Vísir - 25.04.1956, Side 3

Vísir - 25.04.1956, Side 3
Miðvikudaginn 25. apríl 1956 VÍSIR 3 Guinness er vin- sæll leikari. Ný kvikmynda-„stjarna“ sögð í uppsiglingu. Kón teitlr Shiriey Madaine, 22ja ára- Einn vinsælasti kvikmynda- leikari vorra tíma er vafalaust enski Ieikarinn Alec Guinness. Eru menn mjög á einu máli um snilld hans, en auk þess þykir hann ljúfur í viðmóti. Til marks um vinsældir hans er sagt frá því í bandarískum tímaritum, að þegar hann kom til Hollywood ekki alls fyrir löngu, tók Grace Kelly á móti honum á flugvellinum, en slíkt þykir að sjálfsögðu mikill heið- ur. Hann leikur ásamt Grace Kelly í nýrri mynd, sem heitir „Svanurinn“. Guinness talar vel um Hollywood og fólkið þar, enda ákaflega vinsæll þar. Se% iuánaða hjénaband. Hjónabönd í kvikmynda- heiminum þykja ekki alltaf eridast sérlega vel. í fyrra þótt hjónaband þeirra Joanne Gilbert og Danny Arn- old einna stytzt, en þó entist það í sex mánuði, eða frá 24. júní 1955 til 20. des. sama ár. Bæði segja þau, að þau voni, að þau taki saman aftur, þetta hljóti að vera misskilningur. Joanne fannst einkum leiðin- legt, að þau skyldu skilja svona rétt fyrir jólin. Sjö myndir frá Disney. Tilkynnt hefur verið að Walt Disney muni senda sjö myndir frá sér á þessu ári. Meðal þeirra eru „Söngur suð- ursins“ (Song of the South), sem er teiknimynd, „Eftirförin mikia á eimreiðinni" (The great loco- motive chase), sem fjallar um' bandarísku borgarastyrjöldina, og „Davy Crockett og fljótaræn- ingjarnir" (Davy Crockett and the River Pirates), en þar fer Fess Parker með hlutverk Croc- ketts. Stúlka er nefnd Shirley Maclaine, og ef trúa má Lúellu Parsons, sem er einn skæðasti slúðurdáikahöfundur í Holly- wood, verður hún með alira vinsælustu kvikmyndaleikkon- unum á næstunni. Lúella þessi Parsons hefur oft reynzt sannspá um slíka hluti, hvað sem annars verður um hana sagt, en dálkar henn- ar eru lesnir af milljónum um öll Bandaríkin og víða um heim annars staðar, þar sem menn fylgjast með ævi og starfi kvikmyndadísanna.. Shirley Maclaine er skop- leikkona frá Broadway, en það er nokkur trygging fyrir því, að hún kann að leika. Lúella Parsons hefur það eftir henni, að hún sé mesta aurasál og eigi engin almenriileg föt vegna þess, að hún tími ekki að kaupa sér þau. Ennfremur hefur Lúella þetta eftir Shirley: „Ég hef ekki hugmynd um eldamennsku, en maðurinn minn er ágætur kokkur og mjög húslegur (hann heitir Steve Parker og er leikari og leik- stjóri). En ég get þvegið upp,“ heldur Shirley ái'ram, „og ég kann að strjúka lín. Og hve margar leikkonur ge.ta strokið lín? Þær eru víst fáár, býst ég við.“ Eins og. öft vill verða í stóru löndunum, var það hrein til- viljun, að Shirley Maclaine „fannst", Þannig stóð á, að í leikriti, sem sýnt var á Broad- way í New York, varð ein leik- konan, Carol LaHney, veik, og var Shirley þá falið að leika hlutverk hennar, en áður hafði hún kynnt sér hlutverkið í ör- yggisskyni. Þótti hún sýna svo frábæran leik að Hal Wallis, mikill ráðamaður í Hollywood, sem var staddur í leikhúsinu það kvöld, bauð henni þegar í stað að koma til Hollywood og kvikmyndanna. Shirley Maclaine er fædd í Richmond í Virginíu fyrir 22 árum. Foreldrar hennar voru leikarar, og þriggja ára gömul fór hún að fást við ballett. í New York komst hún að í dans- flokki í óperettunni „Okla- homa“ og síðar í „Kiss me Kate“. Nú hefur hún þegar leikið í einni kvikmynd, og eru miklar vonir bundnar við hana. ----•------ „Treikkur i tulanuan46. James Mason, hinn frægi, enski Ieikari, á dóttur, Port- Iand að nafni. Hún þykir skynsöm vel og segir margt spaugilegt. Hún. er þegar farin að leika í kvik- myndum, og lék m. a. sjö ára dóttur Jennifer Jones og Gre- gcry Pecks í nýrri mynd, sem hcitir „Maðurinn á gráu föt- un um“. Portland litla vill helzt vci'a með lokaðan munninn fyrir framan myndavélina, og dag -nokkurn spurði Gregory Pecks liana, af hverju það væri. Ástæðan var sú, að hana vantar tvær framtennur, en siðari bætti hún við: „Það er ,,.-ekkur“ í túlanum á mér núna“. Þá eru þau gift, Grace Kelly og Rainier fursti í Monaco, eins og blöðin hafa skýrt frá. Mynd þessi er af hjónaefnunum og foreldrum Grace, en faðir hennar heitir John B. Kelly, sagður vellauðugur, en hinsvegar fær Grace ekkert í heimamund, a«S því er tilkynnt hefur verið. Shirtey Tempie — frægasta „barna-stjama" heimsiits. íVh er liiBin hlédræg viBB eit^in rsjjjaiæðs. Flest okkar, sem komin er- um til vits og ára, munum eft- ir Shirley Temple, „barna- stjörnunni“, sem heillaði hugi allra fyrir 20 árum eða svo. Shirley þessi Temple græddi of fjár á kvikmyndum, en hún hefir sýnt í verki, að frægðin hefir ekki stigið henni til höf- uðs og hún hefir ekki látið hana rugla sig. Hún hefir nú um árabil alls ekki viljað „komast í blöðin", og hún rökstyður það með því, að hún vilji ekki láta eyðileggja framtíð barna sinna með neinum skrípalátum. Shirley virðist því vera skyn- söm kona, þó að sumir kvik- myndablaðamenn kunni henni litlar þakkir fyrir að „fara liuldu höfði“ og neita þeim um kærkomið leséfni. Nýlega var frá því greint í víðlesnu bandarísku kvik- myndatímariti, að fyrir síðustu jól hafi Shirley Temple (sem nú er gift Charles nokkrum Black) verið beðin um að að- stoða við góðgerðaskemmtun í San Francisco, en þar býr hún með fjölskyldu sinni, en hún á þrjú þörn. Shirley neitaði ein- dregið, en þó af fullri kurteisi og lýsti því yfir, að dagar hennar sem leikkonu væru á enda. Hún vissi sem var, að slíkar góðgerðaskemmtanir eru öðrum þræði auglýsinga- og leikbrella. En í einu atriði hefir Shirley talið, að ekki væri ástæða til að láta almenning vera alger- lega afskiptan um hagi sína. Hún eignaðist fjölda margac brúður, enis og nærri má geta, einar 300. Brúður þessar eru um þessar mundir til sýnis í safni einu í Los Angeles, en síð-. an munu þær verða sendar um þver og endilöng Bandaríkin. Shirley Temple segir sjálf um brúðurnar sínar: „Þær færðu mér svo mikinn fögnuð á sínum tíma, að mig langar til, að sem flest börn fái að njóta þeirra og hafi af þeim svipaða ánægju.“ Ýmsar brúðurnar eru mjög verðmætar, m. a. ein, sem lík- ist mjög Elísabetu Bretadrottn- ingu, þegar hún var 12 ára, og svo eru mjög haganlega gerðar brúður, ítalskar, sem kunnáttu- menn segja mjög verðmætar. En Shirley Temple lifir á- fram í minningu kvikmynda- hússgesta um allan heim. Brietar hafa liækkað styrki til tækniþjálfunar og tækni- vísindalegs náms úr 120 upp í 150 stcrlingspund á riem- anda árlega og kann frek- ari námsstyrkjahækkun aS koma til framkvæmda. Péí.wjtt; .^if|íflrðiss©5a: J(Gfein, þcssi birtist upph’af- lega í Skírni 1951). I. Um Lénhárð fógeta, sem svo er nefndur, er engin heimild | frá samtíðarmönnum, nema bréf eitt frá Stefáni biskupi Jóns- sýni, á þessa leið: , „En af því að oss og mörg- um góðum mönnum er kunn- ugt, í hversu mörg brot greind- ur Lénharð hefur fallið við Guð, heilaga kirkju og oss, eftir þvj sem vér sjálfir sögðum hon- um í vor. In primis um við og aðra þá hluti, sem hann hefur haldið fyrir heilagri kirkju og oss, þvert á nióti vorum Vilja. Item timl tnannslagið í vetur. Iteni um misþyrmíng við bróður Árna, sláandi hann til mikilla meiðsla á sjálfan páska- daginn í vor, og hefur hér í öngva lausn fyrir tekið, sem honurn ber, og um það fleh-a, sem vér kunnum ekki í þessu sinni allt að greina. En sakir þess, að þér eruð nú hér á landi hans nánastur frændi, þá viljum vér vita út af yður, hvort þér viljið gjöra nægju heilagri kirkju og oss í bót og betran fyrir brot áður nefnds Lénarðs út af þéim penihgum,; sem hánn hafði meðferðis; eftir því sem dandimönnum þykir. mögulegt, en vér gjörum þá af vorum parti um lausn og aðra hluti, sem til standa, eftir því, sem skjallegt þykir. Sérlega um kirkjuleg kunnum vér ekki minni tænað að taka upp á heil- agrar kirkju vegna en þrjátigi hundraða í betran fyrir svodd- an stórbrotamann, til þess að hann fái kirkjuleg." Af þessari heimild er að ráða, að Lénarð þessi er útlendur maður, sbr. „að þér eruð nú hér í landið hans nánastur frændi“, og mundi ekki svo til orða tek- ið um íslenzkan mann, ennfrem- ur, að minnzt er á p'eninga, „sem hann hafði meðferðis“, og loks nafn hans. Hann hefir dáið einhvern tíma miili þess sem bréfið er ritað og riæstu páska á undan, framið rán, manndráp og misþyrmirigdr skömmu áður, hlotð ámirinihgu af biskupi, ékki verið íalinn kirkjugræfur, en frændi hans einn, staddur hér á landi, sem hefir haft fjár- muni hans undir höndum, beiðst þess af biskupi, að hánn fái kirkjuleg, og héitir biskup því, að vísu með afarkostum. Næsta heimild eru Biskupa- annálar séra Jóns Egilssonar, rit aðir 1605 eða um heilli öld eftir biskupstíð Stefáns Jónssonar. Séra Jón var fæddur 1548 á SnorrastÖðum í Laugardal og var enn lifandi 1634. Hann var 11 ár í Skálholtsskóla, varð prestur í Hrepphólum eftir afa sinn 1571, en árið 1605, þegar hann skrifar annálinn, er hann kominn vistferlum í Skálholt. Hann var því alla ævi í Skál- holti eða á næstu grösum við það. Afi hans, sér Einar Ólafs- ! son, er aðalheimildarmaður séra Jóns um frásagnir á fýrra helm- ingi 16. aldar. Hann fæddist 1497, varð prestur á Seltjarnar- 'nesi og bjó í Laugarnesi, síðar 1(1531—52) í Görðum á Álfta- ' nesi; og loks í Iírepphólum (1553—71). Ilann andaðist 11580. Séra Einar var hinn mesti | vinur Ögmundar biskups og hafði umboð yfir Skálholts- jjörðum um Suðurnes og upp j að Hvalfirði. Þegar Ögmundur | hafði verið fluttur á skip og ; Danir ginntu hann til þess að Jafhenda til laur;.argjalds séj;

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.