Vísir - 23.02.1954, Blaðsíða 5
Þriðjudaginn 23. febrúar 1954
VlSIR
30 ára samvistir við blólhunda.
IÞeir eru svo þefvísir, að þeir eru
' éskeikuBir sportiuudar.
Effir Leon F.
Undanfarið hafa
Whitney. dýralækni.
blöðin nokkrum sinhum minnzt
það, að nauðsyn væri á að fá hingað hunda, sem leitað
gæti að týndum mönnum. Hafa sumir viljað fá svonefnda
Schafer-hunda, en öðrum finnst það fráleitt, þar sem
þeir séu grimmir og mestu gallagripir. Hér fer á eftir
grein um hunda þá, er þykja beztir til að rekja slóð,
blóðhunda svonefndu, og birtist hún í ameríska tímarit-
inu Keader’s Digest í nóvember-mánuði síðast liðnum.
Það var á þokumyrkri nótt
fyrir um það bil tíu árum, að
tveir fangar struku úr Sing
Sing fangelsi í New York fylki,
myrtu fangavörð og lögreglu-
þjón og lögðu síðan leið sína
niður að svolítilli bátabryggju
við Hudson-fljót.
Þar skipuðu þeir fiskimanni
að róa sér yfir, að snarbröttum
klettum, sem voru á hinum
fljótsbakkanum. Vel má vera,
að menn þessir hefðu sloppið,
ef ekki hefði notið tveggja
mjög sérstæðra leynilögreglu-
manna.
Þegar fiskimaðurinn kom að
bryggju sinni, sá hann tvo
rauðleita hunda, með stór, laf-
andi eyru, hangandi kjálka og
hrukkótt enni. Vel má vera, að
hundar þessir hefðu virzt
grimmir, ef þeir hefðu ekki
verið jafn-hlálega hátíðlegir og
svo líkir hinni gömlu skílgrein-
ingu á blóðhundi: Það er vera,
sem lítur út eins og hundur, en
allur vindur er farinn úr.
Fundust eftir
stutta leit.
Hundarnir tveir toguðu 1
festar sínar, er báturinn kom
upp að, og snuðruðu eftir
þefnum af föngunum, sem enn
var í bátum. Cy Horton lög-
reglumaður, sem sér um hunda
fyrir New York-fylkislögregl-
una, átti fullt í fangi með að
halda aftur af þeim. „Hundarn-
ir fengu þefinn af föngunum úr
rúmfötum þeirra,“ mælti hann.
Jafnskjótt og komið var á
land á hinum bakka fljótsins,
tóku hundarnir að grandskoða
jörðina líkt og nærsýnir pró-
fessorar, sem rýna í smátt let-
ur. Nasirnar á þeim námu við
raka jörðina eins og ryksugur.
Svo tóku þeir til fótanna, hlið
við hlið, upp snarbrattan stíg-
inn.
Allt í einu námu þeir staðar.
Þeir höfðu fundið mannaþef,
sem virtist koma frá grjót-
námi til vinstri. Gat verið, að
fangarnir væru þar? Horton
lögreglumaður treysti hundun-
um sínum. „Gefið ykkur í ljós,
annars skjótum við,“ kalláði
hann.
Og fangarnir birtust og héldu
höndunum upp í loftið. Er þeir
sáu, hvað olíi skjótri handtöku
þeirra, urðu þeir ofsahræddir.
,,Blóðhundar,“ mælti annar
þeirra, og skalf af hræðslu.
Mesti sporhundur
vorra daga.
Það var raunar alveg rétl
hjá þessum föngum að óttasi;
blóðhundana, en ekki vegna
þess, að þeir væru grimmir.
Hreinræktaður . . blóðhundúr
ræðst alls ekki á neinn, heldur
ér hann óskaðlegur og vinsam-
legri en flestir hundar gerast.
Almennt mun svo litið á, að
blóðhundar dragi nafn sitt af
því, sem þeir myndu gera við
bráð sína, væru þeir ekki
bundnir. Þetta er þó alrangt.
Blóðhundar dregur nafn sitt af
því, að hann komi af „hreinu
blóði“, eða hreinu kyni. Slíkum
hundum er jafnsýnt um að hafa
upp á háskalegum strokuföng-
um og að finna lítið barn, sem
hefur týnzt og koma því í hend-
ur foreldra þess.
Blóðhundurinn er mesti spor-
hundur vorra daga. Hann er til
þess fæddur að geta rakið spor
hverrar lifand.i skepnu, allt frá
bjöllu og' upp í dádýr. Hann
rekur þvi aðeins spor manna
sérs:akler a, a' honum sé kennt.
Venjulega byija ég að þjálfa
hunda þannig við eins árs ald-
urs, — því að fyrr eru þeir of
eirðarlausir og fjarhuga.
Eg byrja kennslustundirnar á
því, að eg stilli upp í röð
nokkrum drengjum úr ná-
grenninu. Eg ný soðinni lifur ó
hendur þeirra. í vasa eins
drengjanna hefi eg látið litla
I krukku af lifur. Svo kem eg
. I með hvolp í bandi og leyfi hon-
um að þefa rækilega af ein-
hverri flík þess drengs, sem
hefur lifrarkrukkuna í vasan-
um. Nú á hvolpurinn að þefa
drenginn upþi. Ef hann þefar
uppi annan dreng, og fer þá
eftir lyktinni af höndum hans
í stað fatanna, dangla eg í nefið
á honum. Ef hundurinn finnur
rétta drenginn, fær hann lifr-
ina úr krukkunni. Við alla
þjálfun verður maður að launa
hundinum að leiðarlokum. —
Þess vegna er það, að glæpa-
maður verður stundum hissa,
er hann sér blóðhundinn setj-
ast niður og dilla rófunni með
eftirvæntingarsvip. Hundurinn
er að bíða eftir lifrinni sinni,
— það er allt of sumt.
réttri slóð. Ef hundarnir víkja
af henni, er danglað í þá með
ólinni, sem þeir eru bundnir í.
Oft ljúka drengirnir hlaupun-
um með því að klifra upp í
tré. Mér líkar það vel, til þess
að kenna hundunum að
finna þef, sem andvarinn
ber til þeirra. Eftir um það
bil 30 æfingar, á slóðum sem
er allt að 8 km. langar, er
farið með hundana í annað
byggðarlag, þar sem öðru visi
háttar um landslag, dýr og þef.
Það gegnir furðu, hve leikn-
ir hundarnir eru í því að
finna þef, sem „liggúr í loft-
inu“. Skammt frá líki, sem
fannst á kornakri, fannst jafn-
framt baðmullarglófi verka-
manns. Eg lét hundana mína
þefa af glófanum. Þefurinn
vísaði okkur á kofa -í margra
kílómetra fjarlægð. Fyrir utan
þenna kofa stóð bílgarmur.
Hundarnir höfðu sem sé fylgt
þefnum af manni þessum, enda
þótt hann hefði verið í bíl.
Valið úr
17 manna jiópi.
Þeir kröfsuðu í hurðina á
kofanum. Gömul kona hleypti
okkur inn, en neitaði því að ^
þangað hefði komið nokkur
maður. En hundarnir risu upp
á afturfæturna og ýlfruðu
ámátlega, og sneru nösum upp
í loftið. í loftinu var Llemmur
upp á háaloft. Lögreglumaður
stóð á stól og ýtti hlemmnum
frá. Maðurinn, sem þar lá fal-
inn, játaði á sig morðið.
Atorka velþjálfaðra blóð-
hunda er mér sífellt undrun-
arefni. Charlie Hutchins,
hundaþjálfari, var beðinn ao
hafa upp á nauðgara. Blóð-
hundar hans þefuðu af húfu,
sem hann hafði týnt á ofbeld-
isstaðnum, og fylgdu þefnum
að gistihúsi. Er þangað kom,
teymdu þeir Hutchins inn í
herbergi og þar þefuðu þeir i
allar áttir. Svo hlupu þeh’ í
sameiginlega borðstofu og fóru
rakleitt að tómum stól. Nú
spurðist sýslumaður fyrir um
það, hver maðurinn væri, sem
þarna sæti. Enginn sagði orð.
Meðan þessu fór fram, hafðx
lögreglan handtekið 17 manns,
sem allir hefðu getað framið
glæpinn. Nú var Hutchins að
því spurður, hvort hundar
gætu e. t. v. bent á þann sekg.
Hann sagði, að hann væri ekki
viss um það, svo margar
klukkustundir væru nú liðnar,
og hann væri ekki viss um,
að hundarnir gætu munað
þefinn svo lengi.
Þeim var hleypt inn í her-
bergi þar sem hinir 17 grun-
uðu menn voru. Hundarnir
þefuðu gaumgæfilega af þeim
öllum. Allt í einu nam annar
þeirra staðar fyrir framan
óttasleginn ungling og dillaði
rófunni. „Þetta er maðurinn",
mælti Hutchins.
„Eg hef aldrei séð þennan
hund á ævi minni“, hrópaði
drengurinn.
,,Hann hefur heldur aldrei
séð þig“, mælti Hutchins, ,,en
hann þekkti lyktina af þér“.
Þessi ungi maður játaði brot
sitt.
Hann launaði hund-
inum — og slapp.
Til er sígild saga meðal blóð-
hundamanna af strokufanga,
sem var með lifrakrulcku í
vasanum. Hann var á flótta
undan hundum, sem voru
Igusir. Hundarnir náðu niann-
inum, áður en leitarmenn komu
að.' Fanginn launaðí hundun-
um með lifur úr krukku sinni,
og gekk síðan rólegur á brott.
Þó er það svo, éftir því sem
blóðhundar verða vanari leit-
inni, að þeim finnst hún vera
fyrir öllu, og Uta ekki við
lifrinni.
Eftir frumþjálfun hundanna
fá þeir æfingu á slóðum eftir
drengi, sem ég hef leyft hund-
unúm. fyrst að_þefa af. Eftir
því, >:sem . drengirnir hlaupa,
láta þeir detta smá bréfsnepla
til þess, að hunda-„stjórinn ‘
fái séð, hvort.hundarnir eru á
Lík fundið í brunni.
Venjulega hefur það verið
svo, samkvæmt reynslu minni,
að glæpamaður reynir ekki að
ljúga sig út úr ásökunum, sem
blóðhundar koma fram með.
Þegar honum hefur verið skýrt |
frá því, hvernig hundarnir |
reki slóðina, telur hann sig
vissan um, að allir viti, - að
hann sé sekur. Og sannleikur-
inn er líka sá, að því er ég
tel, að vel-þjálfaður blóðhund-
ur er óskeikull. i
Eitt sinn kom það fyrir, að
gamalmenni, sem hafði hótað
sjálfsmorði á bóndabæ einum
í Massachusetts, hvarf. Hund-
arnir beindu okkur að göml-
um brunni, sem byrgður var
þungum járnbrautar-trjábút-
um. Lögreglan fullyrti, að
hann gæti ekki verið í brunn- !
inum, vegna þess, að hann
gæti ekki með nokkru móti
hafa komizt ofan í hann og
látið trjábútana ofan á á eftir.
En þarna var líkið. Hvernig
maður þessi fór að þessu, veit
ég ekki, en hundarnir vissu,
að líkið var þarna.
Leitað að horfinni konu.
Fyrir nokkrum árum bað
lögreglustjóri í grannborg minni
mig að koma með blóðhund-
ana mína og rekja slóð konu,
sem týnzt hafði. Við komum
löngu eftir miðnætti, og hún
hafði týnzt kvöldið áður.
Maður hennar, vansvefta og
skjálfandi af örvæntingu, fór
með okkur í svefnherbergi
þeirra hjóna. Þar tók ég ólarn-
ar af þeim, lamdi léttilega á
hálsólina, en það táknaði, að
nú ættu þeir að fara af stað.
Svo leyfði ég þeim að þefa
af teppum og lökum í rúminu.
Fyrir utan húsið þefuðu þeir
af gangstéttinni sem óðir væru.
Svo ruddust þeir áfram en
báru höfuðið hátt. Þetta var
skrítin halarófa, sem þarna
ruddist áfram í morgunskím-
unni í þessari litlu borg. Nú
kom hin gamla hrifning yfir
j mig, þessi undarlega tilfinning,
sem ævinlega grípur mig þeg-
ar ég er úti með blóðhundun-
um mínum. Eg fann titringinn
frá hinum skjálfandi, ákafa
hundi mínum leggja til mín
eins og rafmagnsstraum um
strengda ólina. Þessi skepna
var til þess sköpuð að rekja
slóð, það var hennar eina full-
nægja í lífinu og tilveruréttur.
Og ég, sem hvorki sá né skynj-
aði slóðina, sem hann fylgdi
af svo miklum ákafa, gat ekki
nema látið undan, er hann
rykkti í ólina, eins og blind
trú á mætti hans.
„Eg veit, að hún fór niður
að ánni“, kjökraði maður henn-
ar.
En það var eins og hund-
arnir vildu afsanna mál hans,
því að þeir tóku moldarveginn
inn í skóg. „Hundunum hlýtur
að skjátlast“ hrópaði maður-
inn. „Hvers vegna ætti hún
að fara þessa leið? Snúið
hundunum við. Hún fer niður
að ánni.“
| Mér datt í hug á þeirrí
stundu, að vera mætti, að
hann hefði helzt kosið, að
hún hefði farið niður að ánnL
Horft á mannlaust hús.
En hundarnir fóru með okk-
ur að skógarrjóðri, þar sem
verið var að reisa hús. Þeir
horfðu á aðaldyr þess, svo fóru
þeir kringum það, námu stað-
ar við hvern glugga, stóðu á
aftur fótunum með framlapp-
irnar upp í gluggakistunni,
Þegar utanríkisráðherrarnir héldu fúndi i Ai-Berlín, fóru þeir fram í sendiráðsbyggingu
Kússa, cn mynuin liér að ofan er tekin í mót: ökusal byggingarinnar. Myndin í skrautglugg-
anum er f rá Kreml. ,