Vísir - 02.09.1957, Blaðsíða 1
17. £rg.
Mánudaginn 2. september 1957
205. tbl.
Talsverð síldveiði í rekoet
• út af Vestfjörðiim^
Heybrunar í V.-IsafjarBarsýsks.
Á því augnabliki, sem þessi mynd var tekin, hsfði mátt æíla, að nú mundu landarnir skora,
þar sem Gunnar Gunnarson og Þórður Jónsson voru .komnir allt inn að niarki Frakkanna, en
Kaelbel, franski bakvörðurinn, náði að spyrna frá (Ljósm.: Bj. Bj.)
Fraltltarnir léku betur
og sigriiðii örugglega.
íslen&kíi iMMixÍsliðið í
ímöm'Ömmmmm leik.
Forsaga liins tuttugasta lands-
leiks Islendinga hafði orðið all
söguleg eins og kunnugt er, vaí
jafnvel haldið að hún mundi
draga úr aðsókn að leiknum og
niá vera að svo hafi verið því á-
horfendur að leiknum voru ekki
nema 8 þúsund.
Er Lúðrasveit Reykjavikur
hafði lokið við að leika þjóðsöng-
inn franska og hinn íslenzka
skiptust fyrirliðar liðanna á fán-
um og siðan hófst leikurinn.
Frakkar höfðu unnið hlutkestið
og kusu að leika fyrst á nyrðra
markið. Islendingar byrja með
boltann og strax á annarri mín-
ustu kemst Ríkarður upp með
boltann gefur síðan til Þórðar
Þórðarsonar, en franski bakvörð-
urinn nær boltanum og bjargar
í horn. Hornspyrnan var vel tek-
in og það kemur góður bolti fyr-
ir og skallað að marki en Col-
onna markvörður ver.
Frönsk sókn.
Örstuttu siðar er aukaspyrna
á Frakka, en Ríkarður skaut
rétt framhjá markinu.
Nú taka Frakkarnir leikinn
meira í sínar hendur, er þeir
hafa kynnzt leikaðferð ísl. liðs-
ins betur og áttað sig á glerhál-
um vellinum. Piantoni vinstri
innherji brýst einn i gegn um
vörnina á 8 mín. (ekki csvipað
og leikaðferð Ríkarðs) kemst
einnig framhjá Helga markverði,
en þegar hann ætlar að ýta bolt-
anum í mark, þá er hann rétt
fyrir utan stöng og boltinn kom-
inn úr leik. Þarna hefði jafnvel
getað orðið fyrsta markið.
Frakkarnir eiga nú mun meira
í spilinu, en islenzka liðið á
marga góða kafla í þessum hálf-
leik. Á 17. mín. eiga þeir t. d. vel
uppbyggt upphlaup að franska
Frá fráttaritara Víiis. —
Isafirði r. laugardag.
Vestfjrzku vélbáíarnir, sem
sem áðúr stunduðu rekneta-
veiðar í Húnaflóa, hófu rek-
nétaveiðar vit af Vestíiarðum í
byrjun 'þessarar viku.
Barst fyrsta síldin til Bol-
ungavíkur á mánudag. Var hún
söltuð' og fryst. Á fimnitudag-
inn hófst síldarsöltun á ísafirði'.
Þar leggja upp vélbátarnir
Guðbjörg, Gunnvör og Már.
A föstúdaginn (í gssx) bárust
4^0 tr£ síldar til Suðureyrar í
Súgandafirði. Aflahæsti bátur
þfir fékk 80 tn í legu; sá lægstí
25 tn.
S.l. fimmtudag fékk vélb.
Már 70 tn. í legu; Guðbjörg og
Gunnvör voru með 50—60 tn.
í gær fékk Björg frá Keflavík
198 tn. í dag fengu hæstu bát-
ar 70—80 tunnur.
Síldin er enn mjög misjöfn.
Sumt af henni horað og smátt.
MiJcilI útflutningur
íslenzkra afurða hefur verið
frá Vestfjörðum í þessum mán-
uSi. Mest hefur verið útflutt af
hraðuystum fiskflökum, einnig
skreið' og saltfiskum. í næstu
viku lestar Reykjarfoss mikið
aí' fiskmiöli frá Vestfjörðum.
Framleiðsla hraðfrystihúsa
05 fiskimjölsverksmiðja á
Vestfjörðum hefur verið meiri
í sumar en mörg undanfarin ár.
Þau hraðfrystihús, sem aðstöðu
hafa til, ætla einnig að frysta
síld til útflutnings.
//¦
Tvær 17 ára stúlkur
synda yfir Eyjafjörð
Aíls hafa 18 manns þreyti Eyjafjarðarsund
á Vi ö!d.
Frá fróttaritara Vísis.
Akureyri í morgim.
Fyrir helgina syntu tvær 17
ára gamlar stúlkur yfir Fyja-
fjörð og þykir það goít afrek af
svo ungurn stúlkiun.
Þarna var um tvo nemendur
úr Gagnfræðaskcla Akuroyrar
að ræða, Sólveigu Guðbjartsdótt-
ur og Bryndísi Þorvaldsdóttur.
Þær syntu frá Oddeyrinni á Ak-
ureyri og yfir að Halllandsnesi.
Sólveig var aðeins 22 mínútur á
leiðinni en Bryndís nokkuru leng
ur.
Alls liafa nú 18 manns breytt
sund yfir Eyjafjörð á s. 1. hálíri
öld svo . vitað >sé, Sá fyrsti var
Karl Hansen trésmiður, en hann
var nemandi Lárusar Rist sund-
kennara. Seinna sama sumar
synti Lárus Rist sjálfur j-fir
fjörðinn.
Elzti maður, sem þreytt lieflir
þetta sund er Albert Sölvason
framkvæmdastjóri, en hann
synti yfir Eyjafjörð i sumar, 55
ára að aldri.
rErfitt að leika á
móti viovaningum",
J*. JV£cola&9
É'itt'gtB. frönsfiu
lan tisiiiísstfiittt-
arinnar
Ég spurði Paul Nicolas
formann frönsku landsliðs-
nefndarinnar um álit lians á
leiknum. Hann sagði að
franska liðið hefði ekki leik-
ið nærri nógu vel, sem er því
að kenna, að keppnistímabil-
ið er rétt að hefjast.
líann var ánægður með
þá Wisnieski hægri 'útherja
og Penvern hægri framvörð.
Hinsvegar sagðist hann vera
óánægður með Boucher, sem
væri nýr maður í liðinu.
Hann sagði, að franska lið-
ið Jhefði átt erfitt með að
leika á móti fslendingunum,
því þeir léku knattspyrnu
eins og viðvaningar.
Tveir heybrunar
hafa orðið í Vestur-ísa-
i f jarðarsýslu á þessu sumri. Sá
I fyrri hjá Gísla Vagnssyni bónda
á Mýrum í Dýrafirði fyrri hluta
ágúst. Kom eldurinn upp í
hlöðu. Brátt þusti að fólk frá
næstu bæjum. Tókst að kæfa
eldinn eftir nokkra stund. Talið
er að eyðilagst hafi um 40
hestar af heyi. Auk þess nokk-
uð skemmt.
Síðari heybruninn varð í
fyrradag hjá Ágústi Ólafssyni
bónda að Stað í SúgandafirSi.
Kviknaði í heyhlöðu. Fjöldi
fólks fór með slökkvitæki frá
Suðureyri út að Stað og gerðu
harðan aðgang að eldinum. —
Tókst ekki a'ð slökkva eldinn
fyrr eh eftir alllangan tíma.
Talið er að þarnar hafi eyði-
lagst um 100 hestar af heyi. Er
það mikið og óvænt t.ión.
mai-kinu, en bakverðirnir
frönsku eru fastir fyrir og ekk-
ert verður ftc þessu.
Fyrsta markið.
Nokkru áðu rátti Piantoni gott
skot af löngu færi og lenti bolt-
inn ofan á þverslánni.
Á 22. min. á Bliard vinstri út-
herji fast skot, en framhjá. Og
á 26. mín. á hann aftur skot, en
nú laust og fékk Helgi auðveld-
lega varið. Á 29. min. á CisoVvski
Framh. á 5. sföu.
Fengu 22 minka
á 7 dögum.
Veidiiewö á Jki%n-
aM'va tnsheiöi.
Litlar fregnir hafa borizt
af minkastríði Carls A. Carl-
sens í sumar, en þó hefur
ekki verið um „vopnahlé" að
ræða. Fyrir nokkru fór ung-
ur maður frá Hólmavík, sem
numið hefur fræðina af Carl.
sen, við annan mann upp á
Arnarvatnsheiði. Höfðu þeir
meðferðis 70—80 boga, sem
Carlsen lánaði þeim, og voru
á heiðinni í viku. Settu þeir
um helming boganna upp á
tiltölulega litlu svæði, og á
vikutíma veiddu beir 20
minka í þá, en auk þess
skutu beir einn og á þeim
22. vann hundur þeirra. —
Þessi vikuleiðangur gaf því
1980 krónur í verðlaun, og
var þó fjarri því, að veiði-
möguleikar væru nýttir til
fulls, en betta gefur nokkra
hugmynd um bað, hversu
krökt muni vera af mink
þar efra.
\
Fimm sinnum alls varð Helgi markvörður að horfa á eftir bolt-
anum í netið. Hjá honum stendur Kistinn Gunnlaugsson bak-
vörður. (Ljósm.: Þorsteinn Jósepsson).