú að verða eitt mesta verk-
ból landsins, og er þar nú þeg-
ar ærið margháttuð framleiðsla.
Einkum eru þar framleidd hús-
gögn fyrir skóla og veitinga-
hús, sem þegar hafa öðlazt mikl
ar vinsældir fyrir traustan og
smekklegan frágang. Þá er
saumaskapur mikill að Reykja-
lundi, og einkum framleitt mik-
ið af vinnuvettlingum ýmissa
tegunda.
Til þessa hafa vinnuskilyrði
ekki verið góð að Reykjalundi,
en með byggingu hinua nýju
skála gerbreytist þetta. Bæði
fá vistmenn heilsusamlegri
vinnustaði, en auk þess má bú-
ast við stórauknum afköstum í
þessari merkilegu verksmiðju
hinna útsjónarsömu SÍBS-
manna.
4 vinna alls-
konor störf — eit
þoö þorf ekki a&
skobo þær neitt.
Niveabætirörþví.
Skrrfstofuloft og
innfvéra gerir húd
yðar fölo og þurra.
Nivea bcetir úrþví.
Slæmt vebur gerir
húb ybor hrjúfo oa stökkcs
NIVEA
bætir úr því
AC 13?
GOSTAF A. SVEINSSON
EGGERT CLAESSEN
hœstaTéttarlögmenn
Templarasundi 5,
(Þórshamar)
AUskonax lögfræðistörf.
Fasteignasala.
Dauðsföllum úr berklum hefir
fækkað um 50% frá 1945.
Framfarir hafa orðið um heim allan.
Þúsundir vtta aO gœfan Jylgts
hringunum fr&
S3GURÞÖR, Hafnarstræö 4
Margar gerðir fgrírliggjandi.
Síðan stríðinu lauk hefur
tekizt að vinna svo mikið á
gegn berklaveikinni í heimin-
um, að dauðsföll af hennar
völdum eru nú helmingi færri
en árið 1945.
Alþjóðlega heilbrigðismála-
stofnunin hefir undanfarið lát-
ið safna gögnum á þessu sviði
starfsemi sinnar, og segir hún,
að framfarirnar sé einhverjar
mestu, sem um getur á sviði
almennrar heilbrigði. Mun hún
gefa út fullkomnar skýrslur
um þetta mjög bráðlega, jafn-
vel í næsta mánuði.
Stofnunin — venjulega
skammstöfuð WHO — segir, að
enginn smitandi sjúkdómur sé
eins útbreiddur og berklaveiki,
og hún hafi alltaf, svo lengi
sem menn vita til, verið einn
þeirra sjúkdóma, sem einna
flesta hefur lagt í gröfina um
heim allan.
WHO mun ekki hafa náð til
nema 15—20% af márinkyninu
með rannsóknum sínum, en þó
þykir unnt að fá nokkra heild-
armynd með því að athugá 400
milljónir manna, sem athugun-
in nær til. Hún gefur til kynna,
að dauðsföllum hafi fækkað
jafnt og þétt árlega, og um 50%
alls að jáfnaði. Méstar hafa
framfarirnar orðið í Svíþjóð,
þar sem mannslátum fsékkaði
um tvo þriðju, en þeim fækkaði
um 60% í Noregi, og voru þessi
lönd fremst að þéssu leyti.
Dauðsföllum kvenna hefir
einkum fækkað, sérstaklega í
Sviss og Ítalíu, þar sem það má
heita úr sögunni, að ungar kon-
ur deyi úr berklum, en var títt
áður.
Jarðarför manasins míns og föSur okkar,
* *
Olafs Sæmnnðssonar,
sjómanns,
fer fram frá Fríkirkjunni mánudagiim 15. þ.m.
kl 1,30 e. k.
Atköfninni í kirkjumu verður útvarpað,
Jónína Hansdóttir og bom.
Jarðarför móSursystur minnar og fóstursyst-
ur okkar
Krisitrúiiar Jónsdóitur
fer fram frá Fossvogskirkju næstkomandi
mánudag þ. 15. fi.m. kL 3 e.h.
Jónas HaraMsson,
Hallgrímur Ö. Jónasson,
Þorgeir Jónasson.