Vísir - 23.06.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 23.06.1954, Blaðsíða 8
VtSIR er ódýrasta blaðið og J>ó það fjol- breyttasta. — Hringið i s<ma 1660 mg gerist áskrifendur. VI8I8 Þei? sem gerast kaupendur VÍSIS eftlr 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypls tft mánaðamóta. — Sími 1660. Miðvikudaginn 23. júní 1954 F.í. efnir tii margra sumar- ieyfisferia á næstunni. Auk þess til vikulegra ferða í Landmannalaugar. Ferðafélag íslands efnir til nokkúrra langferða um og upp úr næstu mánaðamótum. Þær helztu eru sem hér segir: v 1. júlí hefst 12 daga ferð um Norður- _ og Austurland, þar gem heimsóttir verða allir merk ustu staðir og fegurstu á þess- ári löngu og fjölbreyttu leið. Dyalist t. d. dögum saman á Fljótsdalshéraði og daglangt í Mývatnssveit og Kelduhverfi (Ásbyrgi). ' 8. júlí hefst fimm daga ferð um Strandasýslu, Dali og Snæ- fellsnes, að nokkru leyti leiðir, sem Ferðafélagið hefur ekki farið fyrr. - 10. júlí byrjar 6 daga ferð um Kjalveg og Kerlingarfjöll og víðar. Þar sem gist verður all- ár nætur í húsum félagsins. — Geta þeir, sem vilja, stundað skíðaferðir í Kerlingarfjöllum, meðan aðrir aka milli sæluhús- anna og eiga kost á gönguferð- um, stuttum eða löngum eftir vild. 15. júlí verður farið í átta daga ferð um Vesturland, á bíl, bát og ef til vill hestum. Breiðafjarðareyjar heimsóttar, svo og eyjar í ísafjarðardjúpi auk fjölda annarra staða. 14. júlí er ráðgerð 8—9 daga ferð austur í Öræfi, um Suður- sveit, HornafjÓrð og Lón. Er þessi leið ein hin stórfengleg- asta, sem farin verður um byggð ir landsins, sunnan jökla. Far- ið verðUr með skipi til Horna- f jarðar en sennilega flogið heún úr Öræfuhufn. ■24. julí hefst 4ra daga ferð um endilanga Vestur-Skaftafells- sýslu, allt austur að Lómagnúp og Núpsvötnum. Er þessi leið forkunnarfögur og sérkennileg. Um líkt leyti er ráðgerð 7—8 daga ferð inn að Hofsjökli, í Arnarfell hið mikla, en þaðan vestur í Kerlingarfjöll. Farið yrði upp úr Þjórsárdal, en til byggða niður með Hvítá í Hreppum. 31. júlí eru svo ferðir á Kjal- veg, vestur á Breiðafjörð og í Landmannalaugar eins : og venjulega um verzlunarmanna- 1 helgina. J Þeir sem hafa í hyggju að notfæra sér ferðir Ferðafélags . íslands, eru hvattir til að trýggja sér far í tíma hjá fé laginu, því óvíst er' hvernig gengur að útvega farkost, sé ékki vitað um þátttöku fyrr en undir það síðasta. Auk þessata leiða, sem hér hafa verið nefndar eru þessar ' ferðir í júlí: | í Landmannalaugar um 1 hverja helgi. Hekluferð 3. júlí. Þórsmerkurfor 10. júlí. Hring- iferð um' Borgarfjörð 17. júlí. I Ferð á Skjaldbreið 24. júlí og svo ferðir um verzlunarmanna- helgina, sem áður getur. ; J Ferðaáætlunin 1954 greinir nánar frá öllum þessum ferð- um. Hennar ættu félagar F. í. að.vitja á skrifstofu félagsins. Túngötu 5, sími 3647. Þar er og hægt að fá allar nánari upp- lýsingar um ferðir félagsins í sumar. Kierioginn af ara i gær. ■ , • Einkaskeyti frá AP. London í gær. Hertoginn af Windsor, fyrr- verandi konungur og föðurbróð ir Elisabetar drottningar, átti kyrrlátan afmælisdag í dag. Hertoginn er nú sextugur, iðkar oft golf, en lifir kyrlátu lífi og bregst illa við, ef blöðin reyna að gera sér mat úr einka- lífsviðburðum hans og konunn- ar — einkum konunnar. Fyrir nokkrum dögum birti hertoginn í.París hvassyrta til- kynningu út af greinaflokki, iSem Sunday Express flytur, og segir í henni að í fyrstu grein- inni hafi verið margar staðhæf- ingar, sem hafi ekki við neitt að styðjast. 3 greni hafa fundizt hér nærlendis siðustu dagana. Þau hafa verið uiinin að nokkru. Fyrir nokkru fannst annað grenið á sumrinu á Mosfells- heiði. Það voru þeir Tryggvi Ein- arsson í Miðdal og Sveinn son- ur hans, sem fundu það. Bæði dýrin og 7 yrðlingar náðust en talið er, að eitthvað muni hafa orðið eftir af yrðlingum, og fór Sveinn aftur til þess að athuga það. Nýlega fundu Egill Jónasson og fleiri greni í Esju. Á mið- vikudagsnóttina náðist læðan en refurinn er styggur, og hafði hann ekki náðst, þegar síðast frétti.st, cr ekki heldur yrðling- arnir. i leitinni er haldið á- fram. Eitt uppi j. dýrið. ' Réfu fjölgan ekki haídl ú hefir svo fundizt !. i qs og náðist annað n virðist heldur fara >„ ár. .virðast þéir ■mikií byggð hér nærlendis og í fyrra. Leitinni verður haldið áfram að minnsta kosti þenna mánuð. Talsverður hörgull virðist vera á vönum refaskyttum, og er það | mjög bagalegt. I Guðbjörn Einarsson, bóndi á Kárastöðum í Þingvallasveit, ! hefur svipazt eftir grenjum þar 1 í grennd, en ekki fundið. Hins | vegar heyrði hann í ref fyrir I rúmri viku — að næturlagi — | tók byssu sína og skaut .dýrið i á hrauninu fyrir neðan bæinn. Norðlendingar telja, að ref- ; um fari fækkandi með hverju j ári, en þó hafa tvær refaskytt- ! ur í Eyjafirði fundið fimm greni ! í vor. Ottó Guðnason fann þrjú ! á Svalbarðsströnd og náði flest- um dýi'unum, en Steingrímur j Þorsteinsson frá Dalvík fann og ■ vann tvö greni — annað í Ól- afsfjarðarmúla og. hitt í Ytra- .Iloltstíal. Eins og Vísir gat um, nauðlentu tveir íslenzkir flugmenn lítilli Tiger Moth-flugvél á Hítarvatni fyrir skemmstu. Komust þar af lítt meiddir, en bandarísk þyrilfluga af Keflavíkurvelli sótti þá upp eftir og flutti til Reykjavíkur. Mynd þess er tekin við komuna hingað. Frá vinstri: Ingimar Sveinbjarnarson, Keykja- vík, Ríkharður Jónatansson, Hólmavík, Edward J. Duncan, höfuðsmaður frá Weymouth, Mass., og John, A. Alberti höfuðsmaður frá Santa Rosa, Kaliforníu, en þeir flugu Silkorski- þyrilflugunni, sem sótti þá Ingimái* og Ríkarð. Landsliðskeppnin i skák a5 hefjast. Landsliðskeppniin í skák hefst hér í Reykjavík um næstu helgi. Enn er ekki vitað hvernig j þátttakan verður, en almennt. er búist við mikilli þátttöku og að flestir heztu skákmenn vorir skrái sig til képpninnár. Til mála hefur komið oð flokkur íslenzkra skákmanna fari á alþjóðamót, sem háð verður í Argentínu í haust. Mót ið verður háð í Buenos Aires og er þar um flökkakeppni að ræða. Lágmarks þátttaka frá hverri þjóð eru fjórir menn. Ef af ferð þesari verður, verður landsliðskeppnin, sú er nú fer í hönd, eins konar próf- keppni fyrir hana. Núverandi skákmeistari ís- lands er Friðrik Ólafsson, en vegna fjarveru sinnar getur hann ekki tekið þátt í mótinu. Ný Kóreuráðstefna ólíkleg. Geta Suður-Kóreumenn og Bandaríkjamenn átt samleið um aðgerðir? Einkaskeyti frá AP. — Mikið hefur verið um þaö rætt meðal stjórnmálamanna hér hverjar afleiðingar það muni hafa, að slitnaði upp úr samkomulagsumleitunum um Kóreumálið. Meðal þeirra, sem látið hafa áit sitt í ljós, er Pyun, utan- ríkisráðherra S.-Kóreu, en mik ið er talið undir afstöðu stjórn- ar hennar komið. „Eg get ekkert um það sagt,“ sagði hann við fréttamenn, „hvort við grípum til hernaðar aðgerða eður ei, en hitt get ég sagt yður, að Suður-Kóreu- stjórn hefur um nokkurt skeið talið sig hafa fulla heimild til hvers konar aðgerða, sem hún telur þörf á. Við undirrjtuin ekki vopnahléssáttmálann. Við lofum aðeins að gera ekkert til þéss að spilla fyrir framkvæmd þess ákvæðis hans, sem fjallar um st j órnmálaráðstefnu um Kóreu — ákveðinn tíma, en sá tími er löngu liðinn.“ Pyun var spurður um álit hans á afstöðu Bandaríkjar.ria, hvort þau mundu fylgja S.uð- ur-Kóreu að málum, ef hún gripi til sérstakra aðgerða. „Varnarsáttmáli Bandaríkj- anna og Suður-Kóreu hefur sín ar takmarkanir,“ sagði Pyun. „Við höfum okkar skilning á samkomulaginu, Bandaríkja- menn sinn. Eg mun ekki leitast við að gera grein fyrir afstöðu og skilningi þeirra, en það er vitanlega undir þeim skilningi komið, hvort þeir eiga samleið með okkur.“ Pyun kvað svo að orði, að hann teldi ekki líklegt, að.hald in yrði önnur Kóreuráðstefna, Börnunt boiíö á skemmt un Josephine Baker. Tívólí, skemmtigarður Reyk- víkinga, býður í dag 800 börn- um á aldrinum 5—12 ára, í Austurbæjarbíó kl. 3 til þess að sjá og hlusta á Josephine Baker. Þetta er hvorttveggja, höfð- inglegt boð, og fágæt skemmt- un fyrir börnin. Þá er þess ó- getið, að sælgætisgerðin Nói mun gefá hverju bami sæl- Josephine Baker er mikiil barnavinur, og sjálf á hún sex uppeldissyni frá fimm þjóðam. Hún ætlar að syngja og dansa fyrir börnin, en jafnframt væri gaman, ef einhver börnin döns uðu sína barnadansa líka og ætlar hún að veita verðlaun fyrir. Flotaforingi A.-banda- lagsins staddur hér. Jerauld Wright, yfirflotafor- ingi Norður-Atlantshafsvarnar bandalagsins á norðanverðu At antshafi, er hér staddur. Hann gekk í morgun. á fund forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra og sat þar næst há- degisverðarboð iorsætisráð- herra. Brezk flugvél af Dakotagerð hrapiið'i til járðar í Kenya í morgun. Hún var á ieið til eyjarinnar Möltu. — Lík- legt er að 7 menn hafi beð- ið bana. BeÓið frétta af Bernarfundiniffli. Hinir hernaðarlegu fulltrúar beggja aðila, sem fjalla eiga uni stöðvun vopnaviðskipta í Laos og Cambodiu, hafa ekki ræðst við enn. Hernaðarlegu nefndirnar fengu sem kunnugt er þriggja vikna starfstíma og skyldu þær þá skila áliti. Þykir þetta slæm byrjun. Hér bíða menn óþreyju fullir fregna um fund Mendes- France og Chou En-lai, sem haldinn verður í Berrt í dag. „Svarta höndin" Casablanca í morgun. Réttarhöld eru byrjuð hér yf- ir 60 mönnum úr léynifélags- skap illvirkja, sem nefnist „Svarta höndin“. Hinir handteknu eru sakaðir um morð og rán, íkveikjutil- raunir í opinberum byggingum og hvers konar glæpi aðra og hryðjuverk. Efnt til hópferða héðan til að skoða sóimyrkvann. Farið að Dyrhólaey og Krossi í Landeyjum. Þegar sólmyrkvinn gengur yfir þann 30. þ. m. verður cínt tii nokkurra ferða á þá staði til þess að ræða tillögur Chou þar sem aímyrkt verður hér á En-lai. „Það er skökk ályktun, ■ landi. að vænta árangurs af viðfæð- um, eftir að samkomuiagsum- leitanir nú fóru út um þúfur. Heimurinn er þreyttur á stríði, þreyttur á ráðstefnum, jafnvel þreyttari en á þögninni. Ný ráð stefna yrði kannske aðeins til þess að leiða enn betur í Ijós, h.ve vejk samvinna frjálsu-þjóð' anna er,“ Ferðafélag íslands efnir til tveggja ferða, Verður önnur þeirra austur að Dyrhólaey og lagt af stáð í hana kl. 7 á þriðju dagskvöldið þann 29. þ. m. — Verðui gistí eystra og komið heim að kvöldi þess 30. Hin ferðin hefst að morgni þes ii). þ. m.' austur að Krossá ! ívj u.m og komii að kvöldi sama dags aftur. Náttúrufræðifélagið efnir einnig til ferðar austur að Dyr- hólaey þriðjudagskvöldið 29. þ. m. Þar verður svo gist í tjöld- um um nóttina og síðan beðið þar til sólmyrkvinn gengur yf- ir, sem er um kl. 12 á hádegi eftir íslenzkum sumartíma. Að; því búnu verður ekið til Víkur, en þeir sem óska geta gengið; yfir Reynisfjall. Á heimleið verður staðnæmst við Selja- landsfoss og kaniíð til' Rvíkur um kvöldið

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.