Vísir - 23.02.1954, Side 1
4
44. árg.
Þriðjudagimi 23. febrúar 1054
44. tbl.
SæsssksB Oivii&smysi!eiati»iá.siissesíBBÍmir fóra í ttótt
Svíarnir fimm, sem hér hafa
dvalið undanfarna viku í sam-
bandi við væntanlega töku
kvikmyndarinnar ,Sölku Völku*
fóru héðan loftleiðis í nótt.
Hér hafa þeir haft samvinnu
við Edda Film og unnið að
margháttuðum undirbúningi
vegna kvikmyndatökunnar, sem
Vísir hefur áður greint frá. —
Með Arne Mattsson kvik-
myndastjóra voru Bibbi Lind-
ström arkitekt, eri hún er nu
talin einhver snjallasti leik-
tjaldamálari Svía að því er við
kemur kvikmyndum, Landheim
verkfræðingur, Lundin leik-
sviðsstjóri og Ström leikmuna-
vörður.
Hér hafa fimmmenningarn-
ir safnað ýmsum hlutum, sem
þarf til kvikmyndunarinnar,
eða gerfiteikningar af þeim,
svo og búningum og fleiri þess
háttar. Hafa þeir m.a. notið að-
stoðar Lárusar Ingólfssonar
leiktjaldamálara Þjóðleikhúss-
ins, sem hefur leiðbeint þeim á
Þjóðminjasafninu og í sambandi
við húningasafn Þjóðleikhúss-
ins.
Hingað koma Svíarnir aftur
15. maí n. k., en þá hefst
utanhúss-kvikmyndatakan, en
þangað til verða teknar „inni-
senur“ í Stokkhólmi.
I dag, 23. febrúar, á forseta-
frúin, frú Dóra Þórhallsdóttir
afmæli.
Frú Dóra er fædd 1893 og er
því 61 árs í dag. Hún er, sem
kunnugt er, dóttir Þórhalls
Bjarnarsonar biskups.
Hellisheiii óíæt
í gærmorgun.
Heiðavegir nú slark-
færir aftur.
Hellisheiði var ófær bifreið-
um í gærmorgun og fram undir
hádegi, en samgöngur þar kom-
ust þá í lag.
Unnið er að því að ryðja Hval
fjarðarleiðina, en þar var vað-
all allt frá Hvammsvík í Kjós
að Ferstiklu.
Holtavörðuheiði er orðin slark
fær. Farin er troðin slóð yfir
skafla norðan til á heiðinni og
er þar dráttarbíll til aðstoðar.
Snjólaust er til Þingvalla, en
ekki kunnugt um veginn frá
Þingvöllum að Sogsfossum.
Brattabrekka er ófær.
maiMa.
í morgun voru allir Grinda-
víkurbátar, eins og Suðurnesja-
bátar yfirleitt, á sjó, nema tveir,
og er ástæðan til þess næsta
óvenjuleg.
Tveir stærstu bátarnir, sem
róa frá Grindavík, norðanbát-
arnir „Vonin“ og „Vörður“ frá
Grenivík, fóru ekki á sjó eftir
rosann, vegna þess, að skip-
stjórarnir báðir höfðu skropp-
ið á Þorrablót norður á Greni-
vík. Flugu þeir þangað, en mun
hafa gengið illa að komast til
baka vegna veðurs. Tíðinda-
maður Vísis í Grindavík kvað
slíkt aldrei hafa komið fyrir
áður í útgerðarsögu Grindavík-
ur, að bátar gætu ekki róið
vegna þess, að skipstjórarnir
væru á Þorrablóti.
Keflavíkurbátar eru einnig á
sjó í dag, enda ágætt veöur.
Síðast reru þeir fyrir helgi, og
var aflinn þá ágætur, 8*/2 lest
á bát til jaínaðar.
Sandgerðisbátar voru einnig
á sjó í dag, og segja sjómenn
blíðskaparveður á miðunum.
Mörg skip föst í
ís úti fyrir þeim.
llafÍBBGa
ÍBigui* fya*ÍB* lofí-
flutninga.
Það hefur víðast erlendis verið auðveldara að komast á skauía
en hér á landi. I Danmörku hefur einhver hugvitssamur náungi
fundið upp einskonar klossa, sem hann spennir utan um
skautana heima hjá sér, og þarf þá ekki að hafa skóskipti á eða
hjá svellinu.
Edda dregin hingað í dag.
i>rír rtienn á skipinu með tvær dælur viðbúnar
Vörmtm Pakistans verður komil í
vilunandi horf.
Fær aHst©H Bandarakjanna.
Mohammed Ali forsætisráð-
herra Pakistans skýrði frá því
í gær að stjórn Pakistans hefði
óskað eftir aðstoð Bankaríkj-
anna til að kwna hervörnum
landsins í gott horf.
Ali kvað efling varna Pak-
istans og sammvinnu við aðrar
frjálsar þjóðir mundu verða
friðinum í þessum hluta heims
til öryggis. Hann sagði, að aldr-
ei hefði komið til mála að Banda
ríkjamenn fengju herstöðvar í
Pakistan.
Ríkisstjórnir Bandaríkjanna
og Pakistans hafa gert samn-
ing um Íágmngu vatnsveitu til
Karachi og um borgina og
greiðir hvor ríkisstjórn um sig
helming kostnaðar. Þetta verð-
ur fjögurra ára verk. Að því
loknu fær Karachi 25 miilj.
lítra vatns daglega. í þessu sam
bandi er tvenns getið, í fyrsta
lagi, að íbúatala Karachi, sem
fyrir stríð var um 300.000, er
nú á aðra milljón, og borginni
því brýn þörf fyrir aukið vatns
magn, en í öðru lagi er aukins
vatnsmagns þörf vegna þess, að
aðalflugstöðvar landsins eru í
grennd við borgina og þar hafð
ar herstöðvar a. m. k. á ófriðar-
tímum.
Vélskipið Edda, sem sökk á
Grimdarfirði, er nú á Ieið til
Reykjavíkur og kemur væntan- !
iega hingað um miðnætti,
Klukkan 9 í morgun lagði
eitt varðskipanna af stað íráj
Grundarfirði með v.s. Eddu ij
eftirdragi. Undanfarna daga
hafa menn unnið kappsamlega
að því að þétta Eddu eítir því,
sem föng hafa verið á, og mun
hún leka lítið eins og er. Til
öryggis voru fluttir um 20—30
lestir af mjöli og grjóti í skipið
til kjölfestu.
Þá eru tvær dælur um borð í
skipinu, ef meiri leki skyldi
koma að því á leiðinni hing-
að suður, og þrír menn verða
á skipinu á leiðinni til þess að
stýra því og sinna dælunum ef
með þarf.
Veður var ágætt í morgun,
er skipin lögðu af stað, og bjóst
fréttamaður Vísis í Grafarnesi
við því, að þau niyndu koma til
Reykjavíkur um miðnæturbil,
j ef veður spilltist ekki til muna
eða eitthvað óvænt kemur ekki
fyrir.
Má segja, að björgun Eddu
hafi tekizt giftusamlega, þegar
á allt er litið, því að þunglega
horfði um tíma, eins og Vísir
greindi frá í fyrri fregnum af
björguninni.
Laumufarþegimi í
Heklu var skotinn.
Nehru stingur upp
a
Nehru forsætisráðherra Ind-
lands hefur stungið upp á vopna
hléi í Indókína.
Telur hann, að það mundi
greiða fyrir samkomulagi um
frið í Indókína á fundinum í
Genf, ef vopnahlé væri gert nú.
Um einni klukkustundu áð-
ur en Hekla, miililandaflugvél
Loftleiða, lenti á Reykjavíkur-
flugvelli í gærmorgun barst
iögregiunni Jhér tilkynning um
það frá skrifstofu Loftleiða, að
„laumufarþegi“ væri um borð.
Hafði lögreglan þegar nokk-
urn viðbúnað og sendi vopnað-
ann lögregluvörð út á flugvöll
til þess að taka á móti farþega
þessum. Þar var réttur settur
yfir hinum óvelkomna gesti,
hann dæmdur til dauða og
dauðadómnum fullnægt þegar
í stað.
Hinn ógæfusami laumufar-
þegi var flækingsköttur, sem
komizt hafði inn í flugvélina
ytra án þess að eftir honum
væri tekið. Að ráði dýralæknis
var hræið af kisu brennt.
0 17 Mau-Mau menn voru
drepnir í gær í Kenya, í
bardaga sem háður var við
60—100 manna flokk
blökkumanna.
London í morgun.
Samgönguhorfur gerast æ í-
skyggilegri á Norðurlöndum
vegna ísaiaga. Uti fyrir höfn-
um alira höfuðborganna evu
skip föst í ísnum í tugatali cg
úti fyrir mörgum öðrum höfn-
um og inni í höfnunum sjálfum
sums staðar.
Sums staðar hefur orðið sð
grípa til sérstakra ráðstafana
til þess að flytja áhöfnum skipa
vistir. Hefur þeim verið varp-
að niður úr flugvélum og koft-
um til skipa, sem um hríð hafa
verið föst í ísnum á Oslóaríirði
og víðar. Á Oslóarfirði óttast
menn að siglingar teppist al-
gerlega, þar sem ísbrjótum
gengu æ erfiðlegar að ryðja
skipum braut. Er þá aðeins átt
við siglingar úti í firðinum, með
ströndum frammi er allt fast
í ís. Úti fyrir Gautaborg eru
skip föst í ís, einnig í Stokk-
hólmi og mjög slæmt ástand x
þessum efnum við austurströnd
ina. Helsingjabotn er lagður og
Kyrjálabotn, en stærstu ísbrjót
ar hafa getað hjálpað mörgum
skipum fram að þessu á aðal-
siglingaleiðum.
í dönsku sundunum er á-
standið slæmt. Úti fyrir Kaup-
mannahöfn eru skip föst í ísn-
um, en ísbrjótar hafa verið að
verki á Eyrarsundi og eru þeir
að reyna að ryðja skipunum
braut. Gengur það æ erfiðlegar
þar sem ísinn þykknar með degi
hverjum. ísrek er siglingum til
trafala í beltunum, einkum
Litlabelti. Fjöldi hafna á dönsku
eyjunum hefur lokazt.
Um öll Norðurlönd hafa
menn áhyggjur af horfunum,
en mikill viðbúnaður um flutn-
inga í lofti og aðrar öryggis-
ráðstafanir, ef horfur batna
ekki, en menn vona, að bráð-
lega fari að breytast til batsv-
aðar.
Bezta sjóveð-
ur arsms.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akranesi í morgun.
í dag er bezta sjóveður á ár-
inu til þessa og vona menn, aft
fleiri slíkir dagar fari í kjöl-
far þessa.
Allir bátar eru á sjó, nema
einn, sem er lítils háttar bilað-
ur. Saltskip liggur hér og verð-
ur skipað á land úr því 6—700
smálestum, en hitt fer til Keíla-
víkur. Skipið er með 3000 smá-
lestir.
Brúarfoss fór í gærkvöldi til
Vestmannaeyja. Hann lestaði
hér 250 smál. af freðfiski og
mjöli og um 100 smálestum af
hvalkjöti.