Vísir - 30.06.1954, Side 8
VtSIB er ódýrasta blaSiS og þó það fjöl-
fcreyttasta. — Hringið í i(ma 1S60 *g
gerist áskrifendur.
Þeir sem gerast kaupendur VÍSIS eftit
10. hvers mánaSar fá blaðið ókeypis tit
mánaðamóta. — Sfmi 1660.
Miðvikudaginn 30. júní 1954.
Aflinn:
217,969 lestir
í maíloL
Samkvæmt upplýsingum, sem
Vísir hefur fengið fra Fiski-
félagi Islands, nam heildar-
aflinn í maílok 217.969 lestum
eða yfir 32 þús. lestum meiri
en á sama tíma í fyrra.
Þá nam aflinn 185.108 lest-
um. Þyngd aflans er miðuð við
slægðan fisk með haus, að sild
og fiski undanskildum sem
veginn er upp úr sjó.
Saltfiskurinn —
1000 lestum meiri en í fyrra.
Þá hefur blaðið fengið þær
upplýsingar frá Fiskifélaginu,
að 15. þ. m. hafi saltfisksaflinn
numið 31.887 lestum. í fyrra á
sama tíma nam hann 30.833 og
er því 1054 lestum meiri nú en
þá. Miðað er við fullstaðinn
saltfisk.
Heimiiisfönaðarsýning
opnuB á Akureyri í gær.
Akureyri í gær.
f gærdag var opnuð merkileg
heimilisiðnaðarsýning á Akur-
eyri, þar sem sýndur er mikill
fjöldi fágætra, fagurra og
merkilegra muna, gamalla sem
nýrra úr Eyjafirði.
Meðal annars hafa ýmsar
eyfirzkar konur lánað muni á
sýninguna og eru margir þeiri a
sérstakir að allri gerð og hinir
fegurstu. Til gamalla merki-
legra muna má og telja nokk-
ura skautbúninga frá Lauga-
landsskólanum gamla.
Sýning þessi er haldin í til-
efni af 40 ára afmæli Sambands
norðlenzkra kvenna. Er hún tii
húsa í Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar og var opnuð kl. 2 í gær.
Formaður Sambands norð-
lenzkra kvenna, Halldóra
Bjarnadóttir, bauð gesti vei-
komna, en að því búnu opnaði
forseti íslands, hr. Ásgeir Ás-
geirsson sýninguna með ræðu.
'• Kjarnorkunefnd Bandaríkj-
anna hefur birt yfirlýsingu
um, að kjarnorkufræðingur-
inn Oppenheimer fái ekki
framar aðgöngu að skjölum
nefndarinnar, vegna kunn-
ingsskapar við kommúnista
og skapgerðarveilna.
Á myndinni eru, frá v: Haraldur Guðmundsson, Keflavíkurflug-
velli, Geir Halldórsson, Reykjavíkurflugvelli, Arnór Hjálmars-
son, Reykjavíkurflugvelli, Valdimar Ólafsson, Reykjavíkur-
flugvelli, Hrafnkell Sveinsson, Akureyrarflugradíó.
J*
Islendingar beztu erlendu
nemendurnir.
Þíálíaðir verða 47 íslendingar í
tækni flugvallarekstrar i Amerikn.
S.l. haust fóru tíu íslending- arnir stunduðu námið með mjög
góðum árangri, fengu þeir yfir-
ar vestur til Bandaríkjanna til
þjálfunar í tækni flugvalla-
rekstrar.
Fimm þéirra nutu tilsagnar
við flugumferðarstjórn, þrír í
flugumsjón, einn við slökkvi-
liðsstörf og einn í radíó- og
radartækni.
Er þetta nám í samræmi við
samkomulag milli íslands og
Bandaríkjanna frá 1949.
Samkvæmt samkomulagi var
gert ráð fyrir að þjálfaðir þjóðunum.
skyldu samtals 47 menn í þessu
skyni. Nú þegar er búið að
þjálfa 38 og síðasti hópurinn,
en í honum eru 9 menn, fer
vestur til þjálfunar í byrjun
næsta mánaðar. Eru það 8 flug-
umferðastjórar og einn flug-
umsjónarnemi.
fslenzku flugumferðastjór-
leitt hæstu fáanlegar einkanir
í öllum námsgreinum. Var það
álit stjórnenda skólans, að betri
hópur erlendra námsmanna
hefði aldrei komið að skólan-
um.
Hinn frábæri árangur fimm-
menninganna sýnir, að íslandi
hefur tekizt að koma upp flug-
liðastétt, sem er fyllilega sam-
bærileg við það bezta með stór-
Kossinn var
banvænn.
Tokyo (AP. — Kona
nokkur, 27 ára gömlu, hefur
verið dæmd í 4ra ára fang-
elsi fyrir morð á manni sín-
um. Blandaði hún eitri í
sódavatn, tók síðan sopa af
því, og er hún kyssti mann
sinn að því búnu, lét hún
hann gleypa eitrið. Vita
menn ekki til þess, að morð
hafi nokkru sinni verið
framið með þessum hætti.
Akuraesingar bera
uppi landsliðið.
Diem kominn til Indókína.
Bao Dai keisarl veitti honum „fulit" vald.
Einkaskeyti frá AP. —
Saigon í fyrradag.
Ngo Dinh Diem hinn nýi
forsætisráðherra Vietnam kom
hingað í gær til þess að taka
við stjórnartaumunum.
í 15.000 km. fjarlægð (Genf)
var þá enn haldið áfram við-
ræðum, sem örlög lands hans
kunna að vera undir komin.
Diem, sem er 53 ára, hafdi
meðferðis skipun undirritaða af
Bao Dai keisara, þess efnis, að
allt stjórnmálalegt og hernað-
arlegt vald í Vietnam hafi verið
fengið í hendur Diem.
Hann hefur hafizt handa um
KraJ ráðherra í stjóín sína. Þaö
ff
hlutverk er erfiðleikum bundið,
þar sem bæði er um mikinn
stjórnmálalegan ágreining að
ræða, og trúarlegan, sem sam-
tvinnast hefur öðrum ágrein-
ingsmálum.
Áður en Diem fór frá Frakk-
landi ræddi hann við Bao Dai
keisara og Mendes-France for-
sætisráðherra, svo og við ráð-
herra þann, sem fer með mái
Indókína, Guy la Chambre.
Diem er sagður vera í flokki
þeirra, sem vilja efla andspyrn-
una sem mest gegn kommún-
istum, til þess að fá sterkari
aðstöðu til samkomulags við þá,
en hún er nú veikari en hún
hefur nokkurn tíma verið áður
Sjö Akurnesingar verða í
landsliðinu, sem keppir við
Norðmenn * knattspyrnu á
sunnudaginn kemur, en 4 úr
Reykjavík.
Liðið er þannig skipað; taíið
frá markverði til vinstri út-
herja: Magnús Jónsson (F),
Karl Guðmundsson (F), Einar
Halldórsson (V), Sveinn Teits-
son, Dagbjartur Hannesson,
Guðjón Finnbogason, Halldór
Sigurbjörnsson, Ríkarður Jóns-
son, Þórður Þórðarsson, Pétur
Georgsson allir af Akranesi, og
Gunnar Gunnarsson (V).
Eftirfarandi yfirlýsingu frá
K.S.Í. hefur Vísir verið beðinn
að birta.
„Stjórn Knattspyrnusambands
íslands óskar af gefnu tilefni
að upplýsa að Karl Guðmunds-
son hefur afsalað sér launum
sínum sem þjálfari K.S.I.,
þannig að hann heldur áfram
fullum rétti sem áhugaíþrótta-
maður. — Stjórn KSÍ.“
Sóbnyrkvaranifsöknir á Hjalt-
landi vegna olídeitar.
Gíf urlegur viðbúnaður vísindamanna
á svæði frá Ameríku til Pakistan.
Einkaskeyti frá AP. —
Loiidon í gær.
Vísindamenn fjölmargra
landa eru í dag önnum kafnir
við að koma fyir mælitækjum
sínum vegna sólmyrkvans,sem
Grasmaðks ekki
vart í vor.
Grasmaðks hefur ekki orðið
vart í vor svo teljandi sé, að
því er Geir Gígja tjáði blað-
inu eða ekki síðan 1950—1952,
er hann olli miklum skemmd-
um í A-Skaftafellssýslu og þá
aðallega á Síðu, einkum í út-
haga.
Grasmaðkurinn þrífst bezt í
illa ræktaðri mosa- og vallend-
isjörð og eyðir þar öllu grasi.
Tún eru víðast orðin svo vei
ræktuð að maðkurinn nær ekki
að valda þar tjóni.
Bezta ráðdð gegn grasmaðk-
inum er því góð ræktun.
Þegar vart verður við gras-
maðk eru gerðar ýmsar ráð-
stafanir. Helzta ráðið til að út-
rýma honum er að grafa ca.
25 cm. djúpan skurð, því eins
og kunnugt er skríður maðk-
urinn alltaf í sömu átt, og
skríður þá niður í skurðihn. —
Einnig má nota ýms lyf; svo
sem lýsól og DDT. Tröllamjöl
er einnig gott til að eyða mos-
anum, svo að grasið geti vaxið
og gróðurinn aukist.
Álfabrekkuinn-
brotið upplýst.
Tveir menn hafa játað á sig
innbrot það, sem framið var í
verzlunina Álfabrekltu við Suð
urlandsbraut.
Brotizt var inn í verzlunina
þessa aðfaranótt s.l. laugardags
og stolið peningakassa, tóbaks-
vörum o. fl., eins og Vísir hef-
ur áður greint frá. Samkvæmt
upplýsingum rannsóknarlög-)
reglunnar sitja tveir menn nú
í varðhaldi vegna innbrotsins, i
og- hafa þeir báðir játað það-áj
sig. Þeir.hafa báðir .komizt und- j
ir mannn hendur. áður. . \
Ritvélar skulu
skrásettar.
Einkaskeyti frá AP.
Miinchen í gær.
Útvarpsstöðin Radio Free
Europe hefur skýrt frá því,
að kommúnistastjórnin í Ung
verjalandi hafi fyrirskipað,
að allar ritvélar í landinu
skuli skrásettar. Jafnframt
tekur lögreglan sýnishorn af
letri allra vélanna, svo að
hægt sé að ganga úr skugga
um uppruna leynibréfa, sem
send kunna að verða. Allir,
sem hafa á hendi sölu, dreif-
ingu og viðgerðir á ritvélum,
verða að gefa lögreglunni
skýrslur um starfsemi sína.
Akureyrarskip bú-
ast á síldveiðar.
Frá fréttarif^a Vísis
á Akureyri.
Síldveiðiskip frá Eyjafirði eru
nú óðum að búast á síldveiðar.
Frá Akureyri fara togarinn
Jörundur, Snæfell, Súlan, Akra
borg, Auður, Njörður, Stjarnan
og Sæfinnur. Enn fremur Garð
ar og Gylfi frá Rauðuvík á Ár-
skógströnd, Vonin og Vörður
frá Grenivík, og Ingvar Guð-
jónsson, skráður að Kaupangi.
Þátttaka í íslandsmótinu.
í gær lagði af stað til Rvíkur
15 manna knattspyrnuflokkur
úr félögunum K.A. og Þór óg
mun hann faka þátt í keppni
í 17 f.lokki á íslandsmótinu.
verður á mjóu belti frá mið-
vesturríkjum Bandaríkjanna
austur yfir Atlantshaf, um,
Skandinavíu og austur til
Pakistan á morgun.
Margháttaðar mælingar fara
fram í sambandi við sólmyrkv-
ann. Meðal annars munu vís-
indamenn frá olíufélaginu
Anglo-Iranian verða á Hjalt-
landi til þess að verða einhvers
vísari um olíubirgðir neðan-
jarðar, með sérstökum mæling-
um í sambandi við sólmyrkv-
ann, sem er alger á Hjaltlandi.
Þá munu amerískir vísinda-
menn mæla nákvæmlega fjar-
lægðir yfir úthöfin í samb. við:
tunglskuggannjslíkar mælingar
eru sagðar geta haft þýðingu
vegna eldflaugasendinga yfir
höfin, hvort heldur vegna ófrið-
ar eða til þess að flytja pósc
milli heimsálfa.
í London verður sólmyrkvinn
ekki alger, heldur munu um
% sólar myrkvast. Síðasti al-
geri sólmyrkvi, sem sást á
Bretlandi var 29. júní 1927, en
sá næsti verður ekki fyrr en
árið 2135.
Frá Stokkhólmi herast þær
fregnir, að yfir 1000 stjörnu-
fræðingar frá 13 þjóðum séu
komnir til Svíþjóðar til þess aö
athuga sólmyrkvann, sem þar
stendur í 2% mínútu. Gert er
ráð fyrir, að íbúafjöldi þess
svæðis í Svíþjóð, sem sól-
myrkvinn verður alger á, múní
aukast um hálfan milljón á
morgun, en svæði þetta er um
15 km. breitt. Næsti algeri sól'-
myrkvinn í Svíþjóð verður
ekki fyrr en 2126.
Slysfarir í gær.
í gær varð allmikið um um-
ferðarslys hér í bænum.
Eins og skýrt var frá hér í.
blaðinu í gær slösuðust þrjár
konur í strætisvagna árekstri
á mótum Skólavörðustígs og.
Óðinsgötu í gærmorgun.
Alvarlegt umferðarslys varð
eftir hádegi í gær er drengur,,
Hinrik Jafetsson Suðurlands-
braut 79, varð fyrir bifreið a
Suðurlandsbraut og hlaut
heilahristing. Var hann fluttur
á Landsspítalann.
Á fjórða tímanum í gæi
klemmdist 4 ára gömul telpa
á strætisvagnahurð og meiddist
illa á tveimur fingrum. Hún
var flutt á Landsspitalann til
aðgerðar.
Á miðjum Skólavörðustíg
varð slys um hálfníuleytið í
gærkveldi, er maður féll af
reiðhjóli og skarst á höfði.
Hann var fluttur á Læknavarð-
stofuna þar sem gert var að
sárum hans.
Bifreið og bifhjóli stolið.
í gær var vörubíl stolið, R-
3166, frá Vörubílastöðinm
Þrótti. Ennfremur var bifhjóli
með hjálparvél stolið í gær, en
það fannst skömmu síðar.
Olvun við akstur.
í nótt handsamaði lögreglan-
ölvaðan bifreiðarstjóra viðl
akstur.