Vísir - 09.10.1957, Side 6

Vísir - 09.10.1957, Side 6
Ví SIB Miðvikudaginn 9. október 1957 WSSXI& D A G B L A Ð Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Eitstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. y Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. ' Sími: 11660 (fimm línur). Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kostar kr. 20,00 í áskrift á mánuði, kr. 1,50 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Vafasamur áróður. Þjóðviljinn var heldur en ekki kampakátur á laugardaginn, 1 þegar 'hann tilkynnti les- ] endum sínum, að austur í Sovétrikjunum hefði verið skotið á loft gervihnetti. Þjóðviljinn komst nefnilega að þeirri niðurstöðu, að ' gervihnötturinn hefði eigin- lega ekki farið einn á loft, því að hann hefði bókstaflega lyft kommúnismanum á æðra plan. Segir blaðið, að „Sov- étríkin sjálf (hafi) sannað, svo að enginn fær um villzt, yfirburði þess þjóðfélags, sem á fjörutíu árum hefir lyft þjóðum þeirra úr algerri eymd og niðurlægingu í í æðsta sess vísinda og menn- ’ ingav“. Það er svo sem ekkert smá- ræði, sem Þjóviljamenn taka ■ upp í sig með þessu og er þó enginn efi á þörf þeirra fyrir að fá einhverja upp- I lyftingu á þessum síðustu og verstu timum. Sovétskipu- lagið og kommúnisminn hafa ekki auglýst sjálf sig svo skemmtilega eða fagurlega á undanförnum mánuðum, að ekki megi nota auglýsingu á borð við þá, sem þarna var um að ræða. Er og ágætur samleikur milli Þjóðviljans og samstarfsmanna hans við útvarpið til að tryggja það, að kommúnistar hafi ein- hvern pólitískan hagnað af þessu, enda mun ekki af veita. Það er auðvitað viðurkennt, að það er hið mesta vísindaaf- rek, sem unnið hefir verið með því að -skjóta gervi- hnettinum út. i geiminn, en mjög er það 'vafasamt, hvort kommúnisminn getur skrif- að það að nökkru leyti á sinn reikning. Llglegast eru það þýzkir vísindamenn, sem unnið hafa mest við undir- búning þessa fyrirtækis, því að Þjóðvei'jar voru komnir þjóða lengst í eldflauga- tækni, þegar Þriðja ríkið leið undir lok. Bæði kommúnist- ar og vesturveldin slógu að kalla eign sinni á vísinda- menn Þjóðvei’ja í ýmsum greinum, til að láta þá starfa fyrir sig, og þarna er senni- lega árangurinn af starfi sumi'a þeii’ra. Þegai’ vel er að gáð, verður því heldur minna úr áróðursgildi fregnarinnar fyrir kommún- ista, en þeir höfðu gert sér vonir um. Gervihnötturinn og geimför hans eru engin sönnun fyrir ágæti kommún- ismans eða yfii’burðum hans gagnvart lýði’æðisskipulag- jnu. Ágæti eða yfirburðir þjóðfélags verða, þegar öllu er á botninn hvolft, aðeins metnir eftir því, hversu vel því tekst að auka á lífsham- ingju einstaklinganna og fi’elsi þeii’ra til að ráða henni sjálfir. Kommúnisminn sviptir menn lífshamingj- unni og öllu frelsi til að skapa hana. Um hitt er ekki að villast, að þetta færir heiminum sönn- ur á, að kommúnistar geta smíðað vopn, sem senda má víða vegu um hnöttinn, jafn- vel hvert á land sem er. Það mun gera kommúnistum fært að halda áfram hótun- um sínum eins og að úndan- förnu — hótunum um tor- tímingu, ef ekki verður fall- izt á þá skipun heimsmála, sem þeir segja fyrir um. Lýðræðisþjóðirnar þurfa því ekki að gei’a ráð fyrir, að kommúnistar verði fúsaiú en áður til að semja um afvopn un og bætta sambúð. Bágar horfur. Ásbjörn Síefánsson (I8.F.Ö.): Þegar ekið er fram úr. Möi’g umferðai’slys orsakast af því að mönnum misheppnast „að taka fram úr“ eins og það er kallað. Framúrakstur er mjög oft hættulegur og krefst sér- staki-ar varúðar og dómgreindar. Það virðist svo sem að þeir öku- menn séu í minni hluta, sem í raun og veru gei’a sér ljóst, hve langan vegarkafla þarf til þess að taka fram úr og hve langan vegarspotta þeir þui’fa að hafa fulla yfirsýn til þess að þetta sé hættulaust. Daglega sér maður svo glannalegan fi’amúrakstur að manni ofbýður. Nú skulum við athuga framúi'akstur dálitlu nánar og taka dæmi. Framúraksturinn hefst með því að ökumaður sá, sem ætlar fram úr, ekur bíl sínum yfir á hægri vegarbrún. Til þessa þarf maður svona upp og ofan 25 metra. Til þess að fai'a fram hjá hinum bilnum þarf svona 10 meti’a. Að lokum má ætla um 30 metra i það að fara aftur yfir á vinstri vegarbi’ún framan við bílinn, sem tekið var fi'am úr. Allar þessar tökur eru þó vitan- lega aístæðilegar (relativar). Ennfremur skulum við gei’a ráð fyrir, að billinn, sem ekið er fram úi', sé á 40 km hraða, en sá sem ekur fi’am fyrir sé á 60 km. hraða, eða á 20 km. meiri hraða en hinn, sem er sama og 5,5 m/sek. Þessir 65 metrar sem hann notar til þess að aka fi’am hjá hinum vagninum taka þvi 65 : 5,5 eða 11,8 sekúndur. Á sama tima hefur bilinn, sem tekið var fram úi', miðað við það að hann drægi ekkert úr fei'ð, fai'ið um 130 metra. Til þess að útiloka hættu af árekstri við vagn, sem kæmi á móti á sömu ferð, verður maður að hafa fulla yfii’sýn yfir um það bil tvöfaldar þessar vegalengdir, eða um 400 metra. Við sjáum af þessu, hve nauðsynlegt það er hér á landi, með okkar mjóu, ki’ókóttu vegi með sífeldum blindhæðum, að ástunda vax’- kárni á þessu sviði sem öðrum, og þá' um leið, hve þýðingar- mikið og sjálfsagt það er, að vikja út á vinsti’i vegai’brún, þegar bill, sem er á eftir, gefur merki um að hann vilji komast fi’am hjá, og að di’aga um leið mikið úr ferð. Við það tekur framúi’aksturinn miklu styttri tíma og slysahættan minkar. Það er skortur á tillitssemi að vikja bai’a til hliðar en di’aga ekki úr íerð, og þarf að di’aga svo mikið úr ferðinni að bílstjór- inn, sem á eftir ei’, skilji að hon- um sé ætlað að taka fi’am úr. Verst af öllu er þó vitanlega að sinna alls ekki merkjum bils, sem á eftir er, en þumbast á- fi’am á miðjum vegi, sé vegur- inn þá ekki svo mjór, að fram- úrakstur sé sýnilega hættulegur. „Að víkja ekki“ er dónaskapur, sem engum er samboðinn, en því miður ekki svo sjaldgæfur. Það er ekki hægt að afsaka sig með því að menn hafi ekki heyrt hljóðmerkið. Það lýsir í flestum tilfellum þvílíkum skorti á eftirtekt, að ekki vei’ður sagt um slíkan mann að hann kunni vel að aka. Framúi’akstur á biindum hæð- um, við hægri vegamót, á beygj- lim og brúm er, almennt séð, svo mikill stráksskapur, að varða actti missi ökui’éttinda þótt ekki verði slys af. Biblían prentuð aftur hér á: landi. «v • Kom út um siðustu helgi í stóru, failegu brotf. Samningalipurð kommúnista hefir ævinlega oltið á því, hversu góð vopn þeir hafa talið sig hafa, hvort þeir hafa talið þau betri en vopn lýð- ræðisþjóðanna eða lakari. Vaid og máttur er það eina, sem þeir skilja og bera virð- ingu fyrir, svo að þeir hafa farið sér hægt, þegar þeir : hafa talið sig vera máttar- í minni en lýðræðisþjóðirnar, T en gerast uppivöðslusamir, þegar þeir telja, að þeir hafi sjálfir krafta í kögglurm Þegar á þetta er litið, er tæp- ast ástæða til að ætla, að kommúnistar verði sam- vinnuþýðari á næstunni en, þeir hafa verið að undan- j förnu. Nú munu þeir einmitt! færa sig upp á skaftið, því að þeir telja sér það óhætt. Það voru því á margan hátt váleg tíðindi, sem bárust út um heiminn á laugardaginn, þegar það var tilkynnt, að Rússar hefðu skotið upp gervihnetti. Það er fjær en áður, að mannkindin geti sofið rólega af því að sam- búð stórveldanna fari batn- andi. Uni siðustu helgi kom í bóka- verzlanir hin nýja biblía, sem Hið ísl. biblíufélag’ liefur gefið út. Af því tilefni kvaddi biskupinn, hen’a Ásmundur Guðmundsson, fulltrúa blaða og útvarps á sinn fund í gær og skýrði þeim frá útkomu hennar og aðdraganda öllum, Sú var ti&in að íslendingar sáu sjálfir um biblíuútgáfur sínar, og voru 3 fyi’stu útgáfur prent- aðar að Hólum —■ sú siðasta 1728, Steins biblía. Síðan flutti útgáfan til Kaupmannahafnar og kornu þar út 3 útgáfur. Þá var Biblíufélagið stofnað 1815 og er það elzta stai’fandi fé- lag hér á landi. Það gaf út eina útgáfu 1841 og endurprentun hennar 1859. Síðan hefur bi’ezka og erlenda biblíufélagið -kostað útgáfu íslenzku biblíunnar allt þar til að hin nýja bibíía kemur út nú. Er hún pi’entuð eftir sömu leturplötum og áður, sem bi'ezka félagið seldi hinu íslenzka mjög vægu verði. Hin nýja biblía er í stóru broti, bundin í rautt og svart rexin- band, mjög vandað og útlit allt hið fegursta, þi’ykktur eða gyllt- ur kross íraman- á bókinni og kjölui’inn gylltur. Halldór Pétui’sson hefur gei’t hlífðarkápu með ýmsum helgi- táknum. Prentuð er biblían í pVentsmiðjunni Odda. Söluverð hennar er 145 kr„ sem er kostn- aðai’verð. Að lokum biður stjórn Hins E&l. bibliufélags blaðið að flytja öllum stuðningsmönnum félags- ins beztu þakkir fyi’ir ómetan- legan styðning. Víðsklptaskráia : komin út. ' Viðskiptaskráin á þessu áii tír nýlega komin út. Þetta er 20. ^ árgangur Siennar. „Á þessu ári,“ segir í for- mála, „hefir hún stækkað jafnt ■ og þétt. Fyrsti árgangurinn var rúmar 250 síður, en þessi er í’öskar 1050 síðúr, og gefa þær tölur þó ekki rétta hugmynd um stækkunina, því að letrið á bókinni hefir smátt og smátt vei’ið smækkað. Mun láta nærri ^ að efni hennar hafi sexfaldast á þessum 20 árum“, Margvíslegar upplýsingar er að finna í bókinni. Útgefendur upplýsa að þar séu skráð um 7500 nófn fyrirtækja, einstak- linga og félaga í Reykjavík og 46 kaupstöðum og kauptúnum Þrifnaður og menning. Vel menntar þjóðir leggja mikla áherzlu á þrifnað. Þrifn- aður kann að vísu að vera á lágu stigi enn meðal alþýðu manna í ýmsum löndum, þótt þær eigi menntaðar stéttir, en það sem hér er átt við er það, að þar sem alþýðumenning er kornin á hátt stig, og allar stétt- ir þjóðfélagsins hafa menntast og mannast, þar er þi’ifnaður í hávegum hafð.ur. Með vaxandi fi’amförum, vatnsleiðslum i hús, aðstöðu til heimilisbaða o. s. frv„ hafa skilyi’ðin stói’batnað í menningai’löndunum. Barátta við illar venjur. Nú þurfa læknar ekki að vei’a þess stöðugt hvetjandi, að menn leggi niður leiða og hættulega ávana, svo sem að hrækja á gólf og gangstéttir. Hrækingar voru blátt áfram ávani fjölda fólks fyrrum, ávani, sem að mestu hefur lagst niður. Harða baráttu vax’ð að heyja til úti’ým- ingar lúsinni, og mér er nær að ætla, að lokasigurinn þar sé ekki unninn. En yfirleitt hefur mjög færst í í’étta átt á flestum svið- um hér á landi sem öðrum menn- ingai’löndum, að þvi er þetta vai’ðar. Þrifnaður hefur mjög aukist, einkanlega er fólk þrifn- ai’a með sjálft sig og heimilin eru þrifalegri. — Hinsvegar skortir enn allviða mjög á þi’ifn- að í fiósum á sumum sveita- heimilum og við meðferð mjólk- ur. •ssi TÁi Óþrifnaður utan húss. En það skortir mjög á, að þrifnaður utan húss sé kominn almennt í sæmilegt horf. Mætti max’gt til tína því til sönnunnar, þótt eigi verði gei’t að sinni, heldur að eins, af gefnu tilefni, vakin athygli á þeim íádæma ó- þi’ifnaði, að henda sorpi og öðrum úrgangi í ár, en slikt er ( bannað í lögum. Samkvæmt upp- lýsingum frá veiðimálastjóra ber 1 nú meii’a á því en áðui’, að soi’pi ” og öðrum úi’gangi sé fleygt ís ái’. Er slíkt til vansæmdar frá þrifnaðar sjónai’miði og með til- f liti til veiði. j * 1 1 Ófagurt ðæmi. Ófagurt dæmi um slíkan ó- þrifnað má sjá í Vífilsstaðalækn- um við þjóðveginn milli Reykja-'1 víkur og Hafnarfjarðar. Sam-1 kvæmt vatnalögunum er bannað :* að losa sig við úrgang í vötn j og eru menn, sem það gei'a ekki .) að eins að brjóta almennt vel-. sæmi, heldur og einnig lanslög. utan Reykjavíkur og fylgja- hvgrju nafni upplýsingar unx’ atvinnurekstur, stjórnir félaga' og tilgang. Þá eru sex uppdrætt- ’ ir í bókinni, stórir uppdrættir af Reykjavík, Kópavogi og Ak-' ureyri í 4 litum með áteiknuð-' um götunöfnum, opinberum' byggingum o. fl„ loftmynd af; Akranesi, uppdráttur af Hafn- : arfirði, íslandskort og Vitakort.: Fasteignamat fyrir Reykja-* vík, Akureyri og Hafnarfjörð ‘ er þar einnig, svo og skipastóll* íslands, þar sem skráð eru öll x skip, 12 rúmlestir og stærri, og' greint frá efniviði, smiðaári," stærð, vélartegund, vélarstærð > og eigendum. Meginkafli bókarinnar ei’ < Varnings- og starfsskrá. Þar ei’u nöfn allra verzlana, fyrir-■ tækja og einstaklinga raðað eftir starfrófs- og vöruflokkum í stafrófsröð. _j

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.