Vísir - 28.09.1954, Qupperneq 7
Þriðjudaginn 28. september 1954
VÍSIR
S
WVWWWWWWWWWWWWWWWftWWWtfWWWWVh
Esifawidi - - -
damöur
€(Uf P Potter
3Z
kemur maður á slétta flöt. Hann leit á klukkuna. — í dögun,
eftir svo sem fimm og hálfan tíma, lendir ameríkönsk her
flugvél á þessari flöt. Þegar hún léttir verða María, Millie og
Teensy um borð. Eg vona að umslag Mareel Blayes verði þar
líka. Það er hugsanlegt að Walter, þér og eg verðum dauðir þá.
Hiram kallaði á Waltes og sýndi honum á uppdrættinum hvar
J.ozefvaros-brautarstöðin var. Hún lá meðfram khkjugarðinum
á löngu svæði. Þar voru sex brautarspor samhliða, og stéttir á
milli. Og við stöðina var stórhýsi: herbúðir Budapest-varðliðsins.
— En það sést ekki á uppdrættinum að hár múrgarður er
kring um alla stöðvalóðina, sagði Hiram. Það er aðeins hægt að
komast innfyrir með því að rekja járnbrautarsporín.
Eg fór upp á loft til að kyeðja Maríu. Hún svaraði ekki þegai-
eg drap á dyrnar. Eg fór inn. María var sofandi. Eg laut niður
að henni og kyssti hana á ennið. Svo tók eg verndargrip Ilonku
upp úr vasa mínum og lagði hann á koddann hjá henni.
21. KAP.
Bifreiðin, sem hafði elt okkur áður, veitti okkur enn eftirför
er við yfirgáfum húsið í síðasta sinn.
Okkur hafði komið saman um að skilja til þess.að losna við
hana. Fyrst var eg láti.nn fara út, skammt frá aðalstrætinu, en
Hiram ætlaði svo að aka með Walter til Buda og snúa svo við
til Pest og skilja bifreiðina eftir þar. Svo bundum við fastmælum
að hittast klukkan þrjú nálægt vöruflutningastöð járnbrautar-
ínnar.
Hiram hafði sagt að einn okkar yrði að hafa einhver ráð með
að komast burt frá járnbrautarstöðinni á eftir. Skyldi bifreið
verða viðbúin í sundi við Asztales Sandon-ut nr. 188. Sá sem
kæmist í þá bifreið skyldi aka til bráðabirgðaflugvallarins.
Eg komst að raun um, að þrátt fyrir meiðslin á höndunum
gæti eg notað skammbyssuna, þó með erfiðismunum væri. Eftir
að eg var kominn úr bifreiðinni var eg staddur gangandi einn á
götu í miðhverfi Budapest, í fyrsta skipti í níu ár. Eg var stadd-
ur fyrir utan gömlu virkin. Fyrir handan torgið hefði Hangli-
garðurinn verið einu sinni; nú stóð þar rússneskt minnismerki
og staðurinn hafði verið skírður Molotovs-torg.
Eg gekk fram Vaci-utca, sem hafði verið mikil verzlunargata
fyrir stríð. Verzlanirnar héldu enn gömlu nöfnunum, en nær
allstaðar stóð orðið „þjóðnýtt.“ og sýningargluggarnir voru
tómir. Myndir af Stalin voru þar á hverju strái. Eg gekk fram
hjá Belvarosi-kaffihúsinu. Eg heyrði óminn af sigaunahljóm-
sveit þaðan. ,
Það væri synd að segja að eg væri rólegur. Mér fannst annar-
hver maður og kona, sem eg mætti, vera MVD-njósnari. Og
eins var í stætisvagninum: Hver einasti nýr farþegi, sem kom
ihn, kom mér fyrir sjónir eins og njósnari. Eg settist aftast í
vagninn.
Þar sat burðamikill náungi, sem eg þóttist viss um að hafa
séð í lestinni til Budapest. Hann f ór úr vagninum um leið og eg
og eg heyrði þunglamalegt fótatak á eftir mér og þóttist viss
um að mér væri veitt eftirför.
Eg stillti mig um að hlaupa. Hinsvegar sveigði eg inn í hlið-
Málaskólinn Mímir
Sólvallagötu 3.
Kennsla hefst þ. 4. október í
ENSKU ~ ÞÝZKU — FRÖNSKU
Samtalsflokkar og skuggamyndakennsla sem áður.
Innritun daglega frá kl. 5—8 í síma 1311.
Fyrri nemendur, er óskað hafa eftir framhaldsnám-
skeiðum hringi helzt milli kl. 7—8.
EINAR PÁLSSON, HALLDÓR DUNGAL.
Pússnm$asaitclur
Fyrsta flokks pússninga-
sandur, aðeins 10 krónur
tunnan. Fljót og góð af-
greiðsla. Upplýsingar í síma
81034 og 10 B Vogum.
Geymið auglýsinguna.
i
HRINGUIMUM |
Dlíugeymir
Til sölu er olíugeymir, er liggur á Grandagarði. Menn
snúi sér til T. J. Júlinussonar, skipstjóra, á skrifstofu vorri,
er gefur allar upplýsingar. — Tilboðum sé skilað á skrif-
stofu vora eigi síðar en næstkomandi mánudag 4. október.
Sjdvútryggingarfelacj Islunds h.t.
Aukavirtna
Við óskum eftir umboðs-
manni til að selja mjög sam-
keppnisfæ.rar ítalskar, jap-
•anskar og franskar vörur.
Tilboð sendlst AB Svenska
Telegrambyrán, Hálsing-
borg Sverige, merkt: „Fabri-
. kantkollektion 63.“
Sjómannadagskabarettinn
miðapantanir
i sunum:
6056 og 6610
kl. 5—10,30.
Sparið tímann — notið simann.
Siómannadagskabaretlinn
Bílskúr
Stór og bjar.tur, upphitaður
bílskúr til leigu 1. október.
Upplýsingar í síma 82353.
Eídhúshnífurinn
„DESIRÉE“
fer sigurför um allan
heim fyrir sína miklu
kosti:
Altaf beittur,
ryðfrír og mjög
þægilegur í notkun.
„Geysir" h.f.
V eiðarf æradeildin.
Vfirbreiðslur
yfir kjöt, fisk og alls
konar vörur.
úr vaxibornum dúki, hvít-
um og grænum. Höfum fyr-
irliggjandi margar stærðir.
Saumum einnig allar stærðir
eftir pöntunum.
„Geysir" h.f.
Veiðarfæradeildin.
C & Sumufká
ístrubelgurinn- Lazar hélt áfram með
sinni smeðjulégu rödd. ,,Þú ert of
bráður vinur minn.‘‘
Og síðan bætti hann við: „Kannske
mun nokk-ura mánaða dvöl í fangelsi
lægja í þér rostann.“
Því næst var Tarzan leiddur inn í
miðja borgina, og komu þeir þar að
sóðalegu fangelsi.
Hannjárnin voru tekin af honum
og honum varpað inn í lítinn, dimm-
an klefa. Hvers vegna hafði hann
verið handtekinn? Hver var þessi
•feiti Lazar?