Vísir - 08.05.1957, Page 11
Miðvikudaginn 8. maí 1957
VISIB
ir
IsSesizk ténBisfarháfíð
Frh. af 7. s.
í blásturshljóðfærin og pák-
urnar og litlu trommuna og
svo til baka. Það, sem kemur
svo frá tónskáldinu virkar eins
og lestin hafi komist í ógöng-
ur — en komist upp úr og
skeiðar áfram í yndislegu
þjóðlagi — Það þarf ekki að
óttast truflanir af tæknilegum
ástæðum, hér er engin tækni,
hvorki til að trufla né bæta —
hér er „flikkað" saman dýr-
mætum þjóðlögum, er allir
elska og þekkja — og ekki er
hægt að skemma — jafnvel
með svona ófimlegum aðferð-
um.
Hið kröftuga ættjarðarkvæði
Einars Benediktssonar, „Rís þú
unga íslands merki“ er svo
sungið og maður þráir Sigfús
Einarsson. Og svo áfram sungið
„Landið er fagurt of frítt“. —
Síðan fjörugt þjóðlag, og sam-
setningurinn var búinn. —
Allir unnendur íslenzkra
þjóðlaga — hafa þráð, að ís-
lendingar fengju einhvern Si-
belius eða Grieg, sem gæti blás-
ið lifandi anda tónlistarinnar
inn í hinn ríka fjársjóð ís-
lenzkra þjóðlaga. Ég varð sorg-
lega viss um, að okkar Sibel-
ius hét ekki Jón.
★ ★ ★
Á Sinfóníutónleikunum voru
flutt mörg mjög glæsileg tón-
verk, t. a. m. eftir hið gáfaða
unga tónskáld Skúla Halldórs-
son „Sogið, forleikur fyrir
hljómsveit“, — sem sýnir svo
ríka hæfileika að honum verður
fylgt með eftirvæntingu. —
Eins getur Kjarval verið
stoltur af að tónverk héfur ver-
ið skrifað, innblásið, af mynd
hans „Draumur vetrarrjúp-
unnar“, eftir Sigursvein D.
Kristinsson, og var það mjög
eftirtektarvert. — Einnig átti
Árni Björnsson þarna fagurt
verk, vel samið, sem sýndi að
hér fylgdi Sönggyðjan tón-
skáldinu. Var það hljómsveit-
artilbrigði við rímnalag og
þrungið tónlist hins fædda tón-
skálds. —
Senfonietta — lítil sinfónia
eftir Jón Nordal. — Fannst
mér hún ekki nógu lítil.
★ ★ ★
Eftir þessa tónleika var
þjóðsöngurinn sunginn með
hljómsveitinni. Minnist ég
ekki að hafa heyrt hann betur
fluttan. Ég komst aftur inn
i hið andlega ísland, sem óm-
ar af trú og vonum, sólbjart
og hreint. —
★ ★ ★
Menntamálaráðherra hafði
glæsilegt boð fyrir tónlistar-
mennina í ráðherrabústaðnum
og borgarstjórinn, tónlistar-
unnandi mikill, hefur boð í
Þjóðleikhússkjallaranum, og
heldur þar vinsamlega ræðu
fyrir tónlistarmönnunum. í
skýringunum hef ég lesið um
bruna hjá Jóni Leifs, og hef
áhyggjur út af því að einhver
handrit hafi farizt og hryggir
það mig, ef eiíthvað skyldi hafa
eyðilagst, þó ég ekki skildi
það, þegar fresturinn er út-
runninn eftir 170 ár en einhver
íslenzk kynslóð feer að njóta
þess, svo að ég spyr Jón
hvort hann hafi misst hand-
rit í brunanum. — „Nei, nei,
bara endurprentanir og radd-
heftin“. Mér léttir mikið, og
spyr hann því, hversu mörg
þau séu og hvað þau heita.
„Blessaður farðu til Hallgríms,
hann hefur skrifað mikið um
þau og talið þau öll upp“. Ég
fer því til Hallgríms sem góð-
fúslega lætur mér í té upp-
lýsingar. Verkin heita Eddu-
kvæði — Saga og eitthvað
meira, sem ég ekki man. —
j Já, Eddan — Sagan —
' Sögueyjan, allur heimurinn
þekkir það. — Eddan er helgi-
rit hinnar íslenzku þjóðar. Það
er gott vörumerki, sem má
selja, enginn verndar það. —
jEins og fjársjóð þjóðlaganna
j má nota hugmyndir, og sálar-
laust af dililettöntum má breiða
3’fir hann örugga blæ hinna
helgu fornrita. ■— Allt íslenzkt
má útata.—
Þagar við vorum litlir var
okkur kennt að leggja ekki
Guðs nafn við hégóma. Því er
nú gleymt. -—■
Eins og þróun tónlistarinnar
er orðin getum við brátt átt von
á Eddunum á lírukassa.
í lok hófsins hjá borgarstjóra
þakkar svo formaður Tón-
skáldafélagsins fyrir hinar
glæsilegu móttökur. í hressi-
legum ungmennafélagsstíl stíg-
ur liann á stokk og strengir þess
heit að auka tónlistina, heiðra
og vernda — og að allir geri
hið sarna. — Og náttúrulega
vilja allir það. Hann hefur
lagt áherzlu á að þetta sé fyrsta
hljómleikahátíð íslenzkra tón-
skálda.
Það rennur þá upp fyrir mér,
að hér er ég í hópi manna, sem
hafa falsað tónlistarsögu ís-
lendinga. — Sögufölsun, hvað
þá tónlistarinnar er svo algeng
hér, að enginn nennir að elta
ólar við slíkt. — Þetta var ekki
fyrsta, þetta var liklega nær
100. hljómleikahátíð tónskálda.
— Sveinbjörn Sveinbjörnsson
hafði hér hljómleikahátíðir
sínar fyrir aldamót. —
Sigfús Einarsson hafði einn-
ig tónskáldahátíð sína, rétt eft-
ir aldamót. —
Sigvaldi Kaldalóns hafði
mörg tónskáldakvöld — og
hátíðir. —: Eggert Stefánsson
hafði 20—30 tónskáldakvöld,
þar sem verk flestra tó.nskálda
sem eru á tónskáldakvöldunum
27—30 apríl í ár voru flutt.
Og svona má lengi telja, líka
úti á landi.
Svo þessi Bjartur í Sumar-
húsum tóniistárinnar, heíur
slátrað of fljótf þessum fyrir-
rennurum sinum. *— t |f.
IÐB
Þar sem. umouoirnar voru
svo glæstar um hátiðina, gæti
þetta náttúrulega í siðuðu landi
haít alvarlegar afleiðingar. —
En hér læknar tíminn öll
sár. —
★ ★ ★
Svo þakka ég Tónskáldafélag-
inu fyrir hátíðina, þar var svo
margt ágætt, hljómsveitin og
hljóðfæraieikax r, som cr
á íslandi. — Þeir, sem studdu
að því að koma hljómsveit-
inni á fót eiga ^lþjodui’puniur
skilið. — Þeir eiga í>- ðina.
Einnig tónskáldin er skálda fyr-
ír mjonis veiuiiú,. er. ja og
það sem heíur áunnizt. —
Ef „ástin og listin“ — leið-
ast í hönd í hönd, mun listin
áreiðanlega sigra. —
Reykjavík, 1. maí 195?
Fálkinn gefur út !
4 hæggengar plötur.
Kljóðfæi-averzlunin Fálkiim
hefnr nú hátt á annan tug ára
látið Iiljóðrita íslenzka tónlist,1
eða í'Iutta af íslenzkum og,
þannig stuðlað að útþreiðslu
íslenzkrar tónlistar og tónrnennt-.
ar. í framhaldi af þessari stefnu
og til að uppfyila líröfur lun
liljóðritun, itefur Fálkinn ráðist
í að gefa út fjórar nýjar ís-
lenzkar hæggengar plötur.
Fyrsta platan er hljóðrituð í
Milano 1955. Inn á hana heíur
leikið Gísli Magnússon. Leikur
hann enska svítu eftir Bach og
lög eftir Pál ísólfsson og Svein-
bjöm Sveinbjörnsson.
Þá er Bach-plata Páls Isólfs-
sonar. Á henni eru sömu orgel-
verkin, sem dr. Páll hefur áður
ieikið inn á hraðgengar plötur.
Rögnvaldur Sigurjónssón hef-
ur leikið inn á hæggenga plötu,
sem kemur út eftir fáa daga.
Var hún hljóðrituð i Kaup-
mannahöfn í fyrra. Hann leikur
þar verk eftir Viggo Benzon og
Schumann.
Að lokum er plata með
Guðrúnu Á. Símonar. Sumt af
lögunum á þessari plötu voru
áður komin á hráðgengnum
plötum.
Framtíðaráform Fálkans í
þessu gefa einnig góð fyrirheit,
— má þar nefna söng Karlakórs
Reykjavíkur og Fóstbræðra,
plötu með „ramíslenzkri tónlist"
og síðast en ekki sist kvæða-
lestur Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi á ljóðum sínum.
Sennilega fer hann til Kaup-
mannahafner í júní þar sem upp-
lestur hans verðui hljóðritaður.
Að líkindum verða plöturnar
þrjár eða samtals 66 mínútna'
lestur.
Enn um „Dróma"
I
I Visir liefir verið bsðinn að
birta eftrifarandi tilkynningu
fra Atvinnudeild Háskólans,
Iðnaðardeild:
Vegna yfirlýsinga, sem birzt
hafa að undanförnu í nafni At-
. vinnudeildar Háskólans, varð- j
andi sóttvarnarlögin „Dróma“,
framleiðandi Selfoss Apótek,
óskar Iðnaðardeild Atvinnu-
deildar Háskólans að taka fram
eftirfarandi;
Rannsókn, sem framkvæmd
hefir verið á el'narannsókiia-
stofu Iðnaðardeildariimar á
sýnishorni af „Dróma“ sótt-
varnarlegi, sem tekið var -í
; verzlyn í Reykjavík, af starfs-
; manni deildarinnar, rannsókn
F57/59 dags. 4. maí 1957, stað-
festir að lögur þassi er sá sami
Og áður' var rannsakaður undir
nafninu „Sóttvarnarlögur".
Rannsókn á sýnishcrni þessu,
sem sent var frá Selfoss Apó- j
teki er staðfest með vottorðum
frá efna- og gerlarannsóka-
stofum deildarinnar, rannspkn
nr. F56/66 dags. 5./3.. 1956 og
nr 230 dags, 17./3. 1956.
Vórsýnmg
verður haldin í Skátaheimilinu í kvöld kl. 8,30.
Sýndir verða íslenzkir og erlendir þjóðdansar.
Að sýningu lokinni verður dansað.
Allir velunnarar og stuðningsmenn félagsins velkomnir.
Nefndin.
Þýzkar
Véla- ©§ raftækjaves’zfunlsi h.f.
Bankastræti 10, sími 5896. — í Keflavík, Hafnargötu 28.
Kartöftuskrælari og brauihmfnr
sem nýtt, er ef sérstökum ástæðum til sölu.
Tilvalið fyrir veitingahús, sjúkrahús, verzlanir eða þess
háttar.
Einnig
rafmagnssuðupottur
tilvalinn fyrir franskar kartöflur og fiskifillet.
Upplýsingar í veitingastofunni Laugavegi 89,
kl. 7—10 e.h.
Orðsending
frá BólsftHrgerðinni
Áður en þér festið kaup á húsgögnum þá kynnið ykkur
okkar nýju afborgunarfyrirkomulag, sem gerir öllum mögu-
legt að eignast húsgögn.
Bólslurgerðin
Brautarholt 22 — Sími 80388.
verður haldið að Hverfisgötu 115 hér í bænum föstudaginn
Í0. maí n.k. kl. 1,30 e.h. eftir kröfu tollstjóráns í Heýkjavík,
bæjargjyldkerans í Reykjavík o. fl. Seldar verða eftirtaldar
bifreiðar:
R-337, R-515, R-1773, R-1870, R-1952, R-1961, R-1964,
R-2475, R-2812, R-3318, R-3505, R-3508, R-3653, R-3893,
R-3938, R-4058, R-4539, R-4706, R-4728, R-4849, R-4918,
R-5109, R-5120, R-5498, R-5500, R-5575, R-6362, E-S463,
R-6498, R-6747, R-7098, R-7168, R-7261, E-7330, P.-7316,
R-7423, R-7-62.1, R-8.247, R-8457, R- 8828, 11-8869, R-9,358,.
R-9053
Greiðsla. fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í fteykjavík.
rP ;
ini
M!FAS\EGÍ 25 . SÍMÍ 1463
STILAR'TAI ÆFÍNGAR
Vegna landþrengsk
spítalabúsins á þessu *.
Sölu nautgripanna ai
mundsson, og veitir hann i
>ætta rekstri Kleppg-
ar kýr búsins.
. jrinn, hr. Tryggvi Guð-
aii upplýsingar, sími 5654.
Skrifstofa ríkisspítalanna.