Vísir - 28.08.1953, Blaðsíða 1
45, árg.
Föstudagirm 28. ágúst 1953.
194. tbl.
¥erið að setja „Fisk-
sföflun" upp vio
Sjómannaskólann.
Um þessar mundir er unnið
að því að setja upp lágmynd við
Sjómannaskólann.
Er það myndin Fiskstöííun
eftir Sigui'jón Ólafsson mynd-
höggvara. Er myndin sett upp
rétt hjá Vatnsgeyminum við
brautina heim að Sjómannaskól
anum, og miðar verkinu vel á-
fram og. verður lokið innan
skamms.
Framkvæmd þessi er kostuð
af Fegrunarfélagi Reykjavíkur,
sem ver nú til þess ágóðanum,
sem varð af f egurðarsamkeppn-
inni og hátíðahöldum félagsins
í Tivoli fyrir skömmu. — Enn
fremur er félagið að hef ja und-
irbúhing að lagfæringu við
tjörnina fyrir framan Iðnó, og
á því verki einnig að verða lok-
ið í haust.
t'TM'2!**
Fbgvétitt grandaoi
30—60 máfum.
Fyrir nokkru skýrði Vísir frá
þvi, að ensk flugvél hefði orðið
að nauðlenda á Kastrup-velli
við Kaupmannahófn eftir á-
irc-kstur við máfa.
Nú skýra nýkomin blöð frá
því, að þetta hafi átt sér stað
aftur, og biðu milli 50 og 60
fuglar bana af þessum sökum.
Flestir lágu í ,,kjölfari" flug-
vélaririnar, en nokkrir voru
fastir inni á milli „cylindra"
annars hreyfilsins.
25 maims fai*-
ast í bílslysi.
Nýlega fórust aílir — 25
manns — sem voru á ferð í
langferðabíl í fjallahéraði í
Perú.
Var • bifreið þessi á feið i
bratta á gilbarmi, þegar neml-
arnir biluðu svo að ökumaður-
inn missti stjórn á bilnum nær
strax, og hrapaði bíllinn ofan
í 300 feta djúþt gljúfur.
Eldey er þéttsetnasti
blettur á Islandi.
Engar breytingar eða hrun hefur
orðið úr eynni, eins og þó var
haldið fram fyrir tveim árum.
Eldey stendur enn úr hafi og
óbreytt frá því sem áður var,
að 'því er Þorstein Einarssoii
íþróttafulltrúi og fuglafræð-
ingur hefur tjáð Vísi.
Fyrir tveimur árum fullyrti
skipstjóri nokkur, sem var að
veiðum undan Eldey að hann
hefði séð merki þess að nokkur
hluti Eldeyjar hefði hrapað i
sjó.
Til þess að ganga úr skugga
um breytingar þær sem orðið
hefðu á eynni og hve mikið
hefði hrunið úr henni voru
ljósmyndir teknar af henni i
sumar og eftir þeim síðan mæl-
ingar og aðrar athuganir gerð-
ar. Myndatökurnar annaðist
ljósmyndunardeild bandaríska
flotans hér fyrir milligöngu
L. Moe forstöðumanns banda-
rísku Upplýsingaþjónustunnar
hér, en hann er kunnur fugla-
fræðingur og hefur áhuga á Öllu
er þar að lýtur.
Áfengisútsölunni í Eyjum
lokað 10. september n. k.
Á tsafirði verour vínbúoinni lokaft 20. októ-
ber og á Akureyri í byrjun janúar.
Þann 10. september næst-
koiriandi verður áfengisútsöl-
unni í Vestmannaeyjum lokað.
Frá og með þeim degi kemur
til framkvæmda héraðsbannið,
sem Vestmanneyingar sam-
þykktu sl. vetur.
Samkvæmt reglugerðinni um
héraðabönn ber að loka áfeng-
issölunni á þeim stöðum, þar
sem héraðabami er samþykkt,
6 mánuðum ef tir að samþykktin
hefir verið gerð, eða öllu held-
ur.6 mánuðum eftir að bæjar-
stjóra eða forseta bæjarstjórn-
ar viðkomandi bæjar hefir ver-
ið tilkynnt niðjarstaða at-
kvæðagreiðslunnar. Lokunin
miðast því ekki við þann dag,
sem atkvæðagreiðslan fer fram,
heldur þann dag, sem úrslitin
eru formlega tilkynnt.
Auk Vestmannaeyja hafa
tveir kaupstaðir aðrir sain-
þykkt héraðsbann, það eru ísa-
fjörður og Akureyri, og verður
áfengissölunni á ísafirði lokað
20. októher, en á Akureyri ekki
fyrr en fyrstu dagana í janúar.
Engin breyting
er sjáanleg.
Við nákvæma athugun á ljós-
myndunum hefur komið í ljós
að Eldey stendur óbreytt frá
því sem áður var og engin
breyting sjáanleg á henni. Það
er því alls ekki um það að
ræða að nokkur hluti eyjarinn-
ar hafi hrapað í sjó eins og
haldið hefur v'erið fram, en
einhverjar jarðhræringar hafa
kannske átt sér stað fyrir
tveimur árum, því fugl hvarf
þaðan nokkra daga. Þótti það
ekki einleikið þvi venjulega er
hún hvít af fugli.
Ljósmyndir þær, sem teknar
voru af Eldey í sumar, leiddu
það ennfremur í ljós, að fugl
er þar sízt minni en árið 1949,
er eyjan var einnig Ijósmynduð
í þeim tilgangi að sjá fugla-
mergðina þar. Fullyrða má að
Eldey er eins þétt setin fugli
og unnt ei- að koma hreiðrum
fyrir uppi á henni, en auk þess
er mergð fugls utan í bjarginu.
Er áætlað að um 12—13 þúsund
súlnahjón verpi þar núna, og
ef það reynist rétt mun Eldey
vera stærsta einstök súlubyggð
í heimi. A.ðrar súlubyggðir, sem
nokkuð kveður. ;að eru í St.
Lawrence-flóa við strendur/
Norður-Ameríku, kringum
Bretlandseyjar, við Frakk-
lands- og Noregsstrendur. Eru
þær allar friðaðar, enda þykir
sjálfsagt að vernda þennan
litla fuglsstofn, en súlan mun
vera einhver elzta fuglstegund
jarðarinnar.
Eldey vár
nytjuð áður.
Eggert Ólafsson getur þess í
Ferðabók sinni að þá og þ'ar
áðiír hafi jafnan verið gengið á
Eldey og hún nytjuð, en þær
(Fram a 8. síðu)
9 skip veiða fyrir ÞýzkalaBid.
Tvö eru farin úí, hin að búasf á veiðar.
Jón forseti fór á veiðar í gær,
og er honum ætlað að veiða í
ís fyrir Þýzkalandsmarkað.
Þá fór Fylkir einnig á veiðar
fyrr í vikunni', og mun hann
líka veiða fyrir Þýzkaland,
og Röðull fer á morgun. Auk
þess er verið að búa nokkra
togara á veiðar fyrir þenna
markað, og eru þeir þessir:
Askur, Jón Þorlákss. og Karls-
efni hér í bænum, Bjarni ridd-
ari og Júlí í Hafnarfirði og Kald
bakur á Akureyri.
Samningarnir um fisklandan-
ir í Þýzkalandi eru á þann veg,
að íslenzk skip mega leggja þar
afla á land á vissum tíma áirs
fyrir ákveðna fjárhæð, er nem-
ur um 30 milljónum króna fyr-
ir þetta ár. Undanfarin tvö ár
hafa íslenzku fiskiskipin ekki
fyllt „kvóta" þarin, sem þeim
var ætlaður með samningum. í
annað skiptið kom verkfallið á
togurunum í veg fyrir, að hægt
væri að hagnýta þenna mark-
að, og í hitt skiptið var verð-
lag á fiskinum svo lágt, að ekki
þótti svara kostnaði að veiða
fyrir Þýzkaland. Þar er upp-
boðsfyrirkomulag á aflasölum,
svo að fiskmagnið er mismun-
andi, sem hægt er að leggja á
land.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem Vísir aflaði sér í morg-
un hjá Ólafi Jónssyni, framkv.-
stjóra h.f. Alliance, hefur mark-
aður í Þýzkalandi verið sæmi-
lega hagstæður að undanförnu,
og stafar það af því, að þar
hefur verið heldur svalt í veðri,
en þegar hitar eru miklir, fell-
ur verðið óðara. Horfur erií því
ekki sem verstar. þótt ekkert
verði um það sagt, hvernig verð
lag verður, þegar togararnir
leggja afla sinn á land.
Erfið heyskapartíð
austanlands.
Frá fréttaritara Vísis. —
Mjög votviðrasamt hefir ver-
ið á austurlandi nú um langan
tíma, og hafa bændur átt í
miklum erfiðleikum um hey-
þurrkun. Hefir varla komið sá
dagur nú um mánaðartíma eða
meira, að ekki hafi rignt meira
eða minna. í gær var held-
ur að birta til, og vænta menn
nú þerris ,enda ekki orðin van-
þörf á, því að víða eru mikil
hey úti.___________________
Dawson undir-
býr löndun.
George Dawson heldur áfram
undirbúningi sínum í sambandi
við væntanlega fisklöndun ís-
lenzkra togara í brezkum höfn-
um.
Undanfarið hefur fátt frétet
af viðbúnaði Dawsons, en margs
konar sögur verið á kreiki. —
Vitað er, að fyrir fáum dögum
áttu þeir viðræðufund í Lcn-
don, Þórarinn Olgeirsson ræð-
ismaður, sem er fulltrúi. ís-
lenzkra togaraeigenda á Bret-
landi, og Dawson. Ræddust þeir
við í tvo daga um þessi mál, en
síðan fóír Dawson til Gvimsby
til að athuga, hvað liði undir-
búningi þar.
Er því ekki annað vitað, en
að landað verði íslenzkum fiski
á Bretlandi á vegum DawsonS;
eins og ráðgert hafði vériíS, en
hins vegar veit Vísir c-kki á
þessu stigi málsins. hvenær íönd
un hefst.
Þarf nú að breyta
sögu Rússa?
London. (A.P.). — Menn
bollaleggja um það hér, hvort
ný „breyting" sé í aðsigi á sbgu
Ráðstjórnarríkjanna.
Hefir aðalrit ríksins á sviði
sagnfræði verið sett undir nýj-
an ritstjóra og sá eklri rekinn
fyrirvaralaust, og auk þess hef-
ir ritnefndin verið skipuð nýj-
um mönum að mestu. Er það
kona, sem tekið hefir við rit-
stjórninni.
Þjóðartekjur US
jukust um 5%.
Washington. — Viðskipta-
máláráðuneytið hefur tilkynnt,
að tekjur manna hafi hækkað'
um 5% á sl. ári.
Alls urðu launagreiðslur 255
milljarðar dollarar, en höfðu
verið 243 milljarðar árið áður.
Tekjur á hvern landsmann
námu 1639 dollurum, og hækk-
uðu um 4% frá 1951.______
Hafði 3 fiska eftir nóttina.
Ilancli'æraveifliii lielír brugðizt.
Aflabrögð hér í Faxaflóa
hafa verið mjög stopuí upp á
síðkastið og farið minnkandi
eftir því sem á sumarið hefir
liðið.
Framan af í vor öfluðu menn
prýðisvel á handfæri, en nú
virðist fiskurinn vera gersam-
lega horfinn. T. d. kom einn
bátur til Reykjavíkur í gær-
morg- Ui með aðeins 3 fiska eft-
ir nóttina. Aftur á móti hafa
bátar, sem eru með lóð, aflað
vel undanfarna daga — feng-
ið einkum smálúðu — og lít-
ilsháttar af lýsu, sandkola,
skötu og ýsu', en. smálúðan er
þó meginhluti veiðinnar.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Vísir fekk hjá Fiskhöllinni
í gær, eru flestir handfærabát-
arnir hættir veiðum, því að
segja má, að þeir fái ekki bein
úr sjó, og er ástandið nú mjög
breytt frá því í vor og fyrri-
partinn i sumar, er þeir höfðu
mokafla. Virðist fiskurinn ger-
samlega hafa horfið upp á síð-
kastið, en i staðinn komið ganga
af smálúðu, en hún veiðist ein-
ungis á lóð. Um þessar mundir
er því skortur í bænum á
þorski, en aftur á móti gnægð
smálúðu.