Vísir - 27.12.1954, Page 9

Vísir - 27.12.1954, Page 9
Máimdagiwi 27. desember 1954. /ÍSIR Jon E. Ber§sveinsson... (Framh. af 4. síðu) haf-a átt þegar útvega hefur þurft hjálp fyrir nauðstödd skip, en slíkar nætur eru fleiri en marga grunar, en þá er venjulega uppi fótur og fit hjá öllum á heimilinu. Þegar svo dagur rennúr og eitthvað frétt- ist um skip og menn í háska, verður áhugi almennings og samúð svo mikil að annað- hvert mannsbarn á landinu þarf helzt að bera fram sér- stakar fyrirspurnir. Svara þurfti alltaf með hughreyst- andi orðum þótt sjálfum bæri hann ugg í brjósti. Jón E. Bergsveinsson var að því leyti líkur Guðmundi Björnssyni fyrsta forseta S.V. F.í. þeim mikla framfara manni að*hami sparaði í engu orku sína fyrir góðum málefn- um og uppskar eins og hann að verða slitinn og þreyttur mað- ur fyrir aldur fram. Þrátt íyrir sinn langa vipnu- dag uppskar Jón ekki gull og græna skóga, vinnustundir hans hefði heldur ekki verið hægt að reikna til fjár, en hann hefur hlotið og á óskorið skilið mikla þökk almennings fyrir framúrskarandi ósérplægni í starfi og fj'rir að hafa stuðlað að björgun margra mannslífa, fyrir það blessar nú fólk í mörgum löndum minningu hans. Þegar Jón lét af störfum hlaut hann þá opinbera viður- kenningu, að Alþingi og Stjóvn Slysavarnfélag'sins í samein- ingu, veittu honum árleg heið- urslaun jafn há þeim er hann hafði haft er hann hætti. Nokkru áður en hann lagðist banaleguna hafi stjórn Slysa- varnafélags íslands samþykkt að nefna eftir honum nýjan björgunarbát, sem félagið hef- ur keypt frá Noregi og ætlaður er til afnota á Ásbúðum á Skaga, í hjarta hins gamla og góða síldveiðisvæðis Norður- lands. Jón E. Bergsveinsson er af kjarngóðum breiðfirzkum ættum, systursonur Björns heitins Jónssonar ráðherra frá Djúpadal, og að því er kunn- ugir telja honum skaplíkur að ýmsu leyti. í eðli sínu var Jón sambland af víkingi og trú- boða og minnti þannig á Þangbrand prest. Hann var öll- um mönnum betri vinum sín- um og fylgismönnum, en þeim sem honum fannst standa í vegi fyrir sér, gat hann verið þungur í skauti, en í hjálpsemi og greiðvikni átti hann fáa sína líka, þegar hans aðstoðar var leitað og var þá sama hver átti í hlut. Hinar mörgu deildir Slysa- varnafélagsins um allt land, I voru Jóni E. Bergsveinssyni mjög hjartfólgnar. Hann hafði sjálfur verið með að stofna margar þeirra og skoðaði þær sem hold af sínu holdi og ald- rei var hann ánægðari en þegar hann gat farið í heimsóknir til þeirra. Á félagsmótum var hann ávallt hrókur alls fagnaðar og honum var einkar lagið að I fylkja fólki til starfs fyrir hið þarfa og góða málefni. Kvennadeildir Slysavarnafé- lagsins voru honum sérstak- lega hjartfólgnar, þótt vel sæi hann sólina fyrir þeim. Hjá konunum fann hann réttiléga þá trú og móðurlegu umhyggju fyrir framgangi slysavarna- málanna, sem myndi verða félagsstarfseminni til eflingar. Orðtak Jóns á nærri öllum fundum félagsins var nærri alltaf ,,Sól úti, sóli inni, sól í sinni“, og út frá þeim orðuni lagði hann. Hann reyndi að sýna fram á að öll hjálpar starfsemi í öllum myndum, hljóti alltaf að skapa birtu og yi- Þegar hann nú hefur hafið siglingu sína til sóllanda feg- urri, þá fylgja honum hlýjar kveðjur og þakklæti frá öllu slysavarnafólki. Henry A. Hálfdansson. Minngar athafnamanns. THOR JEXSEN: Reynsluár. Minningar I. Skrásett hefur Valtýr Stefánsson. Útgefandi: Bókfellsútgáf- an h.f. — 1954. Þessi saga er enn ekki nema hálfsögð. Eigi áð síður er hún nú þegar orðin mikil saga bæði að innihaldi og ytri gerð. Þetta er hreinskilin ævisaga óvenjulegs manns, útlendings, sem nýfermdur stigur á skips- fjöl suður við Eyrarsund í því skyni að læra verzlunarstörf norður á Borðeyii í Strandar- sýslu. Hann á vart evrisvirði jarðneskra muna,; ekkert nema hugrekkið í brjóstinu og' þann bjargfasta áseíning að rækja í hvívetna þæy skyldur, sem honum kunna að verða á herð- ar lagðar, því það veit hann öruggustu ieiðina að því tor- sótta en eftirsóknarverða merki: að vevða maður. Þetta er árið 1878. Fyrsti þáttar bókarinnar g'erizt í Smallegade úti á Friðriksbergi i Kaupmanna- höfn. Söguhgtjan Thor þriggja vetra, leikur sél- þar að litlum hamri úti fyrir húsdyrum for- eldra sinna, óviðjafnanlegu á- haldi, sem hann hafði fundið í matjurtagarðdnum að húsa- baki. Það ér sólskin og friður og gott að vera til. Unz stór strákur kemur aðvífandi hrifs- ar hamarinn og hleypur á brott með hann. Svona er heimurinn í og með, það er ekki sársauka- laust að kynnast honum. Valtýr Stefánsson ritstjóri, sem skrásett hefur þessa bók þeitir þejlrri tækni, að rita inngang að hverjum megin- kafla f-yrir sig, en gefa sögu hetjunni síðan orðið. Þetta eru afbragðsvinnubrögð. Inngangs- þæctirnir gegna hér sams konar hlutverki og leiksviðs- lýsingar, og leiktjöld í stóru drama, þeir búa lesandann undir framhaldið, kynna honum umhverfi atburðanna og stundum aðdraganda þeirra, svo að í heild verður sagan öll fyllri ög fastar tengd hinni álmennu þjóðarsQgu þess tíma- bils, sem sjálfsævisagan gerizt á. Bókinni er skipt í 9 megin- kafla, og skal nú í fáum orð- um lýst, efni þeirra. Fyrsfi., kaflinn nefnist: í foreldi*ahús- um og fjallar um bernsku Thor Jensen í Kaupmannahöfn. Hann lýsir þar sjálfsögðu fyrst og fremst foreldrum sín- um og systkinum, en einnig sinni fyrstu skólagöngu. Fjöl- skyldan er fátæk því að stríð Dana við Þjóðverja 1864 rask- aði mjög efnahag þjóðarinnar og kom hart niður á heimilis- föðurnum Jens Chr. Jensen, sem var . byggingarmeistari. Hann dó þegar Thor var 9 ára, og stóð móðirin þá uppi eigna- laus með 12 börn. Stundum var sultur í búi. 2. kaflinn heitir: í heimavist- arskólanum „Det kongelige opfostringshus“. Sú mennta- stofnun var ætluð" fátækum drengjum, sem- mist höfðu að minnsta kosti annað foreldra sinna. Þetta var fjögra ára skóli og útskrifaði nemendur sína á fermingaraldri, en út- vegaði þeim að því búnu náms- vist við verklegt nám í iðnáði eða verzlun um næstu 5 ár. — Þegar Thor Jengen ræðst til íslands, er það einmitt til að ljúka verklegu verzlunarnámi á vegum „Det kong'eíige op- fóstringshus“. Tveir næstu kaflai- bókar- innar segja frá Borðeyrardvöl höfundar, en hún varir frá 5. júní 1878 til 1. ágúst 1884. — Ekki er hér rúm til þess, að fara mörgum orðum um þá frásögn, þó stórmerkileg sé og mjög skemmtileg aflestrar. En hún .skýrir meðal annars frá því, hvernig danski unglingur gengur íslandi á hönd, tengist því órjúfandi böndum. Og um leið og hann hverfur þaðan á þrott, gerir hann upp reikn- inga sína með þessum orðum: „Þar (á Borðeyri) hafði ég stundum fundið til einstæð- ingsskapar, en einnig átt marg- ar ánægjustundir. Þar hafði ég', að því er mér sjálfum fannst, komizt til, manns. Nú skyldi reyna á kraftana, hvern- ig mér tækist að brjótast áfram upp á eigin spýtur.“ Þegar hér er komið, hefur Thor eignast unnustu. Margréti Þorbjörgu Kristjánsdóttur, frá Hraunhöfn. Hún hafði undan- farið dvalið með móður sinni á Borðeyri, en var nú flutt til Akraness. Þaigað fer Thor fyrst, en það veltur á ýmsu fyrir honum með atvinnu- möguleika, hann fer til Bergen í Noregi í því skyni að afla sér bóklegrar . menntunar í menntunar ,í verzlun. en verð- ur að hætta við það vegna fjárskorts, kemst í kynni við norska kaupmanninn Johan Lange eiganda verzlunarinnar í Borgarnesi. Þau kynni leiddu til þess að Thor gekk í þjón- ustu hans og varð nokkru síð- ar verzlunarstjóri hans í Borgarnesi. Frá þvi starfi og mörgu öðru segir í 6. kafla bókarinnar. í Borgarnesi dvelja þau hjón þar til árið 1894. Þar leikur þeim ílest í lyndi, komast í góð efni, ná hamingjusömu heimilislífi. En samvinnan við Johan Lange, gerðist erfiðari með hverju ári, svo að því rak að Thor Jensen sagði upp verzlunarstjórastarfi sínu og flutti til Akraness og stofnaði þar einkaverzlun og hóf útgerð. Áttundi kafli bók- arinnar nefnist „Erfið ár á Akranesi“. Er nú engu líkari en hjól hamingjurinar taki allt /vSíMVMvvyvMvyiivsjyMyw/'MWMwvViy1 _ -«rvrs/%r»ifVj Dagblaðið VisSr er selt á eftírtöldiim stöðum: Snðanstnrbær: Gosi, veiiingastofan — Skólavörðustíg og Bergstaðastræti. Bergstaðastræti 10 — Flöskubúðin. Bergstaðastrsti 40' — Verzl. Steinunnar Pétursdóttur. Nönnugötu 5 — Verzl. Sigfúsar Guðítnnssouar. þórsgötu 29 — Veitingastofan. þórsgötu 14 — þórsbúð. Týsgötu 1 — Tóbaksbúðin Eavana. Óðinsgötu 5 — Veitingastofan. Frakkastíg 16 — Sælgætis- og tóbaksbúðin. Vitabar — Vitastíg og Bergþórugötu. Ansturbæi*: Hveríisgötu 50 — Tóbaksbúð. Hverfisgötu 69 — Veitingastoían Florida. Iíverfisgötu 71 — Verzl. Jónasar Sigurðssonar. Hveríisgötu 117 — þrösiur. Sölutuminn — Illemmtorgi. Laugaveg 11 — Veitingastofan Adlon. Laugaveg 43 — Verzl. Silla og Valda. Laugaveg 64 — Veitingastoían Vöggur. Laugaveg 80 — Veitingastofan Laugaveg 86 — Stjömncafé. Laugaveg 126 — Veitingastofam Adlon. Laugaveg 139 — Verzl. Ásbyrgi. Samtún 12 — Verzl. Drifandi. Miklubraut 68 — Verzl. Árna Pálssonar. Barmablíð 8 — Verzl. Axels Sigurgeirssonar. Bíó-Bar — Snorrabraut. Miðbær: Lækjargöiu 2 — Bókastöð Eimreiðarinnar. Hreyfill — Kalkofnsvegi. Lækjariorg — Söluturainn. Pylsusalan — Ansturstræti. Hressingarskálinn — Austurstræti. Blaðaturninn — Bókabúð Eymnndssonar, AnstnrstrælL Sjálfstæðishúsið. Áðalstræti 8 — Veitingastofan Adlon. Aðalstræti 18 — UppsalakjallarL Vestnrgötu 2 - Vesturgötu 16 Vesturgötu 29 - Vesturgötu 45 Vesturgötu 53 Framnesveg 44 Kaplaskjólsveg Sörlaskjóli 42 - Hringhxaat 49 - Vestnrbær: — Sölutuminn. — Verlunin Runólfur Ólafs. — Veitingastoian Fjóla. — Veitingastofan West End. — Veitingastofan. — Verzl. Svalbarði. 1 — Verzl. Drífandi. — Verzl. Stjörnubúðin. — Verzl. Silli og ValdL tJlliverfi : Laugtrnesveg 50 — Bókabúð Laugarness. Veitingasiofan Ögn — Sundiaugavegi. Langholtsvegi 42 — Verzi. Guðm. Albertssonar. Skipasundi 56 — Verzl. Hangá. Langholtsvegi 174 — Verzl. Árna J. Sigurðssonar. Verzl. Fossvogur — Fossvogi. Kópavogsháísi — Biðskýiið. JÍSCSGOOOOOOÍSÍSOÖGGQOÍÍÍlOÍÍttOOGOÖÍlGGCOíSOíSQÍSÍÍSiGGÖISÖtiGGí í einu að snúast öfugt. Hvert stóráfallið í verzlun og atvinnu rekstri rekur annað, unz svo er komið að Thor Jensen neyð- ist til að gefa bú sitt upp til gjaldþrotaskipta. Þetta gerðist vorið 1899. Dm haustið flytja þau hjón með 7 börn sin til Hafnar- fjarðar, vár þá svo þröngt í búi þeirra að þau urðu að fá lán og veðsetja bækur sínar og búslóð til þess að afla sér nauðsynlegustu matarbirgða fyrir heimilið. Þannig endar bókin Reynsluár, I. bindið í sjálfsævisögu Thor Jensen. Þetta orðknappa yfirlit um efni bókarinnar gefur nálega enga hugmynd um menningar- sögulegt og bókmenntalegt gjidi hennar, enn síður um sjáífa söguhetjuna, sem alla tíma mun verða talinn einn stórbrotnasti og mikilhæfasti brautryðjandi nútíma þjóðlífs á Islandi. Hann er meðal ann- ar í fylkingarbrjósti . þeirra manna, sem hrífa verzlunina úr höndum útlendra selstöðu- kaupmanna 'og gera hana al- innlenda. Síðar gerist hann þó enn stórvirkari liðsmaður ís- lenzkrar endurreisiiar og það í tveim aðalatvinnuvegum þjóðarinnar, landbúnaði og fiskiveiðum, en þau; ævintýri eru ekki sögð í Reynsluárum, heldur bíða rúms í næsta bindi ævisögu Thor Jensen, — von- andi er að Valtýr Stefánsson og Bókfellsútgáfan láti lesend- j ur Reynsluára ekki bíða lengi eftir framhaldinu. , Guðm. Danífelsson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.