Vísir - 06.12.1954, Blaðsíða 12
| YÍSIR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl-
'j breyttasta. — Hringið í síma 1860 og
gerist áskrifendur.
Þeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis tii
mánaðamóta. — Sími 1660.
Mánudaginn 6. desember 1954.
Frækileg björgim kinda
úr sjálftelái,
Kindur fundust lifandi eftir að hafa
verið 5 vikur í fönn.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í gær.
Frá því var skýrt á sínum
'tíma í haust, að fjórar kindur
liafi sézt í sjálfheldu í Ógöngu-
íjalli, en nokkuru fyrir mánaðaL
mótin síðustu var þeim bjargað.
Björgun kindanna þótti mjög
frækileg og í frásögur færandi.
Voru það feðgar frá bænum
Björgum í Köldukinn, Sigur-
björn bóndi og sonur hans Sig-
urður, sem lögðu upp í þessa
hættuför-26. nóv. s.l. Kindurn-
ar voru fjórar talsins og hafa
þær setið fastar í svokallaðri
Litlufjörutorfu í utanverðu Ó-
.göngufjalli. Leiðin þangað lá
um svelh'unnar og flughálar
skriður, um einstigu og á einum
stað yfir klettabelti.
Hafði Sigurbjörn bóndi, sem
er þjóðhagasmiður, áður smíð-
að þeim feðgum sérstaka gadda-
skó til fararinnar, sem þeir
gengu á yfir ófærurnar.
Förin tókst giftusamlega og
náðu feðgarnir kindunum heilu
og höldnu úr ógöngunum. Alls
tók ferðin 12 klukkustundir.
Tvær kindur í sjálfheldu.
Nýlega hafa sézt tvær kindur
i sjálfheldu í norðanverðum Há-
göngum, 1 svokallaðri Ófæru-
torfu á mörkum f jallskilasvæða
Kinnunga og Fnjóskdæla. En
ekki hefur enn tekizt að ná
þeim.
Hyggja á eftirleit.
Bárðdælir hafa ráðgert að
halda inn til óbyggða í fjárleit,
því enn vantar þá talsvert af
kindum, sem ekki hafa heimtzt.
Hafa Bárðdælir í hyggju að fara
allt inn að Kiðagili og búast við
að komast þangað á jeppum, ef
.frost haldast og ekki snjóar að
ráði.
Fyrir skömmu fundust í Mý-'
vatnssveit þrjár kindur lifandi,
sem verið hafa í fönn um fimm
vikna skeið, eða frá því í á-
hlaupaveðrinu mikla í s.l. októ-
bermánuði. Ein þessara kinda
fannst skammt frá Baldurs-
heimi, en hinar tvær við tún-
fótinn í Reykjahlíð. Eins og að
líkum lætur voru kindurnar
orðnar mjög aðþrengdar þegar
þær fundust.
Sr. Halldórs á Reytth
völlum miiinzt.
f gær fór fram í Reyniválla-
kirkju afhending brjóstlíkans af
síra Halldóri heitnum Jónssyni
á Reynivöllum. Bjarni Bjarnason
form. Átthagafélags Kjósverja
afhenti gjöfina.
Einar lieitinn Jónsson mynd-
höggyari gerði brjóstlíkan þetta
og' keypti Attliagafélag Ivjós-
verja þaS og lét steypa það í
eir, og liefur því veriS komið
fyrir í kirkjunni. Afhjúpunin fór
fram við messugerð í kirkjunni
í gær, sem að ofan getur, en þá
var 81. afmælisdagur síra Hall-
dórs.
í lok seinustu viku kom út
annað bindið af ritsáfni síra
Halldórs, „Ljósmyndum". Hefur
það að geyma ýmsar endurminn-
ingar frá hálfrar aldar prest-
skapartíma hans. Gaf hann sem
kunnugt er Átthagafélaginu út-
gáfuréttinn að safninu.
„Ást við aðra sýn"
í Hafnarfirði.
Næstkomandi þriðjudags-
kvöld verður frumsýnt í Hafn-
arfirði leikritið ,.Ást við aðra
sýn“, eftir Miles Malleson.
Malleson er þekktur leikari,
leikhúsmaður og leikritahöf-
undur. Hefur hann skrifað
sextán leikrit.
Leikritið „Ást við aðra sýn“
hefur -verið sýnt víða erlendis.
Inga Laxness hefur þýtt leik-
inn á íslenzku og ér jafnframt
leikstjóri. Leikendur eru: Sól-
rún Ingvarsdóttr. Sólveig Jó-
hannsdóttir, Margrét Guð-
mundsdóttr. Sigurður Kristins-
son, Friðleifur Guðmundsson
og Finnbogi F. Arndal.
Elzti núlifandi Húsvíkingur
áttræður í dag.
Það er Karl Einarsson úivegsbóndi
Frá fréttarilara Vísis.
Húsavík í gær.
Karl Einarsson, útvegsbóndi í
Húsavík, elzti núlifandi Húsvík-
ingur, verður áttræður á morg-
un.
Karl hefur stundað sjóróðra
frá því hann var 12 ára gamalí og
allt fram til ársins 1953. Hann
hefur löngum verið formaður og
einn af fyrstu formönnum á mót-
orbátum hér. Karl þótti fengsæll
Jiákarlaformaður og góð scla-
skytta, fjárbóndi var Karl og
forðagæzlumaður um nokkurt
skeið, og rækti það starf af trú-
mennsku. Hann var kvæntur
Önnu Maríu Árnadóttur, en hún
andaðist 1928. þrjú börn áttu
þau og dvelja þau öll i Húsavik.
Karl a heima hjá dóttur sinni,
Hansínu og manni hennar, Hann-
esi Jakobssyni málarameistára,
Iíetilbraut 17. Karl er vel látinn
borgari, og munu margir senda
honum hlýjar kveðjur á þessum
merkisdegi. — Fréttaritari-
Ingólfur Jónsson flugmálaráðherra flytur ræður við vígslu
Akureyrarflugvallar.
FjárlBagíSiáæiiltm 1955 :
Framlöcg tíl íbúðarhiísab'/gginga
hækkar um 2.5
Sanrii útsvarsstigi og
hækka um
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur
fyrir árið 1955 var lögð fram á
bæjarstjómarifundi á föstudag.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri fylgdi henrú úr hlaði.
Hefir frumvarpið verið rætt á
tveim bæjarráðsfundum, en
ætlazt er til að áætlunin verði
afg'reidd á fundi, sem haldinn
verður 16. þ. m.
Heildarupphæð útsvara verð-
ur á fjárhagsáætlunni 98.4
millj. kr. og er það 8 millj.
krónum hærra en í ár. Hins
vegar er útsvarsstiginn ó-
breyttur, og framlög til íbúða-
bygginga hafa verið hækkuð
um 2% millj. króna. Stríðs-
gróðaskattur einstaklinga hef-
ir verið felldur niður.
Undanfarin ár hefi'r útsvars-
stiginn hér í bæ farið lækk-
andi. Má geta þess, að meðal-
laun verkamanna í ár eru á-
ætluð rúml. 36.000 krónur, og
er útsvar 825 krónur, en 1953
voru launin áætluð rúml. 32.000
krónur og útsvar þá 1670 kr.
Kostnaður við stjórn bæjar-
ins bfeytist lítið, nema hjá
bæjarverkfræðingi, en þar
hækkar um 400 þús. krónur
í fyira, en útsvör
8 millj.
vegna kauphækkunar verk-
fræðinga. Hins vegar lækkar
kostnaður við manntalsskrif-
stofuna um 200 þús. lcrónur.
Framlag til bæjarbókasafnsins
hefir verið hækkað um 100
þús. krónur, nokkur hækkun
hefir orðið til íþróttasvæða og
skemmtigarða. Kostnaður við
heilbrigðis- og hreinlætismál
hækkar um 1.4 millj. krónur.
Gjöld vegna almannatrygginga
hækka um tæpa % millj.
króna, enda lögákveðin gjöld.
Framfærsla hækkar um 1.4
millj. króna. Að lökinni ræðu
borgarstjóra tóku til máls þeir
Þórður Björnsson og Ingi R.
Helgason. Umræðum var svo
lokið, og fjárhagsáætluriinni
vísað til 2. umræðu.
Sfarfsmenil MH cjeta
fariH heint um JóSiir.
Starfsmönnum Hamiltonfélags«
ins hefur verið gert kleift að fara
heim nm jólin.
Metcalf-Hamilton verktaljafé-
lagið á Keflavíkurflugvelli mun
leggja niður nœr því alla vinnu
kring um jólin við þau vet'k, er
þeir cmi starfa að, og á tímabil-
iíui 18. desember til 3. janúar
1955 mun Öllum slarfsmönnum
félag'sins lieimilt að taka sér frt
frá störfum. Er hér miðað við.,
að þeir fái nægan tíma til þess að
ferðast lteim til sín og dvelja þar
um jólaleytið.
Nauðsynlegt nuin reynast a'ð
nokkur liluti þeirra starfsmanna,
sem annast ýniis þjónustustörf,
vinni um jólaleytið, en í flest-
iim tilfellum geta 'þeir einnigt
fengið leyfi til heimfarar, með
því að láta verkstjóra síria vita
um þá fyrirætlan sína fyrir 11.
desember.
Gremja gegn Egyptum í
Sýrlándi og Pakistan.
Einkaskeyti frá AP.
Kairo í gær.
Byltingarráðið egypzka hefur
breytt líflátsdóminum yfir Hode*
bey, aðalleiðtoga Bræðralags Mó-
hameðstrúarmanna, í ævilangt
fangelsi.
Tekið var fram, að þetta hefði
verið gert sökum þess, að han
væri niaður aldraður. Aðrir dóm-
ar yfir Bræðralagsmönnum voru
staðfestir.
Aðfarirnar gegn Bræðralags-
mönnum i Egyptalandi liafa vak-
ið mikla andúð gegn stjórn E-
gyptalands i Sýrlandi og Pakist-
an. Margir sýrlenzkir þingmenn
hafa skorað á stjórnina, að mót-
mæla dómunum yfir Bræðralags-
mönnum og banninu við starf-
semi þess í Egyptalandi, sera
Byltingarráðið hefur formlega
staðfest.
Tekið á ítölskum kommún-
istum með festu.
Vikið lir Irúiiaðarsíödiim.
Útdauður fiskur
næst li
Einkaskeyti frá AP.
París í fyrradag.
Innan skamms mun fiskur,
'&em sagður var útdauður fyr-
ir milljón árum, en hefur síð-
an fundizt nokkrum sinnum
við Madagaskar, verða flutt-
ur lifandi hingað til borgar-
innar. Hefur einstaklingur af
tegund þessari, sem er nefnd
„coelacanth", náðst í fyrsta
skipti lifandi við Madagaskar,
og er ætlunin að flytja hann
með mestu varúð til borgar-
innar og reyna að framkvæma
á honum ýmsar ramisóknir.
Einkaskeyti frá AP.
Rómaborg í gær.
Ríkisstjórn ítalíu hefur tekið
ákvarðanir um víðtækar ráð-
stafanir til þess að víkja úr
embættum og störfum hjá ríki,
bæjar. og sveitarfélögum þeim
kommúnistum, sem látnir voru
sitja fyrir öðrum, að verðleika-
lausu, af flokkspólitískum á-
stæðum.
Er hér um að ræða róttæk-
ustu ráðstafanirnár, sem stjórn
Scelba hefur ráðizt í til þessa,
til þess að hnekkja gengi
kommúnista. Ákvarðanirnar
voru teknar á fundi á laugar-
dagskvöld og stóð fundurinn
fullar 9 klukkustundir.
Þá voru og teknar ákvarðanir
um, að svipta inn- og útflutn-
ingsleyfi þau viðskiptafyrirtæki,
sem nota aðstöðu sína til hags-
bóta fyrir kommúnista og á hef_
ur sannazt að hlotið hafa
margskonar fríðindi fram yíir
önnur fyrir atbeina kommún-
ista.
Vekja fregnir um þetta mikla
athygli í vestrænum löndum og
er litið á þær sem upphaf mik-
illar sóknar í baráttunni gegn
kommúnistaspillingunni í lana-
inu.
í lok sl. viku skiluðu kínversk
ir kommúnistar kanadiskuin
flugforingja, sem þeir höfðu
haft í haldi síðan 1952. — Var
honum skilað á landamærum
Kína og Hongkong.
Mendes-France hefur boðað,
að hann ætli að láta af utan-
ríkisráðherraembættinu í jan-
úar, að aflokinni ferð til
Rómaborgar. Kveðst hann
gera það til þess að geta sinnt
innanríkismálum betur.