Vísir - 09.10.1957, Page 7

Vísir - 09.10.1957, Page 7
VlSIR 7. Miðvikudaginn 9. október 1957 —M——-------- ■ ■- í§lenzka hestíiiinti fundixi ný verksvið og lönd. til þess að kaupa og fara út með um 6Ö hesta til viðbótar. Það getur orðið miklu meira, þegar líður á veturinn, en um það er ekki hægt að segja að sinni. 1 framhaldsgrein er sagt frá' því, sem gert hefur verið til afii. kynna íslenzka hestinn i Þýzka- landi. j ______♦ ______ Rætt vi5 Gunnar Bjarnason m samstarf Skotans Stuarts Mcintosh og Skúla ijarnas. .Ifráös&B' esSesssíéis faestannei be&'st tit Gæðingsefni. komið af stað í Skotlandi út- breiðslustarfsemi (ponytekking) frá gistihúsi i Pentland I-Iills við Edinborg. Þegar ég fór hérna um árið (1954) með átta tamda reiðhesta „í ferðatöskunni" til Skotlands til að kynna kosti og einkenni íslenzkra reiðhesta, þá var þessi maður mér innan handar, enda haíði hann áður verið sumarlangt á Hvanneyri. Hann fylgdist vel með viðskipt- um mínum við skozku hesta- mennina, sem urðu allsöguleg, og hann fékk þá mikla löngun til að hefja samkeppni við brezku hestakynin (pony-kynin). Ég seldi honum því 2 hesta og 2 hnakka á vægu verði, áður en ég fór frá Bretlandi, og liélt með 5 af hestunum til Bonn í Þýzka- landi. ; Eftirspurn getur orðið gifurleg. Þegar svona nýjungar eru á ferðinni, sem- varða sport og skemmtanir, er ógerlegt að segja um hver viðbrögð fólksins verða. Eftirspurn eft'ir íslenkum hestum kann að verða svo gífur- leg, að við getum alls ekki annað eftirspurninni, og þá verður hlut- verk okkar íslendinga aðallega að framleiða kynbótagripi. Svo getur lika vel verið að unnendur íslenzkra hesta verði tiltölulega fáir og sala úr landi skipti að- eins fáum hundruðum á ári, eða nokkrum tugum. Framtíðin mun skera úr þessu“. Iíom sér. upp eigin stofni. Stuart hafði safnað sér nokkru fé og m. a. unnið sér inn nokkuð fé hér á landi til þess að koma sér upp eigin stofni. Myndaði hann svó s.l. vetur félagsskap itm málið við Skúla Kristinsson frá Svignaskarði í Borgarfirði, sem tók búfræðikandidatspróf írá Hvanneyri s.l. vor. Þeir fé- iagar lentu í miklum vandræð- um og samningsrofum við gisti- húsið, vegna sjómannaverkfalls- ins, því að þeir höfðu skuld- bundið sig til að vera komnir með hestana 10 júní, og hvert ,,pláss“ í gistihúsinu fullsetið af fólki, sem hafði keypt sér viku- útreiðar á íslenzkum hestum. Þetta var þó leyst með leigu hestum. Keynslan fram úr öllum vonum. Svo komust hestarnir loks út. Skúli reið daglega með 23 reiðmönnirm, köiium og konum, og reynslan varð svo góð, að það fór langt fram úr öllum vonum okkar, og hróður hest- anna barst mjög út og blöð- in skrífuðu mikið um þessa sérkennilegu hesta, sem voru svo þægilegir ásetu, að fólk gat riðið þeim án þess að þreytast. 60 hestar keyptir til viðbótar. Fleiri gistihús snéru sér til þeirra félaga um að fá. leigða hjá þeim íslenzka reiðnesta, og er Skúli nú kominn heim aftur Stiörnubíó: Milli tveggja elda. Kaffibrennsfa 0. lohnson & Kaaber h.f. j Mörgum lesendum Arísis mun það kunnugt, að nokkuð hefir verið unnið að því á vegum Bvin- aðarfélags íslands, að finna ís- lenzka Iiestinum verksvið ineðal annarra þjóða. Islenzka þjóðin er tengd órofa böndum við hestana, hraust- asta bústofn landsins, sérstæða að gerð. Frá upphafi landsins byggðar hefur hesturinn verið þarfasti þjónn hennar, eins og oft var að orði kveðið. Tímarnir eru breyttir, vélöld gengin í garð hér sem annarsstaðar, og hestanna minni þörf, en allt er óbreytt um tengslin milli manns og hests, og enn eru hestarnir í miklum metum hjá þjóðinni, og vonandi verður svo ávallt. Góðs viti. Þótt hestanna sé minni þörf en áður á vélöldinni, er þeirra þó ávallt mikil þörf. Hyggnir bændur eiga jafnan einn eða fleiri góða vagnhesta og bæði i sveitum og bæjum fjölgar þeim, sem vilja eiga hest, sér til yndis og ánægju. Starf hestamannaíé- laganna í þessu efni hefur mjög glætt þann áhuga. Reykviking- um er vel kunn starfsemi Fáks en mörg hestamannafélög eru starfandi út um landið, og víða, einkum um helgar, getur að líta hópa ríðandi fólks, sem finnur sér bezta hvíld og yndi í því, að koma á hestbak. I þessum hópum er unga fólkið fjölmenn- ast og það er gott til þess að hugsa, að æskan kann að meta hestana. Það er góðs viti. Hrossaeignin. Hrossaeign landsmanna hefur jafnan verið mikil, og er það enn í dag, og um hana mætti ræða frá mörgum hliðum, þót-t eigi verði hér gert. En minna má á, að um alllangt skeið átti sér stað allmikill útílutningur hesta. Var eftirspurn eftir þeim meðal smá- bænda erlendis, til notkunar i námum, og til fleiri nota. Sá út- flutningur er úr sögunni. En á síðari árum hefur átt sér stað dálítill útfluíningur valdra hesta, og hafa þeir vakið mikla aðdáun og athygli í landinu. Allir þeir hestar, sem þannig eru seldir úr landi, fara í góðra og hæfra manna hendur, og er það vel. Brautryffjendastarf Gunnars Bjarnasonar. Vísi er það vel kunnugt, að margir lesendur hans vilja gjarn- an fylgjast sem bezt með því, sem gert hefur verið til að finna hestinum ný verksvið og ný lönd, og hefur því einn af tiðinda- mönnum blaðsins snúið sér til Gunnars Bjamasonar, hross- ræktarráðunautar Búnaðarfé- lags íslands, og lagt fyrir hann nokkrar spurningar, sem hann hefur góðfúslega svarað. G. B. hefir, eins og landsmönnum er vel kunnugí, þjónað þessu verk- efni sínu af miklum áhuga,. af lífi og sál má vel segja. Hann lióf starf sitt hjá B. I. árið 1940. Á þeim tíma, sem síðan er lið- inn, hefur hið gamla verksvið hestsins að miklu' leyti horfið. Sennilega heíðu einhverjir lagt árar í bát í sporuin G. B., en hann virðist vera óþreytandi, að reyna nýjar leiðir og fiima hest- inum ný verksvið, og ný lönd, svo sem fyrr var til orða tekið, og segja má með sanni, að Bún- aðarféla Islands hefir fylgt hon- um og stutt i starfi af áræði og bjartsýni,- Fara hér á eftir spumingar tíðindamannsins og svör Gunn- ars við þeim. tjtbreiðslusíarfsemi í Skotlamli. „Voru éltki gerðar tilraunir með að leigja út íslenzka reið- hesta erléndis í sumar“. „Jú, bæði i Þýzkalandi og Skotlandi, og hvor tilraunin um sig á sér :nokkra sögu. Skozkur dýrajæknir, Stuart Mclntosli að nafni, vel kunnur hér á landi fyrir ferðalög og dýralæknis- störf, hefir að áeggjan minni Góðhesturinn á myndinni heitir Hreinrt pg híaut fyrstu verð- laun á Iandsmóti hestamanna á Þingvöitym. Það er Páll Sig- wrðsson í Fomahvammi, sem situr þennpn „glæsilegasta hest v. íslandi“, cn á myndinni sést einnig verðlaunabikarinn mikli. Stjörnubíó sýnir þessa dagairv nokkurs konar sakainálamymí, sem ekki aðeins er spennandi frá, upphafi til loka heldur er liún og bráðfyndin á köflum, sum tilt- svör Ginger Rogers eru hreinav perlur. Annare fer Ginger Rogers sé:- • staklega skemmtilega með þetta,, hlutverk sitt og þá má ekki gleyma hinum góða skapgeröar- leikai’a Edward G. Robinson. Ný- leguf leikari, Brian Keith \ þarna og stórt hlutverk. Hanni minnir mjög á leikarann sálaða. Van Heflin bæði i leik og útliti. Eg vil ekki minnast nánar á efni myndarinnar því enginii, verður svikinn á að sjá hana med eigin augum. Hins vegar vil ég' minnast litillega á efnisskrá myndarinnar. Það virðist oftasi: svo, að þeir sem semja eínis- skrár fyrir flest kvikmyndahús- anna, annaðhvort sjá myndirnaf hreinlega ekki eða skilja þá eklit málið, sem talað er ef þeir þá, sjá myndirnar, svo fjarstæðn-. kennd eru stundum skrif þau ev meiri hluta kvikmyndagesta ei'■ fengin í hendur til að fylgjasi: með efninu. I efnisskrá umrædd- ar myndar segir m. a. „Frú ft

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.