Vísir - 29.11.1954, Page 1
12
44. árg.
Mánudaginn 29. nóvember 1954
273. tbl.
Ný flugbraut í Eyjtim
oS.P®
Ný farþegaafgreiðsfiB fekin á ’nofknsr
í Vestmaánaejjiuifl.
Undanfarið hefur Flugmála-
stjórnin unnið að athugun á
gerð nýrrar flugbrautar í
Vestmannaeyjum, en miklir
erfiðleikar eru á að leggja hana
og samkvæmt lauslegri kostn-
aðaráætlun mun kosta 5—10
milljónir króna að gera braut-
Frá þessu skýrði Sigfús Guð-
mundsson fulltrúi Flugmála-
stjórnarinnar við opnun nýrrar
farþegaafgreiðslu Flugfélags
íslands í Vestmannaeyjum s. 1.
. miðvikudag.
Eins og kunnugt er, er að-
eins ein flugbraut í Vestmanna-
eyjum og er það mjög til baga
fyrir flugsamgöngur milli lands
og eyja. Er jafnvel erfiðara um
lendingar þar en á nokkurum
öðrum stað á landinu, þar sem
reglubundnum flugferðum er
haldið uppi. Stafar þetta af því
hversu veðrasamt er í Vest-
mannaeyjum og liggi vindurinn
þvert á brautina er ekki lend-
ingarfært þar, þó veður sé
annars gott. Þetta hefur orðið
til þess að stundum líða margir
dagar, jafnvel vikur, sem ekki
er flugfært til Eyja
En eins og áður getur er
miklum erfiðleikum bundið að
gera viðbótarflugbraut í Vest-
mannaeyjum og myndi kosta
geysilegt jarðrask. Þessi eina
flugbraut myndi því kosta allt
að 10 millj. króna, og er það
meira fé en svo að hægt sé að
ráðast í slíkar framkvæmdir á
þessu stigi málsins. En Flug-
málastjórnin vinnur að athug-
unum á því hvernig flugsam-
göngurnar við Vestmannaeyjar
verði leystar á viðunandi hátt
í framtíðinni.
Á miðvikudaginn tók Flug-
félag íslands í notkun nýja
farþegaafgreiðslu í Vestmanna-
eyjum í rúmgóðum, björtum og
glæsilegum húsakynnum á
Skólavegi 2. Var fyrri farþega-*
afgreiðsla félagsins í Eyjum í
of þröngu og óviðunandi hús-
næði, og brýn nauðsyn orðin á
að bæta úr.
í tilefni þessa bauð Flug-
félag íslands bæjarstjórn Vest-
mannaeyja og fleiri gestum til
hófs í hótel H.B. eftir að húsa-
kynnin höfðu verið skoðuð. —
Framkvæmdarstjóri Flugfé-
lagsins Örn Ó. Johnson ávarp-
aði gesti fyrir félagsins hönd,
en auk þess töluðu Guðlaugur
Gíslason bæjarstjóri, Sigfús
Guðmundsson fulltrúi - og
Sverrir Sveinsson iðnaðarmað-
ur. —
Byrjað var á innréttingu
farþegaafgreiðslunnar í s. 1.
júnímánuði ög var Bragi Jóns-
son yfirsmiður, en yfirumsjón
með öllu verkinu hafði Flosi
Finnsson. Húsgögn eru frá
Stálhúsgögn.
Umboðsmaður Flugfélagsins
í Vestmannaeyjum er Karl
Kristmanns stórkaupmaður og
hefur verið það frá því er F. í.
hóf fyrst reglubundið áætlun-
arflug þangað í júnímánuði
1947.
• 150.000 manna hafa sent
Churcihill heillaóskir og
gjafir (flestir í afmælis-
sjóðinn) í tilefni af áttræðis-'
afmæli hans á morgun.
Svéinbjörii Hannesson enáir-
kjörinn formaður Óbins.
„Óðinn“, málfundafélag sjálf-
stæðisverkamanna og sjómanna,
hélt aðalfund sinn í gær.
Sveinbjörn Hannesson, formað
ur Óðins, setti fundinn, og skip-
aði Friðleif Friðriksson fund-
arstjóra og Lúther Hróbjartsson
ritarar. Síðan var minnzt félaga,
er látizt höfðu á starfsárinu og
Benedikts Sveinssonar alþingis-
forseta, og risu menn úr sætum í
virðingarskyni við hina látnu.
Formaður flutti skýrslu félags-
stjórnar. Höfðu 53 menn bætzt í
hópinn á árinu. Gjaldkeri las
upp reikninga félagsins. sem voru
samþykktir.
Sveinbjörn Hanesson var ein-
róma endurkjörinn formaður Óð-
ins, en þeir Friðleifur Friðriks-
son og Angantýr Guðjónsson
háðust undan endurkosningu í
stjórnina. Þessir vóru kjörnir í
stim-n Óðins: Hróbjartur Lúth-
ej.. un, varaform., Meyvant Sig-
urðsson, ritari, Stefán Þ. Gunn-
laugsson, gjaldkeri, Valdimar
Ketilsson, varagjaldkeri, Ólafur
Skaftason, vararitari og Guð-
mundur Nikulásson, spjaldskrár-
ritari.
Síðan hófust umræður um fé-
lagsmál, og urðu umræður fjör-
ugar, enda fjölmenni á fundin-
um. Þessir tóku til máls: Friðleif-
ur Friðriksson, Guðjón Hansson,
Stefán Þ. Gunnlaugsson, Lúther
Hróbjartsson, Magnús Jóhannes-
són, Ingimundur Guðmundsson,
Meyvant Sigurðsson, Ólafur Jóns-
son, Ellert Magnússon, Guðmund
ur H. Guðmundsson og Guðmund-
ur Nikulásson. — Starfsemi Óð-
ins er fjölþætt og stendur með
miklum blóma.
Um þessar mundir er veriS að gera tilraunir í Kaupmanna-
höfn með miðstöðvarlögn í götum borgarinnar til þess að geta
með því móti haldið götunni auðri í snjó og frostum. Til að
byrja með var tekmn fyrir 100 metra kafli hjá Svanemölle.
Hér er verið að leggja hitalögn í götuna.
tií sáttasemjara.
Samkomulag varð um það í
gær, að vísa deilu strætisvagna-
stjóra til sáttasemjara.
Flins og kunugt er sögðu stræt-
isvagnastjórar upp samningum
frá 1. des. að telja og boðuðu verk
fall frá þeim tíma ef samkomu-
lag næðist ekki. Þess má geta,
að i fyrra, en þá sögðu vagn-
stjórarnir einnig upp samning-
um, náðist samkomulag um, að
frestá. verkfalli hálfan mánuð,
meðan reynt væri að jafna deil-
una. Ekkert verður að sjálfsögðu
um það sagt, eins og sakir
stánda, hvort til verkfalls kemur
eða ekki. Kenmr það vœntanlega
i Ijós á morgun.
Þrír mtgfingar aka stoEínni
upp í
Þar yfirgáfu þeir bílinn og héldu til
Reykjavíkur aftur en voru hand-
teknir á leiðinni.
í gærmorgun, um tíuleytið var
lögreglunni tilkynnt að bifreið-
inni R-6493, sem er af Dodge
Cariol-gerð, hafi verið stolið í
fyrrinótt, þar sem hún stóð við
Ánanaust.
Lýst var eftir bifreiðinni i há-
degisútvarpinu í gær og nokkru
siðar barst lögreglunni tilkynn-
ing frá Gísla hreppstjóra á Neðra
Hálsi í Kjós að eftirlýstur bill
myndi hafa farið þar fram hjá í
fyrrinótt í átlina inn í Hvalfjörð.
Höfðu Mlverjar, sem voru þrír
talsins, lekið stúlku upp í bílinn
á. veginum skammt frá sáni-
komuhúsi Kjósverja, „Félags-
garði“, og ekið lienni að Fóssá
í Kjós. Þaðan hefðu þeir svo
halclið áfram ferð sinni áleiðis
inn fyrir Hvalfjörð.
Nokkru síðar tilkynnti stöðvar-
bílstjóri frá Bifreiðastöð Reykja-
vikur, sem var á ferð inni í
Hvalfirði, að hann Iiafi séð bif-
reiðina R-6493 mannlausa inni
í Botnsdal og jafnframt gat hann
þess, að hann hafi mætt þremur
fótgangandi piltum, sem héldu
eftir veginum áleiðis til Reykja-
víkur og gaf á þeim allnákvæma
lýsingu.
Tveir menn frá rannsóknar-
lögregluni fóru þá af stað áleið-
is á móti göngugörpunum og þeg-
ar þeir vorú komnir upp á Kjal-
arnes, stöðvuðu þeir áætlunar-
bíl, sem var á suðurleið og í bon-
um fundust bilþjófarnir.
Var þarna um að ræða pilta
á aldrinum 20, 16 og' 14 ára og
hefur a. m. k. sá elzti komið
eitthvað við sögu í bókum lög-
reglunnar áður.
Játuðu piltrnir von bráðar að
liafa stolið R-6493. Ivváðust þeir
hafa gert það um eittleytið í
fyrrinótt og þá ekið rakleitt upp
í Hvalfjörð. Þegar þeir komu inn
í Botnsdal bilaði ljósaútbúnaður
bifreiðarinnar og treystust þeir
þá ekki til þess að halda för sinni
áfram. Snéru þeir fótgangandi
til baka og lögðust til svefns í
hlöðu á Fossá. Þar sváfu þeir til
hádegis og hafði lögréglunni áð-
ur borizt tilkynning um að þar
hefði sést til þriggja manna
hlaupa út úr hlöðunni í gær.
Nokkru síðar kom áætlúnarbif-
reið á eftir þeim og með henni
fengu þeir far, unz lögreglan
tók þá í sínai' hendur á Kjalar-
nesinu.
Safna fé til sjúkra-
flugvélar.
Frá fréttaritara Vísis,
Akureyri, í morgun.
Fjársöfnun til kaupa á nýrri
sjúkraflugvél til handa Akur-
eyringum hefir gengið vel.
Eins og kunnugt er hóf
Rauðakrossdeildin á Akureyri
fyrir nokkru fjársöfnun til
kaupa á nýná sjúkraflugvél
sfetar
vlS Bretland,
en sððugt berasl f regrt
ir uwn tjón á sltipum
og mönnum.
Einkaskeyti frá AP.
Eóndon í g»r.
ÖfviðrinH við Bretland er nú
að slota, en stöðugt beraat fregn-
ir um skipa- og mannfejé*.
Tvö lik ha6a fundist á reki,
þar sem skipsflak á hvotfi sást
s.l. laugardagsmorgun. Þetta
virðist hafa verið 1000 lestn
strandferðaskip. Froskmenn úr
hrezka flotanuin gera nýja tól-
raun í dag til könnunar á vita-
skipinu við Guðinasand. Tv*
spænsk skip hafa lent i erfið-
leikurn við Suðvestur-írland og
beðið um aðstoð. Skipverjum á
olíuskipinu, sem klofnaði, hefur
verið bjargað, og er dráttarbát-
urinn Turmoil á leið með annan
skipshelminginn til hafnar.
Iðja og FÍI ræia
santningsiíppkast.
Félag íslenzltra iðnrekenda
kemur saman á fund síðdegis
í dag og Iðju í kvöld.
Á fundum félaganna verður
rætt um samningsuppkast, sem
nefndir frá félögunum hafa orð-
ið ásáttar um að leggja fyrir
félögin.
Eins og kunnugt er sagðii
Iðja upp samningum með mán-
aðar fyrirvai'a frá 1. des. að
telja. Eins og getið var í blaðinu
í gær hafa nefndirnar unnið öt-
ullega að samkomulagi.
sem staðsett yrði á Akureyri..
Alls hafa safnast rösklega 32
þús. kr. og nú síðast barst
myndarleg gjöf frá Oddfellow-
reglunni á Akureyri, að upp-
hæð 5100 krónur.