Vísir - 20.08.1953, Blaðsíða 2

Vísir - 20.08.1953, Blaðsíða 2
1 VISIR Fimmtudaginn 20. ágúst 1953 Vitastig 3. AUsk.pappirspo'. LAUGAVEG 10 - SIMI 3367 BEZT AÐ AUGLYSAIVISI Everglaze er komið aítur í mörgum litum Verð kr. 29,00 meterinn. Ásgeir G. Gimnlaugsson & Co. Austurstræti 1 Minnisblað almennings. Fimmtudagur 20. ágúst — 232. dagur ársins. Flóð verður næst í Reykjavík kl. 14.35. KFUK Biblíulestrarefni: 22, 1—16. Páll segir sögu sína. Næturvörður er í íðunnarapóteki. — Sími 7911. Næturlæknir er í slysavarðstofunni, sími 5030. Lögregluvarðstofan hefur síma 1166. Slökkvistöðin hefur síma 1100. Rafmagnstakmörkun verður í Reykjavík á morgun, föstudag, 4. hverfi, kl. 10.45 —12.30. Ljósatími bifreiða og annarra ökutækja er frá 22.25—4.40. Ungbarnavernd Líknar Templarasundi 3 er opin kl. 3.15— 4 á þriðjudögum. — Á fimmtudögum kl. 3,15—4 út ágústmánuð. Kvefuð börn mega aðeins koma á föstudögum kl. 3.15— 4. Hellisgerði í Hafnarfirði er opið kl. 13—18 og kl. 18— 22, þegar veður leyfir. Útvarpið. 20.20 fslenzk tónlist: Lög eft- ir Jórunni Viðar (plötur). 20.40 Upplestur: Ljóð eftir Margréti Jónsdóttur skáldkonu (Þor- steinn Ö. Stephensen leikari). 21.05 Tónleikar (plötur): Pre- lúdíur eftir Debussy (Walter Gieseking leikur á píanó). 21.20 Frá útlöndum (Jón Magnússon fréttastjóri). 21.35 Sinfónískir tónleikar (plötur): a) Fiðlukon sert í e-moll op. 64 eftir Mend- elssohn (Jascha Heifetz og Phil harmoníska hljómsveitin í Lon- don leika; Sir Thomas Beecham stjórnar). 22.00 Fréttir og veð- urfregnir. 22.10 Framhald sin- fónísku tónleikanna: b) Sym- fónía nr. 4 í d-moll op. 100 eftir Schumann (Sinfóníuhljómsveit leikur; Bruno Walter stjórnar). 22.40 Dagskrárlok. BÆJAR- KtcMcfáia m I9&9 Lárétt: 2 Bareflis, 6 reim, 7 vafi, 9 sviptur, 10 sjófugl, 11 af að vera, 12 drykkjuæði, 14 fangamark, 15 stöðugt, 17 raf- tæki. Lóðrétt: 1 Sjódýr, 2 högg, 3 hlýju, 4 tónn, 5 heitbundin, lim, 9 tímabils, 13 kvennafn, 15 vafi, 16 röð. Lausn á krossgátu nr. 1 Lárétt: 2 Skoða; 6 úrs, 7 9 AD, 10 als, 11 skó, 12 þó, 1 af, 15 hol, 17 tróði. Lóðrétt: 1 Úlfaþyt, 2 sú, 3 krá, 4 OS, 5 andófið, 8 sló, 9 Bka, 13 soð, 15 hó, 16 LI, Nýir húsasmiðir. Þessir menn hafa öðlazt leyfi til þess að standa fyrir bygg- ingum í Reykjavík sem húsa- smiðir: Benedikt Davíðsson, Miðstræti 5, Guðmundur Sig- urðss., Úthlíð 16, Gunnar Gunn arsson, Nökkvavogi 50, Páll Friðriksson, Langholtsvegi 80, Þórarinn Jens Óskarss., Hlunna vogi 11, Jón Ágúst Ketilsson, Sörlaskjóli 7 og Guðmundur Jó hannsson, Snorrabraut 32. Ný götunöfn. Nafnanefnd bæjarins hefur lagt til, og bygginganefnd sam- þykkt, að Hálsgerði verði Tunguvegur og að götur sunn- an Tunguvegar og austan Soga- vegar fái nöfnin: Ássendi, Garðs endi og Básendi. Gata sunnan Sogavegar austan Tunguvegar heiti Holtsendi, Skógargerði heiti Hæðarendi og Litlagerði heiti Hálsendi. Heilbrigðisnefnd bæjarins telur ekki rétt að leyfa út- gerð sem atvinnurekstur við Skerjafjörð, enda þótt bátaupp- sátur þar í smáum stíl mætti vera þar óátalið, meðan gætt er hreinlætis og þrifnaðar. Fyrirkomlag á matvælageymslu sambandsins. við Laugarnes- veg hefur verið samþykkt af hálfu heilbrigðisnefndar, með því skilyrði, að kjöt og kjötvör- ur séu algerlega einangraðar frá öðrum vörum. Hins vegar vekur nefndin athygli bæjar- ráðs á vanefndum SÍS á því að uppfylla það skilyrði, sem sett var á fundi bæjarráðs 9. júní 1950, að SÍS legði bæjarstjórn til húsnæði til kjötskoðunar í Reykjavík skv. gildandi lögum á samningstímabilinu, bæjar- sjóði að kostnaðarlausu. — Nú verður kjötskoðunarplássi ekki komið fyrir í húsnæði því, sem hér um ræðir með öðrum rekstri þar, en hins vegar legg- ur heilbrigðisnefnd ríka áherzlu á, að fullnægjandi húsnæði til kjötskoðunar verði fullbúið fyr ir haustið 1954. Akranes 4.—6. tbl. 12. árg. er komið út. Helzta efni heftisins er Þjóð leikhúsið á þriðja og fjórða ári, Rafha réttir þér hönd, Slippfé- lagið í Rvík 50 ára, Séra Frið- rik Friðriksson 85 ára, Saga byggðar sunnan Skarðsheiðar, Þjóðkunnir menn, Hversu Akra nes byggðist, Um bækur, og eru allar framgreindar greinar eftir ritstjórann, Ól. B. Björnsson. — Auk þessa er í heftinu, grein eftir Ól. Gunnarsson, Tvö kvæði eftir Kjartan Ólafsson, Pár Lag eftir dr. O. Lagercranty, Starfsárin, eftir séra .Friðrik Friðriksson, Gamalt og nýtt, Annáll Akraness, Til fróðleiks skemmtunar o. fl. Laxveiðimenn, sem enn ‘hafa ekki fengið í á, ættu að snúa sér tangveiðifélags Reykjavík- því að lausir dagar eru í orðurá, Laxá í Kjós og Hofsa. Innritun í Iðnskóíann hefsi næstkomandi mánudag 24. ' ágúst, kl. 5—7. og lýlcur íöstudaginn 28. þ. m. Skóla- d, sém er kr. 750 og kr. 800, gréiðist við innritun. Fyrirtæki, . •; ga ógreiddan sö.luskatt 2. ársíjórðungr 1953 mega bú- j a;;’ við pví a6 verða- töðvuð ef, þegartill Tollstjóraskrifstofunnar í Arn- arhváli., „Borgin handan fljótsins“ heitir ágæt mynd, sem Nýja Bíó sýnir þessa dagana. Mynd þessi, sem tekin er í Brooklyn, sem er eitt af hverfum New York, veitir nokkra innsýn í líf afbrotaunglinga í stórborg og vandamál þau, sem af því rísa. Þetta er óvenju raunsæ mynd, vel leikin og eðlilega tek in. Hvar eru skipin? Eimskip: Brúarfoss er í Ham- borg. Dettifoss fór frá Rotter- dam í fyrradag til Hull og Rvík- ur. Goðafoss fór frá Reykjavík 15. þ. m. til Rotterdam og Len- ingrad. Gullfoss er í Kaup- mannahöfn. Lagarfoss fór frá Keflavík í gær til Vestmanna- eyja, Akraness og Reykjavíkur. Reykjafoss kom til Hafnarfjarð ar í gær frá Flekkefjord. Sel- foss fór frá Siglufirði í gær til Kaupmannahafnar, Lysekil og Graverna. Tröllafoss fór frá New York-15. þ. m. til Reykja- víkur. Skipaútgerð ríkisins: Hekla verður væntanlega á Siglufirði í dag. Esja er á Austfjörðum á norðurleið. Herðubreið fór frá Reykjavíkur í gærkvöldi aust- ur um land til Bakkafjarðar. Skjaldbreið verður væntanlega á Akureyri í dag. Þyrill er á Vestfjörðum á norðurleið. Skaft fellingur. fer frá Reykjavík á morgun til Vestmannaeyja. Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell lestar fisk á Akranesi, fer þaðan í dag áleiðis til Hamborgar. Arn arfell losar kol á Seyðisfirð Jökulfell fór frá Dale 18. þ. ir áleiðis til Norðf jarðar. Dísarfe] fór frá Reykjavík í gær áleiði TRYG m Vesturg. 10. F Sími 6434 til Fáskrúðsfjarðar og Seyðis- fjarðar. Bláfell lestar síld á Þórshöfn. Svifflugskólinn á Sandskeiði efnir til 3. og síðatsa námskeiðs síns í sumar n. k. laugardag og stendur það yfir í 14 daga. Á síðasta nám- sekiði tók 13 ára gömul stúlka, Astrid, dó.ttir Agnars Kofoed- Hansen flugvallarstjóra, A- próf í svifflugi, og er hún yngsti nemandi sem enn hefir lokið | því prófi. Aðalkennari verður Helgi Filippusson. Fimmtug er í dag Svava J. Guðjóns- dóttir húsfreyja að Kýrunnar- stöðum í Dalasýslu. V erðlaunagarðarnir. Sú villa slæddist inn í blaðið í gær, að sagt var að garðurinn við Barmahlíð 29 hefði hlotið viðurkenningu. — Það var garðurinn við Barmahlíð 25, sem viðurkenninguna hlaut. Átök innan Loftleiða. Peilt Bim söln klntabréfa. í tilefni fréttar er birtist í Alþýðublaðinu í gær (18. ágúst) um málaferli út af kaupum á hlutabréfum í Loftleiðir h.f., þykir stjórn félagsins rétt að birta eftirfarandi: 1. Fyrir um það bil níu ár- um heimilaði hluthafafundur í Loftleiðir h.f. stjórn félagsins að auka hlutafé upp í allt að kr. 2.000.000. — Hlutaféð var síð- an aukið upp í ca. 1,3 milljónir króna. 2. í ársbyrjun 1952 batnaði hagur félagsins mjög, og ákvað þá stjórn Loftleiða að auka eigi hlutafé félagsins meira en orðið var og jafnframt að neyta forkaupsréttar fyrir félagsins hönd á þeim hlutabréfum, er boðin kynnu að verða til sölu, svo miklu leyti sem sam- íktir félagsins leyfðu. Voru Sar þessar ákvarðanir teknar þess að vernda hagsmuni tthafa, enda hafði verðgildi itabréfanna aukizt all veru- a. MARGT Á SAMA STAÐ Permanentstoían Ingólíssíiæti 6, sími 4109. Fyririiggfendi Bosch straumlokur, 6 volta í alla ameríska bíla. Parkljós, rauð og græn o. fl. gerðir. Samlokur 6 volta. Tenglar í framljós. Þokuljós. Bakkljós. Perur i afturljós, borð og parkljós. Truflanadeyfar á dynamó, kerti og kveikju. Kveikjuhlutar, svo sem kveikjulok, kveikjuhamrar, kveikjuplatinur og þéttar í flestar teg. ameríska bíla, og platinur og þéttar í enska Ford 8 og 10 HP. — Öll model o. fl. gerðir enskra bíla. Bremsuljósarofar í ílesta bíla. Bílaleiðslur og skór. Miðstöðvarmótorar, 6 volta. Rúðuþurrkarar, 6 v. Loft- þurrkur. Viftureimar, — Startarar í Ford 6 og 8 cyi. 1933 til ‘48. Startaraanker í Dodge, Chevrolet o. fl. — Sfartarabendixar og bendix gormar. Segulrofar á startara í Plymouth, Dodge, Ford o. fl. og margt fleira Allt í rafkerfið. Góðar vörur og óciýrar. Bílaraftækjaverzlurs Halldórs Ólafssonar, Rauðarárstíg 20, sími 4775. Vanur bókhaldari óskast Vetasjó&wr BúnaSarfélagshúsinu. Sími 2718. rtAíVWUWWAAVWWWUWUWVVVVWWWUVWWWWUVW

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.