Vísir - 16.06.1954, Page 2
VISIR
Miðvikudaginn 16. júní 195-t
' A - - •* • ’ • .. ... .. .
Björn Olafsson fv. ráðherra:
Verzlunin fyrsta áratug lý&veldisins.
Verzlunin vex ag verður frjálsari.
Þegar lýðveldið var stofnaðoftast í för með frelsinu. Svo
1944 hafði verzlun íslendinga
hrist af sér alla íhlutun og
áhrif útlendinga, er öldum
saman höfðu ráðið- yfir verzl-
unarviðskiptum landsmannna.
Segja má, að íslendingar hafi
tekið verzlunina að öllu leyti
í sínar hendur eftir 1918, enda
hefst þá þróunarskeið í verzl-
uninni, sem hóf hana á tveim
áratugum á svið alþjóðlegra
viðskipta.
Við stofnun lýðveldisins var
verzlunin því ekki með neinum
nýlendusvip eða viðvanings-
brag. íslenzkir innflytjendur
ráku heimsverzlun, keyptu og
seldu á þeim mörkuðum, þar
sem hagkvæmust víðskipti
búðu. ísl. kaupsýslumenn höfðu
Öðlast þjálfuh og menntun i
starfi sínu og stóðu ekki í því
að baki starfsbræðrum sínum í
Öðrum löndum. Þeir höfðu
varzlunarsambönd um allan
heim og keyptu þar sem verð-
lagið var hagstæðast.
Yerzlunarstéttín
yar viSbóin.
Var því ekki við að búast,
að nokkur bylting yrði hér i
verzlunarháttum um leið og
þjóðin gerðist frjáls og 1>- sti
yfir stofnun lýðveldis sins. —
Aðdragandi þessarra merki-
legu þáttaskipta í sögu lands-
ins, var svo langur, að verzlun-
in fékk tíma til að þróast við
breytileg skilyrði og vaxandi
sjálfstæðd þjóðarinnar. Þegar
svo kom að úrslitastundinni, og
þjóðin átti að sjá sjálfri sér
farborða í öllum greinum, var
verzlunarstétt landsins undir
það búin, að inna af hendi sitt
hlutverk á þann hátt, er sjálf-
stæðri þjóð var nauðsynlegt tii
vegs og framfara.
En bjartsýni og framtak er
reyrtdist það hér. Fyrsti ára-
tugur lýðveldisins mótast af
sjálfstrauSti, starfsgleði og
framtaki landsmanna. Á þessu
stutta tímabili hefur verið svo
mikil vöxtur og gróandi i
þjóðlífinu, að varla verður
jafnað við nokkurt annað tíma-
bil í sögu landsíns. Viðskipti
landsmanna á þessum árum
bera hinn sama svip. Þau háfa
vaxið. Þau hafa eflst. Þau háfa
leitað á nýjar slóðir. Og vel-
megun fylgir í kjölfari heíl-
brigðra og hagkvæmra við-
skipta.
Helmingi meiri
innílutningur.
Árið sem lýðveldið var stofn-
að var innflutningurinn 247
milljónir króna en níu árum
síðar 1953, var innflutningur-
inn kominn upp í 1100 milljónir
króna. Að vísu var gengi
krónunnar lækkað mjög veru-
lega á þessu tímabili, en þótt
tekið sé fullt tillit til þess, er
samt innflutningur síðustu
þriggja ára helmingi hærri að
meðaltali en innflutningurinn
1944. Þetta sýnir vöxtinn í við-
Björn Ólafsson,
er var viðskiptamálaráðherra,
skiptunum og er á sinn hátt
mælikvarði á hið öra athafna-
lif og hinar stórstígu fram-
kvæmdir þessara ára. Þjóðin
naut á þessu tímabili mjög
rausnarlegrar áðstoðar Bandá-
ríkjanna, eins og margar Ev-
rópuþjóðir, og er skylt að
minnast þess með þakklæti. Sú
aðstoð átti sinn þátt í ýmsu sem
her var framkvæmt á þessifei
árum.
En hagstæð þróun viðskipta
landsins út á við, er háð ýms-
um greinum í starfsemi þjóð- '
félagsins. Verzlun getur ekki j
blómgast hér án siglingá. — <
Kaupskipastóll landsmanna j
hefur verið endurnýjaður og •
aukinn síðan lýðveldið var
stofnað. Innlendur kaupskipa-
stóll í siglingum milli íslands
og, annara landa var að stærð
4263 rúmlestir 1944, en í okt.
1952 er hann orðinn 25033
rúmlestir og eru þá flest skipin
ný, eðá byggð eftir 1944. Eim-
skipafélag íslands hefur nú i
siglingum 10 skip, 24480 rúm-
lestir. Sámband ísl. samvinhu-
félaga hefur nú 6 skip, 10,900
rúmlestir. Með þessum aukná
skiþstóli geta landsmenn í
vaxandi inæli annast flutninga
sína sjálfir og er það mikill
gjáldeyrissparnaðuiv íslenzk
skip annast nú flutning á af-
urðum landsmanna til Vestur-,
Austur- og ,Suður-Evrópu, til
fsrael, Brazilíu og Bandáríkj-
anna og flytja vörur frá þess-
um löndum til baka.
Skipastóllinn er undirstaða
heilbrigðra og hagkvæmra við-
skipta landsmanna við aðrar
þjóðir. Hinn nýi skipstóll mun
reynast öflug stoð til fjöl-
breyttra og hagsælla verzlun-
arhátta í framtíðinni.
0?
vörtiskommtim.
Þégar þjóðin fékk fuilt freisi
1944, ríkti margskonar ófrelsi
í verzluninni. Hér höfðu verið
innflutnings og gjaldeyrishöft
óslitið síðan 1931. Þessu skipu-
lagi var haldið við á stríðsár-
unum og aukið með vöru-
skömmtun og verðlagseftirliti.
Lagðist þetta skipulag eins og
mara á margskonar starfrækslu
og framkvæmdir í landinu. Á.
fyrstu árunum eftir stríðið
keyrði úr hófi skriffinnskan og
óþægindin af þessu fyrirkomu-
lági. Var því mjög aðkallanui
að léysá verzlúniná og alian
almenning í landinu úr þessum
viðjum.
Sex árum eftir stofnun lýð-
veldisins var háfizt handa um
að leysa þjóðina undan oki
haftanna. Fyrst var vöru-
skömmtunin íögð niður í áföng-
um. Síðan var mikilí hluti inn-
flutnirigsins gefinn frjáls og
jafnframt var verðlagséftirlitið-
að méstu afnumið. Vaxandi
vöruframboð Var látið skapa
heilbrígt verðlag, enda leið
ekki á löngu þangað til bið-
Frh. á bls. 11.
*
Ein af undirstöðum sjálfstæðrar
verzlunar er eigin skipastóll.
Glæsilegasta skip íslenzka áns er m.s. Gullfoss.