Vísir - 03.11.1953, Side 8
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
_&
VISIR
VlSIE er ódýrasta biaðið og þó það fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1660 ag gerist
áskrifenctur.
Þriðjudaginn 3. nóvember 1953.
Með sameigitibgu átaki veriur
sundfaug byggð í Vesturbæmim.
Fiiiriswíiaisis s |»c-s sk.yisi
.wiesbss Bisla«|ssi3i kenuir.
í dag fó Vesturbæingar
skemmtilega heimsókn, en það
cru ungar stúlkur úr Kvenna-
skólanum, sem koma til þess að
flytja íbúunum fagnaðarboð-
skap.
Þarna er þó ekki um að ræða
trúarstefnu né fyrirheit um
eilíft líf, heldur boðskap um
það, að með sameiginlegu átaki
geti Vesturbæingar komið upp
sinni eigin sundlaug og til þess
telja þeir bera brýna nauðsyn.
Nú eru til heimilis á þriðja
þúsund skólanema í barnaskól- •
um og gagnfræðaskólum í Vest
urbænum, sem leita verða sund
aðstöðu og sundnáms í Sund-
höllinni eða í gömlu laugun- (
um. Þetta er ekki aðeins óhag-
stætt vegna fjarlægðar, heldur
því sem næst ómögulegt vegna
þess, að Sundhöllin getur ekki
veitt öllum þessum fjölda til-
skilda aðstöðu til sundnáms.
Þetta hafa Vesturbæingar
löngu séð og nú hafa þeir hafizt
handa með aðstoð íþróttabanda
lags Rvíkur um það að koma
hið allra skjótasta upp sund-
laug í Vesturbænum.
Vinnur 6 manna fjáröflunar-
nefnd að .því að safna fé til
byggmgárinnar og er Gunnar
Friðriksson formaður hennar.
Hefur nefndin þegar safnað all
miklu fé, en vantar samt nokk-
uð til þess að byrjunarfram-
kvæmdir geti hafizt. Vonast
nefndin til þess, að fjársöfnun,
sem fer fram í Vesturbænum
þessa dagana ríði baggamuninn
og geti orðið til þesg að byrjað
verði á.sundlaugarbyggingunni
þegar á næsta vori.
Fyrirkomulag verður þannig
við þessa fjáröflun, að náms-
meyjar úr Kvennaskólanum
ganga í öll hús í Vesturbænum
í dag með lítinn bækling, sem
helgaður er þessu málefni, en
inni í bæklingnum er laust blað,
sem íbúunum er ætlað að rita
nöfn sín, þ. e., þeim sem eitt-
hvað vilja leggja af mörkum
til sundlaugarinnar. Á sunnu-
daginn kemur verða svo mið-
arnir sóttir ásamt gjafafénu.
Gjafaseðlarnir verða síðar
bundnir í bók og verða þannig
heimildaskrá um gefendur til
sundlaugarinnar.
Það er ekki ætlazt til stórra
framlaga frá hverjum einum,
en hins vegar almennrar þátt-
töku vænzt, enda er það sagt,
að margar hendur vinni létt
verk og að margt smátt geri
eitt stórt.
Þess má loks geta, að Bæjar-
stjórn Reykjavíkur sam.bykkti
á s.l. vetri framlag til sund-
laugai'byggingar í Vesturbæn-
um og bæjarráð hefur skipað
byggingarnefnd til þess að ann-
ast framkvæmdir. Staðsetning
laúgarinnar mun þó ekki vera
ákveðin ennþá.
! Víðsjár hafa verið miklar í Triest undanfarið. B andaríkjamenn sendu þangað tvo tundurspilla
| ef upp úr kynni að sjóða, og sjást beir hér við bryggju þar. Myndin er óskýr, enda send þráðlaust.
Elísabet settS
þimgið I deg.
London (AP). — Brezka
Jnngið var sett í dag með mik-
illi viðhöfn.
Elísabet drottning ók tii
þinghússins ásamt manni sín-
um, hertoganum af Edinborg,
í „írsku kerrunni“, sem fjórir
gráir fákar drógu, og var
fylgdarlið mikið og frítt.
Drottning las hásætisræðuna,
þar sem gerð er grein fyrir
þingmálum komandi þingtíma
bils. Meðal þeirra er breyting
á ríkiserfðalögum, þess efnis
að hertoginn af Edinborg skuli
vera ríkisstjóri í forföllum
drottningar, í s.tað Margrétar
prinsessu. Er sumra ætlun að
breytt Iagasetning í þessu efni
gæti greitt fyrir því að Margrét
geti átt þann mann, sem hugur
hennar er talinn standa til.
Vilja nú ekki
brezkar eimreiðar.
Indland ætlar að kaupa eim-
reiðar fyrir 11 millj. stpd. í
Japan, Þýzkalandi og Austur-
ríki.
Bretar hafa einir að kalla
lagt Indverjum til eimreiðir
fram að þessu og eru þeim von-
brigði, að þessi viðskipti gengu
þeim úr greipum. Indverjar fá
eimreiðirnar mun ódýrai'i í
þessum Iöndum en þeim stóð
til boða í Bretlandi, og auk
þess var lofað skjótari afhend-
íngu.
Ihaldfð" stendur sig
í Bretlandi.
Fyrstu 9 mánuði þessa árs
var lokið við smíði 226.000
nýrra húsa eða íbúða í Bret-
landi.
Er það þriðjungi meii-a en á
sama tíma í fyrra. í september
s.l. var lokið við smíði 6000
fleiri nýrra húsa eða íbúða en
l,í sept. í fyrra.
| Jafnaðarmenn hafa reynt að
i gera lítið úr kosningalofoiðum
l-íhaldsflokksins, bæði úr hús-
I næðisleysinu, og væru þau
j blekkingar einar, en nú, er í-
haldsmenn hafa afrekað miklu
i meira á þessu sviði en jafnað-
armenn, er þessi „gagnrýni“
niður kveðin. Reynslan sýnir,
■ acHhaldsflokkurinn hefur gert
jmiklu meira en jafnaðarmenn
í þessu efni dg munu standa
við öll sín loforð.
Hagur Leikfélags
Rvíkur með blóma.
Sýningar hjá Leikfélagi
Reykjavíkur urðu alls 115 á s.l.
leikári, og hafa þær aldrei orð-
ið fleiri á einu leikári.
Brýnjólfúr Jóhannesson, for-
maður L.R., skýi'ði fréttamönn-
um frá þessu í viðtali í gær.
Flestar sýnmgar ui'ðu á Ævin-
týri Hostrups, sem var sýnt 50
sinnum, en Góðir eiginmenn
sofa héima hlaut einnig mjög
góða aðsókn, en sýningar urðu
41.
Næsta viðfangsefni L.R. verð
ur franskur gamaixleikur, sem
.nefnist Skattaframtalsskólinn,
,eftir Georges Berr, í þýðingu
Páls Skúlasonar ritstjóra. Gunn
ar R. Hansen annast leikstjói’n.
.Alfreð Andrésson fer með að-
, alhlutverkið. Fjárhagsaf koma
1 ,félagsins á árinu varð góð. —
jStjórn þess skipa nú Brynj.
Jóhannesson, sem er formaður,
1 Jón Leós gjaldkei’i og Steindór
I Hjöi'leifsson ritari. Leikrita-
',1'áðunautar eru þeir Lárus Sig-
urbjörnsson og Þorsteinn Ö.
Stephensen.
Tvö mnbrot framin um helgma.
Spclívirki lleykvíkinga á Selffossi.
Þriðjungur lista-
verkanna seldur.
Enda þótt sýnlng Sigurðar
listmálara Sigurðssonar í
Listamannaskálanum hafi ekki
verið opin nema fáa daga er
þriðjungur listaverkanna þegar
seldur.
í gærkveldi höfðu 18 myndir
j sezt af þeim 60, sem á sýning-
unni eru og má þetta heita
einstæð sala á jafn skömmum
tíma.
Aðsókn hefur verið að sama
skapi góð, og einkum var að-
sóknin ágæt um helgina.
Sýningin er opin daglega á
tímanum frá kl. 11 til 23 og
í verður lokað að kvöldi þess 9.
m.
I Þ
Lögreglumenn sjást nú aftur
á garxgi í Brighton eftir 3ja ára
•tilraun með eftirlitsbíla. Kostn-
aður var of mikill.
Tvö innbrot voru framin hér
í hænum fyrir helgina.
Annað var í verksmiðjuna
Toledo aðfaranótt laugai'dags-
ins, en ekki var ljóst hverju
hafði verið stolið. Hitt inn-
bi'otið var framið á laugardag-
inn í geymslubragga sem Sölu-
nefnd setuliðseigna hefur til
umráða í Laugarneshverfi.
Maður sem býr þar í grennd-
inni varð var við innbrotið og
fór á vettvang til þess að at-
huga þetta nánar. Stóð hann
tvo drengi að innbrotinu og
fékk þá lögreglunni í hendur.
Skemmdarverk bílfarþega.
Síðdegis á laugardag var til-
kynnt frá Selfossi að Reykja-
víkurbifreið með tilteknu skrá-
setningai'númeri hafi verið þar
á ferð, en þeir sem í henni voru
gert sér leik að því að kasta
grjóti í ljósker og brjóta þau.
Er mái þetta í athugun.
Árekstur.
Á laugardagskvöldið ók bif-
reið aftan á aðra bifreið á Suð-
urlandsbi'aut. Sá er árekstrinmn
olli ætlaði að halda áfi'am án
Samstarf áformai viS norræna
tónlistarmiistöb í New York.
Forstjóri hmnar Iiéi* staddur.
þess að skipta sér af ái'ekstr-
inum, en bílstjórinn í hinuni
bílnum neyddi hann til þess að
nema staðar og' tók drengskaþ-
arloforð af bílstjóx’anum að aka
strikbeint á lögreglustöðma og
tilkynna áfekstrurinn. Við eftir-
grennslan kom í ljós að bíl-
stjórinn hafði ekki komið þang-
að og fór lögi'eglan þá að leita
hans. Bíllinn fannst skemmdur
og með örugg merki um árekst-
ur við bústað mannsins, 'eii
maðurinn var horfinn. Leikur
’grunur á að hann hafi verið
undir áhrifum áfengis.
Bifreið á hliðinni.
í gærkvöldi fór vörubifi'eið
út af Kársnesbraut. Var bif-
reiðin hlaðin fiski, og hafði
ökumaður farið út til að svip-
ast eftir afleggjara einum.
Rann bifreiðin þá af stað og
vallt út af veginum. Munaði
minnstu að bílstjórinn yrði
undir henni.
Slökkviliðið gabbað.
Upp úr hádeginu í gær var
brunaboði brotinn á horni
Smiðjustígs og Hverfisgötu.
Fór slökkviliðið á staðinn en þá
var enginn maður og hvergi
mei'ki neins eldsvoða.
Stjórn Tónskáldafélags fs-
lands og stjórn STEFS bauð í
gær ýmsum gestum og blaða-
mönnum til samkomu, til þess
að kynnast David Hall, fró
American-Seandinavian
Foundation.
Er hann foi'stjóri hinnar
nori’ænu tónlistamiðstöðvar,
sem stofnuð var 1950 innan
vébanda félagsins með fjár-
hagsaðstoð norrænu „Stefj-
anna“.
Jón Leifs bauð gesti vel-
komna með fáumorðum og vék
að kjörum íslenzkra tónskálda,
og kvað starfsskilyrði þeirra
áþekk þeim, er skáld þjóðar-
innar áttu við að búa fyrir
þúsund árum. Tónskáldin nú
gætu að eins flutt verk sín, að
skilyrði og tækni væru fyrir
hendi. Samtök væru hafin tii
úrbóta.
Því næst talaði David Hall,
sem er nýkominn hingað að
aflokinni ferð um hin Njrður-
löndin. Flutti hann ítai’legt og
fróðlegt erindi um störf sín og
hvað gera þyrfti, til þess að
íslenzk tónskáld gætu notið
ávaxtanna af þátttöku í ofan-
nefndu samstarfi. Hann kvaðst
telja það höfuðhlutvei'k sitt,,
1 að útbreiða þjóðlög og þjóðlega
i list frá Norðurlöndum og alls
! konar hljómleikavei’k.
Ný franhalds-
saga á morgun.
Ný framhaldssaga hefst í
blaðinu á morgun. Gerist
hún um 1870, er gullfund-
irnir í Kalifórníu drógu
menn í stórhópum vestur á
bóginn. Aðalsöguhetjan er
ung stúlka frá Kentucky,
sem fer til San Franciseo,
staðráðin í að raka saman fé.
— Sagan er eftir Clarenee
Buddington Kelland og nefn
ist í þýðingunni
ENGILL EÐA
GLÆFRAKVENDI?
Þetta er spennandi saga
um metorðagirnd og harða
keppni, en ástin er líka með í
spilinu. ____