Vísir - 05.04.1957, Page 12
Þelr, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
II. hvers mánaðar fá blaðið ckejpis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
VÍSIS e” buyrasta blaðið og þó það fjöl-
breyttasia. — Uringið í sima 1660 «g
gerist áskrifendur.
Fasíudaginn 5. apríl 1957
Tvær páskaferðir í Öræfi
Fyrstu skemmtiferðir d bílum
sem um getur þangað austur.
Reykvíkingar, sem komast
vilja burt úr bæpum um pásk-
ana og í nýstárlegt ferðalag,
eiga þess völ að komast í bif-
reiðum alia leið frá Reykjavík
og austur í Öræfi, en þess gefst
ekki kostur nema örstuttan
tíma á ári hverju.
Þess eru heldur ekki dæmi að
nokkur aðili hafi efnt til
skemmtiferðar á bíl þessa leið
fyrr en nú, að bæði ferðaskrif-
stofa Páls Arasonar og Guð-
mundar Jónasson öræfabílstjóri
hafa ákveðið að efna til sín
hvorrar ferðarinnar þangað —
er verða í 5 daga hvor. Báðir
munu leggja af stað á skírdags-
morgun og koma til Reykjavik-
ur aftur að kvöldi annars í pásk-
um.
Ferðaáætlun Páls Arasonar,
er þannig háttað að hann ekur
á skírdag austur að Núpgstað,
en þar verður gist. Daginn eftir
verður ekið yfir Skeiðarársand
S Bæjarstaðaskóg og gist í
Skaftafelli. Á laugardag geta
þeir sem óska gengið á Öræfa-
jökul en hinir verða eftir í
Skaftafelli og skoða sig þar um.
Á páskadag verður ekið að
Fagurhólsmýri og gist þar, en
á mánudaginn ekið til Reykja-
víkur.
Ferðaáætlun Guðm. Jónas-
sonar verður með nokkuð öðru
sniði en í aðalatriðum þó áþekk
áætlun Páls. Annars gefa þeir
— hvor um sig — allar nánari
upplýsingar um ferðirnar.
Eins og áður getur komast
bílar ekki yfir Skeiðarársand að
sumri sökum leysinga úr jökl-
inum og eru árnar þá með öllu
ófærar. Um þetta leyti árs er
óvenjulega lítið vatnsmagn í
þeim, enda hafa bæði bílar
Vegagerðarinnar og bílar frá
Kaupfélagi Vestur-Skaftfellinga
farið yfir sandinn undanfarinn
vor.
Öll ieiðin þangað austur er
óvenju tilkomumikil á hvaða
tíma árs sem er og því eftirsókn-
arverð ferð fyrir hvern þann
sem unir stórbrotinni náttúru-
Uthluti fé til
listamanna.
Sameinað alþingi hefur kosið
fjögurra manna nefnd, til þess
að skipta fjárveitingu til skálda
rithöfunda og listamanna.
Tveir listar komu fram. Á
'A-lista áttu sæti Kristján Eld-
járn þjóðminjavörður, Sigurður
Guðmundsson, ritstjóri Þjóðvilj
ans, og Helgi Sæmundsson, rit-
stjóri Alþýðublaðsins. Á B-lista
var nafn Þorsteins Þorsteinsson
ar, fyrrv. sýslumanns í Dala-
sýslu.
Voru menn þessir sjálfkjörnir.
300 manns í hættu
af eldi.
í síðustu viku munaði litlu,
að stórkostlegt slys yrði í borg-
inni Fairbanks í Alaska,
stærstu borg þar.
Eldur kom upp í kjallara
stærsta húss borgarinnar, og
komust um 300 manns, sem
bjuggu og störfuðu í húsinu,
ekki út eftir venjulegum leið-
um. Þó tókst svo vel til við
björgunar- og slökkvistörf, að
einungis einn maður beið bana.
Nauðungarflutningar
í Bigaríu.
Nauðungarfluíningar hófust
fyrir nokkru frá Scfíu, höfuð-
borg Búlgaríu, segja fréttir frá
Belgrad.
Var hér um að ræða fólk úr
borgarastétt. sem flutt var
nauðugt upp í sveit, án þess
nokkur skýring væri gefin eða
tilraun gerð til þess að réttlæta j
þessa flutninga. Var búið að
flytja nokkur hundruð manns,!
er síðast fréttist.
Nokkuð var einnig um slíka ^
flutninga í desember eða nokkr
um vikum eftir að frelsisbylt-
ingin brauzt út í Ungverjalandi,
en var svo hætt.
Slakað á
hömlum á Bíýpuv
Á Kýpur hefur verið slakað
til á ýmsum hörkulegum ákvæð
um og sum felld alveg úr gildi.
Mælist það vel fyrir meðal
grískumælandi Kýpurbúa, en
hinir tyrkneskumælandi telja
ótímabært að slaka svo mikið
á sem gert hefur verið.
Vinnufiokkur frá Alkirkjuráði hemur
i sumar.
Hann hjálpar lil að hyggja Langholtskirkju.
• Þ. 27. þ. m. eru 10 ár síðan
Kon-tik-leiðangurinn hófst
í Perú.
„Á kviktrjám“ seit
á 12000 krónur.
Amerískur málverkasafnari
Roy Haliton, sem staddur er í
Reykjavík um þessar mundir
keypti dýrasta málverkið á
inálverkasýningu Eggerts Guð-
mundssonar í gær.
Málverkið heitir „Á kvik-
trjám“ og seldist fyrir 12000
krónur. Alls hafa 10 myndir
eelst á sýningunni, sem hefur
verið vel sótt. Sýningunni lýkur
é sunnudagskvöld.
Stúlka bólusett gegn mænuveiki í Heilsuverndai^töðinni.
Mænusóttarbólusetning:
Dræm aðsókn hjá hinum
fullorðnu.
Óvíst hvort tækifæri gefst brdtt aftur.
Mænusóttarbólusetning á full-
orðnu fólki liefur nú staðið yfir
um nokkurt skeið. Er ákveðið
að gefa fólki upp að 45 ára aldri
kost á henni.
Það hefur komið í ljós að
fólk er mjög áhugalítið fyrir
bólusetningunni og hafa þeir
aldursflokkar, sem þegar hafa
verið boðaðir þ. e. 16—25 ára,
aðeins mætt að litlum hluta. Af
þessu tilefni þykir rétt að vekja
athygli eftirfarandi:
Nú fer í hönd sá árstími, sem
mænusóttar verður helztvart,og
því nauðsynlegt að leita bólu-
setningar sem fyrst. Nokkurn
tíma þarf til að ónæmi mvndist.
og getur því orðið of seínt Bð
hefja bólusetningu þegar farald-
ur er byrjaður, auk þess sem þá
kann að verða erfiðara um fram-
kvæmd slíki'ar bólusetningar. Á
það má einnig benda að mænu-
sótt er allt að því jafntið meðal
fullorðinna sem barna, og eftir-
köst oft alvarlegri.
Þeim tilmælum er því alvar-
lega beint til þeirra, sem vilja
notfæra sér bólusetninguna að
láta slíkt eigi dragast og koma
til bólusetningar á þeim tímum,
sem auglýstir eru. Ennfremur
skal á það minnt, að ef fulls
árangurs er vænzt af bólusetn-
ingunni, ber að koma til 2. og
3. bólusetnlngar á tilsettum
tima.
í júní í sumar koma til Rvík-
ur 18 manns á vegum Alkirkju-
ráðsins í Genf til þess að að-
stoða við bj'ggingu Langholts-
kirkju, sem nú er byrjað að
byggja.
Á blaðamannafundi í gær
skýrði Iielgi Þorláksson, form.
safnaðarstjórnar, frá tilhögun
starfsins. Með hinum erlendu
aðstoðarmönnum vinna einnig 8
eða 9 íslenzkir sjálfboðaliðar,
sem dvelja með þeim þann tíma
sem þeir verða hér.
Dr. Þórir Þórðarson dósent,
sem á mestan þátt í því að fá
hingað hina erlendu sjálfboða-
liða, skýrði frá hinu merkilega
samstarfi kristinna kirkna í öll-
um löndum heims, er miðar að
gagnkvæmum kynnum kristinn
ar æsku, sem jafnframt innir af
hendi fórnfúst starf, þar sem
þörfin er.
Framkvæmdastjóri vinnu-
flokka Alkirkjuráðsins, William
Perkins, hefur dvalið hér
nokkra daga og unnið að undir-
búningi fyrir komu vinnuflokks
ins. Á vegum Alkirkjuráðsins
starfa árlega um 900 ungmenni
Viðræðum um Súez
haldið áfram.
Eisenhower Bandaríkjafor-
seti ræddi í gær við Dulles og
Herther aðstoðarutanríkisráð-
herra. Súezmálið var til um-
ræðu.
Bandaríkjastjórn telur sein-
ustu svör egypzku stjórnarinn-
ar við fyrirspurnum Banda-
ríkjastjórn ófullnægjandi.
Hammarskjöld lýsti sig mót-
faliinn því í gær, að Öryggis-
ráðið væri kvatt saman út af
Súezdeilunni. Hann kvaðst ekki
taka beinan þátt í samkomu-
lagsumleitunum við Nasser
varðandi rekstur skurðsins, en
taldi tillögur hans ekki brjóta
í bág við grundvallaratriðin sex
— og er hann þar á öðru máli
en Bretar og Bandaríkjamenn.
frá ýmsum löndum að upp-
byggingarstarfi. Þeir byggja
flóttamannabúðir, reisa hús,
sem hrunið hafa í jarðskjálft-
um, leggja vatnsleiðslur, byggja
kirkjur, svo eitthvað sé nefnt.
Þeir, sem til íslands koma í
sumar eru frá Norðurlöndum,
Bretlandi og Bandaríkjunum, og
dvelja hér mánaðartíma. Þeir
kosta för sína og uppihald sjálf
ir. —
í íslenzka vinnuflokknum,
sem starfar með hinum, eru
flestir stúdentar, 1 iðnaðarmað-
ur og tvær húsmæður. Fyrir-
liði hans er Kristján Búason
guðfræðinemi, en hann hefur
áður unnið með vinnuflokki Al-
kirkjuráðsins í Þýzkalandi.
Sjómenn fá út-
svarsfrádrátt.
Á bæjarstjórnarfundi Reykja
víkur í gær var rætt um frá-
drátt á útsvari sjómanna.
Kom þá í ljós, að um svipað
leyti og mál þetta var til með-
ferðar á alþingi, hafði Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri rætt
við formann niðurjöfnunar-
nefndar um möguleika á því,
að sjómönnum yrði veittur enn
þá meiri frádráttur við álagn-
ingu útsvara, heldur en fólst í
stjórnarfrumvarpinu um á-
lagningu tekjuskatts. Er þetta
nú í athugun hjá formanni nið-
ur j öfnunarnef ndar.
Borgarstjóri upplýsti einnig
á fundinum, að það hefði um
langt skeið verið regla hjá nið-
urjöfnunarnefnd, að veita sama
frádrátt á-útsvari og lög kvæðu
á um varðandi tekjuskatt, yrðd
því þannig nú, að minnsta kosti
jafnmikill frádráttur yrði veitt-
ur við álagningu útsvars og hin
nýju lög um skatt sjómanna á-
kveða.
Freuchen held-
ur fyrirlestur.
Peter Freuchen, hinn frægi
danski landkönnuður, sem
staddur er hér um þessar
mundir, flytm: fyrirlestur n. k.
sunnudag.
Freuchen er hér, sem kunn-
ugt er, á vegum Stúdentafélags
Reykjavíkur.
Fyrirlesturinn flytur hann í
Gamla bíó kl. 2 e. h. Mun hann
enn fremur sýna skuggamynd-
ir frá ferðum sínum.
Aðgöngumiðar eru seldir í
bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar í dag og á morgun
og rennur ágóðinn til Sátt-
málajóðs.
Fimm dæmdir
til lífláts.
Fimm hermdarverkamcnn á
Kýpur voru dæmdir til líflóts
í morgun, fyrir afbrot framin í.
febrúar s.l.
Hafa aldrei jafnmargir menn
verið dæmdir til 71 áts í einu
þar, ogð er tekið fram í þessari
fregn, að það varði enn lífláts-
hegningu, að nota skotvopr,
bera þau á sér eða valda
sprengingum.
Frá rannsóknar-
lögreglunni.
Rafinsóknarlögreglan óskar
eftir að tala við mann þann, sem
keypti lítið útvarpsviðtæki,
rautt og hvítt fyrir utan forn-
söluna á Hverfisgötu 16 síð-
degis í gær.