Vísir - 28.09.1954, Síða 4
4
VfSIR
Þriðjudaginn 28. september 1964
WfiSIH
D A G B L A Ð
Ritstjóri: Hersteinn Pálsson.
Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson.
Skrifstofur: Ingólfsstræti 3.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Frá IVámsflokkum Reykjavíkur:
T ungumálakennsla með kvik-
myndum og segulbandstækium.
Kennsla tekin upp í nokkurum
greinum. seni ekki iiafa ádui*
verið kenudar.
Kjarnorkumálin á dagskrá.
'k undanförnum allsherjarþingum Sameinuðu þjóðanna hafa
kjarnorkumálin verið einna efst á baugi, og er það ekki
nema eðlilegt. Þessi mál verða enn til umræðu á þingi því,
sem settist á rökstóla í vikunni sem leið, og er ekki sýnt, að
neins verulegs árangurs sé að vænta að þessu sinni frekar en
á fyrri þingum.
Orðsendingar hafa hinsvegar farið milli Bandaríkjamanna
og Rússa um þessi mál, hin síðasta frá Rússum í vikunni sem
leið, og þær sýna, að ekki hefur dregið til samkomulags með
þessum forustuþjóðum austurs og vesturs. Að áliti Banda-
ríkjanna á fyrst að hefja samvinnuna á sviði kjarnorku til
iðnaðar og í friðsamlegum tilgangi, en síðan á næsta skrefið að
vera að banna kjarnorkuvopn, framleiðslu þeirra og notkun.
Rússar vilja hafa aðra aðferð til að komast að markinu, þeir
vilja byrja á því að banna öll kjarnorkuvopn, og síðan á að
hefjast handa um að boita þessari orku í þágu friðsamlegrar
starfsemi.
Þarna stendur hnífurinn í kúnni, því að hvorugur aðili vill
ihverfa frá sinni skoðun, og er því hætt við því, að kjarnorku-
notin og hættan af kjarnorkustríði hvíli á mannkyninu sem
:mara enn um hríð. En í umræðunum um þetta úti um heim, er
það einkum eitt atriði, sem talsverð áherzla er lögð á, og það er
eftirlitið, sem hafa þarf í þessu efni, hvor leiðin sem yrði farin
xim síðir, hvort sem Bandaríkjamenn fallast á sjónarmið Rússa
eða öfugt.
' Hvernig á að haga eftirlitinu? spyrja menn. Er nokkur
trygging fyrir því, að unnt verði að framkvæma eftirlit eð því
er Rússa snertir? Er nokkur vissa fyrir því, að eftirlitsnefnd,
sem sett yrði á laggirnar, yrði frjáls ferða sinna í Rússlandi,
svo hún gæti gengið úr skugga um, að ekki væri einhversstaðar
^nnið að kjarnorkuframleiðslu, sem yrði ekki í samræmi við
þær alþjóasamþykktir, sem gerðar kynnu að vera um þetta?
Og vitanlega eru þetta mjög mikilvægar spurningar, svo mikil-
yægar, að allur árangurinn getur oltið á þeim.
I Hingað til hafa Rússar ekki verið frjálsir ferða sinna innan
lands síns og allir vita, hverjar hömlur hafa verið lagðar á
ferðalög útlendinga þar, svo að jafnvel erlendir sendifulltrúar,
sem njóta hvarvetna mikilla forréttinda, hafa verið að heita
má réttlausir og ekki mátt hreyfa sig úr Moskvu nema með
sérstöku leyfi. Á þessu mundi þurfa að verða mikil breyting,
til þess að eftirlit yrði eitthvað annað en nafnið tómt, að því
er Rússa snertir.
Þegar á það er litið, hvernig um hnútana er búið í þessum
efnum í Rússaveldi er ekki nema eðlilegt að menn beri nokkurn
kvíðboga fyrir því, að samningar við Rússa um kjarnorkumálin
yrðu næsta haldlitir, enda þótt fögur orð yrðu látin fylgja, eins
og vera ber við hátíðleg tækifæri. En ef samvinnan yrði á þann
veg, að framleiðsla kjarnorkuvopna yrði bönnuð og hægt að
framfylgja banninu með öruggu eftiiiiti, yrðu það merkustu
fréttir um langt skeið.
Ver&lækkun á kaffi.
Kaffi lækkaði aftur í verði í gær, og mun það vera hin mesta
gleðifregn fyrir alla, því að svo gífurlega var hækkunin,
sem kom til framkvæmda fyrir fúum vikumi; Er þetta gert
vegna þess, að kaffi hefur aftur lækkað í verði á heims-
tnarkaðnum, og það kaffi, sem keypt verður til landsins. næst,
verður mun ódýrara ,í innkaupum en það, sem landsmenn hafa
drukkið undanfarið.
Eins og menn muna reis deila við hækkun kaffiverðsins síð-
ast, einkum milli ríkisstjórnarinnar og rauðu flokkanna, en
þeir héldu því fram, að ríkisstjórninni hefði borið skylda til að
halda kaffiverðinu niðri samkvæmt desembersamkomulaginu
1952. Ríkisstjórnin mótmælti því, að gengið hefði verið á
gerðasamninga, og bauðst til að leggja málið í gerð. Það vildi
stjórn Dagsbrúnar ekki, þar sem hún taldi, að málið lægi í
augum uppi. Menn hins góða málstaðar hefðu þó ekki átt að
skorast undan því. Og vegna þess er það heldur óviðkunnan-
legt, er Þjóðviljinn talar um það í gær, að ríkisstjórnin hafi
verið kúguð í þessu máli. En annars er kannske ekki að vænta
Úr þeirri átt.
N ámsf lokkar Reyk j avíkur
taka til starfa um mánaðamótin
og er innritun þegar hafin.
í fyrra var kennt í rúmlega
40 flokkum og voru nemendur
þá 850 talsins, en það hafa þeir
orðið flestir frá því er Náms-
flokkarnir tóku til starfa.
Eins og áður er kennt á
kvÖldin kl. 7.45—10.20 og eru
kenndar þar flestar eða allar
þær námsgreinar, sem kenndar
hafa verið undanfarin ár, svo
sem tungumál, allskonar
handavinna, bókmenntir, vél-
' ritun, bókfærsla, reikningur o.
fl.
Ágúst Sigurðsson forstöðu-
maður Námsflokkanna hefur
skýrt Vísi frá nokkurum ný-j
ungum, sem teknar verða upp
í vetur. Þar á meðal verður
kennsla í föndri, þar sem
kennt verður að búa til leik-
föng úr ódýru efni fyrir krakka,
jólatrésskraut o. fl.
Þá hafa Námsflokkarnir
fengið kvikmyndasýningarvél,
til þess að sýna einfaldar mynd-
ir með atburðaröð í sambandi
við tungumálakennslu. Kenn-
arinn skýrir myndirnar á er-
lendu máli um leið og’ þær
verða sýndar, en að því búnu
verða myndirnar sýndar aftur
og er þá ætlast til að nemend-
urnir taki við af kennaranum
i og skýri- myndirnar sjálfir,
enda hafa þeir þá áður fengið
samhengi milli orðs og myndár.
Námsflokkarnir hafa segul-
bandstæki til þess að láta
tungumálanemendur tala inn á.
En þegar þeir eru búnir að tala
inn á bandið verður það spilað
fyrir þá, svo þeir geti heyrt
hvernig framburðurinn er og
leiðrétt sig á því sem aflaga fer.
Latína var kennd áður innan
Námsflokkanna. en hefur legið
niðri um tvö ár. Nú verður hún
meðal námsgreina á komandi
vetri.
Þá verður tekin upp kennsla
í norsku í vetur sem ekki hef-
ur verið kennd áður.
Nýr liður er einnig kennsla
í erlendum bókmenntum.
Verður henni hagað þannig að
lesnir verða með þátttakend-
um úrvalskaflar á ensku,
þýzku og einhverju Norður-
landamálanna, efnið síðan
skýrt og farið lítilsháttar yfir
þá bókmenntastefnu, sem ligg-
ur til grundvallar hverju sinni.
Athygli skal vakin á sálar-
fræði, sem kennd verður innan
Námsfiokkanna og sérstaklega
er ætluð uppalendum. Kennd
og kynnt verða helztu atriði
sem þeim mega að gagni koma
við uppeldi og unnt verður að
skýra í stuttu máli.
Sú breyting verður gerð á
tilhögun í tungumálakennslu
svokallaðra X-flokka, en það
eru gagnfræðingar og aðrir
með tilsvarandi menntun sem
halda vilja áfram námi. að
kennt verður tvisvar í viku
(alls 3 klst.), í stað fjórum
sinnum (4 klst.) áður.
mMllHMM
Málarar vinna framvegis
aðeins eftir verðskrá.
Það fvrirkomulag gildir írá 1. okf.
Málarameistarafélag Reykja-
víkur, hefir tilkynnt há breyt-
ingu á reikningsaðferð fyrir
vinnu, að frá 1. október verður
öll málaravinna einungis fram-
kvæmd samkvæmt verðskrá,
eða eftir uppmælingu.
Hingað til hefir verið unnið
jöfnum höndum eftir verðskrá
og tímavinnu, en nú verður
tímavinnan alveg lögð niður.
Þó að málárameistarar hafi
unnið að einhverju leyti sam-
kvæmt verðskrá hafa sveinar
alltaf unnið hjá þeim í tíma-
vinnu. Það komu því snemma
fram raddir hjá sveinafélaginu,
að sveinar létu semja sérstaka
vinnuskrá fyrir sig. Ræddu fé-
lögiri þetta síðan innþyrðis.
I i ; ? . : t jl ttí'
Timávinna hefir verið með
ýmsum annmörRum, einkum
síðari ár, vegna breytinga á efni
og vinnuaðferðum og einnig
vegna mikilla f jarlægða í bæn-
um o. fl., og þá var ekki hægt
að ákveða fyrirfram, hve mikið
verkið kostar, eins og nú verður
hægt með uppmælingum.
Við samningu hinnar nýju
verðskrár hefir aðallega verið
stuðzt við verðskrá málara-
iðnanna í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð.
Mælingafulltrúi félaganna
verður Ólafiu’ Pálsson. Formað
ui’ Málarameistarafélags Rvík-
ur er Jón Ágústsson en for-
maður Málarafélags Reykjavík-
ur er Kristján Guðlaugsson.
40 farast í
V.-Afríku.
Einkaskevtí frá AP.
Fjörtíu manns fórust, er
ferju livolfdi á fljóti cinu í
FrönSku Kamerún-nýlend-
unni í V.-Afríku í fyrradag.
Ferjan var þéttskipuð far-
þegum, er striaumur hreif
hana og hvolfdi. Vitað er
með vissú, að 40 nianns hafa
drukknað, en óttazt, að enn
fleiri hafi farizt í slýsinu.
Þrir btlar steyp-
ast í fljót
Einkaskeyti frá AP.
Narbonne, Frakkl.,
í gær.
Þrír bílar steyptust í fljót-
ið Aude í gær, og biðu öku-
menn þeirra bana.
Brúin, sem þeir ætluðu að
aka yfir fljótið á, bilaði
skyndilega með fyrrgreind-
Það er að sumu leyti einkenni-
legt eins og allt sumarið snýst
um síld hjá okkur íslendingum,
hve erfitt er að fá almenning til
þess að neyta þessarar fæðu. Ekki
er það vegna þess að ekki sé
nægilegur áróður fyrir blessaðri
síldinni, því margoft hefir verið,
bæði i þessum dálki og i öðrum
blöðum, rætt um það, að lands-
menn ættu að borða meiri síld.
En allt kemur fyrir ekki.
Það þarf hvatningu.
Það er greinilegt að það þarf
ineira til. Hvernig væri að Hús-
mæðrafélag Reykjavikur tæki sig
nú til og hvetti húsmæður til
þess að nota meira þessa góðu,
holla og ódýra fæðu? Það segja
inér kaupmenn, að ekki borgi sig
að hafa síld á boðstólum, því lnin
seljist tæplega. Það er í sjálfu
sér einkennilegt að ekki skuli
vera hægt að kenna mönnum hér
á landi að nota þenna fisk, en
öðrum þjóðum, sem kaupa sild-
ina af okkur þykir hún mesta
lostæti. Og ekki þyrfti liún að
vera dýr hér innanlands.
'i í •
Erum við matvandir?
Er þetta vegna þess að við ís-
lendingar erum matvandari en
aðrar þjóðir? Varla verður því
borið við, þvi ekki verður það
með sanni sagt að við lifum á
fjölbreyttara fæði en aðrar þjóð-
ir. Það er mála sannast að síldin
er mjög hollur matur og vafa-
laust yrði þjóðinni fyrir beztu
að hún neytti hennar meira en
nú er gert. Auk þess sem má mat-
reiða úr henni marga rétti og í
því efni ætti Húsmæðrafélagið
að ljá lið sitt. Það getur verið að
ennþá^éu húsmæður, sem ekki
kunna skil á því hve margbreyti-
iega rétti má framleiða úr síld.
Tin þessi ódýri og góði matur
þyrfti að vera í ineiri hávégum
lijá okkur Islendingum en iiann
hefur verið til þessa.
Götuljós í Hlíðahverfi.
Hlíðarbúi skrifar: „Um það var
rætt i Bergmáli fyrir skömniu að
vandræði væru hve liverfið væri
illa lýst. Nú er verið að ráða
bót á þessu, því hafin er lagn-
ing jarðstrengs, sem tengja á við
götuljós er þar verða sett. Er full
ástæða til þeSs að þakka forráða-
mönnum Rafveitu Reykjavíkur
fyrir live snögglega þeir brugð-
ust við til þess að ráða bót á
ástandinu í hverfínu. Munu marg
ír Hlíðabúar lilakka til þess er
kveikt verður þar á götiiljósum,
því þegar vetur fer i hónd er ég
h ræddur uni að mörgum þyki
myrkt, er liann fer heim'til sín
að kvöldi.
Þakka ber, sem vel er gert.
En vegna þess rita ég þessar
linui’, að ég tel að þakka beri það
sem vel er gert. Og viss er ég um
það að aðrir Hlíðarbúar eru á
sama máli og ég. Maður veit svo
sem að Rafveitan liefur í inörg
horn að líta, en það er lika á-
iiægjulegt að finna að fram hjá
nianiii ei’ ekki gengið. Með þökk
fyrir góðar undirtektir. Hliða-
búi.“ — Bérgmál þakkar bréfið
og lýkur því í dag. — kr.
um afleiðingum. Þetta var 30
ára gömul steinbrú, kennd
við St. Marcel, og vita menn
ekki, hvað olli því ab hún
hrundi. Fallhæðin var um 10
metrar.
„__;______:
8EZT AÐ AUGLYSAI VlSt