Vísir - 20.08.1953, Blaðsíða 8
Þtir tem gerast kaupcndur VÍSIS eítir
10. bvers mánaðar £á blaðið ókeypis til
ménaðamóta. — Sími 1660.
WI
VÍSIK er ódýrasta blaðið og þó það f|öl-
breyttasta. — Hringið í sima 1660 og geriat
áskrifeneiur.
Fimmtudagimi 20. ágúst 1953
Nehru og Ali
ræðast við.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Þeir Pandit Nehru, forsætis-
ráðherra Indlands, og Muhameð
Ali, forsætisráðherra Pakistans,
halda síðasta umræðufund sinn
í Delhi í dag.
Hafa þeir undanfarið setið á
rwkstólum og rætt hina við-
kvæmu Kasmír-deilu, og segja
fréttaritarar, að ágætur árang-
ur hafi náðzt með viðræðum
þeirra og vænta menn, að lausn
deilunnar sé ekki langt undan.
Sameiginleg yfirlýsing ráð-
herranna er væntanleg að
fundi þessum loknum.
bæjarsjoðs.
Vísi hefur nýlega borizt yfir-
lit um reikningsjöfnuð Bæjar-
sjóðs Reykjavíkur, eins og hann
var á miðju yfirstandandi ári,
eða 30. júní s.I.
Af álögðum útsvörum, sam-
tals að upphæð 91.3 millj. kr.
var aðeins búið að innheimta
25.8 millj. króna, aftur á móti
var búið að innheimta 5.8 millj.
kr. af áætluðum fasteignagjöld
um, er námu 6.6 millj. kr. En
útsvörin og fasteignagjöldin
eru langstærsti tekjuliður bæj-
arsjóðs.
Gjaldamegin var bærinn bú-
inn að greiða 35.7 millj. krónur
á fyrra árshelmingi og var
stærsti liðurinn til félagsmála,
þ. e. hjúkrunar- og líknarstarf-
semi, barna- og vistheimila, al-
mannatrygginga, framfærslu
o. fl. samtals að upphæð 10.4
millj. kr., en áætlað rösklega
32% millj. kr. á fjárhagsáætlun.
Aðrir helztu útgjaldaliðir eru
til fræðslu- og skólamála 5.4
millj kr., gatnagerðar og ura-
ferðar 5.2 millj. kr., heilbrigð-
ismála 3.9 millj. kr. Stjórn kaup
staðarins 3.4 millj. kr. og lög-
gæzla 2.8 millj. kr. Samanlögð
útgjöld bæjarins á yfirstand-
andi ári eru áætluð 103 millj.
krónur.
Tugir gæðinga í kynnisförinni, sem
hófst við Guílfoss í gær.
Bandaríkjaþing samþykkti ekki alls fyrir löngu sérstök lög,
svo að unnt væri að veita pólska flugmanninum Franciszek
Jarccki, er lenti MIG-vél sinni á Borgundarhólmi í vor, borg-
araréttindi án frékari umsvifa. Afhendir Eisenhower forseti
Jarecki lögin, sem hann hefur þá staðfest.
I fyrrakvöld kornu hingað til
lands nokkrir gestir Flugfélags-
ins, Búnaðarfélagsins og Ferða
skrifstofunnar.
Eins og Vísir gat um á sínum
tíma, er mönnum þessum boð-
ið hingað til að fara ríðandi um
sveitir landsins, til þess að
kynna þeim kosti íslenzka hests
ins, og' þeirrar ánægju, sem
hann getur veitt mönnum á
ferðalögum. Eru meðal gest-
anna blaðamenn, kvikmyndari,
forstöðumenn ferðaskrifstofa o.
fl., og verða þeir hér í viku-
tíma.
Vísir átti í morgun stutt við-
tal við Þorleif Þórðarson for-
stjóra Ferðaskrifstofunnar, sem
or ásamt Gunnari Bjarnasyni
ráðunaut, fararstjóri þessarar
ferðar. Var hópurinn þá stadd-
ur við Geysi og beið eftir gosi.
40—50
góðhestar.
Þorleifur sagði að ferðin hefði
IViesta kappflug, sem um getur, háð
frá Englandi til Nýja-Sjálands.
Turpin berst um
meistaratitil.
London (AP). — Kandolph
Turpin mun berjast um heims-
meistaratitilinn í miðþungavigt
í októbermánuði í Bandaríkj-
imuni.
Þetta er í annað skipti, sem
Turpin berst um titilinn, því
að árið 1951 sigraði hann Ray
Robinson, en tapaði titlinum
aftur fyrir honum tveim mán-
uðum síðar. Nú er titillihn
„laus“, þar sem Robinson hætti
hnefaleikum í lok síðasta árs.
Gegn Turpin berst Carl Ólson
írá Hawaii.
Sksöaskáfi KR brenuur.
I gærkveldi um klukkan 10
brann skíðaskáli K. R. í Hvera-
dlölum til kaldra kola.
Þetta var braggi og brann
hann gersamlega, nema hvað
grindurnar standa uppi. Undan-
farið hafa starfsmenn rafveít-
unnar, sem vinna við Sogslín-
una búið í skálanum, og voru
þeir í honum, þegar eldurinn
kom upp.
Keppt verður í s
tvennu lagi. !
Þáttiaka frá or-
tistuvélum til far-
þegavéla.
I haust verður efnt til stór-
kostlegasta kappflugs, sem sög-
ur fara af, en flogið verður frá
London til Christchurch-flug-
vallar á Nýja-Sjálandi, eða
rúmlega 20.000 km. vegarlengd.
Það er Konunglega flugfélag-
ið í London (Royal Aero Club)
og Canterbury International
Air Race Council í Nýja Sjá-
landi, sem sjá um kappflug
þetta og standa að undirbúningi
öllum. Kappflugið hefst þann
8. október n.k. frá London. Þátt
takendúr verða að lenda á flug-
velli skammt frá Basra í írak,
en að öðru leytl ráða þeir, hvar
þeir lenda á leiðinni, eða taka
benzín á fluginu. Flugið verður
í tveim flokkum. í fyrsta iagi
hraðflug og í öðru lagi farm-
flug eða svonefnt „handicap-
flug“.
Nota má allar
tegundir flugvéla.
í hinu fyrrnefnda flugi fíður
vitanlega á, að komast sem
allra skjótast á leiðarenda, með
því að lenda aðeins einu sinni
og taka síðan benzín á fluginu,
en í hinu síðarnefnda verður
tekið tillit til flugvélarinnar
sjálfrar, farms hennar o. s. frv.
Heimilt er að nota sjó- eða
landflugvélar, þrýstilofts-
hreyfla eða hvers konar hreyfla
seni vera skal. Vegarlengdin
verða þátttakendur að fljúga á
ekki lengri tíma en 168 klst.
eftir að síðasti þátttalcandinn
er lagður af stað frá London.
Veitt verða fern verðlaun í
hvorum flokki: 10.000 pund,
3000, 1000 og 500 pund. Sigur-
vegarinn í aðalkappfluginu fær
auk þess Harward gullbikarinn,
sem er 1000 punda virði.
13 í hraðfluginu.
í aðal-kappflugið hafa þegar
látið skrá sig þátttakendur frá
brezka flughernum og þeim
ástralska, flestir á Canberra-
vélum, sem þykja hraðfleygar
mjög, auk þess maður úr danska
flughernum, og flýgur hann vér
af gerðinni Republic F84G. Enn
fremur einstaklingar frá Banda
ríkjunum og Ástralíu, samtals
13.
Af þátttakenduni í vöru-
flutningafluginu má nefna
brezka flugfélagið BEA, sem
notar Vickers Armstrong Vis-
count-vél, KLM, sem notar
Douglas DC-6A, Rausch Avia-
tion, Bandaríkjunum, sem not-
ar Lockhead Lodestar, og fleiri.
KLM, hið kunna hollenzka
flugfélag hefur þegar ákveðið,
að flugstjóri í kappfluginu verði
H. A. A. Kooper, 45 ára gamall,
en hann hefur 18.500 flugstund
ir að baki.
Drengjameistara-
mót háð að
Selfossi,
Drengjameistaramót íslands í
frjálsum íþróttum verðúr háð
undir n. k. mánaðamóí og að
þessu sinni að Selfossi.
Mótið fer fram dagana 29.
og 30. þ. m. og verða keppni-
greinar sem hér segir:
80 m. hlaup, 300 m. hlaup,
1000 m. hlaup, 110 m. grinda-
hlaup, 4x100 m. boðhlaup, há-
stökk, langstökk, stangarstökk,
kúluvarp (5.5 kg. kúla),
kriglukast (1.5 kg. kringla) og
spjótkast (600 gr. spjót).
Haftið í Sog-
inu sprengt
í nótt.
Steypuvinna má nú heita
lokið við Sogsstöðána nýju, búið
er að setja niður vélar stöðvar-
innar og í nótt verður sprengt
haftið milli farvegsins og ár-
innar.
Mun 'því næstu d&ga verða
byrjað að prófa vélarnar, en
áætlað er að stöðin verði komin
í notkun einhverntíma í næsta
mánuði. Samkvæmt upplýsing-
um, sem Vísir fékk í morgun
hjá rafmagnsstjóra hefur und-
anfarna daga verið ur.nið að
undirbúningi við að sprengja
haftið milli ganganna og árinn-
ar, og mun það verða sprengt
í nött eins og fyrr segir. Und-
anfarið hefur verið unnið að því
að reyna lokurnar fyrir Stífl-
unni, og verða vélarnar reyndar
næstu daga, en það tekur nokk-
urn tíma að reyna þæi, áður
en straumnum verður hleypt á.
Ennþá er heldur ekki fullu
lokið vinnunni við línuna, en
það mun standast nokkum-
véginn á að þegar línunni er
lok.ið, verði buið að reyna vél-
arnar, og er búizt við að stóðin
verði tekin í notkun í septem-
ber.
gengið mjög að óskum og að
hinir erlendu gestir væru stór-
hrifnir. Var farið í bifreiðum
austur að Gullfossi í gær, en er
þangað kom voru hestarnir þar
fyrir, milli 40 og 50 talsins og'
nokkrir bændur úr Árnessýslu
undir fararstjórn Þorsteins
bónda Sigurðssonar á Vatns-
leysu, formanns Búnaðarfélags
slands. Ávarpaði Þorsteinn
hina erlendu gesti og mæltist
vel og skörulega. Eftir nokkra
viðstöðu há Gullíossi var haldið
ríðandi til Geysis og voru um
tveir tugir manna í þeim hópi.
Útlendingarnir voru mjög á-
nægðir yfir hestunum og létu
óskerta hrifni sína í l.jós, enda
er hér um valda gæðinga að
ræða bæði úr Borgarfirði og af
Suðurlandsundirlendinu.
14 meun
með 35 hesta.
Að Geysi var gist í nótt og í
morgun biðu ferðalangarnir eft
ir gosi. Veður var hið yndisleg-
asta og sá ekki ský á lofti. í
dag verður farin efri leiðin, hjá
Úthlíð og niður með Efstadals-
fjalli að Laugarvatni, en sú leið
er forkunnarfögur. Verða 14
manns í ferðinni með 35 hesta.
Á morgun verður haldið til
Þingvalla og á laugardaginn
niður í Borgarfjörð, en það
verður lengsta og erfiðasta dag-
leiðin. Frá Varmalandi í Borg-
arfirði verður haldið til Reykja-
víkur í bifreiðum á mánudag-
inn, en á þriðjudaginn fara gest
irnir utan með Gullfaxa.
Fram keppir
í dag.
Knattspyrmiflokkur Fram
sem nú er Þýzkalandi keppir
annan leik sinn þar í dag, en
alls keppir liðið þar f jóra leiki,
eins og áður hefur verið greint
frá.
1564 tn. til
Akraness í gær.
Reknetabátar í Faxaflóa
fengu í gær mestu veiði, sem
um getur á þessari vertíð.
Fjórtán bátar, sem róa af
Akranesi, fengu samtals 1546
tunnur, og þykir það fyrntaks
veiði
Mestur afli á bát voru 180
tunnum hjá Ólafi Magnússyni
og Sigurfara. Síldin veiddist í
Jökuldjúpi. — Hún er smá, en
sæmilega feit, eða um 18% að
fitumagni, samkvæmt s.ðustu
mælingum.
Af þessu magni fóru 416
tunnur í bræðslu, um 200 voru
saltaðai’ i tilraunaskyni, en hitt
var fryst.
Bátar eru á sjó í dag, en afii
er sagður tregur, og eru gceini-
leg dagskipti að aflanum. Frétzt
hefur um þrjá báta með góðars
afla i dag, en flestii höfðu
fengið sáralitla veiði.
Leitin.
Framh. af bls. 1
leitin að stúdentunum vakið
mikla athygli í Bretlandi og
blöðin flutt eins itarlegar fregn
ir um hana og þeim hefur verið
unnt að afla. Útvarpið brezka
hefui’ einnig bift sérstaka frá-
sögn af henni og leiðangrinum
í fréttaauka sínum, sem nefnist
„Radio NewTsreel“ og er eins-
konar talandi fréttablað.